Morgunblaðið - 28.09.1977, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977
13
Skákin sem réð úrslitum
SIGUR Jóns L. Árnasonar á
heimsmeistarmóti unglinga
undir 17 ára hefur að vonum
vakið verðskuldaða athygli. Jón
hlaut niu vinninga af ellefu
mögulegum á mótinu og hafði
fyrir síðus.tu umferð hlotið
vinningi meira en hættulegustu
keppinautar hans.
Lokastaðan á mótinu varð
annars þessi: 1. Jón L. Árnason,
9 v. af 11 mögulegum. 2.
Whitehead (Bandaríkjunum)
8VS v. 3. Kasparov (Sovétríkjun-
um) 8 v. 4. Kappe (V-
Þýzkalandi) 7 ‘A v., 4—5.
Negulescu (Rúmeníu) ogMoro-
vic (Chile) 7 v. 7—8. Pajak
(Kanada) og Santo Roman
(Frakklandi) 6V4 v. 9—12.
Short (Englandi), Sendur
(Tyrklandi, McNab (Skot-
landi) ogDrashko (Júgóslavíu)
6 v. 13—20. Bergström
(Svíþjóð), Delaney (írlandi),
Greenfeld (Israel), Jansson
(Noregi), Sequeira (Portúgal),
Soppe (Argentinu), Andersen
(Danmörku), Zuger (Sviss),
allir með 514 v. Þátttakendur
voru alls 32. Jón vann alls átta
skákir, tapaði einni, fyrir
Kasparov í áttundu umferð, og
gerði síðan tvö jafntefli, í
fyrstu umferð við Soppe og í
siðustu við Morovic, til að
tryggja sigurinn.
Sem aðstoðarmaður Jóns á
mótinu er ég á þeirri skoðun, að
ein skáka hans beri af öðrum.
Það var einmitt sú skák sem
kom til með að hafa mest áhrif
á stöðuna í mótinu, viðureign
hans við Whitehead í fimmtu
umferð. Fram að þvi hafði
Bandaríkjamaðurinn unnið all-
ar skákir sínar og ætlaði nú að
láta sér nægja jafntefli gegn
Jóni, sem sást bezt á því, að
hann bauð jafntefli strax eftir
sjötta leik sinn og síðan aftur í
tólfta leik i umhugsunartíma
Jóns, en slíkt þykir fádæma
óíþróttamannsleg framkoma.
Jón lét þetta þó ekkert á sig fá,
en hófst þegar handa um að ná
frumkvæðinu í sinar hendur.
Reyndar er þessi skák dæmi-
gerð fyrir taflmennsku Jóns á
heimsmeistaramótinu. Hann
tefldi ekki nærri því eins
hvasst og á islandsmótinu i vor,
heldur fór sér rólega og honum
urðu sjaldan á alvarleg mistök.
Kom það þá oftast i hlut and-
stæðingsins að misstiga sig,
einkum ef stutt var þar til skák-
in skyldi í bið.
Gott úthald Jóns á mótinu er
einnig athyglisvert, en á
fimmta tímanum sneri hann
mörgum jöfnum stöðum sér í
hag.
En höfum ekki þennan for-
mála lengri, heldur snúum okk-
ur að skákinni.
Hvftt: Jay Whitehead.
Svart: Jón L. Árnason.
Rétt byrjun.
1. Rf3
(Venjulega leikur Whitehead
ávallt 1. e4 í fyrsta leik, en í
þessari skák fer hann ekki
troðnar slóðir, sjá t.d. sjötta
leik hans)
c5, 2. g3 — Rc6, 3. Bg2 — g6, 4.
0—0 — Bg7, 5. e4
(Reynslan hefur leitt i ljós að
eftir 5. c4 — e6, 6. Rc3 — Rge7
standa menn svarts mjög vel til
sóknar á miðborði. Whitehead
kýs því aðra og óvenjulegri liðs-
skipan)
e5, 6. Ra3 — Rge7, 7. d3 0-0, 8.
Rc4 — d6, 9. c3 — h6, 10. Rel —
Be6,11. Re3 — f5!
(Svartur hefur nú a.m.k. jafnað
taflið)
12. Rd5 — Hb8, 13. a4 — Bf7,
14. f4
(Nauðsynlegur leikur, því að
hvítur verður að stöðva frekari
framrás svörtu miðborðsspeð-
anna).
Rxd5! (Rétt og mikilvæg
ákvörðun. Svartur á mun hæg-
ara um vik eftir uppskiptin) 15.
exd5 — Re7, 16. Db3 — Kh7,
17. Be3 (Hótar 18. fxe5 og
svartur yrði að taka aftur með
biskup) Dc7, 18. Rc2 — a6, 19.
fxe5? (Eftir þennan leik, er
frumkvæðið greinilega i hönd-
um svarts, því að hin hreyfan-
legu miðborðspeð hans eru
miklu áhrifameiri en frelsingi
hvits á d linunni) dxe5.
