Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 13
13 ■" ........ ................. , MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGUST 197t vinnufélagi hans er Sigurður Vésteins- son, báðir eru þeir húsasmiðir og búa á Akranesi og þegar okkur bar að voru þeir að leita að ákveðnum fleka, sem átti að passa í eitt hornið. Við spurðum Magnús, hvaða breytingu tilkoma verk- smiðjunnar hefði helzt fyrir ibúana í nágrannasveitunum? — Ég er sannfærður um að þetta hefur í för með sér mikla breytingu og þá kannski ekki sízt fyrir Akranes, því gert er ráð fyrir að starfsfólk verk- smiðjunnar búi mest á Akranesi. At- vinnumöguleikar Akurnesinga koma því til með að gjörbreytast. Ég hef ekki mikla trú á að verksmiðjan verði sá mengunarvaldur, sem talað er um. Ef dæma má af lýsingum þeirra, sem skoð- að hafa sambærilegar verksmiðjur erlendis þá eru tré og annar gróður alveg upp að verksmiðjunum þar. Mengunarvarnir eru orðnar það miklar að það á ekki að vera nein hætta á ferðum. En hvernig er Grundartangi sem vinnustaður? — Þetta er ágætur vinnustaður og hreinlega enginn munur á þvi að vinna hér eða niðri á Akranesi. Við Sigurður og nær allir sem búa niðri á Skaga eða I nærsveitunum fara til og frá staðnum kvölds og morgna. Mötuneyti er hér á staðnum og viðurgerningur allur eins og bezt verður á kosið, sagði Elias og við spurðum félaga hans, Sigurð, álits á óánægjuröddum heimamanna með verksmiðjubygginguna. — Eins og bændur hér i nágrenninu hafa sagt þá telja þeir að með verk- smiðjunni sé komin félagleg mengun i sveitina. Og vist er að nokkrir bændur eru byrjaðir að vinna hér á Grundar- tanga og hafa lagt niður búskap en aðalástæðan hlýtur þó að vera kröpp kjör bænda — þeir hafa ekki nóg kaup við búskapinn. „Helmings stækkun verksmiðjunn- ar liggur í loftinu Nú er höfnin hér á Grundartanga sjálfstætt fyrirtæki sveitarfélaganna í nágrenninu en ekki eingöngu ætlað að þjóna járnblendiverksmiðjunni. Hvaða verkefnum gæti þessi höfn sinnt? — Þessi höfn verður af þeirri stærð, að við hana má losa og lesta stærri skip en komast inn á almennar hafnir úti á landi. Hér á þvi að vera hægt að skipa upp vörum fyrir Vestur- og Norðurland og með tilkomu brúar yfir Borgarfjörð styttist enn flutninsleiðin vestur og norður. Þá tala menn um að byggja upp fleiri verksmiðjufyrirtæki hér á Grundartanga og meðal annars hefur þar verið talað um perlusteinsverk- smiðju. Að því ógleymdu að það liggur eiginlega í loflinu að járnblendiverk- smiðjan verði stækkuð um heiming strax þegar lokið verður við þann áfan- ga, sem nú er í smíðum. En hvaða áhrif kemur verksmiðjan til með að hafa á Akraneskaupstað? — Eftir því, sem okkur hefur verið sagt eiga að starfa hér um 150 manns, Mötuneyti starfsfólksins á Grundartanga er í alla staði hið notalegasta. þegar báðir ofnar verksmiðjunnar ver- ða tilbúnir og þetta fólk á ekki að búa hér á Grundartanga við verksmiðjuna heldur á Akranesi og í næstu sveitum. Niður á Akranes er um 20 mínútna akstur og það liggur alveg fyrir að flest af starfsfólkinu kemur til með að búa á Akranesi. Við höfum heyrt að Járn- blendifélagið telji sig þurfa að fá til afnota á Akranesi milli 50 til 60 íbúðir fyrir starfsfólk sitt, hvort sem þær ver- ða byggðar eða leigðar. Það gefur þvi auga leið að með þessu fjölgar fólki á Akranesi og jafnframt beinum störfum við verksmiðjuna kemur til margs kon- ar þjónusta, sem verksmiðjan og starfs- fólk hennar verður að sækja til Akra- ness. iji fyrir starfsfólkið og það væri fagn- aðarefni. Tal okkar barst að mengunar- hættu frá verksmiðjunni og við gefum Guðmundi orðið. — Sjálfsagt kemur þessi verksmiðja til með að spúa einhverri drullu frá sér en hér verða sett upp fullkomin hreinsitæki. Ég hef litla trú á þvi að það verði ekki staðið að málum eins vel og hægt er. Þetta verður víst fullkomn- asta málmblendiverksmiðja I heimin- um og þetta er fyrsta almennilega málmbræðslan hér á landi, sagði Guð- mundur. Það kom á daginn að Magnús hafði nýverið verið á ferð i Grikklandi og þá „Atvinnumöguleikar Ak- urnesinga gjörbreytast við tilkomu verksmiðjunnar“, sagði sá til vinstri á mynd- inni, Elfas Jóhannesson, og félagi hans Sigurður Vé- steinsson bætti við að „bændur í nágrenni verk- smiðjunnar legðu ekki nið- ur vinnu vegna hennar heldur þar sem þeir hefðu ekki nóg kaup við búskap- inn.