Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGUST 1977
Bhutto verð-
ur refsað
—ef stuðningsmenn hans stilla sig ekki
London, 15. ágúst — Reuter, AP
ÓEIRÐIRNAR í Lewisham,
borgarhluta í suðaustanverðri
London, á laugardag hafa vakið
deilur um hvers vegna ekki var
komið I veg fyrir þessar mót-
mælaaðgerðir, þar eð fyrir fram
þótti sýnt að til tfðinda drægi . 1
þessum óeirðum áttust við fylk-
ingar öfgamanna til hægri og
vinstri, og tókst lögreglu ekki að
skakka leikinn fyrr en eftir langa
mæðu, en í óeirðunum særðust
um 110 manns, þar af um helm-
ingurinn lögreglumenn.
Óeirðir þessar eru sagðar hinar
verstu sem orðið hafa á Englandi
um árabil, og hafi götubardagarn-
ir sem þarna urðu, einna helzt
líkst þvi sem menn hafa átt að
venjast frá Norður-írlandi. Yfir
lögreglumenn rigndi flöskum,
dósum og steinum, auk þess sem
mótmælendur köstuðu ammoní-
aki að þeim, svo að tveir lögreglu-
Blóði drifinn lögreglumaður handtekur einn af óróaseggjunum í London um
helgina. Símamynd AP.
ChipCarter
að skilja?
Óeirdirnar í London:
Washington, 13. ágúst — Reuter.
CHIP Carter, sonur Carters
Bandaríkjaforseta, er nú far-
inn til Georgíu til að vinna þar
á fjölskyldubúgarðinum en
kona hans og ungur sonur
þeirra verða eftir í höfuðborg-
inni, að því er haft er eftir
blaðafulltrúa móður hans,
Rosalynn Carter.
Blaðið Washington Star segir
í frétt, að Chip hafi tjáð kunn-
ingjum sínum strax í maf sl. að
hann hafi skýrt föður sfnum
frá því að hann hefði í hyggju
að skilja við konu sína, Caron.
Blaðafulltrúi forsetafrúar-
innar kvaðst á hinn bóginn
enga vitneskju hafa um þessi
skilnaðaráform forsetasonar-
ins, enda yrðu þau að teljast
einkamál.
Rætt um að banna eða
takmarka mótmæla-
aðgerðir öfgahópa
Chip er 27 ára að aldri en
kona hans ári yngri, og giftust
þau árið 1973. Áður höfðu þau
bæði starfað hjá Carter er hann
var rfkisstjóri f Georgfu. Frá
þvf að Carter varð forseti hefur
Chip verið sendur á hans veg-
um til Kfna, Indlands og Bret-
lands.
Caron og Cip Carter og James Earl Carter IV. koma
frá guðsþjónustu í Washington á sunnudag. Síma-
mynd AP.
menn hlutu alvarlegan augn-
skaða. Alls voru 200 mótmælend-
ur handteknir í þessum óeirðum.
Atökin hófust er 2000 manna
hópur áhangenda lítils öfgaflokks
til hægri fór i göngu um Lew-
Etna gýs
að nýju
Catania. Skile.v, 14. ágúst.
—Reuter.
HRAUN frá Etnu þeyttist um
200 metra í loft upp í dag áður
en það byrjaði að streyma nið-
ur hlíðar eldfjallsins að norð-
anverðu. Gos er þvi byrjað i
Etnu á nýjan Ieik eftir tæplega
tveggja ára hlé.
Aður en klukkustund var lið-
in höfðu tveir meginhraun-
straumarnir breiðzt yfir
fjögurra kílómetra svæði.
Þúsundir ferðamanna
fylgjast nú með þessum stór-
brotnu náttúruhamförum.
isham til að mótmæla þar tíðum
ránum og ítreka kröfu um að tek-
ið yrði fyrir að svartir innflyU'
endur fengju að setjast að í Bret-
landi, en þeir eru mjög margir
búsettir í Lewisham. Mótmælend-
ur þessir hittu fyrir um 3000
manna fylkingu vinstri manna.
sem vildu koma í veg fyrir mót-
mælaaðgerðir þessar. Sló strax i
brýnu milli fylkinganna, og fékk
lögreglan ekki skakkað leikinn
fyrr en seint um siðar.
Hverfisyfirvöld vildu láta
banna mótmælagöngu hægn
manna, en forsvarsmenn lögregl-
unnar ákváðu að heimila hana og
segir yfirmaður hennar að vinstn
fylkingin hafi átt upptökin að
þeim átökum sem þarna urðu.
Óeirðirnar komu til umræðu með-
al þingmanna og hafa komið fraffl
þær skoðanir að banna eigi allar
mótmælaaðgerðir öfgamanna
meðan aðrir segja að heimila eig*
lögreglunni að banna mótmælaað-
gerðir þar sem vænta má óspekta-
En einnig hafa heyrzt þær raddir
að mótmælaaðgerðir af þessu tagi
Framhald á bls. 2#
Islamabad. 14. ágúst — Reauter
YFIRMAÐUR herforingja-
stjórnarinnar í Pakistan. Zia-ul
Haq hershöfðingi, hefur varað
Ali Bhutto, fyrrum forsætisráð-
herra landsins, við þvt að hann
megi vænta þungrar refsingar
takist honum ekki að halda
stuðningsmönnum sfnum í skefj-
um.
