Morgunblaðið - 28.09.1977, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977
15
Kanada:
Aðskilnaðarsinn-
ar herða róðurinn
Montreal 27. september. Reuter.
Aðskilnaðarflokkurinn í
Quebec í Kanada hefur nú hafið
Sleppt
úr
gíslingu
Reggio Calabria,
Italíu 27. september
Reuter.
ÞRÍTUGUR ítalskur
kaupsýslumaður sem
rænt var fyrir 16 dög-
um gekk í dag inn á
lögreglustöð í Reggio
og bar enn um hálsinn
keðju, sem ræningjar
hans höfðu hengt á
hann. Var maðurinn,
Salvatore Fazzari,
ómeiddur. Ekki er vit-
að hve hátt lausnar-
gjald var greitt fyrir
hann, en hann er 9.
fórnarlamb mannræn-
ingja á S-Italíu á
undanförnum mánuð-
um. 6 eru enn í haldi
ræningja sinna.
Meiðyrða-
mál gegn
óánægðum
eiginmanni
Detroit 27. september AP.
SÉRKENNILEGT með-
yrðamál er komið upp i
Detroit í Bandaríkjunum.
24 ára gömul kona, sem
fæddist á Sikiley á Italíu,
hefur höfðað meiðyrðamál
gegn eiginmanni sínum,
Salvatore Ruffino, og
krefst 1 milljónar dollara
miskabóta fyrir að hann
hafi sagt vinum sínum, að
hún hefði ekki verið hreyn
mey á brúðkaupsnóttina í
júní sl. Segist frú Ruffino
hafa vottorð frá heimilis-
lækni sínum um að hún
hafi verið óspjölluð er hún
gekk í hjónabandið. Á
Sikiley er það skilyrði fyrir
hjónabandi að konan sé
hrein mey.
mikla áróðursherferð til að afla
fylgis við áætiun sina um full-
komið sjálfstæði frá Kanada.
Rene Leveque, forsætisráðherra
Quebec, lofaði í kosningabarátt-
unni á sl. ári að halda atkvæða-
greiðslu meðal íbúa Quebec um
aðskilnað innan tveggja ára og
hafa skoðanakannanir í fylkinu
sýnt að meirihluti ibúanna hallast
að stofnun sjálfstæðs rikis. 6 mill-
jónir manna búa nú i Quebec og
hafa þeir lagt um 1.2 milljónir
dollara í sjóð til að standa straum
af kostnaði við herferðina. Um
2000 manns munu starfa að þessu
máli um allt fylkið.
Kanadiska rikisstjórnin hefur
undanfarið varið miklu fé til her-
ferðar, þar sem hvatt er til eining-
ar allra Kanadamanna, en ekki
haft árangur sem erfiði.
ERLENT,
Góður gróði
hjá Laker
London 27. sept. AP.
FYRSTA flugvél Laker Air-
ways á leiðinni New York—
London, lenti á Gatwickflug-
velli í dag, fullsetin farþegum,
eða 345 alls og sagði Freddie
Laker kampakátur að hagnað-
ur af fyrstu ferðinni hefði
numið um 4 milljónum isl.'
króna miðað við báðar leiðir,
en 271 farþegi fór með vélinni
frá London til New York. Um
60 manns höfðu um hádegis-
bilið keypt miða í þotuna, sem
fara átti aftur til New York í
kvöld.
Brezhnev samþykk-
ir nýja stjómarskrá
Moskvu 27. september AP.
STJÖRNARSKRÁRNEFND Sovétríkjanna undir forsæti Leonids
Brezhnevs, leiðtoga kommúnistaflokks landsins, samþykkti I dag drög
að nýrri stjórnarskrá ásamt viðbótum og breytingartillögum, sem
lagðar voru fram við 4 mánaða umræður um hana meðal allrar
þjóðarinnar að sögn Tass-fréttastofunnar. Verður uppkastið lagt fyrir
æðstaráð Sovétrikjanna 4. október til umf jöllunar og samþykktar.
Að sögn Tass lagði Brezhnev Að sögn Tass hefur verið unnið
áherzlu á að hver einasta tillaga að gerð nýrrar stjórnarskrár frá
frá tugþúsundum borgar til um-
bóta eða breytinga hefði verið
grandskoðuð og hefðu sumar haft
í för með sér verulegar breyting-
ar til bóta. Uppkastið var fyrst
birt 4. júní s.I. og á hin nýja
stjórnarskrá að taka við af gömlu
skránni, sem samin var á tímum
Stalins 1936. Er stefnl að þvi að
hún gangi í gildi 7. nóvember, á
60 ára afmæli byltingarinnar.
því Nikita Khrushchev bar fram
tillögu þess efnis árið 1959. Segja
stjórnmálafréttaritarar að hin
nýja stjórnarskrá eigi að verða
minnisvarði um stjórnartið
Brezhnevs. Sagt er, að fáar grund-
vallar breytingar sé að finna, en
þó er gert ráð fyrir varaforseta-
embætti og að stjórnarskráin færi
þjóðina nær fullkomnum
kommúnisma.
