Morgunblaðið - 20.09.1977, Side 41

Morgunblaðið - 20.09.1977, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 41 íhi í ? b h! M \M< iNJiiá £1 <y ^ - ai = VELVAKANDI . SVARAR Í SÍMA J0100 KL. 10-11 pptU^ FRÁ MANUDEGI ylV- ir ny lUArrs^-a^'u n svefn. Djúpur svefn verður léttur og hvílldarlítill og draumar geta verið slæmir. Að morgni er eins og hvildin hafi verið mun minni en til stóð. Talað er lika um að kaffi geti undir vissum kringum- stæðum haft truflandi áhrif á hor- mónastarfsemi. Það er þvi ýmis- legt annað i kaffibaunum en sjá má með berum augum eru svo tokaorð greinarinnar. Hér hefur verið rakið það helzta úr þessu fréttabréfi um kaffi og áhrif þess, en ætli menn séu ekki hættir að kippa sér upp við slíkar fréttir, eða hvað finnst lesendum? Hafa þeir e.t.v. heyrt eitthvað svipað sagt um kaffið áð- ur eða er kaffið alltaf sami góði drykkurinn? % Hver kaupir krukkur og flöskur? Siðan er hér fyrirspurn frá konu um hver taki við flöskum og krukkum: ,,Mig langar mikið til að spyrja um hvort það sé ekki einhver sem kaupir flöskur og sultukrukkur. Ég hef verið að spyrjast fyrir um þetta, en ég hef ekki hitt á neinn, sem slíka hluti kaupir. Er engin glergerð hér á landi, sem gæti notað slíka hluti til , endurbræðslu? Ein sem á nóg af flöskum." Einhvern tíma var flöskumót- taka á horni Skúlagötu og Höfða- túns en hún tekur kannski ekki við sultukrukkum. Ef einhver getur liðsinnt og svarað þessum spurningum þá er það vel þegið. Þessir hringdu . . . % Hissa á misgjörðum unglinga? Kona nokkur, sem hafði set- ið eina kvöldstund með gömlum skólasystrum sinum, hafði sam- band við Velvakanda og sagðist vilja koma á framfæri ýmsu af því sem þær hefðu verið að rabba um. Þær eru allar mæður, sagði kon- an, og eiga allar unglinga og töldu það vera vandamál hvernig komið væri þessu þjóðfélagi, hvernig svo margt misjafnt væri haft fyrir börnunum að ekki væri undarlegt þó eitthvað brygði út af hjá börn- um og unglingum, og enginn þyrfti að vera hissa þótt þau gerðu eitthvað misjafnt. — Við ræddum lika þennan sænska þátt, Skóladagar, og teljum að ástandið hér sé litið betra. Það er mörgu ábótavant hjá okkur og við teljum að æskan sé oft hart leikin. Okkur finnst ómögulegt hvernig sifellt er t.d. verið að hafa alls kyns klám fyrir unglingunum, rit liggja frammi i sjoppunum, þau sjá það í bióum og það er eins og bióeigendur hugsi lítt um hvað haft er fyrir unglingum og börnum. Maður hefur heyrt um kvikmyndaeftir- lit, en hverjir skyldu sitja í því og eftir hvaða reglum ætli sé farið með að velja myndir eða gera kröfur um að þær séu bannaðar vissum aldurshópum? Stjórnar- skráin bannar klám að því er við munum bezt og með öllu þessu klámi hjá okkur er ekki bara ver- SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson A heimsmeistaramóti unglinga undir 17 ára, sem nú stendur yfir i Cagnes sur Mel í Frakklandi, kom þessi staða upp í skák Short frá Englandi, sem átti leik, og Soucadt Frakklandi. 21. Bxh5+ — gxh5 (annars leikur hvítur einfaldlega 22. Be2 og 23. h5). 