Morgunblaðið - 20.09.1977, Page 28

Morgunblaðið - 20.09.1977, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 Mengele í Paraguay New York. 19. sept. AP. I)R. JOSEF Mengele, „daudalæknirinn frá Auschwizt", býr I Paraguay segir í vikuritinu Time, sem kom út í dag. Þar segir að Mengele hafi komiú til Para- guay árid 1959 og búi í bænum San Antonio sem er á afskekktum staú og fáförnum í landinu og hann virðist nú aðstoða stjórnina við að herja á Ache-indjánana sem búa í þeim hluta landsins við erfið kjör. Time segir að Mengele sé í sér- stökum búðum á þessum stað og enda þótt talsmaður stjórnar Paraguay neiti þvi segir Time að það hafi áreiðanlegar heimildir fyrir því að Mengele sé sérskipað- ur ráðgjafi stjórnarinnar i því að ofsækja Ache-indjánana og hand- sama marga þeirra i þrælavinnu. Þegar Mengele var í Auscwitz, segir Time, var hann vanur að taka á móti fangalestunum í eigin persónu og velja úr þá sem hann vildi láta drepa strax, og svo hina sem hann gaf líf um hrið, m.a. til að hann gæti gert ýmsar ákaflega ógeðfelldar læknisfræðilegar til- raunir á þeim. Hann fékkst meðal annars við það að skipta um lit í augum barna með þvi að gefa þeim sprautur sem voru mjög þjáningarfullar. ísraelar hafa hvað eftir annað reynt að fá Mengele frá Paraguay, en það hefur ekki tek- izt og að minnsta kosti einn ísra- elsmaður hefur horfið sporlaust í Paraguay þar sem hann var þeirra erinda að freista þess að koma höndum yfir Mengele. Málgagn ungkomma: Astmögurinn gæti verið CIA-útsendari Moskva 19. sept. AP. Reuter. MALGAGN æskulýðssamtaka sovézka kommúnistaflokksins, Komsomolskaya, hefur varað ungar sovézkar stúlkur við því að lenda í slagtogi með sjó- mönnum — að minnsta kosti ef viðkomandi sjómenn eru bandariskir. ,,Þið vitið hvernig bandarisk- ir sjómenn geta verið, þeir geta til dæmis verið útsendarar CIA sem reyna að fleka ykkur með það eitt fyrir augum að flækja ykkur í njósnaneti sínu," sagði í blaðinu. Þar var gefin ítarleg lýsing á fundi ungrar stúlku frá Leningrad sem kölluð er Nina og sögð vera fimleikastúlka og bandarísks sjómanns sem nefndur er Robert og hafi hann verið á flutningaskipinu „The Zapata”. Segír að þau Robert og Nina hafi átt saman nótt, eftir að leiðir höfðu legið saman á kaffihúsi þar sem Nina starf- aði. „En morguninn eftir játaði hann að hann ætti eiginkonu og barn í Bandaríkjunum en sór og sárt við lagði, að hann fengi skilnað snarlega og kæmi þá og sækti Ninu í himnarikissæluna i Bandaríkjunum. „Aður en hann fór á braut hafði hann sent stúlkunni, sem felldi heit- an og einiægan ástarhug til hans, bréf þar sem hann hét því að bandaríska ræðismanns- skrifstofan í Leningrad hefði samband við hana. í bréfinu bað Robert hana lengstra oröa að trúa engu ljótu um Banda- ríkin og hann sjálfan. „Þetta er dæmigerð tilraun til að heila- þvo stúlkuna — og bendir til að Robert hafi verið að vinna að áætlun sem gerð hefur verið áður. Þarf ekki að fara í neinar grafgötur með fyrir hverja Rob- ert þessi hefur verið að vinna. Meðan bandarísk skip eru i höfn reyna sjómennirnir iðu- lega að finna sér saklausar sov- ézkar stúlkur, fleka þær og gera siðan það sem verra er, reyna að heilaþvo þær.