Morgunblaðið - 17.08.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977
7
r
Stórstríð í
litlum flokki?
Benedikt Gröndal, for-
maður Alþyðuflokksins,
staðfestir I viðtali við
Morgunblaðið I gær, að
hann hyggi á framboð f
Reykjavlk. Benedikt segir
það „ekkert launungar-
mál innan Alþýðu-
flokksins að það væri
hans skoðun (Benedikts),
að sem formaður Alþýðu-
flokksins ætti hann að
hafa aðsetur ! Reykjavlk
og vera I kjöri I Reykjavik
en ekki umbjóðandi fyrir
kjördæmi úti á landi."
Þessi kenning Bene-
dikts kann að horfa ein-
kennilega við I augum
fólks á landsbyggðinni.
Engu að síður staðfestir
hún það, sem látið hefur
verið að liggja hér I stök-
um steinum, að framund-
an kunni að vera stórstyrj-
öld milli helztu forvigis-
manna Alþýðuf lokksins
hér i Reykjavik. Þrír þeirra
kunna að koma til með að
slást um tvö efstu sætin á
lista Alþýðuflokksins i
borginni: Benedikt Grön-
dal, formaður flokksins.
Gylfi Þ. Gislason. formað-
ur þingflokksins og Eggert
G. Þorsteinsson, sem tal-
inn er hafa sterkust tengsl
við launþegasamtökin.
Tveir hinir siðast töldu er-
u fyrir i þessum sætum —
og báðir gamalgrónir for-
ystumenn jafnaðarmanna
í höfuðborginni. Sá mögu-
leiki er að visu fyrir hendi
að annar þessara manna
standi upp fyrir Benedikt
og horfi utangátta á fyrir-
hugað prófkjör. Líklegra
verður þó að telja. að
þessir menn láti ekki auð-
veldlega ýta sér úr sætum
sinum.
Hannibalsfylgið
á Vestfjörðum.
Ekki munu kappar þeir
er sækja um efsta sætið á
lista Alþýðuflokksins á
Vestfjörðum heldur sigla
kyrran sjó I framboðs-
höfn. Þar mun höggvið
hart og titt á báða bóga.
þó að Alþýðuflokkurinn
eigi hvergi visa kjör-
dæmakosningu, heldur
meira og minna óljósar
likur á uppbótarþingsæti.
Auk framboðs Alþýðu-
flokksins munu bæði SFV
og Karvel Pálmason (óháð
framboð) berjast um fylgi
jafnaðarmanna á Vest-
fjörðum.
Þeir tveir, sem nú slást
um efsta sæti á framboðs-
lista Alþýðuflokksins á
Vestfjörðum eru Sighvat-
ur Björgvinsson, nú lands-
kjörinn þingmaður, og
Jón Baldvin Hannibals-
son. skólameistari á Ísa-
firði. Sighvatur mun. að
sögn, berjast hatramlega
fyrir sæti sínu, og mun
hafa harðsnúið lið að bakí
sér. Jón Baldvin hefur
setið í bæjarstjórn Isa-
fjarðar (kjörinn af lista
SFV), og nýtur stuðnings
gamals fylgis Hannibals
Valdimarssonar, sem
löngum hefur kunnað til
pólitiskra verka. ekki sizt
á Vestfjörðum. Þá mun
það að likum styrkja Jón
Baldvin innan Alþýðu-
flokksins að hann mun
talinn liklegri en Sighvat-
ur til að sækja fylgi á
hendur Karvel Pálmasyni.
Kjartani Ólafssyni og
væntanlegu framboði SFV
á Vestfjörðum. Fylgi Sig-
hvats mun hinsvegar ein-
skorðað við þrengsta
hring Alþýðuflokksins
vestra.
Einfari á
Norðurlandi
vestra.
Þegar Alþýðuflokkurinn
ákvað prófkjör til fram-
boðs hafði þegar verið
valið i efstu sæti flokksins
i tveimur kjördæmum:
Suðurlandskjördæmi og
Norðurlandskjördæmi ve-
stra. Sá. sem valinn var i
Suðurlandskjördæmi,
Magnús Magnússon úr
Eyjum, tók hinsvegar af
skarið um. að sjálfsagt
væri að prófkjörið næði
jafnframt til hans og hans
kjördæmis. Hinsvegar
hefur ekki frézt um sams
konar ákvörðun i Norður-
landskjördæmi vestra.
Hefur það valdið nokkurri
óánægju í kjördæminu.
Ekki eru þar allir sáttir við
framboð Finns Torfa
Stefánssonar. Þar munu
ýmis önnur nöfn tiltæk i
efsta sæti listans. m.a.
Jón Sæmundur Sigurjóns-
son, hagfræðingur, sem á
frændgarð og fylgi nokk-
urt. bæði i Siglufirði og
Skagafirði.
