Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐ 179. tbl. 64. árg. ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGtJST 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Noregur: Fresta undirritun fiskveiðisamkomu- lagsins við Rússa Osló. 15. ágúst — Reuter. NORSKA stjórnin hefur ákveðið að fresta undirritun fiskveiði- samnings við Sovétrfkin, þar til eftir þingkosningarnar, sem fram eiga að fara í Noregi í næsta mánuði. Það var Knut Fryden- lund, utanríkisráðherra Noregs, sem skýrði frá þessu f dag. 600 millj- ónirfyrir einvígi Fischers og Korchnois? BREZKA blaðið Times birti nú fyrir helgi frétt frá Reutersfréttastof- unni, þar sem haft er eftir sovézka skák- meistaranum Victor Korchnoi, að v-þýzkur, fjármálamaður, Wilfried Hilgert frá Porz, út- hverfi Kölnar, sé tilbú- inn til að leggja fram 3 milljónir dollara, 600 milljónir ísl. kr., í verö- launafé í einvígi milli Korchnois og Bobby Fischers, fyrrverandi heimsmeistara í skák. Segir Korchnoi í viðtali við hollenzka blaðið De Telegraf, að hann sé senn á förum til Banda- ríkjanna til viðræðna við Fischer um þetta einvígi Framhald á bls. 26 Frydenlund sagði að þetta sam- komulag, sem gert var eftir marg- ar og strangar samningalotur, væri orðið að kosningamáli, sem gæti þróazt f almennar umræður um samskipti Noregs og Sovét- rfkjanna. Utanríkisráðherrann sagði einnig að ríkisstjórnin vildi skoða samkomulagið nánar í Ijósi gagnrýni stjórnarandstöðuflokk- anna, sem sumir hafa krafizt nýrra samningaviðræðna til að ná betri samningum fyrir Norð- menn. Samkomulag þetta, sem birt var opinberlega 1. júli, sýnir glöggt að bæði Rússar og Norðmenn reyndu að þræða hinn gullna meðalveg í deilu þeirra um hver skuli hafa yfirráð yfir hinum auðugu fiski- miðum á Barentshafi. Stjórnar- andstöðuflokkarnir hafa lýst áhyggjum sínum yfir að sam- komulagið kunni að marka mið- línu á landgrunninu milli þjóð- anna, sem gefi Sovétmönnum yfirráð yfir geisivíðfeðmum haf- svæðum. Ogadendeilan: Þessi mynd var tekin skömmu fyrir sfðustu helgi f borginni Tokio Hot Springs á Hokkaidoeyju í Japan og sýnir gosmökkinn úr eldfjallinu USU, steinsnar frá borginni, sem nú er að heita má mannlaus. IATA stór- lækk- ar f ar- gjöld (ienf 15. ágúsl Reuter. IATA-flugfélög, sem fljúga á flugleiðinni New-York — London tilkynntu í kvöld stórfellda far- gjaldalækkun á þeirri flugleið í vetur f samkeppni við fluglest Freddie Lakers. A fundi IATA f Genf í dag var ákveðið að frá 15. september nk. skuli fargjaldið aðra leið New-York — London vera 146 dollarar og 256 dollarar fram og til baka. Eru þetta örlítið hærri fargjöld en hjá Lakerair, en fyrsta ferð Lakers verður 6. spetember nk. I tilkynningu IATA segir að hjá IATA-flugfélögum verði máltiðir og eðlileg þjónusta við farþega innifalin, en hægt er að kaupa mat og drykki hjá Lakerair. Það eru sex IATA-flugfélög, sem aðild eiga að þessum fargjöldum, Framhald á bls. 26 Rússar og Kínverjar seilast til áhrifa Styrjaldarástand milli Eþíópíu og Sómahu Beirút, Nairobf, Moskvu og Peking, 15. ágúst —AP — Reuter. SOVETRlKIN og Kfna virðast nú ætla að blanda sér verulega f deil- ur Eþfópfumanna og Sómalfu. Tass-fréttastofan birti á sunnu- dag opinbera yfirlýsingu, þar scm deiluaðilar voru hvattir til að hætta átökum og setjast að samningaborði, en f tilkynning- unni er óbeint látinn If Ijós stuðn- ingur við málstað Eþfópíumanna með þvf að fjalla um hið um- deilda Ogadenlandsvæði, sem yfirráðasvæði Eþfópfu. Þá hermdu áreiðanlegar fréttir f Dauðvona stríðs- glæpamaður á flótta Bonn 15. ágúst AP — Reuter. V-ÞYZKA lögreglan leitaði í kvöld stríðsglæpamannsina Herbert Kapplers, sem flúði úr sjúkrahúsi f Róm f morgun með aðstoð konu sinnar eftir hartnær 30 ára fangavist á Italíu, en hann var sekur fund- inn, við réttarhöld 1948, um að hafa fyrirskipað fjöldamorð á Herbert Keppler við réttahöldin yfir honum 1948 og mynd af konu hans, Annelise Wlater Wenger, tekin 1975. 