Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGIJST 1977
Skemmd
fóðring
í holu 7
ÞETTA er fyrsta Ijósmyndin,
sem tekin er niður í horholu á
háhitasvæði hérlendis, en
myndina tók Sigurður Harðar-
son á 97 metra dýpi í holu 7 við
Kröflu.
Ljósi hringurinn á myndinni
er endi hylkisins, sem ljós-
myndavélinni var rennt niður í,
og innan hans sést hve fóðring
holunnar hefur krumpazt, en
þvermál hennar er þarna tæpar
þrjár tommur í stað níu. Takist
að bora þessa skemmd í burtu
og lagfæra hana benda líkur til
að holan komist aftur í gagnið
og að þar með sparist ein hola,
sem nú kostar um 130 milljónir
króna að bora.
Hitinn í holunni á þessu dýpi
er um 200 gráður, en fyrir
myndatökuna var holan kæld í
12 tíma, þanníg að á því augna-
bliki, sem myndin var tekin,
var hitinn 30—40 gráður.
Jón Baldvin
Sighvatur
Prófkjör Alþýðuflokks ó Vestfjörðum:
Jón Baldvin og Sig-
hvatur í framboði
SAMKVÆMT upplýsinjí-
um, sem Mor«unbladið
hefur aflað sér, hafa a.m.k.
tveir menn ákveðið að gefa
kost á sér til prófkjörs fyr-
ir Alþýðuflokkinn á Vest-
fjörðum vegna næstu al-
þingiskosninga, en það eru
þeir Jón Baldvin Hanni-
balsson skólameistari á
tsafirði og Sighvatur
Björgvinsson alþingismað-
ur.
I gær hafði aðeins ein tilkynn-
ing um framboð borizt Ágúst H.
Péturssyni, formanni kjördæmis-
ráðs Alþýðuflokksins á Vestfjörð-
um, og var það framboð Sighvats,
en kunnugt var um annað fram-
boð á leiðinni og staðfesti sá fram-
bjóðandi, Jón Baldvin Hannibals-
son, í samtali við Mbl. í gær-
kvöldi, að hann ætlaði að taka
Benedikt Gröndal formaður Alþýðuflokksins:
Tel eðlilegt að for-
maðurinn sé í fram-
boði í Reykjavík
Morgunblaðið hafði í
gærkvöldi samband við
Benedikt Gröndal, for-
mann Alþýðuflokksins, og
spurði hvort það væri rétt
að hann hygðist gefa kost á
sér til framboðs við næstu
alþingiskosningar í
Reykjavík, en ekki á Vest-
urlandi þar sem hann er
nú þingmaður.
Benedikt kvaðst af ýmsum
ástæðum ekki hafa verið reiðubú-
inn til þess að ræða þessi mál.
Hann kvað það hins vegar ekkert
launungarmál innan Alþýðu-
flokksiqs að það væri hans skoð-
un að sem formaður Alþýðu-
flokksins ætti hann að hafa aðset-
ur i Reykjavík og vera í kjöri í
Reykjavík, en ekki umbjóðandi
fyrir kjördæmi úti á landi.
Um nöfn manna i prófkjöri í
Reykjavík kvaðst hann ekki geta
tjáð sig um, því mörg nöfn væru
nefnd, en mikil hreyfing hefði
verið á þessum málum hjá flokkn-
um, m.a. til þess að menn væru
viðbúnir ef skyndilega kæmi til
kosninga fyrir lok kjörtimabils-
Benedikt Gröndal.
Skemmdarverk á rúss-
nesku sprengimæli-
stöðinni í Námafialli
þátt í prófkjöri Alþýðuflokksins á
Vestfjörðum.
Framboðsfrestur rann út i gær-
kvöldi.
,,ÆTLI einhverjir bændurnir hafi
ekki verið að hefna fyrir sprenging
amar", sagði Stefán Sigurmundsson
hjá Orkustofnun þegar Mbl. ræddi
við hann I gær um skemmdarverk
sem unnin voru á sprengimælitækj-
um rússneskra vlsindamanna á
Námafjalli aðfaranótt mánudags.
Rússamir hafa undanfamar vikur
verið að mæla landrek íslands, sam-
Slapp lífs
úr hörku-
bflslysi
ALVARLEGT umferðarslys varð
á Skúlagötunni um hálflfuleytið í
gærkvöldi. Chevrolet fólksbifreið
kom af Kalkofnsvegi og ætlaði að
beygja inn á Skúiagötu en hún
var ð svo mikilli ferð að bifreiðar-
stjórinn missti vald á henni.
Urðu afleiðingarnar þær að bif-
reiðin skail á Fiskifélagshúsinu á
horni Skúlagötu og Ingólfsstrætis
og hafnaði á Ijósastaur á horninu.
Ökumaðurinn, sem er 54 ára gam-
all, var þegar fluttur á slysadeild,
þar sem verið var að kanna meiðs-
li hans þegar Mbl. fór í prentun.