Eins og fram hefur
komið af fréttum
seldist uppstoppaður
geirfugl nýlega á
uppboði hjá Sothe-
by’s í Lundúnum
fyrir 4.200 sterlings-
pund, eða sem svarar
rúmlega einni og
hálfri milljón ís-
lenzkra króna. Geir-
fuglinn er aldauða
og eru því gersemar
sem þessar orðnar
næsta sjaldséðar.
Sá er seldi geir-
fuglinn var Durham-
háskóli, en fuglinn
hafði verið í eigu
skólans allt frá árinu
1834. Kaupandi var
Michael Pilkington
kaupmaður í Lund-
únum
Frydenlund hjá S.Þ.:
Algert vopnasölubann
verði sett á S-Afríku
Sameinuðu þjóðunum
27. september Reuter.
KNUT Frydenlund utanríkisráð-
herra Noregs hvatti í dag I ræðu á
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna til að öryggisráðið sam-
þykkti algert bann við vopnasölu
til S-Afríku til að hafa áhrif á
þáttamisréttisríkisstjórnirnar i
suðurhluta Afríku. Lýsti Fryden-
lund áhyggjum norsku stjórnar-
innar vegna láts s-afríkanska
blökkumannaleiðtogans Stevens
Bikos i fangelsi þar í landi og
skoraði á stjórn S-Afriku að leyfa
rannsóknarnefnd frá 'alþjóða
Rauða krossinum að koma til S-
Afríku til að rannsaka málið.
Sagði utanrikisráðherrann að hin
tíðu dauðsföll i fangelsum S-
Afriku gerðu ástandið á þessum
slóðum enn alvarlegra.
þróun mála þar. Sagði Fryden-
lund að Norðmenn væru reiðu-
búnir til að styðja viðskiptabann
gegn S-Afríku. Hann sagði að
minnihlutastjórnir hvítra manna
í suðurhluta Afríku væru nú ein-
angraðri en nokkru sinni áður og
nauðsynlegt væri að auka þrýst-
inginn á þær til að gera þeim Ijóst
:ð taka verði tillit til ákvarðana
S.Þ.
Hann sagði að Norðurlöndin
hefðu rætt sín á milli um hugsan-
legar aðgerðir til að einangra kyn-
Þota hrapaði
Tókíó 27. september AP.
BANDARÍSK Phantomorustu-
þota hrapaði í dag i íbúðarhverfi
skammt frá Tókíó. Flugmönnun-
um tókst að skjóta sér út í fallhlif,
en 9 manns særðust og 2 hús
eyðilögðust, þar sem þotan skall
til jarðar. Ekki er vitað um orsök
slyssins.
Ú gandamenn fá
pólitískt hæli
Dar Es Salam, Tanzaníu.
27. septembcr AP.
108 starfsmenn Uganda við
A-Afríkubandalagið í
Tanzaníu hafa beðizt hælis
sem pólitískir flóttamenn
að því er talsmenn
Tanzaniustjórnar skýrðu
frá i dag. Sögðu þeir að
Ugandamennirnar hefðu
beðizt hælis fyrir tveimur
mánuðum, er skipun kom
frá Amin forseta um að
þeir skyldu allir snúa heim.
A-Afríkusambandalagið
sem var efnahagsbandalag
Úganda, Tanzaníu og
Kenya, hefur verið leyst
upp vegna innbyrðis deilna
aðildarþjóðanna. Sögðu
talsmennirnir að Uganda-
búum hefði verið veitt hæli
og leyfi til að leita sér
vinnu. Þyrftu þeir ekki að
greiða húsaleigu í tvo mán-
uði meðan þeir væru að
finna sér ný störf.
Hráolíuskattur
felldur niður í
öldungadendínni
Washington 27. septem-
ber Reuter.
CARTER Bandaríkjafor-
seti beið í dag verulegan
hnekki í öldungadeildinni,
er fjármálanefnd deildar-
innar samþykkti með 10
atkvæðum gegn 6 að fella
úr orkumálafrumvarpi
hans ákvæði um 39
milljarða dollara skatt á
hráolíu. Sagði Carter á
fundi með fréttamönnum í
Washington í dag, hags-
munasamtök olíu- og gas-
iðnaðarins stefndu leynt og
ljóst að þvi að eyðileggja
frumvarpið. Þessi skattur
svo og tillaga um skatt á
eyðslufreka bíla eru höfuð-
þættir áætlunar Carters
um að minnka olíunotkun
með hærri sköttum. Sagði
Carter að koma yrði i veg
fyrir að hagsmunahópar
stofnuðu framtíð Banda-
ríkjanna í hættu.
Fyrr á þessu ári sam-
þykkti fulltrúadeildin
frumvarp Carters nærri
óbreytt, sem var talinn
mikill sigur fyrir forset-
ann.