Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGÚST 1977
MARGIR KALLAÐIR
- 16 líIVALDIR
Stjarna sfðustu heimsmeistarakeppni, Hollendingurinn Johan Cruyff
ásamt konu sinni. Cruyff segist lftinn áhuga hafa á heimsmeistara-
keppninni f Argentfnu, og ekki sé vfst að hann fari þangað, jafnvel
þótt Hollendingar vinni sér rétt til þátttöku eins og allt útlit er
reyndar á.
Af þeim 16 þjóðum
sem taka þátt í loka-
keppni heimsmeistara-
keppninnar í knatt-
spyrnu í Argentínu
næsta sumar eru aðeins
tvær sem eru sjálfkjörn-
ar. Vestur-Þjóðverjar
sem heimsmeistarar og
svo gestgjafarnlr, Argen-
tínumenn. Aðrar þjóðir
verða að leika fleiri eða
færri leiki til þess að
tr.vggja sér farseðlana til
Argentínu, og hjá þeim
flestum liggur gífurleg
vinna og barátta að baki
því einu að komast í úr-
slitakeppnina.
Evrópulönd fá flest lið í úr-
slitakepninni, eða alls 9 eða 10.
Hefur undankeppnin í Evrópu
verið þannig háttað að þátt-
tökuliðinu hefur verið skipt f 9’
riðla, og komast sigurvegararn
ir úr átta fyrstu riðlunum til
Argentínu, en sigurvegari í ní-
unda riðlinum, sem þegar er
ljóst að er Ungverjaland, verð-
ur að keppa við Suður-
Ameríkuland um sæti í loka-
keppninni.
Suður-Ameríka fær a.m.k.
þrjú lið í lokakeppninni, —
geta orðíð fjögur, ef það land
sem keppir við Ungverjaland
sigrar. Sem fyrr segir verða
gestgjafarnir, Argentínumenn,
sjálfsagðir í lokakeppnina, og
nú liggja einnig fyrir úrslit í
riðlakeppninni í S-Ameríku.
Sigurvegarar í henni urðu
Brasilía og Perú. Bólivía mun
hins vegar keppa við Ungverja-
land um sæti. Auk liðanna frá
Evrópu og S-Ameríku komast
svo eitt lið frá Afríku, eitt frá
Asíu og Ástralíu og eitt frá
Norður- og Mið-Ameríku í loka-
keppnina.
I Afríku stendur keppnin um
sætið milli Túnis, sem þegar
hefur unnið sinn riðil, Nígeríu,
Fílabeinsstrandarinn-
ar.Egyptalands og Zambíu. Sér-
fræðingar í málefnum afrískrar
knattspyrnu telja lið Túnis
sterkast um þessar mundir og
spá að það komíst áfram, en
egyptar eru taldir helztu keppi-
nautarnir.
Riðlakeppnin er nú einnig
búin í Asíu-Ástralíu og hafa
eftirtalin lönd komizt í úrslita-
keppni og leika um eitt sæti í
Argentínu: Astralía, Suður-
Kórea, Iran, Kuwait og Hong-
Kong. Talið er að barátta milli
þessara þjóða verði mjög tvísýn
og erfitt að spá um úrslit, en
sérfræðingar hallast þó helzt að
því að lið Kuwaít muni komast
áfram, enda þar ekkert sparað
til þess að árangur náist.
í N- og M-Ameríkuliðunum
stendur slagurinn milli Mexikó,
Kanada, Guatemala, E1 Salva-
dor, Surinam og Haiti, og er
talið líklegt að það verði Mexi-
kanar sem komist áfram.