Hershöfðinginn lýsti því einnig
yfir í útvarpsávarpi, að innan
vikutíma hygðist hann leysa úr
haldi aiia pólitíska fanga, sem
handteknir hefðu verið frá því í
janúar s.l. og yrðu þeir ekki
ákærðir.
Hershöfðinginn vék að óeirðum
þeim, sem urðu þegar Bhutto
sneri aftur til Punjab s.l. mánu-
dag og kvaðst hafa gert forsætis-
ráðherranum grein fyrir þvi að
stjórnmálaleiðtogarnir en ekki
fylgismenn þeirra yrðu gerðir
ábyrgir fyrir hvers kyns lögleys-
unre-samfara kosningabaráttunni
sem í hönd færi, þar eð hann væri
staðráðinn í þvi að ofbeldisað-
gerðir skyldu ekki ná til stjórn-
málabaráttunnar.
Veðrið í
borgum
heims
New York. 15. ágúst
Veðrið og hitastig í nokkrum
borgum veraldar:
Amsterdam 22 stig.
Berlín
Brússel
Chieago
Genf
Helsinki
22 stig.
24 stig.
24 stig.
24 sitg.
18 stig
Kaupm.höfn 22stig.
Lissabon 29 sitg.
London
Madrid
Maiami
Moskva
New York
Osló
París
Róm
20 stig.
29 stig.
31 stig.
16 stig.
24 stig.
22 stig.
22 stig.
28 stig.
Stokkhólmur Istig.
Tel Aviv 29 stig.
bjart
skýjað
bjart
skýjað
sól
sól
sól
sól
bjart
sól
skýjað
sól
bjart
sól
skýjað
sól
skýjað
sól
Hershöfðinginn ítrekaði að
kosningarnar skyldu fara fram í
landinu 18. október og hefur
starfsemi stjórnmálaflokka þegar
verið heimiluð með vissum tak-
mörkunum en gert er ráð fyrir að
sjálf kosningabaráttan hefjist um
miðjan næsta mánuð.
A-Þjóðverjar:
Múrinn
barg frið-
num í
Evrópu
A-Berlín, 13. ágúst
Reutr
Formælendur A-
Þýzkalands vörðu í dag
byggingu Berlínarmúrsins
sem hafin var fyrir réttum
16 árum.
Frá því að a-þýzkir og
rússneskir hermenn gerðu
fyrsta vegginn . 13. ágúst
1961 hafa a.m.k. um 70
manns látið lífið við flótta-
tilraunir yfir þennan
tálma, sem nú er 165 km.
að lengd.
Málgagn kommúnista-
flokksins í A-Þýzkalandi,
Neues Deutschland, sagði
að þar til að landamærun-
um yfir til Vestur-Berlínar
og V-Þýzkalands hefði ver-
ið Iokað, hefðu óvinir A-
Þýzkalands verið ótrauðir í
tilraunum sínum að kné-
setja ríkið með þjófnuðum,
gjaldeyrisbraski og með
því að tæla til sín margt af
færasta fólki ríkisins. „Það
er því rétt ályktun, að á
þessum degi (13. ágúst)
tryggðum viö friðinn í
Evrópu,“ sagði blaðið.
Egyptar stöðva
baðmullarsend-
ingar til A-Evrópu
Alexandriu, 14. ágúst —
Reuter
EGYPZK stjórnvöld hafa ákveðið
að stöðva flutninga á baðmull til
Sovétrfkjanna og annarra Austur-
Evrópuríkja, þar sem þessi ríki
hafi stöðvað sendingar á skrið-
drekum til Egypta, að því er haft
er eftir Anwar Sadat, forseta
Egyptalands.
Kom þetta fram í ávarpi, sem
Sadat flutti meðal Egypta sem
eru við nám í Bandaríkjunum,
Sovétríkjunum og Kanada. Sam-
kvæmt frásögn hinnar opinberu
fréttastofu í Egyptalandi sagði
Sadat að eitt Austur-
Evrópurikjanna, sem hann til-
greindi ekki frekar, hefði stöðvað
sendingar á skriðdrékunum fyrir
þrýsting frá Sovétríkjunun1'
Egyptar hafa hins vegar þegar
greitt fyrir skriðdrekana í gi3*0’
eyri en einungis fjórði hlut'
samningsins hefur verið afgreia“'
ur til þessa eftir um árs töf.
A
rið
Sovétríkin og önnur
Evrópuríki hafa um árabil ve
helztu i slytjendur á baðmull, seU1
er aðai útflutningsvara EgyPta’
og tóku baðmullina i vöruskiptur^
fyrir vopn og iðnvarning ý011
konar.
Þessi atburður er talinn verða
til þess að spilla enn frekar sa>t
skiptum Egyptalands og Sov
ríkjanna, sem farið hafa s
versnandi allt frá 1972.