Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGUST 1977 Starfsmadur I Geysi ad bjarga varningi um leið og slökkviliðsmaður leitar upplýsinga. Prófk jör Alþýduf lokksins í Reykjaneskjördæmi: Fimm haf a til- kynnt þátttöku — Eldsvoði íGeysiígær... Framhald af bls. 40 hefði lyfzt af húsinu og reykháf- urinn brotnað og hefur reyk- sprengingin valdið því. En við það aó húsið var opnað hefur súrefni komizt inn í það og þar með blásið lífí í eldinn. Heitur reykur eða ótal gastegundir hafa leitað inn i húsið og við það að súrefnið náði lika inn hefur orðið gassprenging. Náði eldurinn að breiðast út með miklum hraða og þegar. slökkviliðsmenn brutu rúður komu eldtungurnar út á móti þeim. Brátt var ris hússins einnig alelda, en eldurinn náði þó aldrei niður á fyrstu hæð. Tókzt slökkvi- liðinu að ráða niðurlögum eldsins að mestu á hálftíma, en þar sem enn lék grunur á að eidur léki laus var þak hússins rifið. Fjöldi fólks safnaðist saman í Aðalstræti og á Vesturgötu og átti lögreglan fullt í fangi með að halda fólki í hæfilegri fjarlægð, þannig að brunaliðið gæti sinnt störfum sín- um. Þá var einnig kominn hópur fólks á vettvang til að bjarga því, sem bjargað varð af fatabirgðum verzlunarinnar, en megnið af því — Hafsteinn miðill látinn Framhald af bls. 40 hann var tvivegis fenginn til Bandarikjanna til athugana í tengslum við rannsóknir er þar fóru fram á sviði parasálarfræði. Jafnframt miðilsstarfanum vann Hafsteinn jafnan fyrir sér sem innheimtumaður hér í borg. Bæk- ur hafa verið ritaðar um H:fstein og miðilsgáfu hans, bæði af Elín- borgu Lárusdóttur og Jónasi Þor- bergssyni. Hafsteinn Björnsson var tví- kvæntur og er eftirlifandi kona hans Guðlaug Elísa Kristinsdótt- ir. — Opinbergjöld áAusturlandi Framhald af bls. 2 hús Eskifjarðar h.f. mest í gjöld, kr. 18.547.831, þar er tekjuskattur var þó skemmt vegna reyks. Sagði Helgi Eysteinsson framkvæmda- stjóri að þá um daginn hefði verziuninni borizt mikið af nýjum birgðum, t.d. mörg hundruð úlpur og væri það allt ónýtt, vegna reyks. Skjölum og öðrum verð- mætum tókst þó að bjarga úr skrifstofunni á 2. hæð áður en hún varð alelda. Eru önnur hæð hússins og ris gerónýt en fyrsta hæð mikið skemmd vegna reyks og vatns, eins og áður sagði. Eldur náði aldrei i búsáhalda- deild Geysis, sem er i sam- liggjandi húsi, en port skilur á milli. Húsið, sem fatadeild Geysis er í, er forskalað tímburhús og annað elzta vcrzlunarhúsnæðið í Reykja- vik. Þaö reisti Tærgesen kaup- maður árið 1854, og lét þá rífa hús kóngsverzlunarinnar, sem þangað höfðu verið flutt úr Örfirisey á seinni hluta 18. aldar og endur- reist. Upp frá því hefur jafnan verið rekin verzlun í húsinu og ýmsir kunnir kaupmenn komið við sögu, t.d. var Duus kaupmaður þar með bækistöðvar sínar i kringum aldamótin siðustu. Síðan var þarna apótek allt fram til þess að Geysismenn tóku við húsinu. enginn. Isleifur Gíslason skip- stjóri greiðir mest af einstakling- um kr. 1.887.050, þar af er tekju- skattur kr. 1.228.296. Á Egilsstöðum greiðir bygg- ingafélagið Brúnás h.f. hæst gjöldin, samtals kr. 14.828.444, af þessari upphæð er tekjuskattur kr. 8.029.500. Guðjón Sveinsson málarameistari greiðir hæst gjöld einstaklinga, kr. 3.843.968, þar af í tekjuskatt kr. 2.650.618. í Vopnafirði er það Brian Botth á Teigi sem á að greiða mest, eða kr. 13.440.098, Tekjuskattur af þessari upphæð er kr. 9.857.600, en að sögn Páls Halldórssonar er hér um áætlaðar greiðslutölur að ræða. Á Höfn í Hornafirði greiðir Kaupfélag Austur-Skaftfellinga kr. 13.414.945 i opinber gjöld, en tekjuskattur er enginn. Kjartan Árnason íæknir greiðir hæst gjöld einstaklinga, kr. 1.629.589 í tekjuskatt og samtals kr. 2.564.751. MORGUNBLAÐIÐ hafði f gær samband við Karl Steinar Guðna- son kennara f Keflavfk og innti hann eftir þvf hvort hann hygðist gefa kost á sér f