Morgunblaðið - 17.08.1977, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
180. tbl. 64. árg. MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGtJST 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„í kvöld ætti
ég að vera
á veiðum”
New York, 16. ágúst. Reuter. AP.
DAVID Berkowitz, sem talinn
er vera morðingi sá sem iðkaði
vígaferli í New York f liðlega
ár undir heitinu „Sámssonur",
kom fyrir rétt I dag og lýsti sig
saklausan af morðákæru og
öðrum ákærum. Lögfræðingur
hans byggði þennan framburð
skjólstæðings síns á þvf að yfir
stæði rannsókn á geðheilsu
hans, sem eftir ætti að leiða í
ljós hvort Berkowitz væri sak-
hæfur eða ekki.
Berkowitz kom i réttinn
Framhald á bls. 23
ástralskir læknar hafa fundið
upp.
Læknarnir eru Hugh Niall og
Geoffrey Tregear frá Melbourne
og að sögn prófessors Warren
Jones, sérfræðings i frjósemis-
vörnum hjá Alþjóða heilbrigðis-
stofnuninni, hefur bóluefni þetta
þegar verið reynt á öpum í Banda-
rikjunum með góðum árangri.
Frekari tilraunir munu fylgja í
kjölfarið, þar sem efninu verður
sprautað i simpansa en siðan
verður það reynt á áströlskum
konum, sem boðið hafa sig fram
til þessara tilrauna.
Bóluefni þetta er sagt ólikt efni
þvi, sem notað hefur verið i Ind-
landi og framleitt er úr hormón
úr ófrískri konu, enda þykir það
alls ekki öruggt til getnaðarvarna.
Astralska lyfið er hins vegar
framleitt úr einni sameind þessa
sama hormóns, og hefur þannig
getnaðarvarna: Nú koma
sprautur í stað piUu
London. 16. ágúst. Reuter I virkað á þann hátt, að það kemur i
INNAN árs verða gerðar tilraunir veg fyj-u- a5 frjóvgað egg fái kom-
í Astralíu með getnaðarvarnaef i J Framhald á bls. 2 3
I Astralíu með getnaðarvernaefni
Jimmy Carter Bandarikjaforseti sést hér á tali viðHenry Kissing-
er, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Var myndin
tekin skömmu áður en þeir settust að hádegisverðarsnæðingi i
Hvíta húsinu i gær. Embættismenn þar sögðu að Carter og
Kissinger hefðu meðal annars rætt væntanlegan fund Carters
með utanríkisráðherrum Israels og að minnsta kosti fjögurra
Arabalanda.
Elvis Presley
lézt í gærkvöldi
BREZHNEV OG TITO, forsetar Sovétríkjanna og Júgóslavíu veifa til fagnandi
mannfjölda skömmu eftir að Tito kom til Sovétríkjanna í gær í opinbera heimsókn.
Síðan héldu þeir til Kremlar þar sem haldin var mikil veizla Tito til heiðurs.
V-Þjóðverjar fram-
selja ekki Kappler
Bonn, Rómaborg, 16. ág. AP. Reuter.
VESTUB-þýzk stjórnvöld neituðu
í kvöld að láta uppskátt um dval-
arstað strlðsglæpamannsins Her-
bergs Kapplers sem komst úr her-
sjúkrahúsi á ítalíu í gær, eins og
sagt hefur verið frá. I kvöld benti
allt til þess að býsna alvarleg
deila væri f uppsiglingu milli
Vestur-Þýzkalands og Italíu
vegna máls þessa og meðal annars
hefur Giulio Andreotti forsætis-
ráðherraJltalíu óskað eftir frest-
un á fundi sem ákveðinn hafði
verið f Vernon á Italíu milli hans
og Helmuts Schmidts, kanslara
Vestur-Þýzkalands.
í fréttum frá Italíu segir að þar
ríki mikil gremja vegna þess að
allt bendi til þess að Vestur-
Þjóðverjar muni ekki sýna neinn
lit á þvi að framselja Kappler. I
opinberum fregnum er þó lögð
áherzla á að þetta muni ekki hafa
áhrif á sambúð landanna, en hins
vegar var farið fram á frestun
fundarins að frumkvæði ítala.