“ Sagan um Ninu endaði þó sæmilega vel, segir blaðið, þvi að Ninu varð Ijóst, að hún var á hálli braut og sá að sér og fór ekki einu sinní til að kveðja Robert þegar skip hans lét úr höfn. Rekstur hjá TAP að komast í lag Lissabon 19. sept. Reuter. AP. 1 MORGUN komu flugmenn portúgalska flugfélagsins TAP til vinnu sinnar, eftir að talsmaður ríkisstjórnar landsins hafði heit- ið flugmönnunum því að komið yrði til móts við kröfur þeirra um betri laun og vinnuaðstöðu. Þegar samkomulag hafði náðst um það ákváðu forvígismenn flugmanna að hvetja félaga sína til að hefja störf á ný, þótt ekki hafi verið gengið frá samningum. Flugmennirnir eru 306 að tölu og hafa ekki flogið í tvo daga. Hefur þetta haft víðtæk áhrif inn- an Portúgals sem utan. Virtist um hríð sem svo mikil harka væri komin í málið að hvorugur aðili vildi sveigja. Þar sem mörg þús- und ferðamenn eru í Portúgal kom þetta mjög illa niður á þeim og varð enda ekki til að bæta bágan fjárhag landsins. Góð aðsókn að Þjóðveldisbænum: Kaup á innbúi næsta verkefnid MIKIL aðsókn hefur verið að Þjóðveldisbænum í Þjórsárdal í sumar og hefur honum nú verið lokað að öðru leyti en því að ferðamannahópum er gefinn kostur á að skoða hann út septeni- bermánuð. Eiríkur Briem, gjaldkeri bæjar- stjórnarinnar, sagði í viðtali við Mbl. að unt 20.000 ntanns hefðu skoðað bæinn í sumar og þar væru börn ekki talin með. Fénu sem ínn hefur komið hefur m.a. verið varið til gæziu og viðhalds. Fyrir næsta sumar þarf að koma upp vegvísi, sagði Eiríkur, og ráð- gert er að gefa út kynningarbækl- ing. Hugmyndin er að fá innbú og sagðí Eiríkur að það væri nú verk- efni bæjarstjórnarinn er Hörður Agústsson. Ekið á kind í Kömbunum EKIÐ var á kind neðst í Kamba- brún á föstudaginn og þurfti að aflífa skepnuna á staðnum. Vildi það til að bóndi var með þeim fyrstu sem komu á vettvang eftir slysið og hafði hann kindabyssu með í bil sínum, sem hann notaði til að lóga skepnunni. r — Olýsanleg Framhald af bls. 3. Þarna er hann Maggi litli. Hlauptu, hlauptu“. Einhvern veg- inn greip það mig, að drengurinn hefði verið að leika sér við verk- smiðjuhúsið og ég ætla ekki að lýsa þeirri óhugnanlegu tilfinn- ingu, sem greip mig, þegar ég skildi, hvað konan átti við.“ „... og um Framhald af bls. 3. sunnudagsmorguninn," sagði Skarphéðinn, „og labbaði mig inn á verkstæðið. Þarna voru opnar dyr og út um þær blasti Flugelda- gerðin við mér. Ég sný hliðinni i dyrnar, þegar mér verður litið við og síðan sé ég öll ósköpin. Þessu fylgdi svo gífurlegur þrýstingur að ég hrökk til á verkstæðisgólf- inu og þarna lék allt á reiðiskjálfi. járnplötur og lausahlutir þeyttust þetta 1—200 metra upp í loftið. Eg var fyrst sem lamaður, en síð- an tók ég auðvitað sprettinn. Mér finnst ég heyra barnsgrát og í því | sé ég Sigurð koma hlaupandi ofan frá húsunum og þegar ég kem til háns er hann með Magnús litla í fanginu. Við verðum svo sam- ferða með barnið inn á verkstæði þeirra Þorgeirs og Helga og þar vorum við yfir barninu, þar til hjúkrunarkonan kom. Ég fylgdi þeim svo í sjúkrahúsið og þegar ég kom aftur á slysstaðinn var allt um garð gengið og min engin þörf þar.“ — Sá Helga Framhald af bls. 3. inum minum,“ sagði Guðjón. „Þegar ég er að koma að húsinu hans Helga heitins, heyri ég svona hviss eins og kveikt hafi verið í rakettu. Ég stöðva, legg frá mér hjólbörurnar og lit við til Flugeldagerðarinnar. Þar inni sé ég þá neistaflug í gegnum glugga og sé hvar Helgi heitinn kemur út. Litla drenginn sá ég ekki. Þegar reykurinn svo greiddist frá sé ég að það vantar allan austurendann á verksmiðjuhúsið. í þessu heyri ég svo óp og grát frá húsunum í kring og fólk streymdi þar út, sumt fáklætt og annað á náttfötunum einum saman. Þá kemur þarna að annar maður, sem tekur að sér að hringja í lögregluna, en ég fór að hjálpa konum með börn.