Galdramálin
Siglaugur Brynleifsson:
GALDRAR OG
BRENNUDÖMAR.
Mál og menning 1976.
GALDRAR á sextándu og
sautjándu öld eru efni bókar Sig-
laugs Brynleifssonar sem hann
kallar Galdra og brennudóma:
„Forsendurnar að galdraofsókn-
um sextándu og sautjándu aldar
lágu I samfélagsgerðinni og þeim
hugarheimi sem gerðin endur-
speglaði", segir Siglaugur í inn-
gangi og mun víst enginn þræta
fyrir það að hér fer Siglaugur
með rétt mál.
Siglaugur Brynleifsson er
kunnur fyrir hvatvisi í skrifum og
ýmsar ályktanir hans eru grunn-
færnislegar. En í bók sinni Göldr-
um og brennudómum sneiðir
hann að mestu hjá ýmsu þvi sem
lýtir skrif hans. Hann styðst við
margar heimildir og er mikill
hluti bókar hans beinar eða
óbeinar tilvitnanir i aðra. Á þvi
fer yfirleitt vel. Þó verður að
segja eins og er að óþarflega
margar tiivitnanir eru í lokaköfl-
um bókarinnar sem fjalla um ís-
lensk galdramál og brennur. En
Sigiaugi tekst á nokkrum stöðum
að varpa ljósi á galdramálin og
meðal annars skýra hvers vegna
menntaðir menn eins og Páll
prófastur Björnsson í Selárdal og
fleiri létu ánetjast galdratrúnni.
Umsvifamestur við brennudóma
var Þoleifur lögmaður Kortsson.
Ungur kynntist hann aðgerðum
gegn galdramönnum í Þýskalandi
og mótaðist af veru sinni þar i
landi. Lýsingar Siglaugs á galdra-
fári á Vestfjörðum og þær
heimildir sem hann vitnar til eru
óhugnanleg dæmi um mögnun
djöflatrúar. Allt er þetta i nánum
tengslum við sefasýki.
Arið 1703 voru Islendingar
rúmlega 50 þúsund samkvæmt
manntali, á Vestfjörðum bjuggu
Bókmennlir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
7.492 og þaðan voru 16 menn
brenndir fyrir galdra. Vestfirðir
voru eins og Siglaugur bendir á
einangraðir frá öðrum landshlut-
um og með erlendum sjómönnum
„bárust erlend hindurvitni sem
juku á hjátrúna".
Varnargaldur hafði lengi verið
stundaður á Islandi samanber Jón
Guðmundsson lærða sem m.a.
kvað niður draug. Alþýða manna
fékkst einnig við kukl í lækninga-
skyni. Segja má að galdratrú sé
ekki enn úr sögunni þvi að ýmis-
legt verður til þess að menn fara
að halda að ekki sé allt með felldu
og kenna þá stundum öðrum um.
Menn saka náungann um illar
hugsanir og iílt augnaráð getur
vakið ótta. Óttinn er eins og fyrr
undirstaða hjátrúar.
Píslarsaga Jóns Magnússonar
þumlungs er ein merkasta
heimild um galdrafárið. Dæmi-
gert er hvernig Jón fékk Kirkju-
bólsfeðga dæmda fyrir galdra og
brennda, en þeir höfðu fengist við
smákukl eins og víða tiðkaðist á
lslandi. Jón kenndi þeim aftur á
móti um veikindi sin sem eftir
lýsingum að dæma hafa stafað af
sálrænum truflunum hans sjálfs.
En Pislarsaga Jóns er samin af
slikum sannfæringarkrafti að
hún telst til sígildra bókmennta.
^Raldsf/e^''
CASIO
Nú á Norðurlandi
iáMÍ t- - Jk
Fimmtudagskvöld: y
Sjálfstæðishúsið Akureyri til kl. 1
Föstudagskvöld:
Hofsósi kl. 10—2
Laugardagskvöld:
Hótel Húsavík kl. 10—2
Sunnudagskvöld:
Dynheímar Akureyri kl. 9—1
★ Klárakvartettinn syngur gómlu og góðu lögin
•jt Skúli verður á sköfunni
if Palli á perunni (yow)
if Fólkið streymir aðallsstaðar og nú á Norðurlandi
if Söðlið nú hestinn meðan vatnið er heitt
sin
sin
sinh
sinh
log
10'
.v :
cos tan
cos 1 tan-
cosh tanh
cosfT1 tanh
1 n t-v
.vr xlly
.V / 1/.V
vr
dB
On-1
II
DEG
(-)
n EXP
dB on
: í:.v
V RAD
GRAD
...með
töh/im
frá
Með heilann í vasanum ?
vísindalegir
möguleikar
Dæmin
ganga
upp...
ii M II
UMB0ÐIÐ Á ÍSLANDI BANKASTRÆTI8 SÍMI27510