Hann hlaut mikil meiðsl, skarst
mikið og óttazt var aó hann hefði
mjaðmagrindarbrotnað. Bifreiðin
er talin gjörónýt.
kvæmt upplýsingum Stefáns Sigur-
mundssonar, en til þess nota þeir
sprengingar þar sem sprengimagniS
er frá 5—200 kg af dynamiti I
sprengingu. i fréttum að undanförnu
hefur verið sagt frá þessum rann-
sóknum, en norðanmenn eru ekki á
einu máli um framkvæmd þessa
verks.
Sérstök mælibifreið Rússanna var
staðsett i Námafjalli aðfaranótt mánu-
dags, en þegar að var komið um morg-
uninn var búið að rífa niður og brjóta
loftnet stöðvarinnar i bllnum og alls 3
km langur móttökukapall hafði verið
margslitinn sundur með þvi að draga
hann aftan I bil Mælikapall þessi er
50 þátta kapall, 1 5 km i hvora átt
með 5 upptökufónum á 50 metra bili
eða alls 60 hljóðnemum Stefán kvað
leiðsluna hafa verið hnýtta aftan I bíl
og slðan hefði verið ekið af stað og
kapallinn margslitinn Stefán kvað vin-
nu við mælingar tefjast um vikutima
meðan verið væri að gera við skemmd-
irnar
Lögreglan kannar málið, en ekki er
vitað hverjir voru á ferðinni.
Einar ekki
íframbodá
Suðurlandi
Morgunblaðið hafði I gær sam-
band við Einar Ágústsson utan-
rlkisráðherra og innti hann eftir
þvt vegna fréttar I einu dagblað-
anna, hvort að það væri rétt að
hann hygðist bjóða sig fram fyrir
Framsóknarf lokkinn I Suður-
landskjördæmi i næstu alþingis-
kosningum, en Einar er sem
kunnugt er þingmaður fyrir
Reykjavik.
Einar kvað þetta ekki vera rétt
og auk þess væri hann ekkert
farinn að huga að framboðsmál-
um neinstaðar þvi sá timi væri
ekki kominn.
Langferða-
bíll valt
í Hvanná
ÞEIR miklu vatnavextir
sem hafa verið í ám í Þórs-
mörk að undanförnu hafa
farið heldur illa með ferða-
menn þar.
Nú siðast um helgina valt lítill
langferðabill i Hvanná á leið inn i
Þórsmörk, en hann var fullur af
erlendu ferðafólki. Fólkinu mun
fljótlega hafa verið komið til
hjálpar og flutt í skála Ferða-
félags Islands i Langadal. Þá mun
Wagoneerbifreið einnig hafa lent
í hrakningum í Krossá en ekki
sakaði fólk þar frekar en í lang-
ferðabílnum.
Það er því ástæða til að vara
fölk við því að fara í Þórsmörk
þessa dagana nema vera á mjög
góðum fjallabilum.
Nærri 2 milljarðar í op-
inber gjöld á Austurlandi
HEILÐARNIÐURSTÖÐUR
álagðra gjalda í Austurlandskjör-
dæmi eru að þessu sinni kr.
1.948.739 kr. og nemur hækkunin
um 30% frá síðasta ári, en skatt-
skrá Austurlandskjördæmis verð-
ur lögð fram í dag. Það fyrirtæki,
sem greiðir hæst gjöld á Austur-
landi er Hafsíld, sem á að greiða
röskar 29 millj. kr. Af einstakl-
ingum á Brian Botth, sem hefur
Hofsá í Vopnafirði á leigu, að
greiða hæst gjöld, alls 13.440.098.
Páll Halldórsson, skattstjóri
Austurlands, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að álagður
tekjuskattur á Austurlandi væri
nú 816.388.379 kr., þar af greiddu
einstaklingar 529.726.418 kr., en
fyrirtæki kr. 286.601.961. (Jtsvar
væri síðan kr. 638.964.200 og að-
stöðugjald kr. 157.714.100 kr.
Á Seyðisfirði greiðir Hafsíld
h.f. hæst gjöld eins og fyrr segir.
kr. 23.419.775 í tekjusaktt og sam-
tals gjöld kr. 29.025.277. Af ein-
staklingum á Seyðisfirði greiðir
Þorbjörn Þorsteinsson lögreglu-
þjónn hæst gjöld kr. 2.182.318 kr.,
þar af 1.523.337 kr. í tekjuskatt.
I Neskaupstað greiðir Drátta
brautin hæst gjöld, eða samta
23.645.041, þar af er tekjuskatti
kr. 16.059.000. Hilmar Simona
son málarameistari greiðir hæ
gjöid einstaklinga, kr. 2.519.21
þar af er tekjuskattur k
1.186.118.
A Eskifirði greiðir Hraðfrysi
Framhald á bls. I