“ — Eþíópía Framhald af bls. I þotur Sómala, hafi Eþíópiumenn haft algjöra fyriburði í lofti. Af hálfu frelsishreyfingar V- Sómalíu hefur einnig verið haldið fram að umtalsverðir sigrar hafi unnizt, m.a. hafi skæruliðar brot- izt gegnum víglínu Eþíópíumanna i nánd við borgina Dire Dawa, sem skæruliðar ráða ásamt Jijiga, og skorið þar með á mikilvæga aðfangaleið til herja Eþíópíu. Mengistu Haile Mariam, leiðtogi Eþíópiu, hefur sagt, að þrátt fyrir fullyrðingar um að Jijiga sé fallin sé áfram barizt um þann bæ, eins og um Dire Dawa. Allsherjarherútboð hefur verið látið út ganga í Eþiópíu, og eru nú uppi áætlanir um að allir fyrrum hermenn innan 60 ára aldurs skuli taka upp vopn að nýju auk þess sem lýst hefur verið eftir sjálfboðaliðum. Herafli Eþíópíu er nú talinn um 200.000 menn en með þessum ráðstöfunum er gert ráð fyrir að hernum bætist um 100 þúsund menn til viðbótar. Eþíópía á mjög undir högg að sækja um þessar mundir, því að auk þess sem styrjöldin geisar í Ogaden, hafa Eritreumenn stór landsvæði á valdi sinu norðar í landinu. — Kólera Framhald af bls. 1 komið upp 71 nýtt tilfelli á tveim- ur sólarhringum og séu því tilfell- in á tíu daga timabili alls orðinn 352. Fulltrúar Arababandalagsins j Kairó hafa einnig greint frá því, að yfirmenn 'heilbrigðismála í Arabalöndum hafi verið beðnir um að koma saman til skyndi- fundar nk. laugardag til að gera áætlun um það hvernig brugðizt skuli við kólerufaraldrinum þar um slóðir. Hingað til hefur Sýr- land orðið verst úti og var þar í dag tilkynnt um 40 ný tilfelli og eru kólerutilfelli samtals þar í landi þá orðin 2.389, þar af hafa 70 látizt. — Heimsmeistari Framhald af bls. 44. lokið ávarpi sinu var viðstöddum boðið upp á veitingar. Þeir Jón L. Árnason og Margeir Pétursson eru væntanlegir heim í dag með Loftieiðavél frá Luxem- borg. Stjórn Skáksambands ís- lands mun verða á Keflavikur- flugvelli og taka á móti heims- meistaranum nýja. — Nýtt kjötverð Framhald af bls. 17 en sláturkostnaður þessara > þriggja kilóa verður í haust 438 krónur. Söluaðilar kindakjöts i Reykja- vík sögðu í gær, að þeir væru þegar búnir að fá nýtt kindakjöt frá þeim sláturhúsum, þar sem slátrun er hafin, en biðu þess að setja það á markað þar til nýja verðið kæmi. Sala á slátri hefst í Reykjavík úm miðja næstu viku og hjá Sláturfélagi Suðurlands fer salan fram í húsakynnum fé- lagsins við Skúlagötu og er gengið inn frá Frakkastíg en Afurðasala SlS verður með á boðstólum sem undanfarin ár fryst slátur, fimm slátur í pakka, og verða þessir pakkar seldir i Afurðasölunni og verzlunum. — Góður túr Framhald af bls. 19 sýningu sína á Nesvellinum í fyrra- haust Jafnir i þriðja sæti urðu þeir Jón Þ. Hallgrímsson, NK, og Gunnlaugur Jóhannsson, NK, báðir með 71 punkt. Léku þeir þriggja hola auka keppni og vann Jón með 7 punktum gegn 3 og tryggði sér þriðju verð- launin örugglega. Það var Helgi Jakobsson, sem i samráði við Nesklúbbinn átti hug- myndina að keppni þessari. Rann ágóði af þátttökugjaldi keppenda til íþróttafélags lamaðra og fatlaðra og Kópavogshælis. Væri óskandi að hægt yrði að koma móti sem þessu á árlega i samvinnu við McGregor- umboðið hér á landi. ______^ ^_______—áij — Iðnkynning I' ramhald af bls. 27 vörur eða staðið í samkeppni á erlendum mörkuðum þegar lát- ið væri viðgangast í áraraðið að hér ríkti 30—50% verðbólga á ári hverju. Sagði Hjalti Geir í þessu tilefni að hlutur iðnaöar i þjóðarframleiðslu Islendinga væri um 35% og að við iðnað starfaði fjórði hver maður í landinu. Sagði hann einnig að undirstaða þess að ekki yrði fólksflótti hér á landi væri að ný atvinnutækifæri sköpuðust í framleiðslu- og þjónustuiðnaði. Hjalti Geir sagði loks: „Islenzk- ur iðnaður stendur nú á kross- götum. Næstu 2—4 ár geta orð- ið örlagarík öilum þeim sem við iðnað starfa. Iðnaðurinn verður því að búa við allt það atvinnu- öryggi sem heilbrigt atvinnulíf krefst.