I Evrópu er geysilega hörð
barátta i öllum riðlum. Keppni
er aðeins lokið í niunda riðlin-
um og sem fyrr greinir urðu
Ungverjar þar sigurvegarar og
slógu m.a. út Sovétmenn, sem
margir höfðu þó spáð frama í
keppninni að þessu sinni. Ef
litió er á hvern riðil fyrir sig, þá
eru Pólverjar nokkuð líklegir
sigurvegarar i fyrsta riðlinum
og hafa unnið alla leiki sína til
þessa. I öðrum riðli standa ítal-
ir iangbezt og þurfa Englend-
ingar að vinna stórsigur yfir
þeim í haust til þess að eiga
mögúleika á :ð komast-áfram. I
þriðja riðli er svo líklegt að
baráttan milli Austurrikis-
manna og Austur-Þjóðverja og
verða Þjóðverjar að teljast
sigurstranglegri í þeirri viður-
eign. í fjórða riðli, — riðlínum
sem ísland leikur i, er ljóst að
baráttan stendur milli Hollend-
inga og Belgíumanna, og verða
Hollendingar að teljast sigur-
stranglegri, þar sem þeir hafa
þegar unnið sigur yfir Belgiu á
útivelli. í fimmta riðli berjast
Búlgarir og Frakkar jafnri bar-
áttú, en Búlgarir standa þó bet-
ur. í sjötta riðli verður sigri
Svia tæpast ógnað en i sjöunda
riðli eru það þrjú lönd sem
keppa öll jöfn að stigum og
óhugsandi að spá nokkru um
úrslit. 1 áttunda riðli verður
einnig greinilega hörð barátta
milli Rúmeníu og Spánar, en lið
þessi eiga eftir að keppa á
heimavelli Spánverja og verður
það ugglaust úrslitaleikurinn i
riðlinum.
Sérfræðingar sem verið hafa
að spá um hvaða lið muni keppa
í Argentínu erú yfirleitt nokk-
uð ósammála, en flestir eru þó
þeirrar skoðunar að eftirtalín
lönd verði þau útvöldú: Vestur-
Þýzkaland, Pólland, Italía,
Austur-Þýzkaland, Holiand,
Frakkland, Svíþjóð, Tékkó-
slóvakía, Spánn, Argentína,
Brasilía, Perú, Bólivía, Túnis,
Mexikó og Ástralía.
í Argentínu er undirbúning-
ur fyrir lokaátökin i heims-
meistarakeppninni löngu haf-
inn. Verið er að stækka áhorf-
endasvæðið á flestum þeim
völlum sem keppt verður á, og
einnig bæta aðstöðu leikmanna
og ekki sízt blaðamanna, en bú-
ist er við miklum fjölda þeirra
til þess að fylgjast með keppn-
inni. Argentínumenn gera sér
vonir um að mikill fjöldi áhorf-
enda komi frá Evrópu til þess
að fylgjast með keppninni, en
samkvæmt nýjustu fréttúm eru
þó horfur á að þeir verði færri
en ætlað var. Kemur þar í senn
til mjög mikill ferðakostnaður
og eins ótti við hemdarverk á
meðan á keppninni í Argentinu
stendur. Munu flestir ætla að
gera sér það að góðu að fylgjast
með keppninni í sjónvarpi, en
sjónvarpað verður beint i litum
frá flestum leikjunum til
Evrópu. Munu helztu sjón-
varpsstöðvar í Evrópulöndum
ætla sér að sjónvarpa á þriðja
tug klukkustunda frá keppn-
inni. Eftir að spurnir bárust um
aö áhorfendatala frá Evrópu
yrði mun minni en ætlað var í
fyrstu, hafa Argentinumenn
hins vegar reynt að rifta þeim
samningum sem búið var að
gera við sjónvarpsstöðvar, og
heimta af þeim meira fé. Hafa
þau mál komið fyrir dómstóla,
sem felldu þann úrskurð að
framkvæmdaaðila keppninnar
væri skilt að standa vió þá
samninga sem þegar var búið
að gera.
FYRRI HEIMSMEISTARAMÚT
IIIVI 1930 f Uruguay: 1) Uruguay, 2) Argentína, 3) Bandaríkin, 4)
Júgóslavía, Crslitaleikur: Uruguay — Argentína 4—2.
