Morgunblaðið - 17.08.1977, Page 23

Morgunblaðið - 17.08.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGÚST 1977 23 UmHORP Umsjón Ema Ragnarsdóttii 1. hluti „Þessi ríkisstjórn nýtur örugglega mikilla vinsælda nú og hefur náð sér verulega á strik að undanförnu," sagði kunningi minn nýlega og vísaði þá fyrst og fremst til áhrifa nýgerðra kjarasamn- inga á kjör almennings og afstöðu til stjórnvalda. Og ég hef fulla ástæðu til að ætla, að þetta mat viðkom- andi sé sprottið af langri og glöggri þekkingu á pólitísk- um sveiflum I landinu frem- ur en óskhyggju. Mat á vinsældir rikis- stjórna fer ekki eftir nein- um einhlítum reglum. En öllum er nú ljóst, að ríkis- stjórnin lagði fram drjúgan skerf til að samningar tækj- ust i sumar án verulegra átaka á vinnumarkaðinum og algjörrar stöðvunar at- vinnutækjanna eins og alltof oft hefur gerzt við svipaðar aðstæður. Menn getur greint á um, hve mikill atbeini stjórnvalda skuli vera i samningum launþega og at- vinnurekenda, en þeim, sem kenndu ríkisstjórninni um aðgerðaleysi og fjandskap í garð launþega í fyrstu lotu samningaviðræðnanna, verð- ur ekki kápan úr því klæð- inu að úthrópa ríkisstjórn- ina eftir á sem dáðlausa og óvirka í brýnustu hagsmuna- baráttu verkafólksins í land- inu. 0 Forysta sjálfstæðismanna i kjarabaráttu I þessu sambandi er það einnig mjög athyglisvert, að árangur síðustu samninga er ekki sízt að þakka traustri og ábyrgri forystu sjálfstæðis- manna í verkalýðssamtökun- um, þeim forsvarsmönnun- um í félögum verzlunarfólks til dæmis, sem hvað ötulast hafa fylgt fram kröfum lág- launahópanna. Viðvaranir um að erfitt geti reynzt að hemja verð- bólguna eftir þessa síðustu kjarasamninga og þá, sem á næsta leiti eru vegna opin- berra starfsmanna, eru tíma- bærar og fullkomlega rök- studdar með vísan til fyrri reynslu af verðbólgusamn- ingum eins og þeim, sem mörkuðu endalok síðustu vinstri stjórnar. Núverandi stjórnar bíður þarna erfitt verkefni og fullvist er, að afstaða kjósenda til hennar mun mjög mötast af frammi- stöðu hennar í efnahagsmál- um á síðustu mánuðum kjör- tímabilsins. Ríkisstjórnin hefur reyndar áður heitið þvi að berjast gegn verð- bólgu og hefur nefnt ákveðna hundraðshluta, sem verðbólgan skyldi lækka á ári. Þessum markmiðum var ekki náð og sízt eru horfur taldar góðar á að það takist á þessum 10 mánuðum, sem eftir eru af kjörtimabilinu. 0 Horft um öxl En þegar við nú litum yfir feril þessarar stjórnar, sem óðum nálgast lok kjörtima sins, er ekki úr vegi að rifja upp, hvernig hún hefur brugðizt við í þeim málum, sem úrslitum réðu í alþingis- kosningunum 1974 og tryggðu þá Sjálfstæðis- flokknum yfirburðasigur. Vissulega hefur mikið áunnizt í að rétta við efna- hag landsins á þessum rúm- að treysta á ný stjórnmála- leg tengsl okkar við vest- rænu lýðræðisríkin og tryggja okkur varnir, sem eru óaðskiljanlegur hluti af þeirri heildarmynd. Þetta mál var leitt til sigurs en blikur eru enn á lofti og hvorki staður né stund fyrir stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins að slaka á i þessum efnum. Svo margir virðast bíða fyrsta tækifæris til að leiða varnarmálin á ný út á braut óvissunnar. 0 Mikill sigur Utfærsla landhelginnar i 200 mílur, sem var annað helzta kosningamál Sjálf- stæðisflokksins 1974, er líka veruleiki og alþjóðleg viður- kenning á henni fengin að auki. Þessi stórkostlegi árangur er of stór biti fyrir andstæðinga okkar innan- lands að kyngja. Þetta gam- alkunna mjálm kommúnist- anna um landráðastefnu Sjálfstæðisflokksins, þjóð- svik og undirgefni við út- lendinga hljómar nú i eyrum fólksins sem ámáttlegt upp- gjafarvæl. Sigurinn er okk- ar, stærri en nokkurn hafði órað fyrir, þegar vinstri stjórnin var að rembast við útfærslu í 50 mílur. Það var von stjórnarand- MARKÚS Öm Antonsson er 34 ára gamall. Hann var8 stúdent frá M.R. 1965 og hóf sama ár störf fyrir Islenska sjónvarpiS. Hann vann á fréttastofu þess til 1970 