22. Rxh5 — Dc8, 23. Bh6 — Rh7, 24. Hf3! — Rxf6, 25. Dg5+ og svartur gafst upp. ið að ná aurum af unglingum heldur spillir þetta þeim líka. Mér og okkur, sem þarna vorum að spjalla um kvöldið, finnst að Al- þingi eigi að láta þetta mál til sin taka og það má áreiðanlega gera eitthvert átak til að koma þessu burt. Það er enginn að hafa á móti ástinni og þvi góða, en að af- skræma hlutina er ekki fallegt. Um eiturlyf vildum við segja að það mætti vel birta nöfn þeirra sem hafa verið fundnir sekir um dreifingu þeirra, þá fyrst má vænta þess að árangur geti náðst í baráttunni gegn þeim. Við erum það fámenn hérlendis að það ætti að vera auðvelt að sporna á móti mörgu þvi sem óæskilegt má telj- ast, en til þess þurfa foreldrar og aðrir að snúa bökum saman og standa á móti óæskilegum áhrif- um i uppeldismálum okkar. „Að- gát skal höfð í nærveru sálar,“ segir i ljóðlínum Einars Bene- diktssonar og víst skal hafa aðgát í nærveru lítilla barnssála. og maður vorkennir unglingunum að ýmsu leyti hvernig þeir sifellt mæta ýmsu misjöfnu i þjóðfélagi okkar Tökum höndum saman og gerum átak í öllum þessum mál- um og styðjum við bakið á kenn- urum okkar, sem að miklu leyti ala börnin og unglingana upp. % Ilverjir fá heimilis- uppbætur? Þannig spurði öldruð kona 81 árs, sem hringdi nýlega og kvaðst ekki alveg skilja hvernig þessum úthlutunarreglum væri háttað. Sagði hún að það væri mikill hiti i sumu gömlu fólki vegna þess að svo virtist sem ekki væri algjört samræmi í þessari úthlutun. Reglan mun vera á þá leið að fólk, sem býr einsamalt, á kost á uppbótinni, en ef t.d. ein- hver býr með skyldmenni, þá fær hvorugt bætur. Ef viðkomandi getur veitt nán- ari upplýsingar skal Velvakandi fúslega taka við þeim og koma á framfæri. Enn einn Simca 1100 sendibíllinn: REDDARINN Nú getum við boðið Simca 1100 pick-up sendibíl, sem er lipurt og þolmikið atvinnutæki. SIMCA 1100 sendibílar hafa marg sannað ágæti sitt á íslandi, enda í eigu f]ölda fyrirtækja, stofnana og bæjarfélaga. „Reddarinn" er nýjasti meðlimur SIMCA 1100 frá CHRYSLER FRANCE, sem ber a.m.k. 500 kg. í ferð. Af útbúnaði má nefna: framhjóladrif, styrkta dempara, öryggispönnur undir vél, gírkassa og benzíngeymi og annan búnað fyrir slæma vegi. „Reddarinn" er neyzlugrannur og dugmikill lítill bíll ætlaður til stór átaka. Vökull hf. SIMCA ARMULA 36, SIMAR 84366 - 84491 í ræðumennsku og mannlegum samskiptum er að hefjast Námskeiðið mun hjálpa þér að: Öðlast meira hugrekki og sjálfstraust. Ár Bæta minni þitt á nöfn, andlit og staðreynd- ir. if Láta i Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfær- ingarkrafti í samræðum og á fundum. Á' Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og viðurkenningu. ★ Talið er að um 85% af velgengni þinni sé komin undir því, hvernig þér tekst að um- gangast aðra. 'fc Starfa af meiri lífskrafti — heima og á vinnustað. h Halda áhyggjum i skefjum og draga úr kviða. Verða hæfari að taka við meiri ábyrgð án óþarfa spennu og kvíða. Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt í Dale Carnegie námskeiðinu. FJÁRFESTING í MENNTUN GEFUR ÞÉR ARÐ ÆVILANGT. * '82411 f f E ínkiilcyfi «1 IsI.iikÍí X4ii STJÓRNUNARSKÓLINN N i M>Kh 11>IA Konráð Adolphsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.