“ Að loknum ávörpum opnaði Björn Bjarnason, formaður Landssambands iðnverkafólks, Iðnkynningu í Reykjavík. Við það tækifæri flutti Björn nokk- ur orð. Kom Björn viða við, en sagði þó m.a. að þrátt fyri erfið- leika væri risinn allblómlegur iðnaður í Reykjavik, iðnaður sem á flestum sviðum hefði í fullu tré við erlenda fram- leiðslu hvað verð og gæði áhrærði. Sagði Björn að samt sem áður skorti enn verulega á að iðnaðurinn nyti meðal vald- hafanna þeirrar viðurkenning- ar sem honum bæri sökum þýð- ingar hans í atvinnulífi þjóðar- innar. I þessu sambandi benti Björn á að menn greindi ekki lengur á um að iðnaðurinn einn væri fær um að veita viðtöku því nýja vinnuafli sem árlega kemur á vinnumarkaðinn, ef rétt væri á málum haldið. Að lokum sagði Björn Bjarna- son: „Þegar við veljum íslenzka vöru umfram erlenda skulum við hafa það hugfast að með þvi erum við ekki aðeins að velja góða vöru á hagstæðu verði, heldur erum við líka að búa í haginn fyrir framtíðina og treysta grunninn undir þeim góðu lifskjörum sem við búum við í dag. Að velja islenzkt er snar þáttur í sannri sjálfstæðis- baráttu". Við athöfnina i Austurstræti í gær söng kór Söngskólans í Reykjavik nokkur lög undir stjórn Garðars Cortes. I Austur- stræti og á Lækjartorgi hefur verið komið fyrir ýmsum stærri hlutum sem framleiddir eru af reykviskum iðnfyrirtækjum og verða þeir þar út Iðnkynningu í Reykjavík. — Sprengingin Framhakl af bls. 44. yfirlögregluþjóns, var það klukk- an 10:37 á sunnudagsmorgun, sem allir símar lögreglustöðvar- innar glumdu og var þá fjöldi fólks að tilkynna um sprenginu og eld í verksmiðjuhúsi Flugelda- gerðarinnar. Slökkvilið Akraness, læknar og aukavakt lögreglunnar voru þegar kvödd til og að sögn Stefáns Teitssonar, siökkviliðs- stjóra, stóðu rústir verksmiðju- hússins í ljósum logum, þegar slökkviliðið kom að og mikið var um smásprengingar i rústunum. Þá var byrjað að loga í einum af fimm klefum hráefnisgeymslu, sem er rétt hjá verksmiðjuhús- inu, en þar voru geymd um 300 kg. af púðri. Milli klefans, sem eldur var í, og þess, sem hýsti púðrið, voru tveir aðrir og tókst að slökkva eldinn áður en hann breiddist út. Þá gekk og greiðlega að slökkva eldinn í rústum verk- smiðjuhússins. Það voru slökkviliðsmenn, sem fundu Helga heitinn, og sagði Stefán Teitsson, slökkviliðsstjóri, að ljóst væri að maðurinn hefði þeytzt 15—20 metra frá verk- smiðjuhúsinu við aðalsprenging- una. Litli sonur hans komst svip- aða vegalengd frá húsinu áður en hann hneig niður og loguðu þá klæði hans öll. Þeir feðgar voru fluttir í sjúkrahús og síðan til Reykjavíkur með þyrlum land- helgisgæzlunnar og varnarliðsins, sem lentu á íþróttavellinum á Akranesi klukkan 11:45 og 12:11. Helgi lézt svo í Borgarspítalanum laust fyrir klukkan þrjú á sunnu- dag. — Frá sex Framhald af bls. 2 lenzku leikmennirnir frá sex löndum, sjö komu frá Islandi til þessa leiks, fjórir höfðu dvalið i London að undanförnu og komu þaðan til leiksins, tveir koma frá Svíþjóó, einn frá Belgíu, einn frá Skotlandi og loks einn frá Sviss. Frá síðastnefnda landinu kemur Guðgeir Leifsson, en hann hefur nýlega undirritað atvinnumanna- samning við þarlent knattspyrnu- félag, sem leikur í 2. deild. Þá má geta þess, að að loknum leiknum á miðvikudagskvöld mun FH- ingurinn Ólafur Danivalsson halda til Glasgow i Skotlandi og æfa þar með því fræga félagi Glasgow Rangers í a.m.k. hálfan mánuð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.