en þá bauS hann sig fram I prófkjöri sjálfstæSis- manna vegna borgarstjórnar- kjörs. Markús hefur átt sæti I borg- arstjóm s(8an 1970 og I borg- arráði s(8an 1973. Markús Öm er ritstjóri tfma- ritsins Frjáls verslun. reyndin mættu tslendingar virkilega taka sig saman i andlitinu og huga betur að innviðum þess þingræðis, sem við viljum byggja stjórnarfar okkar á. Það hef- ur þó allavega sigrað i bili. 0 Öleyst verkefni Ekki hefur allt farið á þann veg í tíð núverandi ríkisstjórnar sem sjálfstæð- ismenn hefðu óskað. Það skal játað. Mörg af mikil- vægum stefnumálum flokks- ins, sem landsfundir og aðr- ar flokkssamkomur hafa ályktað um, eru þvi miður ekki á afrekaskrá ríkis- stjórnarinnar. Ef sanngirni ræður, eru skýringarnar ljósar. Það ástand, sem hér ríkti á meðan landhelgisdeil- an við Breta var í algleym- ingi, var vitaskuld með al- varlegustu stjórnmálaflækj- um, sem sögur fara af hér á landi síðari áratugina. Þetta tiltekna mál krafðist alls for- gangs hjá ríkisstjórninni um lengri tima. Öðrum málum var því eðlilega þokað aftar á verkefnalistann við óvenjulegar kringumstæður. 0 Reisulegir minnisvarðar Mörgum fyrri ríkisstjórn- um tókst ekki á f jórum árum að reisa yfir sig slíka minnis- • • Markús Qm Antonsson, borgarfulltrúi: Forysta sjálfstæðis- manna í kjarabaráttu um þremur árum. Gjald- eyrisstaðan hefur stórum batnað og rekstri atvinnu- tækjanna, sem lá við stöðv- un, þegar vinstri stjórnin lagði upp laupana, varð borgið. Stóru stefnumálin mega ekki falla í gleymsku af því að þau urðu að veruleika. Hefði vinstri stjórnin ráðið væri veruleikinn i utanríkis- og varnarmálum islands annar og hörmulegri en hann er í dag. Þjóðarhreyf- ing, sem snerist til sóknar í þessu mikilsverða sjálf- stæðismáli er illa horfði, fól siðan Sjálfstæðisflokknum stöðunnar að geta greitt rik- isstjórninni banahöggið meðan landhelgisdeilan við Breta stóð hæst. Með tima- frekum og flóknum sam- komulagstilraunum, sem bandamenn okkar i Atlants- hagsbandalaginu áttu m.a. hlut að, var settu marki náó. Ríkisstjórnin stóð styrkari en nokkru sinni eftir sam- komulagið við Breta í fyrra. 0 Spákaupmennsku hafnað Aðra atlögu skyldi því gera nú í vor, þegar vinnu- deilur voru yfirvofandi. Al- þýðubandalag og Alþýóu- flokkur voru sameinaðri en áður i tilraunum sínum til að knésetja stjórnina. Verkalýðsforystan hafnaði pólitískri spákaupmennsku þessara flokka en tók ábyrg- ari afstöðu, sem tryggði samninga og vinnufrið fram á næsta kjörtimabil. Miðað við hið pólitíska andrúms- loft á samningatímanum geta málalokin ekki talizt neitt annað en sigur fyrir ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknar- flokksins. Það kom í ljós, að þessi stjórn, sem svo styrku liði hefur á að skipa á þingi, stóð ekki máttvana frammi fyrir þrýstihópum i kjara- deilu eins og margir höfðu spáð henni. Hefði sú orðin varða að þeir skagi upp úr og séu öllum sjáanlegir nú. Flestar hafa þær þó verið að koma fram merkilegum mál- um. Hins vegar hygg ég, að útfærslan í 200 mílur og sig- ur í landhelgisdeilunni muni halda nafni núverandi rikisstjórnar Geirs Hall- grimssonar á lofti lengi og fljótt muni það fyrnast að henni tókst ekki að kveða nióur verðbólgudraug frek- ar en öðrum fyrri stjórnum þessa lands. Arangurs í þeirri viðureign er þó óefað að vænta fái leiðtogar Sjálf- stæðisflokksins tækifæri til að einbeita sér að henni á næstu árum. — Framselja ekki Kapple Framhald af bls 1 þýzka hermenn á götu i Róma- borg árið 1944. Vestur-Þjóðverjar hafa hins vegar itrekað það að ekki sé nein sú forsenda til sem réttlæti fram- sal á vestur-þýzkum borgara. Ernst Wiim, talsmaður þýzku mótmælendakirkjunnar, sendi frá sér áskorun til ítölsku þjóðar- innar í dag, þar sem hann hvatti til að Kappler fengi að lifa i friði það sem hann ætti eftir ólifað. Hann er nú sjötugur að aldri og langt leiddur af krabbameini. Wilm, sem hefur eftirlit með að- búnaði þýzkra stríðsglæpamanna i