IIIVI 1934 á Italfu: 1) ltalfa, 2) Tekkóslóvakfa, 3) Þýzkaland, 4)
Auslurríki. Úrslitaleikur: Italía — Tékkóslóvakía 2—1.
II>1 1938 í Frakklandi: 1) Italfa, 2) úngverjaland, 3) Brasilfa, 4)
Svíþjóð. Úrslitaleikur: Italfa — Ungverjaland 4—2.
IIM 1950 f Brasilfu: 1) úruguay, 2) Brasilfa, 3) Svfþjóð, 4) Spánn.
Úrslitaleikur: Uruguay — Brasilfa 2—1.
HM 1954 f Sviss: 1) Þýzkaland, 2) Ungverjaland, 3. Austurrfki, 4)
Uruguay. Úrslitaleikur: Þýzkaland — úngverjaland 3—2.
IIM 1958 f Svfþjóð: 1) Brasilfa, 2) Svfþjóð, 3) Frakkland, 4)
Þýzkaland. Úrslitaleikur: Brasilfa — Svfþjóð 5—2.
HM 1962 f Chile: 1) Brasilfa, 2) Tékkóslóvakfa, 3) Chile, 4)
Júgóslavfa. Úrslitaleikur: Brasilfa — Tékkóslóvakfa 3—1.
HM 1966 f Englandi: 1) England, 2) V-Þýzkaland, 3) Portúgal, 4)
Sovétríkin. Úrslitaleikur: England — Vestur-Þýzkaland 4—2.
IIM 1970 f Mexfkó: 1) Brasilía, 2) Italfa, 3) V-Þýzkaland, 4)
úruguay. Úrslitaleikur: Brasilfa — Italfa 4—1.
IIM 1974 f V-Þýzkalandi: 1) V-Þýzkaiand, 2) Holland, 3) Pólland, 4)
Brasilfa. Úrslitaleikiur: Vestur-Þýzkaland — Holland 2—1.
Blóðug átök eru daglegur viðburður á knattspyrnuleikjum f
Argentfnu, og vfst er að Argentfnumenn ætla sér að kalla herinn til
aðstoðar þegar leikir heimsmeistarakeppninnar hefjast.
STADAN í EVRÓPURIÐLUNUM
1. riSill:
Pólland
Portúgal
Danmörk
Kýpur
Búnir leikir:
4 4 0 0
3 2 0 1
4 2 0 2
5 0 0 5
Kýpur
12—2 8
3—3 4
11—4 4
3—20 0
Danmörk
1 — 5, Portúgal — Pólland 0—2,
Pólland — Kýpur 5—0, Portúgal —
Danmörk 1 — 0, Kýpur — Portúgal
1—2, Danmörk — Pólland 1 — 2,
Kýpur— Pólland 1—3.
Leikir sem eru eftir: 21.9 Pólland —
Danmörk, 9.10 Danmörk — Portú-
gal, 29.10 Pólland — Portúgal,
16.11 Portúgal — Kýpur.
2. riðill:
italia 3 3 0 0 9—1 6
England 4 3 0 1 11—4 6
Finnland 5 2 0 3 10—10 4
Luxemburg 4 0 0 4 2—17 0
Búnir leikir: Finnland — England
1—4, Finnland — Luxemburg
7—1, England —- Finnland 2—1,
Luxemburg — Ítalía 1—4, ítalia —
England 2—0, England — Luxem-
burg 5—0, Luxemburg — Finnland
0—1 og Finnland— ftalla 0—3.
Leikir sem eru eftir: 12.10 Luxem-
burg — England. 15.10 — ítalia —
Finnland, 16.11 — England — íta-
lia, 3.12 — ítalia — Luxemburg.
26.5 — Luxemburg — Finnland.
