Morgunblaðið - 20.09.1977, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
23
BÆJARSTJÓRN AKRANES
ÞAKKAR SÍNIIM MÖNNUM
FYRRA laugardag var haldin vegleg uppskeruhátíð hjá
knattspyrnumönnum Akraness. Höfðu þeir líka tölu-
verðu að fagna þar sem tveir Islandsmeistaratitlar
höfnuðu hjá þeim í ár, bæði í meistaraflokki og eins í
fimmta aldursflokki. Er auðséð á árangri Akurnesinga
í ár, að knattspyrnuveldið stendur þar traustum fótum,
og að synirnir taka upp merki feðra sinna í bókstaflegri
merkingu.
I hófinu færði Valdimar Indriðason, forseti bæjar-
stjórnar Akraness, knattspyrnuráði Akraness veglega
gjöf frá bæjarbúum, 750.000 krónur, auk þess sem hann
tilkynnti að hverjum og einum leikmanni í liðinu yrði
færð gjöf frá bæjarstjórninni. Þá var George Kirby,
hinn vinsæli þjálfari liðsins, heiðraður sérstaklega, og
ennfremur voru eiginkonum leikmanna og unnustum
færðar gjafir frá knattspyrnuráðinu. Meðfylgjandi
myndir voru teknar í þessu hófi.
Valdimar Indriðason, forseti bæjarstjórnar Akraness, afhendir Kristjáni Sveinssyni, for-
manni knattspyrnuráðs ÍA, 750.000 kr. peningagjöf frá bæjarstjórn Akraness, í viður-
kenningarskyni fyrir árangur Akurnesinga á knattspyrnusviðinu í sumar.
Þröstur Stefánsson, formaður ÍA, veitir hér George Kirby, þjálfara meistaraflokks, viður-
kenningu fyrir vel unnin störf fyrir félagið.
Unnustum og eiginkonum liðsmanna var einnig sýndur þakklætisvottur og sést Þröst-
ur Stefánsson þarna afhenda einni þeirra, Lovísu Jónsdóttur, blóm.
Þróttur meistari 2. deildar
ÞRÓTTUR og KA léku til úrslita í 2.
deild ð Laugardalsvellinum á laugar-
daginn. Þetta var hörkuleikur, svipt-
ingar á báða bóga og á endanum
stóð Þróttur uppi sem sigurvegari.
Sigurinn, 3:1, var fyllilega verð-
skuldaður. Þróttur er þvi meistari 2.
deildar og KA fylgir með upp I 1.
deild. Bæði liðin geta því vel unað
við árangur sinn í sumar. Hitt er svo
annað mðl hvernig kemur til með að
ganga þegar alvara 1. deildar tekur
við. Það getur orðið erfiður róður hjá
báðum liðunum að halda sætum sin-
um næsta sumar. Sérstaklega er
spurningarmerki, yfir KA-liðinu, því I
liðinu eru áberandi veikleikar, sem
laga þarf. Lið Þróttar er ungt en það
er þó heilsteyptara og það hefur eitt
umfram KA-liðið. nefnilega eins árs
reynslu i 1. deild áður, dýrmæta
reynslu þó hún hafi kannski verið
bitur.
í leiknum á laugardaginn voru KA-
menn allsráðandi fyrstu 1 5 mínúturnar
og á 11. minútu náðu þeir forystunni
verðskuldað. Knötturinn var gefinn frá
hægri inn í vitateig Þróttar, þar sem
Gunnar Blöndal var fyrir Hann drap
boltann laglega niður og skaut við-
stöðulausu skoti úr þröngri aðstöðu og
boltinn smaug meðfram stönginni nær
og i markið. Vel að verki staðið hjá
Gunnari.
