Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGUST 1977
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10 — 11
FRA MANUDEGI
wvjMwajz'vu
2
0 Tillitsleysi á
umferðarljósum
Ökumaöur í hádegisum-
ferðinni hefur sent nokkrar línur
varðandi eitt atriði i akstri i stór-
borgarumferðinni, sem sumir eru
að taia um að sé i Reykjavik.
Drepur hann þar á atriði, sem
mörgum finnst kannski smávægi-
legt, en þarf ekki endilega að vera
það:
„Það er kunnara en frá þurfi að
segja að engu er líkara en flestir
Reykvíkingar fari af stað milli
vinnustaðar sins og heimilis i há-
deginu. Flestir þeysa heim á sem
allra skemmstum tima og gleypa
eitthvað í sig og siðan hefst sama
þeysireiðin aftur í kappi við
stimpilklukkur og aðrar klukkur.
Verður þetta til þess að mjög
mikil umferð verður rúmlega 12
og síðan rétt fyrir kl. 1.
Eitt atriði varðandi allan þen-
nan akstur fer mjög i taugarnar á
mér og eflaust fleirum, en það er
á umferðarljósum, t.d. þegar
sumir eru að flýta sér ógurlega og
svindla sér framhjá röðum og
beygja af rangri akrein. Skal ég
lýsa þessu nánar.
Ég hef i huga ljósin við gatna-
mót Háaleitisbrautar og Miklu-
brautar. Löng biðröð myndast oft
hjá þeim sem aka norður Háaleit-
isbraut og hyggjast aka vestur
(niður) Miklubrautina. Þeir þur-
fa að biða eftir umferðinni á móti
og sæta lagi með að komast yfir.
Geta stundum aðeins fáir bílar
komizt yfir á hverju grænu ljósi.
Sumir eru svo taugaveiklaðir og
óþolinmóðir að þeir geta ekki með
nokkru móti beðið eina eða tvær
umferðir heldur beygja af hægri
akreininni beint inná Miklubraut-
ina. Þetta er að sjálfsögðu ekki
leyfilegt og getur ruglað mjög i
ríminu suma ökumenn og tafið
fyrir, enda mjög tillitslaust. Sum-
ir segja kannski að þetta sé smá-
atriði, sem ekki skipti máli, en
þessir herramenn geta bara ekki
leyft sér að vera þannig einir i
heiminum. Það væri laglegt ef
flestir tækju upp á þvi að bíða á
hægri akrein þegar vinstri beygja
er fyrirhuguð. Það er hætt við að
allt færi i rugling. Hann er vist
nögu mikill fyrir á götum borgar-
innar.
Um leið mætti vel minnast á
annað atriði i umferðinni, sem er
reyndar sífellt verið að skammast
yfir en það er þegar menn aka
langtímum saman á vinstri ak-
rein, samsíða öðrum bil, og jafn-
hratt og hann. Hleypa þeir engum
framúr sér og er það mjög
gremjulegt. Þessir ökumenn vir-
ðast halda að þeir séu einhverjir
iaganna verðir og segjast aka á
löglegum hraða, en þeim kemur í
raun og veru ekkert við hvað aðr-
ir vilja aka hratt, hvort farið er
nákvæmlega á 45 eða 50 km hraða
eða kannski 60—70 á þessum
breiðustu götum. Það mætti vei
reka aukinn áeóður fyrir þvi að
ökumenn lagfærðu þetta atriði.
Vona ég svo að menn reyni að
taka sig á i umferðinni hér, það er
vissulega ástæða til þess, mjög
margt má að henni finna og
mörgu má bæta úr. Það gerist
með sameinuðu átaki allra öku-
manna og tillitssemi.
ökumaður f
hádegisumferðinni."
Þessir hringdu . . .
9 Torfærur
á Hlemmi:
Utivinnandi húsmóðir, sem
stundum er á ferli með barna-
kerru, m.a. á Hlemmi vildi benda
á vissar torfærur, sem þar væri að
finna núna um þessar mundir:
— Þeir sem leið eiga um á
Hlemmtorgi núna hafa rekið sig á
þessa miklu girðingu, sem þar
umkringir einhvern húsgrunn
þar sem framkvæmdir eru fyrir-
hugaðar. Þessi girðing er sjálfsagt
til þess ætluð að menn falli ekki
þarna ofan i og kringum hana er
einnig gangstétt til að auðvelda
fólki að ganga á milli strætisvagn-
anna. En það er bara alls ekki
auðvelt fyrir fólk sem t.d. er þar-
na á ferð með barnavagna eða
kerrur. Tröppur eru að visu upp á
þessa „gangstétt", en þær eru
hálf torfærar. Ekki er auðvelt að
ráðast þar uppgöngu nema með
aðstoð. Ég geri kannski ekki ráð
fyrir að fatlað fólk sé þarna mikið
á ferli, en það getur þó hugsazt og
ekki er þetta auðvelt yfirferðar
fyrir það fólk allt. Það er svo
mikið i tizku að tala um hvernig
faltaðir eigi að komast leiðar sinn-
ar, svo ég leyfi mér að nefna þetta
hér. En þetta mætti gjarnan lag-
færa eitthvað, því. mér skilst að
þetta ástand muni vara nokkuð
lengi, þ.e. meðan að á þessum
framkvæmdum stendur.
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A kvennameistaramóti Sovétríkj-
anna í fyrra kom þessi staða upp í
skák þeirra Isivajevu og
Gaprindashvilis, sem hafði svart
og átti leik.
25. ..Bxd4 + ! 26. cxd4 — Dh4 +
27. Bg3 — Dxd4+ 28. Kg2 —
Re3+ 29. Kh3 — Dg4 + ! 30. fxg4
— hxg4 Mát. Kvennameistari
Sovétríkjanna 1976 varð Anna
Akhsjarumova.
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessi glæsilegi 17,5 feta
Shetland Fisherman bátur
er til sölu
Á bátnum er 105 ha. Chryslervél með öllum tilheyr
andi mælum.
Annað sem fylgir er m.a. talstöð, dýptarmælir, átta-
viti, hraðamælir, lensidæla, innbyggður 80 Itr.
bensíntankur, tvær handfærarúllur o.fl. o.fl.
Einnig geta fylgt legufæri i höfn Snarfara við Gelgju-
tanga.
Uppl. í síma 85497 eftir kl. 19 i kvöld og næstu kvöld.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AK.LYSINGA-
SIMINN KR:
22480
Bankastrœti9 sími 11811