335 óbreyttum borgurum f Róm árið 1944, er hann var yfirmað- ur þýzka sctuliðsins þar. Kappler hafði dvalizt í sjúkrahúsi undir strangri lög- regluvernd frá því i marz er hann sagðist þjást af ólæknandi krabbameini í ristli. Skv. þvi sem fréttastofufregnir hermdu í kvöld kom eiginkona Kapplers, Annalise, manni sín- um sem aðeins vegur um 50 kg, undan i ferðakofforti, sem hún einhvern veginn kom framhjá 10 lögreglumönnum og komst flóttinn ekki upp fyrr en 10 klukkustundum siðar, er kona, er sagðist vera Annalise Kappler, hringdi i þýzk yfir- völd og tilkynnti að maður sinn væri kominn til V-Þýzkalands. Mikil mótmæli urðu á ítaliu, er Kappler var fluttur úr herfangelsinu í sjúkrahúsið. Framhald á bls. 26 Beirút í dag, að Kínverjar hefðu ákveðið að hefja á ný þátttöku í baráttu stórveldanna um áhrif á Afrfkuhorni, með þvf að bjóða Sómalíustjórn hernaðaraðstoð í baráttunni við Eþfópíu. Heimildirnar í Beirút sögðu að Kínverjar hefðu fyrst lagt fram tilboð sitt í mai sl. og svo aftur nú, er ágreiningurinn um Ogaden þróaðist í bein vopnuð átök. Stjórnmálafréttaritarar segja augljóst að tilboð Kinverja miði að þvi að ögra Rússum, en ráða- menn i Kreml hafa miklar áhyggj- ur af deilunum, þar sem þeir hafa séð báðum deiluaðilum fyrir vopnum á undanförnum árum, m.a. hefur Sómalíustjórn fengið keypta skriðdreka og Mig-17 her- þotur frá Sovétríkjunum svo og Heimildirnar segja að Sómaliu- stjórn hafi ekki enn tekið afstöðu til tilboðs Kinverja, þar sem þeir eiga tilboð frá fjölda ríkja, sem vilja draga úr áhrifum Sovét- manna á þessu svæði, um ýmiss- konar „varnarvopn". I þessum hópi eru Bandaríkin, Bretland og Frakkland. Stjórnmálafréttaritar- ar benda á að það hafi verið kín- verskir ráðgjafar, sem aðstoðuðu hina nýju stjórn Eþíópíu i stefnu- mótun sinni eftir að Haile Se- lassie keisara var steypt af stóli og gerðu Kínverjar þetta til að vega gegn aðstöðu Sovétmanna i Sómaliu. Þróunin í Addis Ababa varð hins vegar sú að hinir nýju valdhafar snéru sér að Moskvulin- unni og ráku á endanum Banda- ríkjamenn i Eþíópiu úr landi, en Bandaríkin höfðu um árabil séð Framhald á bls. 26 Ástralía: 4 ára banni á úraní- umvinnslu aflétt Canberra 15. ágúst. Reuter. VESTRÆNIR st jórnmálafrétta- ritarar telja vlst aó ákvörðun Astralíustjórnar um að leyfa vinnslu og útflutning hinna gífur- legu úranfumbirgða í norður- hluta Astralfu eigi eftir að valda verulegum ágreiningi á alþjóða- sviði. Bann við vinnslu og útflutningi úraniums frá þessu svæði hefur nú staðið i 4 ár. Um 20% allra úraniumbirgða utan kommúnista- ríkjanna eru i Astraliu og talið er að ákvörðun stjórnarinnar muni einnig valda hörðum deilum í Astraliu, þar sem stjóranarand- staðan stendur sem ein heild gegn úraniumvinnslunni. Það voru embættismenn í Canberra sem skýrðu frá þessari ákvörðun i kvöld, en talsmaður Malcoms Frasers, forsætisráðherra Ástra- liu neitaði að staðfesta hvort rétt væri farið með. Gert er ráð fyrir að forsætisráðherrann skýri opin- berlega frá ákvörðun stjórnarinn- ar á þingfundi á fimmtudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.