En við markið var eins og allur
víndur væri úr norðanmönnum og
Þróttarar tóku smám saman leikinn i
sínar hendur Það kom þvi alls ekkert á
óvart er þeir jöfnuðu metin á 39
mínútu með góðu marki Þorgeirs Þor-
geirssonar frá markteig eftir að Páll
Ólafsson hafði brotizt upp vinstra meg-
in og sent knöttinn fyrir
Þróttarar héldu áfram að sækja i
seinni hálfleik og á 60. mínútu bætti
Þorgeir við öðru marki eftir að Páll
hafði átt þrumuskot að marki, mark-
vörðurinn hélt ekki boltanum og Þor-
aeir fvladi á eftir oq skoraði Við mark-
ið var eins og Þróttur hægði heldur á
sér og KA fór að sækja á nýjan leik
Skapaðist nokkrum sinnum hætta við
mark Þróttar og eitt sinn heimtuðu
KA-menn vitaspyrnu en ekkert var
dæmt Fimm mínútum fyrir leikslok
náðu Þróttarar svo skyndisókn og
komst Halldór Arason einn innfyrir
vörn KA og innsiglaði sigur Þróttar og
sigur í 2. deild með góðu marki.
Beztu menn Þróttar í þessum leik
voru Rúnar Sverrisson markvörður,
Guðmundur Gíslason i vörninni, Þor-
valdur Þorvaldsson, Þorgeir Þorgeirs=,
son, og Páll Ólafsson, en þeim siðast-
nefnda hættir mjög til einleiks Páll er
markakóngur 2. deildar i ár með 20
mörk. Sannarlega vel gert hjá 1 7 ára
pilti. Hjá KA var Gunnar Blöndal lang-
beztur en Steinþór Þórarinsson átti
einnig góðan leik. Aðrir sýndu ekki
umtalsverða getu
Guðmundur Haraldsson dæmdi leik-
inn vel
— SS.
JAFNT ÁISAFIRÐI
Leikur ísfirðinga og Norðfirðinga í 2.
deildar keppni íslandsmótsins í
knattspyrnu, sem fram fór á ísafirði
á laugardaginn, var heldur i daufara
lagi, „dæmigerður seinnipartsleik-
ur" eins og heimildarmaður Mbl. á
ísafirði orðaði það. Leikmenn lið-
anna höfðu ekki að miklu að keppa í
þessum leik, og áhugaleysi þiirra
var líka áberandi.
Strekkingur var i ísafirði á laugar-
daginn er leikurinn hófst og ftóð á
annað markið. Norðfirðingar léku
undan vindi í fyrri hálfleik og var þá
leikurinn í góðu jafnvægi. ísfirðingar
áttu þó hættulegasta færi hálfleiks-
ins, er Ómar Torfason komst inn
fyrir vörn Þróttara, en skot hans
lenti i þverslá.
Þegar ísfirðingar fengu vindinn i
lið með sér í seinni hálfleik sóttu þeir
án afláts og fór leikurinn að mestu
fram á vallarhelmingi Þróttara. Röð-
uðu Norðfirðingarnir sér í vörn, og
tókst að verjast öllum áhlaupum
hálfleikinn út. Tókst ísfirðingum
aldrei að skapa sér verulega hættu-
leg færi i hálfleiknum.
Enginn leikmaður skaraði verulega
fram úr i leik þessum — en meðal-
mennskan réð rikjum.
Dómari var Heiðar Jónsson og
dæmdi hann sæmilega.
Enn tapaði Selfnss
SELFYSSINGAR kvöddu 2. deiidina í knattspyrnu með tapi á iaugar-
daginn er Völsungar frá Húsavík komu þangað í heimsókn. Urðu úrslit
leiksins 4—1 fyrir Völsunga og þar með hækkuðu Húsvíkingarnir sig
veruiega í röðinni í 2. deildar keppninni í ár. Hafa Vöisungar náð sér
vel á strik seinni hluta mótsins, en þeir voru lengi vel í falihættu í
deildinni.
