Morgunblaðið - 09.07.1977, Síða 39

Morgunblaðið - 09.07.1977, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULl 1977 39 HÖRÐ BARÁTTA NICKLAUS OG WATSONS í BRETLANDI „Stórmeistarar" golffþróttar- innar, þeir Jack Nicklaus og Tom Watson, báðir frá Bandarlkjun- um fóru á kostum f „British open“ golfkeppninni f gær. Sýndu þeir báðir stórkostiega hæfni og hafa nú tekið forystu f keppninni. 1 dag er lokadagur hennar, og má þá búast við að enn hitni f holun- um, og að mati þeirra frétta- manna, sem fylgzt hafa með mót- inu, er óhugsandi að spá hvor þeirra sigri — hins vegar virðast allir sammála um að slagurinn muni standa milli þeirra, þótt næstu menn séu reyndar skammt undan. Öþekktur bandarfskur golfleik- ari, Roger Maltbie, tók óvænt for- ystu í keppninni f fyrradag og lék þá á 63 höggum, sem er bezti árangur, sem náðst hefur á hring i þessari keppni. Hafði Maltbie leikið á 137 höggum, var svo í öðru sæti með 139 högg, ásamt Jack Nicklaus, Tom Watson og Lee Trevino. I gær kepptu þeir Watson og Niclaus saman og var um hreint einvígi að ræða hjá þeim. Báðir léku stórkostlega vel og fylgdust að keppnina út. Komu þeir inn á 65 höggum og hafa því samtals slegið 203 högg þegar þrem f jórðu hlutum keppninnar er lokið. Ben Jack Nicklaus hugar að stöðunni. Hann og Watson fóru á kostum f keppninni f gær. Grenshaw, sem var i 10.—12. sæti eftir tvo fyrstu dagana, lék líka frábærlega vel í gær, eða á 66 höggum, og er nú i þriðja sæti. Lee Trevino og Maltbie gekk hins vegar ekki eins vel og áður og léku þeir báðir á 72 höggum og misstu sennilega þar með mögu- leikana á því að blanda sér alvar- lega í baráttuna. „Við Watson stefnum báðir að þvi að gera þessa keppni að sýn- ingu eins manns,“ sagði Niclaus eftir keppnina i gærkvöld, — en við breyttum áformum okkar og gerðum hana að einvígi. Slik keppni er einmitt það sem við höfum báðir haft hvað mest gaman af síðustu fimmtán árin.“ Þeir Nicklaus og Watson munu einnig leika saman i dag, á loka- degi keppninnar, og er búizt við gifurlegum fjölda áhorfenda, til þess að fylgjast með þeim. Nicklaus keppir nú að sinum þriðja brezka meistaratitli og Watson að sínum öðrum. Staða efstu manna í gærkvöldi var sem hér segir: 203 — Jack Nicklaus og Tom Watson 206 — Ben Crenshaw 209 — Tommy Horton, Gaylord Burrows, Roger Maltibe 210 — Johnny Miller, Lee Trevino ■211 — Ray Floyd 212 — George Burns, Hubert Green. Andretti vann í Frakklandi en Lauda er með flest stig MIKIÐ var að það skyldi haf- ast, voru ummælin sem Banda- rikjamaðurinn Mario Andretti viðhafði er hann steig út úr Lotus- bifreið sinni að loknum Grand- Prix kappakstrinum í Dijon í Frakklandi um síðustu helgi, en þar vann hann öruggan sigur. Andretti hefur sigrað bæði f bandariska og spánska Grand- Prix kappakstrinum í ár, og virð- ist mjög líklegur til að blanda sér i baráttuna um heimsmeistaratit- ilinn. Væri staða hans í keppninni önnur og betri hefði hann ekki orðið fyrir þvi óhappi á dögunum að bifreið hans varð benzínlaus þegar tveir hringir voru eftir í sænsku Grand-Prix keppninni, en þá hafði hann náð mjög góðri forystu og virðist ætla að verða yfirburðasigurvegari. Andretti byrjaði ekki vel í keppninni í Dijon, en þegar á leið fór hann fram úr hverjum keppi- naut sínum af öðrum og sýndi mikið