prðfkjöri Alþýðu- Rafvirkjar RARIK: 10%ogtaxta- fyrirkomulag ber á milli „ÞAÐ HEFUR ekkert miðað í deilunni við rafvirkjana“, sagði Jón Helgason deildartæknifræð- ingur hjá RARIK í samtali við Mbl. f gærdag, en hann kvað um 10% bera á milli f kaupmálum. „Miðað við þá útgjaldaaukn- ingu sem yrði hjá RARIK, þá hef- um við boðið 25—26%, en raf- virkjarnir vilja 35% kauphækkun og gjörbreytingu á taxtafyrir- komulagi, nýja gerð kauptaxta, sem erfitt er að átta sig á hvað þýðir í kauphækkun í heild“. Fjallað um síldarverð VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins kemur saman til fundar kl. 17 í dag til að ræða síldarverð á kom- andi sfldarvertíð. Sveinn Finns- son, framkvæmdastjóri Verðlags- ráðs sjávarútvegsins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að hann reiknaði með að fundarhöld í Verðlagsráði yrðu mikil næstu daga vegna verðákvörðunarinnar i sfldinni. KEKKONEN veiddi 141axa KEKKONEN Finnlandsforseti hélt frá Islandi í fyrradag eftir 5 daga opinbera heimsókn. Forseti íslands, herra Kristján Eldjárn, og Geir Hallgrimsson fylgdu finnska forsetanum til flugvélar hans, en Kekkonen staldraði skamma stund við í Reykjavík eft- ir veiðiferð í Víðidalsá þar sem hann veiddi 9 laxa, en í Laxá í Kjós hafði hann veitt 5 laxa. Verkfallinu á Spáni lauk í gær Málaga, 15. ágúst — Reuter — AP. t KVÖLD var lffið hjá ferðafólki á Spáni víðast hvar að færast í eðlilegt horf, eftir að flest þjón- ustufólk á ferðamannastöðunum hafði samþykkt nýtt launatilboð atvinnurekenda um 5000 peseta hækkun á mánuði, um 12.040 fsl. kr. Höfðu samtök starfsfólks á gistihúsum, veitingahúsum og öðrum þjónustustöðum við ferða- menn krafizt 8000 peseta hækk- unar. — Erí jafnvægi.. Framhald af bls. 40 ég tapaði fyrir Karpov 1974, enda þótt ég hefði þá mun meiri reynslu af einvigjum en hann. Ég tel að það sem geri gæfumun- inn fyrir mig sé það, að ég er nú í betra jafnvægi og við betri heilsu en áður. Ég hef undanfarin ár þurft að eyða mikilli orku i persónulega bar- áttu við vindmyllur Það strlð er nú að baki og það út af fyrir sig er ósegjanlegur léttir". flokksins f Reykjaneskjördæmi vegna næstu alþingiskosninga. Karl Steinar kvað það rétt vera og aðspurður sagði hann að sér væri kunnugt um framboð fjögurra annarra manna f prófkjörinu, þeirra Jóns Ármanns Héðinsson- ar alþingismanns, Olafs Björns- sonar útgerðarmanns í Keflavfk, Kjartans Jóhannssonar verkfræð- ings f Hafnarfirði og Gunnlaugs Stefánssonar guðfræðinema f Hafnarfirði. Karl Steinar kvað framboðs- frest renna út 15. sept, n.k., en prófkjörið sjálft fara fram 8. og 9. október eins og f öðrum prófkjör- um á landinu hjá Alþýðuflokkn- um. — 600 milljónir Framhald af bls. 1 og hugsanlegt sé að það fari fram f Porz í febrúar nk. Korchnoi mun sem kunnugt er tefla við ung- verska stórmeistarann Portisch eða Boris Spassky um réttinn til að skora á heimsmeistar- ann, Anatoly Karpov. 1 viðtalinu segir Korchnoi, sem nú er landflótta í Hollandi, að hann muni innan skamms flytjast búferl- um til V-Þýzkalands til að starfs sem skákþjálf- ari fyrir fyrrnefndan Hilgert, sem hafi í hyggju að byggja mikla keppnishöll fyrir tennis, borðtennis, badminton, skák o.s.frv. í borginni. I viðtalinu leggur Korchnoi áherzlu á að Hilgert sé tilbúinn að mæta skilyrðum Fischers fyrir að koma fram á skáksviðið aftur þ.e.a.s. 3 milljón dollara greiðslu ’fyrir einvígi og má af því draga þá álykt- un að samningaviðræður séu þegar komnar á nokkurn rekspöl. — Dauðvona Framhald af bls. 1 Samtök italskra gyðinga, kaþólikkar, kommúnistar og verkalýðssamtök báru öll fram harðyrt mótmæli en í desember sl. hafði æðsti herréttur Italíu ógilt dómsúrskurð um að Kappler skyldi sleppt af heilsu- farsástæðum. Kappler gekk að eiga konu sína fyrir 5 árum í Gaetafangelsi og lýsti hún því margoft yfir að það væri henn- ar frumskylda að frelsa hann úr fangelsi. 