Selfyssingar byrjuðu leikinn á laugardaginn vel og náðu snemma
forystu með skallamarki Ólafs Sigurðssonar. Skömmu eftir mark þetta
komst Stefán Larsen einn innfyrir vörn Völsunga, en skot hans fór út í
veður og vind. Virtist þetta atvik hafa mjög neikvæð áhrif á Selfosslið-
ið, sem koðnaði niður á sama tíma og Völsungar virtust eflast. Tókst
Völsungum fljótlega að jafna og ná síðan forystunni. Annars var
leikurinn ekki eins ójafn og tölurnar segja til um — munurinn hjá
liðunum lá fyrst og fremst í því að Húsvikingarnir nýttu tækifæri sín,
en Selfyssingar ekki. Voru mörkin fjögur sem Völsungar gerðu öll
fremur ódýr, — sum þeirra rétt þeim á silfurbakka, eins og frétta-
maður Mbl. á Selfossi orðaði það.
Hafþór Helgason var einna be/.tur Völsunganna í þessum leik og
skoraði hann tvö marka þeirra. Þá átti Helgi Helgason og Gísli Pálsson
einnig ágætan leik. Hjá Selfyssingum var það Ólafur Sigurðsson sem
helzt stóð uppúr, sérstaklega þó í fyrri hálfleik, en einnig er vert að
geta um frammistöðu Hjalta Sigurðssonar markvarðar, er varði oft
með ágætum í leiknum.
Dómari var Ámann Pétursson og hafði hann ekki nægjanlega góð tök
á leiknum, sem varð mjög grófur undir lokin. G.
ÁRMANN S0TT12 STIG NORÐUR
Arskógsstrandarliðið Reynir fékk
Armenninga í heimsókn til sín á
laugardaginn, til síðasta leiksins
sem Reynir leikur í 2. deild Is-
landsmótsins í knattspyrnu í bili.
Var greinilegt að Reynismenn
lögðu ekki mikið upp úr leik þess-
um, enda fallnir í 3. deildina
fyrir löngu. I lið þeirra vantaði að
þessu sinni m.a. Eirík Eiríksson,
aðalmarkvörð liðsins í sumar,
Björgvin Gunnlaugsson, sem ver-
ið hefur skæðasti framlínumaður
liðsins og Magnús Jónatansson,
þjálfara.
Ármenningum veittist heldur
ekki erfitt að hreppa bæði stigin í
leiknum, og hefði 3—1 sigur
þeirra jafnvel átt að verða stærri.
Skoruðu þeir mark fljótlega i
leiknum og var staðan þannig
1—0 i hálfleik. Snemma í seinni
hálfleik bætti Ármann öðru
marki við og komst siðan í 3—0.
Lokaorðið i leiknum áttu svo
Reynismenn og var það Marinó
Þorsteinsson sem skoraði mark
þeirra.
Jón Hermannsson var atkvæða-
mestur Armenninga í Ieiknum og
skoraði hann tvö'af mörkum liðs-
ins, en Gunnar Guðlaugsson skor-
aði þriðja markið.
Leikurinn var í heild fremur
daufur, — nánast skylduverk hjá
liðunum að ljúka honum. Ar-
mannsliðið var allan timann betri
aðilinn, sem fyrr segir, og það
sem sást af knattspyrnu í leikn-
um, kom frá þeim.
VK
STAÐAN
LOKASTAÐAN í 2. deildar keppni tslands-
mótsins í knattsp> rnu vard sem hérsegir:
Þróttur R 18 l.'l 2 44 — 1« 29
KA 18 i:j 1 4 54—2« 27
Haukar 18 9 9 8 1 33—15 26
Vrman n 18 10 :i 5 30—20 23
Isafjörður 18 5 8 5 20—23 18
V'ölsungur 18 5 5 8 27—34 15
Þróttur N 18 5 5 8 23—30 15
Revnir S 18 5 5 8 24—31 15
Selfoss 18 2 :i 13 14—43 7
Reynir A 18 1 :i 14 17—48 5
„GET NU HÆTT MEÐ
GÓÐRISAMVIZKU"
„BJARTSÝNN Á AÐ
VIÐ HÚLDUM SÆTINU
í ÞETTA SKIPTI"
- segir Guðmundur Gíslason, fyrirliði Þróttar
— MÉR líst ágætlega á 1. deildina næsla sumar og hef trú á því
að við höldum sæti okkar í þetta skipti, sagði Guðmundur
Gíslason, fyrirliði Þróttar að lcik loknum á laugardaginn.
