Morgunblaðið - 14.08.1977, Síða 44

Morgunblaðið - 14.08.1977, Síða 44
Al’íiLÝSINC;ASI.MINN ER: 22480 SUNNUDAGUR 14. ÁGtJST 1977 Demantur M- æðstur eðalsteina (PttU Sc é>ilfttr Laugavegi 35_____ 162 hval- ir áland Hvalveiði gengur enn erf- iðlega, en mjög miklar þok- ur hafa í sumar verið á miðunum vestur af land- inu, það svo að sjómennirn- ir hafa vart séð fram yfir stafn skipanna. I gær voru 162 hvalir komnir á land hjá hvalstöðinni í Hval- firði. 112 voru langreyður, 45 búrhvalir hafa veiðzt og nú eru hvalbátarnir einnig farnir að fá sandreyði, en hún kemur yfirleitt að landinu síðla sumars og í gær höfðu veiðzt 5. Cargolux íhugar kaupá breiðþotu STJÓRN Carxolux kom saman til fundar í Stokkhólmi á föstudaK og í gær. t viðtali vid tímaritið Flight International segir Einar Olafsson, framkvæmdastjóri Cargolux að hann reikni með að árið 1980 hafi Cargolux tekið í sína þjónustu stærri flugvélar en DC-8-63F, sem það á nú ásamt vélum af gerðinni CL-44 Rolls Royce. Mbl. hafði í gær samband við Ölaf Friðfinnsson, stöðvarstjóra Flugleiða i Stokkhólmi, og spurði hann hvort ákvörðun hefði verið tekin á stjórnarfundinum um kaup á breiðþotu, hugsanlega Jumbo. Ólafur sagði að þessi mál hefðu verið rædd á fundinum, en ákvarðanatöku var frestað um óákveðinn tíma. Þessi mynd af súlubyggðinni f Eldey var tekin fyrir skömmu, þegar sumarbúskapur drottningar Atlants- hafsins var f hámarki, en nú er súluunginn farinn að fljúga úr hreiðrinu. Um 20 þús. súluhjón búa í Eldey, stærstu súlubyggð í heimi, og er byggðin svo þétt ofan á eynni að víða standa stél súlunnar af brúnum og kögra eyjuna. Á myndinni sést vel hve þétt súlubyggðin er ofan á eynni, en hæðin frá brún niður f sjó, þar sem brim brotnar, er um 100 metrar, Ljósmynd Mbl. Arni Johnsen. 48% hækkun álagðra gjalda í Siglufirði ÓSKAR Jónsson læknir á Sauðár- króki virðist ætla að verða skatta- kóngurinn ( Norðurlandi vestra að þessu sinni, en hann á að greiða samtals 2.237.559 kr. í tekjuskatt og útsvar á þessu ári. Af cinstökum félögum greiða Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði mest 6.412.600 kr. og er það allt aðstöðugjald. Skattskráin f Norðurlandi vestra var lögð fram á föstudag í stærstu kaupstöðunum og kaup- túnunum þ.c. Siglufirði, Sauðár- króki, Blönduósi og Skagaströnd. t minni sveitarfélögunum verður skráin lögð fram n.k. miðvikudag að því er Ragnar Jóhannesson skattstjóri í Siglufirði tjáði Morgunhlaðinu í gær. Frá því í fyrra hafa álögð gjöld hækkað langmest í Siglufirði eða um 48%. Alls eru álögð gjöld þar nú kr. 359.456.012, en voru á síð- asta ári kr. 242.274.232. A Sauðár- króki hækka álögð gjöld um 26%, úr kr. 219.564.375 i kr. 276.914.466. I Siglufirði greiðir Hjalti Björnsson skipstjóri hæst gjöld einstaklinga kr. 2.158.200, þar af eru 1.526.000 tekjuskattur og út- svar er 632.200. Annar i röðinni eru Jóhannes Gunnarsson héraðs- læknir sem greiðir kr. 2.120.387, kr. 1.447.587 i tekjuskatt og 672.800 kr. í útsvar. Af einstökum félögum í Siglu- firði greiðir Bútur h.f. hæstan Framhald á bls. 43. By gging600 m2 flugstödvar ad hefjast í Ey jum Flugturn f ullbyggdur á árinu og lokið við lýsingu flugbr auta BYGGING flugstöðvar í Vest- mannaeyjum á vegum Flugmála- stjórnar hefst í byrjun næsta mánaðar, en stöðin verður milli 500 og 600 fermetrar að stærð. Stöðin verður byggð í Djúpadal, steinsnar frá gamla flugstöðvar- húsinu sem er um 40 fm. að stærð. Reiknað er með að flug- stöðin verði fokheld um næstu áramót og að smíði Ijúki til fulls á næsta ári. Vestmannaeyjastöðin verður heldur minni en flugstöð- in á Akureyri, en stærri en stöðv- arnar á Isafirði og Kgilsstöðum. 1 flugstöðvarbyggingunni verð- ur öll almenn flugafgreiðsla, veit- ingaaðstaða og vörugeymsla. Ver- ið er að ganga frá útboðsgögnum Framhald á bls. 43. Tal flugræningjans bar med sér ad hann var mjög æstur „ÉG var nýbúinn að skipta um fjarksipta- tíðni, þegar ég heyrði einhvern blaðra á ensku æstri röddu og meðal annars heyrði ég hann biðja um að honum yrðu afhentir allir egypzkir passar. Þá fór ég nú að leggja við hlustirnar, en í því kom önnur rödd, sem reyndist vera flugstjór- ans á Air Franee vélinni, og tilkynnti að það væri flugvélarræningi um borð og að hann vildi fara til Benghasi. Flugturn- inn í Róm bauð flugstjór- anum þá að mæla á móð- urmáli sínu, frönskunni og þannig komst flug- stjórinn minn í það að bera skilaboð á milli og staðfesta að flugturninn skildi rétt, en hann er franskur," sagöi Lárus Kvaran, flugmaður hjá Cargolux, í samtali við Mbl. í gær, en Lárus var aðstoðarflugmaður á þeirri flugvél Cargolux, sem kom við sögu flug- ránsins á föstudag, ,,Við vorum staddir vestur af Napólí", sagði Lárus. „Þetta hefur verið um fimmleytið á föstudag að íslenzkum tíma og við á leið til Luxemburg frá Saudi-Arabiu. Ég minntist þess svo að skömmu áður en ég heyrði til flugvélarræningjans hafði ég séð til annarrar flug- vélar, sem hlýtur að hafa verið þessi vél frá Air France. Það sem ég heyrði til ræn- ingjans bar með sér að hann væri mjög æstur, en hins vegar heyrðist mér af rödd flugstjór- ans að hann héldi ró sinni, enda þótt ég skildi hann ekki eftir að hann tók að mæla á móðurmáli sínu. Ekki heyrði ég nein mót- mæli í flugræningjanum við því að franska yrði töluð svo hann hefur sennilega verið fullfær í þvi tungumáli. En við vorum ósköp suttt inn í þessu, því við urðum að halda áfram og vorum fljótlega komn- ir út úr þessu,“ sagði Lárus Kvaran, flugmaður hjá Cargo- lux. — segir Lárus Kvaran, adstod- arflugmaður á Cargoluxvélinni sem kom við sögu flugránsins á föstudaginn CL 44 Cargoluxvél kom við sögu flugránsins á föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.