Sagði í beiðni þeirra að óheppi-
legt gæti verið að kanslarinn
kæmi einmitt nú til ítalíu. Gætu
menn túlkað það sem ögrun og
gæti það haft þær afleiðingar að
spilla sambúð ríkjanna.
Vestur-Þjóðverjar hafa bent
mjög eindregið á það í fréttum af
máli þessu að samkvæmt stjórnar-
skrá landsins sé ekki fært að
framselja manninn, en ftalska ut-
anrikisráðuneytið sagði hins veg-
ar að beiðni um framsal á Kappl-
er væri rökstudd með þvi að hann
væri dæmdur striðsglæpamaður.
Kappler afplánar lífstiðarfangelsi
fyrir fjöldamorð á Itölum í strið-
inu og var það sögð hefnd fyrir að
italskir andspyrnumenn drápu 33
Framhald á bls. 23
Amin setur
upp sendi-
ráð í Höfn
Kaupmannahöfn. 16. ágúst. Reuter.
IDI Amin, Ugandaforseti, hefur
gert út sendimenn til Kaup-
mannahafnar til að setja þar upp
sendiráð, sem annast skal öll
Norðurlöndin.
Siðameistari danska utanrikis-
ráðuneytisins staðfesti í dag að til
landsins væri kominn James
nokkur Baba, „charge d’affaires,
sem er lægri gráða en fullur
sendiherratitill. Væri erindi Jam-
es Baba að setja á laggirnar sendi-
ráð fyrir land sitt i Kaupmanna-
höfn og væri hann nú að leita að
heppilegum húsakynnum.
Baba sjálfur hefur hins vegar
ekki viljað ræða við fréttamenn
Framhald á bls. 19
sjónarsviðið i bandarískum
skemmtiiðnaði i kringum árið
1955. Þar kom hann, sá og sigr-
aði. Söngmáti hans, framkoma
og útlit vakti úlfaþyt og deilur,
aðdáun og hrifningu. Flestir
voru á þvi framan af að
Presleyæðið myndi smám sam-
an dvína, en svo fór ekki og
Presley varð á sinn hátt kiass-
ískur rokksöngvari og átti sér
stærri aðdáendahóp úr öllum
aldursflokkum en Frank
Framhald á bls. 23
Memphis, Tennessee, 16. ágúst. Reuter.
BANDARtSKI rokksöngvarinn
Elvis Presley lézt á sjúkrahúsi f
Memphis f kvöld. Hann var 42
ára að aldri. Presley veiktist á
heimili sfnu og var fluttur f
skyndingu f sjúkrahús en hann
lézt þar á gjörgæzludeild
skömmu eftir komuna þangað,
að þvf er talsmaður sjúkrahúss-
ins sagði. Banamein hans var
skyndileg bilun í öndunarfær-
um.
Elvis Presley kom fram á
Tito tekið með kost-
um og kynjum í Moskvu
Moskvu, 16. ág. Reuter. AP.
ÞUSUNDIR fögnuðu Tito forseta
Júgóslavfu, þegar hann kom til
Sovétríkjanna í dag. Leonid
Brezhnev, forseti og flokksleið-
togi, var f fyrirsvari þeirra sem
tóku á móti honum og hafði
Brezhnev gert hlé á sumarleyfi
sfnu til að vera gestgjafi Titos
meðan hann dvelur f Sovétrfkjun-
um. Brezhnev notaði tækifærið til
að sýna nokkra tilhneig.ngu til að
bæta misvindasöm samskipti,
sem hafa verið við Bandarikin
sfðan Carter forseti tók við og lét
í Ijós ánægju með utanríkisstefnu
Carters.
Sagði hann þetta í veislu sem
haldin var Tito til heiðurs
skömmu eftir komuna, en hins
vegar fór Brezhnev mjög gætilega
í sakirnar og tók ekki mikið upp i
sig.
Þá var Tito afhent í veizlunni
Októberbyltingarorðan sem hann
var sæmdur á 85 ára afmæli sinu
sem var i vor. Tito sem tók nokk-
urn þátt í rússnesku byltingunni
fyrir sextíu árum sagði við at-
höfnina að orðan væri viðurkenn-
ing til afreka júgóslavneskra
kommúnista.
Framhald á bls. 19
L