“ og hafnamálastofnuninni. Við spurðum hvernig honum félli bryggjusmiðin? — Þetta er fjölbreytt starf en yfir- leitt vinnum við þrír eða fjórir saman i flokki. Annars hefur veðrið i sumar ekki verið til að hrópa húrra fyrir. Það hefur ekki verið hlaupið að þvi fyrir skólafólk að fá vinnu yfir sumarið og hvað þá að komast i vinnú þar sem hægt er að hafa einhverjar tekjur, agði Björn. Starfsmennirnir við hafnargerð- ina eru með sérstakar vinnubúðir og annað mötuneyti en aðrir starfsmenn á svæðinu og sagði Björn að aðbúnaður þeirra væri góður. Um vinnutimann sagði Björn að þeir hefðu lengst af i sumar unnið til kl. 11 á kvöldin en á morgnana er byrjað klukkan hálf átta. „Annaó hvort að hætta eða flytja með“ tslenzka járnblendifélagið flutti fyrr I sumar skrifstofur sinar úr Reykjavík og upp á Grundartanga. Er ætlunin að framvegis verði þar allar skrifstofur félagsins og starfsm enn á skrifstofum, sem aðrir starfsmenn, verði búsettir á Akranesi eða í nágrenni verksmiðjunn- ar. Nú þegar hafa tveir af forvigis- „Vantar varahreinsitæki“ — Því likt viravirki, varð ljósmynd- aranum að orði þegar okkur varð litið á járngrind, sem tveir járnamenn voru að hnýta. Ekki kemur þessi grind þó til með að blasa við augum þeirra er verk- smiðjuna skoða I framtiðinni, þvi þá verður hún hulin steypu og hlutverk hennar að styrkja veggi hráefnisgeyma verksmiðjunnar. Járnamennirnir tveir reyndust báðir vera úr Reykjavík og heita Guðmundur Guðmundsson og Magnús Magnússon. Guðmundur sagði allan aðbúnað fyrir starfsmenn á staðnum mjög góðann, svefnskálar væru til fyrirmyndar og ekki skemmdi maturinn fyrir. Nú væri einnig verið að byggja tómstundaheim- JÍL séð járnblendiverksmiðju þar. — Okk- ur var sagt að þetta væri mesti meng- unarstaður í Evrópu, enda lagði frá verksmiðjunni mikinn svartan reyk. í þessari verksmiðju voru lika lítil sem engin hreinsitæki. Ég hef ekki trú á því að eins verði staðið að málum hér og i Grikklandi. Við gerum okkur fulla grein fyrir þvi út i hvað við erum að fara en það er hins vegar eitt, að það dugar ekki að hafa hreinsitáeki, sem eru þannig að ef þau bila þá flæðir mengunin út i umhverfið. Það þurfa að vera einhver varatæki, sagði Guðmund- ur. „Veörið ekki til að hrópa húrra fyrir“ Við höfnina á Grundartanga hittum við Björn Hermannsson og aðspurður um starfsheiti sagðist hann vera bryggjusmiður. Þetta væri þó aðeins sumarstarf, á veturna væri hann við nám i Vélskólanum. Sagðist Björn hafa starfað að hafnargerð sl. tvö sumur í Njarðvikum en önnur tvö sumur hafði hann starfað við önnur störf hjá Vita- Fráleitt að líta á það sem óyfirstíganlegan þröskuld að flytja frá Reykjavík og starfa úti á landi“, sagði Hafdfs Sigurðardóttir. mönnum fyrirtækisins flutt með fjöl- skyldur sínar i nágrenni verksmiðjunn- ar, annar á Akranes og hinn i Skil mannahreppinn. Við spurðum Hafdís Sigurðardóttur, sem starfaði á skrif stofu félagsins i Reykjavik og starfar nú á Grundartanga, hvernig hún kynn. við þennan flutning? *— Ég hafði raunar ekki nema um tvennt að velja, annað hvort að hætta að vinna hjá félaginu eða flytja með því. Mér fellur ágætlega að vinna hér en enn sem komið er bý ég i Reykjavik og fer þangað um helgar. Ég er ekki með neina fjölskyldu en fyrir fjöl- skyldufólk horfir þetta kannski öðru visi við. Það hlýtur að vera eðlilegt og sjálfsagt að fleiri fyrirtæki og stofnan- ir flytji starfsemi sina út á land en þá verður að taka tillit til aukins kostnað- ar við ferðalög. Það er fráleitt að lita á það sem óyfirstiganlegan þröskuld að flytja frá Reykjavík og starfa út á landi, sagði Hafdís Sigurðardóttir að lokum og við kvöddum Grundartanga að sinni. GreinrTryggvi Gunnarsson Myndir:Ragnar Axelsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.