Evrópu, sagði að þetta byði Itöl- um upp á að sýna mannúð og réttlæti. Hann sagði að fréttirnar um flótta Kapplers hefðu snortið sig djúpt og bað hann ítali sýna miskunn og sagði að forseti ítaliu Leoni hefði einnig mælt með því að miskunnsemi yrði sýnd. I fréttum frá Tel Aviv segir aó þingmaður þar, Hiller Seidel, for- maður nefndar sem hefur að markmiði að berjast gegn nas- isma, hefði krafizt þess af ísra- elskum stjórnvöldum, að þau sendu frá sér yfirlýsingu þar sem þau heimtuðu að Kappleryrði taf- arlaust framseldur. Stór hópur þeirra sem Kappler er sagður hafa drepið eða látið drepa á It- aliu 1944, voru Gyðingar. — Sprautur í stað pillu Framhald af bls. 1 ið sér fyrir í móðurífinu og hindr- ar þannig þungun fremur en að það valdi fóstureyðingu, að því er Warren Jones segir. Konur sem nota lyfið, þurfa að láta sprauta sig einu sinni á ári. Samkvæmt áætlun mun lyfið verða komið i almenna notkun eftir u.þ.b. fimm ár. Það er sagt hafa þann höfuð- kost umfram þær getnaðarvarnar- pillur, sem nú þekkjast, að það vírkar aðeins á eitt likamshormón en ekki á ýmsa aðra þætti likams- starfseminnar. Sinatra eða Bítlarnir. Hann lék i þrjátíu og þremur kvikmynd- um, hljómpiötur hans seldust i milljónaupplögum og aðdá- endaklúbbar eru starfandi í öll- um heimshornum og meira að segja eru bandarískir sagn- fræðingar farnir að telja hann ákveðið mótunarafl á sínu sviði. Presley giftist og átti eitt barn. Hjónabandið endaði með skilnaði og Presley bjó einn i stóru húsi i Memphis ásamt lif- verði og öðru starfsfólki. Þó svo að hann væri þekktur rokk- söngvari og nánast tignaður sem slikur fór hann ekki með ærslum þegar einkalif hans var annars vegar. í fréttum Reutersfréttastof- unnar sagði að umboðsmaður Presleys hefði fundið hann meðvitundarlausan á heimili sínu i kvöld. Presley hafði átt við nokkra vanheilsu að stríða undanfarin ár og verið lagður inn á sjúkrahús vegna ofþreytu og vegna augnsjúkdóms. — Ætti að vera á veiðum Framhald af bls. 1 undir strangri gæzlu lögregiu- manna, en ákæran nú náði að- eins til síðasta verknaðar Sámssonar, þar sem hann skaut til bana unga stúlku og særði unnusta hennar með skammbyssu að hlaupvidd 44, sem Sámssonur notaði oftast í fyrirsátum sínum að nætur- lagi. Gert er ráð fyrir að fleiri ákærur muni fylgja í kjölfarið. Haft er eftir lögreglunni í New York að Berkowitz hafi haldið dagbók, þar sem sé að finna nákvæma lýsingu á fyrir- sátum hans. Einnig hefur kom- ið fram i fréttum, að lögregl- unni hafi tekizt að hafa upp á raunverulegri móður Berkowitz, en hann er sjálfur tökubarn. En búizt við að hún verði kölluð fyrir rétt sem vitni, en samkvæmt framburði hennar á Berkowitz að hafa heimsótt hana 1974 er hann losnaði úr herþjónustu og a að hafa orðið mikið um það, þegar hann komst að þvi að móðir hans hafði síðar eignazt dóttur en ekki gefið hana. Þá er haft eftir gæzlumönn- um sjúkrahúss þess þar sem Berkowitz er nú til meðferðar, að hann eigi þá ósk heitasta að fá að vera á strætum úti og skjóta á fólk. „i kvöld ætti ég að vera á veiðum,“ er haft eftir honum. Einnig er haft eftir honum, að hann óski þess að herinn hefði sent hann til Vietnams, því að i bardögum þar kynni hann að hafa losnað við drápslöngunina. — Arnarstofninn Framhald af bls. :i fuglum og ótakmörkuðum út- burði svefnlyfja og eiturs sé þess litil von að arnarstofninn rétti við. Til samanburðar er sagt að Norðmenn hafi 1975 eytt tæpri milljón norskra króna til að vernda sinn arnarstofn, í Vestur- Þýzkalandi gæta hermenn tveggja arnarhreiðra og á Græn- landi hafa miklar ráðstafanir ver- ið gerðar til verndar arnarstofnin- um. „Það er fyrir góðvild og fram- sýni þeirra ágætu arnarbænda, sem þyrma og hafa þyrmt ernin- um, að hann er ekki löngu útdauð- ur á Islandi og ber þeim þakkir og virðing landsmaiina fyrir,“ segir í frétt Fuglaverndarfélagsins. — Presley Framhald af bls. 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.