Morgunblaðið - 20.09.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
5
Á föstudaginn kl. 4 síðdegis verður iðn-
kynning í Laugardalshöll opnuð öllum
landsmönnum.
Þar verður mikið um dýrðir:
Kræsingar að smakka á. Sýnikennsla og
kynning nýjunga í matvælaiðnaði.
Tískusýningar af stærstu og glæsilegustu
gerð. Yfir 100 númersýnd, öll ífyrstasinn.
Svavar Gests stjórnar iðnaðarbingói dag-
lega. Vinningar beint úr sýningar-
básunum.
Maður dagsins, sá lukkunnar pamfíll,
valinn úr hópi gesta á hverjum degi.
Ekki leiðist henni (eða honum) þann
daginn Það er alveg áreiðanlegt.
Ferðin getur margborgað sig, peninga-
lega. Fjöldinn allur af vörum verður boð-
inn á sérstöku kynningarverði.
Nú sýnir reykvískur iðnaður hvers hann
er megnugur. Einnig fáum við að kynnast
beitingu vísinda í þágu iðnaðarins.
Barnagæsla verður síðdegis dag hvern.
Flugleiðir bjóða sýningargestum 25%.
hópafslátt af fargjaldi í innanlandsflugi,
Hittumst í Höllinni og tökum þátt í fagn-
aðinum.