Morgunblaðið - 14.08.1977, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 14.08.1977, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. AGUST 1977 Til sölu Enskur plastbátur 19 fet. Hydro-marin diesel vél 12 ha. Netablökk fylgir. Verð kr: 1600 þúsund. Upplýsingar í síma 83278. Félag matreiðslumanna Allsherjar atkvæðagreiðsla um nýgerða kjara- samninga matreiðslumanna á kaupskipaflotan- um, mun fara fram frá 1 7. ágúst til 15. september n.k. Skrifstofa félagsins verður opin mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14.30 til 1 7.00. Stjórn Félags Matreiðslumanna. | CATERPILLAR D4D jarðýta árgerð 1971 TD20C jarðýta með ryðkló, árgerð 1 972 JCB-3D traktorsgrafa árgerð 1971 966C hjólaskófla árgerð 1.970. ÓSKUM EFTIR VINNUVÉLUM Á SÖLUSKRÁ VÉLADEILD HEKLA HR Laugavegi 170-172, - Simi 21240 CoterpiNar, Cot, og OB eru skrósett vörumerfci Landspítalalóð Tilboð óskast í að steypa upp byggingu við sjúkrainnkeyrslu, jarðvinnu við gatnagerð og malbikun Verkinu skal skila 31. des. 1977 Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu, frá þriðjudeginum 16. ágúst 1977. Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 26. ágúst, 1 977 kl. 1 1.00f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Greinojfmvndir f * ignst Asgeirsson Hér var sjólag ennþé gott og hvorfci straumur né vindur að neinu ráði, enda hefur einn stjórnarmanna FRÍ krtakt hér I einn kynþroska þorsk. um þriggja stunda stim með stefnu á Jökulinn. „Við höldum út fyrir hraunin", sagði hann. „Það litur svo sem ágætlega út núna með veðrið, en það þarf ekki nema smá vind og hreyfing að norðan svo að fiskurinn hverfi. Það er eins og bugtin tæmist allt- af ef hann blæs svolitið af norð- an“, bætti hann við. Meiri friðun þarf Talið barst fljótt að fiskveiðum almennt og verndunarmálum. Sagðist skipstjóri telja ástandið í sjónum við landið jafnvel verra heldur en fiskifræðingar teldu, þó svo að margir teldu þá óhóf- lega svartsýna. „Það þarf að friða miklu meira. Það þarf strangari ráðstafanir, en það er beygur í ráðamönnum að setja slíkt á, enda kosningar á næsta leyti. Sjónar- miðin eru að vísu mörg í þessum málum, og víst er að harðar að- gerðir koma niður á okkur um tíma. En það þarf samt eitthvert skipulag á alla vitleysuna", sagði skipstjóri ferðarinnar. Það var mikið skeggrætt þarna í brúnni. Eftir Ianga siglingu var dýptarmælir settur I gang og í og bngtín tæmist ef hann blæs af norðan” Þeir voru flestir með stfrurnar f augunum, sæfararnir, sem mættir voru niðri á Grandagarði um fimmleytið morgun einn fyrir skömmu. Fæstir voru vanir að rfsa svo árla úr rekkju, enda stunda þeir önnur störf en sjó- mennsku. En nú skildi breytt út af venju, og f stað þess að setjast að skrifborði f einhverjum stein- kassanum skyldi haldið út á bugt- ina á ósköp venjulegt skak. Það var eitthvað óvenjulegt við þetta skak þó. Ekki var það að fleytan væri rúmra tvö hundruð tonna austur-þýzkur bátur, heldur var tilgangur ferðarinnar nokkuð óvenjulegur, og vægast sagt sér- stæður. Tilgangurinn var nefni- lega sá að afla fjárvana Frjáls- íþróttasambandi Islands tekna. Og til að forvitnast um þetta sér- stæða framtak slóst blm. Morgun- blaðsins með f förina. Farkosturinn var ekki dónaleg- ur og nafnið ekki af verri endan- um. Kári Sölmundarson heitir fleytan, heimahöfn þó ekki Viðey, sem fyrirennara hans forðum. Er við slepptum hafnarmynninu vatt ég mér upp i brúna og ræddi við skipstjóra ferðarinnar, en auk hans fylgdi vélstjóri með skipinu. Sagði kafteinn framundan vera Múkkinn fylgdi bétnum vel eftir . . . radarnum var reynt að sjá hvar þeir væru sem fyrr höfðu farið til fiskjar. Á dýptarmælinum mátti finna út að við vorum yfir vestara hrauninu. Þegar því sleppti tók brátt að dýpka á ný og nú fóru sæmilegar lóðningar að birtast á strimli mælisins. 1 sömu mund höfðu frjálsíþróttaáhugamennirn- ir, sem ýmist voru stjórnarmenn í F.R.I. eða aðrir áhugamenn, ný- lega gert rúllurnar klárar, en alls voru 10 handfærarúllur á bak- borðslunningunni. Það var smá- gola af vestnorðvestri og vart gat heitið að öldugangur væri, svo vel leit út með fiskirí. Einnig illa séðir fiskar „Við skulum prófa hér“, kallaói skipstjórinn út um brúarglugg- ann og stöðvaði skipið. Von bráð- ar voru allir klárir við rúllurnar og færin á leið til botns. Það leið ekki á löngu áður en fyrstu fisk- arnir voru innbyrtir, allt vænir þorskar. En fljótt fóru aö koma á færin aðrir fiskar sem menn kærðu sig ekki sérstaklega um. Var það karfi, ufsi og langa, svo að dæmi séu tekin, en sumum fannst sem gjaldkerinn úr stjórn- inni setti vel i karfann. Eftir um það bil hálftíma kom næsta skip- un úr brúargluggum. Nú skildi híft inn og báturinn færður til, því hér virtist ekki vera alltof mikið af fiski. Þannig var prófað á öðrum stöðum fram eftir degin- um. Síðar um daginn, eftir að rennt hafði verið á nokkrum stöð- um, veltu menn fyrir sér hvort ekki hefði verið réttast að vera lengur þar sem upphaflega var rennt, því þar gaf mestan fisk. En það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á. Það sem sennilegast réði minnkandi aflasæld er leið á dag- inn, eða svo sagði mér skipstjór- inn, var að alltaf ágerðist vindur- inn og straumur var orðinn mikill upp úr hádeginu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.