öryggi og leikni. Setti hann nýtt brautarmet er hann náði 189 km. meðalhraða á einum hringn- um, en meðalhraði hans í kapp- akstrinum var 183.006 km . pr. klst. Annar i keppninni f Frakklandi varð John Watson frá Englandi, sem ekur Alfa Romeo bifreið, þriðji varð heimsmeistarinn Jam- es Hunt frá Englandi á McLaren- bifreið, fjórði varð Gunnar Nils- son frá Sviþjóð sem ekur Lotus- bifreið, fimmti varð hinn kunni kappakstursgarpur frá Austur- ríki, Niki Lauda, á Ferrari og sjötti varð Carlos Reutemann frá Argentinu á Ferraribifreið. Stigin eftir níu mót eru nú þannig að Niki Lauda hefur for- ystuna og hefur hlotið 33 stig, Mario Andretti er i öðru sæti með 32 stig, Jody Schekter, S-Afrfku, er í þriðja sæti, einnig með 32 stig, Carlos Reutémenn frá Ar- gentínu hefur 28 stig, Gunnar Nilsson frá Sviþjóð 17 stig, Jochen Mass, V-Þýzkalandi, 14 stig, James Hunt, Englandi, 13 stig, Patrick Depaller, Frakk- landi, 10 stig. Andretti á Lotusbifreið sinnf. Milan bikarmeistari ÍTÖLSKU bikarkeppninni f knattspyrnu lauk nú f vik- unni. Léku AC Milan og Inter í úrslitum, en þessi MEISTARAMOTIN MEISTARAMÓT fslands I sveina , drengja,- meyja- og stúlkna-flokkum (15—18 ára) I frjólsum iþróttum fer fram í Akranesi 16. og 17. júli n.k. Hefst keppnin kl. 14.00 á laugardag. Keppni i 100 metra grindahlaupi og stangarstökki fer siðar fram i Reykjavík. Þátttökutilkynningar þurfa að ber- ast til Ólafs ÞórSarssonar i sima 1750 og 2264, eSa Ingólfs Steindórssonar i sima 2202 og 1320 Akranesi, fyrir 13. júli n.k. Meistaramót fslands i stráka-. stelpna-. pilta- og telpnaflokkum (14 ára og yngri) fer svo fram á Selfossi um sömu helgi, 16.—17. júlí. Hefst mótiS báða dagana kl. 14.00. Þátttökutilkynningar, ásamt 50 kr. þátttökugjaldi fyrir hverja grein, berist fyrir 13. júli til skrifstofu HSK, Eyrarvegi 15, simi 99-1189 (4—6 virka daga) e8a til skrifstofu FRf i Laugardal. lið hafa nokkrum sinnum áður mætzt f úrslitaleik bikarkeppninnar á ttalfu. Gffurlegur mannfjöldi fylgdist með leiknum, og var allan tímann mikil ókyrrð á áhorfendapöllun- um. Mátti fjölmennt lögreglulið hafa sig allt við til þess að hafa hemil á ólátaseggjunum. Inter sótti meira í byrjun leiks- ins, en vörn AC Milan stóðst öll áhlaupin. Hafði ekkert mark ver- ið skorað i hálfleik. í seinni hálf- leiknum tók Milan svo að sækja í sig veðrið og á 64. mfnútu skoraði Maldera stórkostlega fallegt mark. Skaut hann frá vítateigs- línu og var skot hans algjörlega óverjandi. Nokkrum sekúndum fyrir leikslok bætti svo Braglia öðru marki við, eftir mistök i vörn Inter-liðsins. Námskeið í frjálsum íþróttum Hefst mánudaginn 1 1. júlí á Melavellinum. 1 2 ára og eldri kl. 1 6.00 1 6 ára og eldri kl. 1 7.00 Námskeiðið stendur næstu þrjár vikur, á sama stað og tíma, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Þátttökugjald kr. 1 500.- Þjálfari: STEFÁN HALLGRÍMSSON. Frjálsíþróttadeild K.R. Hótel Akranes Radsódía skemmtir Allar veitingar. Fjörið verður á hótelinu í kvöld. Hótel Akranes. Dansleikur íÁrnesi íkvö/d Hinir geysivinsælu Logar leika Sætaferðir frá B.S.Í., Hveragerði, Þorlákshöfn og Selfossi. SKIPHOLL SUNNUDAGSKVÖLD Húsið opnað kl. 7 BorSapantanir i síma 52502 Matarverð kr. 1.850.— Knattspyrnudeild Hauka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.