20. Dc4 (Þessi og næsti leikur
hvits gefa vel til kynna úrræða-
leysi hans. 20. a5 var þó tæp-
lega skárra, því að svartur leik-
ur þá einfaldlega 20 ... g5 með
sókn á kóngsvæng. Eftir 20. a5
er b5 hins vegar varhugavert,
ekki vegna 21. axb6 e.p. —
Hxb6, 22. Da3? — Rxd5, 23.
Bxc5 — Hb3! heldur vegna 22.
öryggið réð ferðinni hjá Jóni
L. Arnasyni á heimsmcistara-
móti unglinga.
Da2! — Db7, 23. b4!)
Hbc8, 21. Db3 — b6, 22. c4
(Hótar 23. a5, sem myndi riðla
mjög svörtu peðastöðunni)
Hb8, 23. Dc3 — a5, 24. Db3 —
Rc8, 25. Ra3 — Be8, 26. Bd2 —
Rd6 (Hinn mikli þýzki skák-
fræðingur Aron Nimzowitsch
hafði mikið dálæti á slikri stað-
setningu riddara. E.t.v. hefur
Jón lært eitthvað af honum) 27.
Hael — Bd7, 28. Bc3 — Hbe8,
29. Dc2 — h5, 30. b3 — Dd8, 31.
Db2 — Rf7, 32. Rb5? (Mistök
sem léta svörtum róðurinn.
Betra var 32. Rbl og reyna síð-
an að koma riddaranum yfir á
f3 þar sem hann á heima. Það
sýnir vel skort Whiteheads á
sjálfstrausti.í stöðunni, hversu
mjög hann sækist eftir upp-
skiptum) Bxb5, 33. axb5 — Bf6,
34. h3 — Kg7, 35. Bf3 — Hh8,
36. Dg2 — Rg5, 37. Bb2 — Dd7,
38. He2 — He7, 39. Hfel —
Ilhe8, 40. Bcl — Kf7
(Hér fór skákin í bið. Bezta
framhald hvits var 41. Bb2! og
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
ekki er ljóst hvernig svartur
getur fært sér rýmri stöðu sína
í nyt. Bandarikjamaðurinn
eyddi hins vegar ekki miklum
tima á biðleikinn og það þurfti
ekk mikinn sálfræðing til þess
að geta sér til um ákvörðun
hans.) 41. Bxg5? (Hvítur vill
létta á stöðu sinni, en þessi leik-
ur hefur þveröfug áhrif. Þegar
drottningar og hrókar eru enn
á borðinu létta mislitir biskup-
ar mjög undir með söknaraðil-
anum) Bxg5, 42. d6!? (Hvítur
gerir sér grein fyrir hversu al-
varlegt ástandið er orðið. Ekki
dugar honum að bíða átekta,
því að svartur hefur algjörlega
frjálsar hendur um hvernig
hann hagar sókn sinni. Bezt er
sennilega að hafa kónginn á
d6!, drottninguna á f6 og hrók-
ana á h8 og e7. Síðan leikur
Framhald á bls. 19.
Alviðrumálið:
Formaður
Landverndar
gaf skýrslu
ÞINGAÐ var I svokölluöu Al-
viðrumáli á laugardaginn, en
Friðgeir Björnsson borgardómari
hefur verið settur dómari 1 mál-
inu.
Á laugardaginn gaf Hákon Guð-
mundsson, formaður Landvernd-
ar, skýrslu fyrir réttinum og 15.
október verður næst þingað á Sel-
fossi og mun þá væntanlega P:'ll
Hallgrímsson sýslumaður Árnes-
sýslu mæta fyrir réttinn og gefa
skýrslu.
Eins og áður hefur komið fram i
fréttum Mbl., eru málavextir þeir,
að Magnús Jóhannesson, fyrrum
bóndi í Alviðru, höfðar málið til
að rifta gjöf sinni á jörðinni Al-
viðru til Landverndar og Árnes-
sýslu á þeirri forsendu að gjaf-
þegar hafi ekki farið eftir þeim
kvöðum er gjöfinni fylgdu. Garð-
ar Garðarsson lögmaður Magnús-
ar kvaðst i gær ekkert geta tjáð
sig um málið í fjölmiðlum að svo
stöddu.
Trilla sökk
TRILLAN Sleipnir RE 83 sökk laust
fyrir klukkan átta i gærmorgun um
10 milur út af Garðskaga. Vélbátur-
inn Örvar BA 14 var meB Sleipni i
togi og var ferBinni heitiB til Reykja-
vikur. Enginn var um borB i trillunni
þegar hún sökk mjög skyndilega.
Skömmu áBur höfBu skipverjar á
Örvari gáB um borB og var þá allt i
stakasta lagi. Sleipnir var 5 tonna
opin trilla. Hún var gerS út frá
TálknafirBi i sumar.
RENAULT
KRISTIHN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
STOR - STÆRRI - STÆRSTUR
REnnULT SEnDIBÍLHR
Hvort sem flutningsþörfin er lítil eða mikil þá er hægt að fá Renault
sendiferðabíl sem hæfir þörfinni. Við getum útvegað sendiferðabíla með
burðarþoli frá 420 kg til 1000 kg. Renault sendiferðabílar eru
á mjög hagstæðu verði og rekstrarkostnaður er í lágmarki.