3. riðill:
3 3 0 0 11—0 6
2 110 2—1 3
3 111 5—2 3
4 0 0 4 0—15 0
Malta
Tyrkland
Austurriki
A-Þýzkaland
Tyrkland
Malta
Búnir leikir: Tyrkland
4—0, A-Þýzkaland —
1 — 1, Malta — Austurriki 0—1,
Malta — Austur-Þýzkaland 0—1.
Austurriki — Tyrkland 1—0,
Austurriki— Malta 9—0.
Leikir sem eru eftir: 24.9 Austurriki
— A-Þýzkaland, 12.10 A-Þýzkaland
— Austurriki, 29.10 A-Þýzkaland
— Malta, 30 10 Tyrkland —
Austurriki, 16.11. Tyrkland — A
Þýzkaland og 27.11 Malta — Tyrk-
land.
4. riðill:
Holland 3
Belgía 3
ísland 3
Norður-írland 3
Búnir leikir: ísland -
ísland — Holland 0
1 0 5—2 5
0 1 3—2 4
0 2 1—2 2
1 2 2—5 1
Belgia 0—1,
1. Holland —
N-Írland 2—2, Belgia'— N-frland
2—0, Belgia — Holland 0—2, ís-
land— N-Írland 1—0.
Leikir sem eru eftir: 31.8 Holland —
ísland, 4.9 Belgia — ísland. 21.9
N-Írland — ísland, 12.10 N-írland
— Holland. 26.10 Holland —
Belgia, 16.11 N-frland— Belgia.
5. riðill:
Búlgaria 2 110 4—3 3
Frakkland 3 111 4—3 3
írland 3 1 0 2 2—4 2
Búnir leikir: Búlgaria — Frakkland
2—2, Frakkland — frland 2—0,
írland — Frakkland 1—0. Búlgaría
— frland 2—1.
Leikir sem eru eftir 12.10 írland —
Búlgaria. 16.11 Frakkland —
Búlgaria.
6. riðill:
Svíþjóð 3 3 0 0 6—2 6
Noregur 21011 — 22
Sviss 3 0 0 3 2—5 0
Búnir leikir: SviþjóS — Noregur
2—O. Noregur — Sviss 1—0, Sviss
— SviþjóS 1 — 2, Sviþjóð — Sviss
2—1.
Leikir sem eru eftir: 7.9 Noregur —
SviþjóS, 30.10 Sviss— Noregur.
7. riðill:
Wales 2 10 1 3—1 2
Tékkóslóvakia 2 10 1 2—3 2
Skotland 2 10 1 1 — 2 2
Búnir leikir: Tékkóslóvakia — Skot-
land 2—0, Skotland — Wales
1—0, Wales — Tékkósióvakia
3—0.
Leikir sem eru eftir:
21.9 Skotland — Tékkóslóvakfa,
12.10 Wales — Skotland, 16.11
Tékkóslóvakia — Wales.
8. riðill:
Rúmenia 2 2 0 0 3—0 4
Spánn 2 10 11 — 12
Júgóslavia 2 0 0 2 0—3 0
Búnir leikir: Spánn — Júgóslavfa
1— 0, Rúmenia — Spánn 1 — 0,
Júgósalvia — Rúmenia 0—2.
Leikir sem eru eftir 25.10 Spánn —
Rúmenia. 13.11 Rúmenia —
Júgóslavia, 30.11 Júgóslavia —
Spánn.
9. riðill:
Ungverjaland 4 2 11 6—4 5
Sovétrikin 4 2 0 2 5—3 4
Grikkland 4 112 2—6 3
Búnir leikir: Grikkland — Ungverja
land 1 — 1, Sovétrikin — Grikkland
2— 0. Ungverjaland — Sovétrikin
2—1, Grikkland — Sovétrikin
1— 0, Sovétrikin — Ungverjaland
2— 0, Ungverjaland — Grikkland
3— 0.