1 kvöld var ákaflega óljóst hvernig málavextir voru, en ítalska fréttastofan ANSA skýrði frá því að einhver óþekktur maður hefði hringt þangað og sagt að „Rauða dögunin," v-þýzk skæruliða- samtök hefðu rænt Kappler, til að knýja fram að Baader- Meinhofskæruliðum í v- þýzkum fangelsum yrði sleppt úr haldi. Samtök þessi hafa lýst sig ábyrg fyrir morðinu á v- þýzka bankastjóranum Juergen Ponto hjá Dresdenerbanka fyrir þremur vikum. Ekkert hafði komið fram í kvöld, sem renndi stoðum undir þessa stað- hæfingu. Kappler er nú 70 ára að aldri og var ofursti í SS- sveitum nazista og yfirmaður öryggismála nazista i Róm. Hann fyrirskipaði 1944 aftökur 355 Itala, þ.a.m. 70 gyðinga i hefndarskyni fyrir 33 v-þýzka hermenn, sem féllu í árás föðurlandsvina á götu í Róm. Ýmsir v-þýzkir leiðtogar hafa undanfarið skorað á ítölsk yfir- völd að sleppa Kappler úr haldi af mannúðarástæðum, þeirra á meðal Willy Brandt og Helmut Schmidt. — Rússar og Kínverjar Framhald af bls. 1 um að búa Eþíópíuher vopnum. A meðan á þessu áhrifastriði stórveldanna stendur færast Eþíópíumenn og Sómalíumenn æ nær algerri styrjöld. Ríkisstjórnir beggja landa sökuðu hvor aðra í dag um að hafa gert innrásir yfir landamærin og orðið óbreyttum borgurum að bana. Siad Barre, forseti Sómalíu, hvatti í dag þjóð sina i útvarpsávarpi til að búa sig undir erfiða tíma og vera viðbúna að verja frelsi sitt. — IATA Framhald af bls. 1 PanAm, TWA, BA, Air India, Itan Air og EL AL. Gert er ráð fyrír að þrjú evrópsk flugfélög tii viðbótar og eitt kanadískt muni einnig taka þessi fargjöld upp. Fulltrúar 20 IATA-félaga, sem sátu fundinn í Genf samþykktu þessi nýju fargjöld. Á sama fundi voru einnig samþykktar far- gjaldalækkanir milli Banda- ríkjanna og ýmissa annarra borga í Evrópu. — 1180kr.fyrir síldartunnu Framhald af bls. 3 rúnsöltun á 700—800 stk. kr. 786 krónur. Þá sagði Sigfinnur, að fyrir sölt- un á 300—500 síldum í tunnu án hrings yrðu greiddar kr. 838, fyrir að salta 500—700 stk. í tunnu án hrings kr. 1124. Ef um rúnsöltun er að ræða verða greiddar kr. 580 fyrir 300—700 stk. og kr. 751 fyrir 700—900 stk. Sigfinnur sagði að nú hefði ver- ið tekið upp í samningunum, að ef rúnsaltaðri sild yrði raðað í tunn- urnar skuli greiða 15% ofan á viðkomandi taxta. Ennfremur hefði nú náðst i samningana, að þeir sem ynnu í tengslum við ákvæðisvinnufólkió skuli nú fá greiddar 50 kr. á hverja tunnu, sem síðan yrði deilt i með fjölda þeirra sem við þessi störf væru. Að lokum sagði Sigfinnur, að þeir hefðu tekið af því sem hægt væri að fá fyrir söltun á stórsild og bætt upphæðinni ofan á söltun smásíldar, og ætti það að koma mun betur út fyrir þá, sem ynnu að þessum störfum. . r — Oánægðir með Framhald af bls. 25 höfðasamtakanna væri gagn- vart bréfi borgarstjóra. Sagði hann þá: „Hún er ósköp einföld. Þetta bréf er ekkert svar. Þar er ekk- ert sagt nema um það sem fyrir- hugað er samkvæmt fjárhags- áætlun yfirstandandi árs, en við erum auðvitað óánægðir með að engin malbikun skuli enn hafa farið fram. Þeir pen- ingar sem greiddir hafa verið fyrir þessa þætti hafa allir ver- ið notaóir til að greiða eitthvað annað, einhvers staðar annars staðar. Einkum og sér í lagi er ég óánægður með að ekkert verður af ferðum strætisvagna hingað í ár. Ég tel það alvöru- mál að láta fólkið standa óvarið í hvaða veðri sem er uppi við Vesturlandsveg þar sem bilarn- ir þjóta fram hjá með ofsa- hraða. Ég hefði að minnsta kosti gaman af að sjáráðamenn borgarinnar stand^ þarna í suð- austan roki og rigningu og biða eftir strætisvagni". —ágás. Þessi mynd var tekin frá þaki Morgunblaðshússins um það bil sem slökkviliðsmenn réðu niðurlögum eldsins í Geysishúsinu, en þeir urðu að rífa nokkuð af þakplötum. Ljósmynd mbl. Kristinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.