— Þróttarliðið er nú mun leikre.vndara en í f.vrra þegar við
féllum og kjölfestan í liðinu miklu meiri. Það er um að gera að
byrja vel í deildinni, þá er hálfur sigur unninn, sagði Guðmund-
ur.
Hann sagðist auðvitað vera í sjöunda hinini yfir sigrinum í
deildinni. Þeir hefðu ekki byrjað mjög vel en síðan náð sér
verulega á strik og siglt hægt og rólega á móti 1. deildinni.
— Mér fannst 2. deildin miklu erfiðari en þegar við lékum þar
síðast fyrir tveimur árum. Það eru kominn upp mörg góð lið, sem
erfitt er að leika gegn, t.d. Haukar og Sandgerðingar.
- segir Þormóður Einarsson fyrirliði KA
— Nú get ég hætt með góðri samvizku, sagði Þormóður
Einarsson, fyrirliði KA-liðsins, við Mbl. að loknum leik Þróttar
og KA.
— Ég er búinn að vera í þessu í 18 ár og finnst nú nóg komið.
Ég er auðvitað ánægður með að hafa skilað KA upp í 1. deild á
mínu síðasta keppnistímabili en ég er ekki síður ánægður með
það að nú þegar ég enda minn feril get ég glaðst yfir þvi að hafa
aldrci hlotið áminningu né litaspjöld öll þessi ár, sagði þessi
geðþekki knattspyrnumaður.
Þormóður hefur aðeins verið fyrirliði í þrjú sumur og ætíð
hefur lið hans unnið sig upp í efri deildir, IBA 1972, KA upp í 2.
deild 1975 og nú upp í 1. deild. — Ég vona að KA haldi sæti sínu
í 1. deild næsta ár og ég hef reyndar þá trú að það takist. Það
þarf reyndar að laga nokkra galla en varla verður Jóhannesi
Atlasyni skotaskuld úr því ef hann verður áfram með liðið þvi ég
tel hann fremstan íslenzkra þjálfara í dag.
Þormóður sagði að lokum að keppni 2. deildar hefði verið
mjög erfið. Breiddin í deildinni væri orðin mikil og mörg
liðanna sérstaklega erfið heim að sækja.
Guðmundur Gíslason, fyrirliði Þróttar og Þormóður Einarsson,
fyrirliði KA.
FYLKIR í 2. D.
Árbæjarfélagið Fylkir náði á laug-
ardaginn langþráðu takmarki, er
knattspyrnulið þeirra vann sér rétt til
þátttöku í 2. deildar keppninni í
knattspyrnu. í þriðja úrslitaleik sín-
um um sæti i deildinni við Siglfirð-
inga sigruðu Fylkis-menn 1:0 i fram- >
lengdum leik sem fram fór _á Akra-
nesi. Komu þessi úrslit á óvart, þar
sem i Fylkisliðið vantaði hvorki fleiri
né færri en átta þeirra leikmanna,
sem verið hafa fastamenn i liðinu i
sumar þeir voru i sólarferð suður á
Spáni, sem skipulögð hafði verið fyr-
ir löngu.
Leikurinn A Akranesi á laugardag-
inn var heldur lélegur, enda varla við
öðru að búast í hvassviðrinu. Liðin
sem mættust þarna voru fremur
jöfn, en þó voru Siglfirðingar öllu
atkvæðameiri. Vöm Fylkis stóð hins
vegar vel fyrir sinu og gaf ekki mörg
færi á sér. Eina mark leiksins skoraði
Ágúst Karlsson í framlengingunni,
og þrátt fyrir örvæntingarfúllar til-
raunir Siglfirðinga tókst þeim ekki
aðjafna.
LIÐ AUSTRA frá Eskifirði — annað Austfjarðaliðið sem nær því takmarki að leika í 2. deild