Morgunblaðið - 14.08.1977, Page 35

Morgunblaðið - 14.08.1977, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. AGÚST 1977 35 inn og það er sjónarsviptir að þeim, þegar þeir hverfa frá okk- ur. Hvili hann i friði. Hafi hann þökk fyrir allt. Edda. Minning: — Ciscard vill efla samstöðu Framhald af bls. 23 Sigurgeir Guðnasort, Skólavörðustíg 35 AUGLYSINGATEIKNISTOFA MYNDAMÓTA Adalstræti 6 sími 25810 Fæddur 14. október 1896 Dáinn 7. ágúst 1977 Margs er að minnast og fyrir margt er að þakka, þegar góðir vinir eru kvaddir hinzta sinni. Slikur vinur er kvaddur hér i dag. Ekki er á þvi vafi, að margir eru þakkiátir fyrir kynni sín af hon- um. Sigurgeir Guðnason eða Geiri frændi eins og hann var kallaður af fiestum í fjölskyldunni, jafnt stórum sem smáum, var góður vinur og góður maður, sem átti að baki langa ævi, þar sem starfið var sett ofar öllu. Trúmennska í starfi og litlar kröfur tii lifsgæða, einkenndu þennan mann helzt. Það gæti verið mörgum lærdóms- ríkt að þekkja slíkt af eigin raun. Kynni min af Geira frænda voru ekki ýkja löng, og oft hefur það hvarflað að mér, að gaman hefði verið að þekkja hann á sínum yngri árum. Ég heyrði því fleygt oftar en einu sinni, að hann hafi verið söngmaður góður, léttur í lund og haft mikið yndi af tónlist. Það er ekki langt síðan við áttum tal saman, einmitt um þetta. Geiri lýsti því fyrir okkur af mikilli innlifun, þegar hann, sem ungur sjómaður sigldi á erlendar hafnir og kom með „grammafón" heim til Islands, og nokkrar hljómplöt- ur með söngvaranum Caruso. En á þessum árum þurfti nú víst að hugsa um aðra og þýðingarmeiri hluti, þ.e. að hafa i sig og á, og hrædd er ég um að „grammafónn- inn“ og Caruso, hafi orðið að þoka fyrir einhverju, sem meira gagn þótti að í þá daga. Ævi og upp- vaxtarár Sigurgeirs Guðnasonar treysti ég mér ekki til að rekja svo vel sé, þar sem mér er það ekki nógu kunnugt. En það er óhætt að fullyrða, að hann var af góðu fólki kominn. Atvinnu stundaði hann bæði til sjós og lands og nú á síðustu árum vann hann hjá Máli og Menningu og kynntist þar mjög góðu fólki sem hann batzt tryggðarböndum. Tryggð og trúmennska eru miklir mannlegir kostir. Kosti þessa eiga margir. Og þó sérstak- lega þeir, sem lifað hafa langa ævi. Geiri frændi var mjög trygg- ur. A sunnudögum birtist hann oftast. Þá hafði hann ekið langa leið með strætisvagninum og sið- an gengið siðasta spölinn, til þess að lita á frændfólk sitt. Og þá var nú heldur hýrt yfir smáfólkinu, því alltaf var poki dreginn upp úr vasanum með einhverjum smá- giaðningi í. Allt fram til siðasta dags, mátti sjá Geira frænda á reiðhjóli sínu á Skólavörðustign- um og þar í nágrenninu, og ekki leika það vist margir eftir á ní- ræðisaldri en á Skólavörðustig 35 bjó Sigurgeir í næstum hálfa öld. Slikir menn setja svip sinn á bæ- laginu, og þeir eru bersýnilega staðráðnir í þvi að draga úr áhrifum Efnahagsbandalagsins á allt það, sem að hernaðarmál- efnum lýtur. Þjóðverjum og Frökkum hef- ur gramizt, hvernig Banda- rikjamenn hafa reynt að stemma stigu við þróun vopna- búnaðar í Evrópu, svo og fram- förum í kjarnorkuiðnaði. Frakklandsforseti hefur hótað þvi, að Frakkar grípi til að- gerða gegn Bandaríkjamönn- um, ef endanleg ákvörðun verð- ur tekin um að neita Concorde þotunni um lendingarleyfi í New York. Bendir það til þess að Frakkar hafi miklar áhyggj- ur af þvi að jafnvel í innan- ríkismálum skorti Carter ein- urð og festu. Verð fjarverandi Vegna sumarleyfis 1 5. — 30. ágúst. n.k. Brynjólfur Kjartansson hdl, Skólavörðustíg 12, Reykjavík. Lokað á mánudag frá kl. 2 e.h. vegna jarðarfarar, SIGURGEIRS GUÐNASONAR, Helgi Sigurðsson úrsmiSur, SkólavörSustíg 3.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.