Morgunblaðið - 28.09.1977, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977
+
Móðir okkar,
INGIBJORG ÖGMUNDSDÓTTIR,
fyrrverandi símastjóri,
andaðist á Borgarspítalanum 26 september
Guðrún Guðmundsdóttir,
Ögmundur Haukur Guðmundsson.
t
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
STEINGRÍMUR JÓNATANSSON,
Skeiðarvogi 75,
er lést í Landakotsspítala 26 september verður jarðsungmn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 30 september kl 1 3 30
Helga Guðmundsdóttir. Hildur Steingrímsdóttir,
Jakob Steingrimsson, Karen Þorvaldsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓSKAR SIGUROSSON,
frá Króki, Ölfusi,
verður jarðsunginn frá Kotstrandarkirkju fimmtudaginn 29 september
kl 2
Þorbjörg Hallmansdóttir,
böm, tengdabörn og barnabörn
t
EINAR M. EINARSSON
fyrrum skipherra
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 30 september kl
1 0 30 árdegis
Vandamenn.
Bálför
ANDRÉSAR FERDINANDS LÚÐVÍKSSONAR,
Höfsvallagötu 20, Reykjavik,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29 september kl 10:30
Salbjörg Kr. Aradóttir,
Anna Kjartansdóttir, Soffia Andrésdóttir,
Dýrleif Andrésdóttir, Jóhann Helgason.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför —
bálför —
SIGURLÍNAR KRISTÍNAR DAVÍÐSDÓTTUR,
frá Ásbúð, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir eru til forseta íslands. herra Kristjáni Eldjárn, færðar
fyrir kærkomnar heimsóknir og tryggð við Sigurlinu allt hennar
veikindaskeið Gæskurík forsjón blessi ykkur öll og varðveiti.
Vandamenn.
t
Þökkum innilega auðsýnda vináttu og samúð við andlát og jarðarför
eiginmanns míns,
ÓSKARS GUÐMUNDSSONAR,
Grænuhlíð 20.
Fyrir mina hönd og annarra vandamanna,
Magnea J. Magnúsdóttir.
Hulda M. Indriðadótt-
ir — Minningarorð
Þegar við kveðjum kæra skóla-
systur, þá fyrstu úr hópnum, sem
flyst yfir landamærin miklu,
þyrpast minningarnar fram i
hugann og fer ekki hjá, að þær
eru meira og minna tengdar
henni.
Haustdag einn mildan og
fagran fyrir rúmum þremur ára-
tugum mættum við væntanlegir
nemendur í Húsmæðraskólanum
að Laugalandi i Eyjafirði. Ætlun-
in var að dvelja þar vetrarlangt,
nema þar kvenleg fræði, hús-
stjórn og heimilishald, vefnað og
hannyrðir ásamt fleiru.
Sumar höfðu yfirgefið æsku-
heimili sin i fyrsta sinni og full-
ljóst var, að eftirvænting ríkti og
spurning um, hvað biði okkar.
Skuggi styrjaldaráranna grúfði
enn yfir, en sem titt er um ungt
fólk litum við framtiðina björtum
augum. Við komum viðs vegar að
af landinu, höfðum alist upp við
ólík skilyrði og misjöfn lífskjör og
nú átti norðlensk sveit og
norðlenskur vetur með fegurð
sinni og reisn, hríðum og kulda að
vera umgjörð lífs okkar þennan
tíma.
Smám saman hófust kynnin. A
hefðbundinn hátt drógum við
okkur saman í smá vinnuhópa og
skiptum með okkur verkum. Það
var spennandi að vita hverjar
yrðu saman. Jú. þrjár urðum við í
númer 4 í eldhúsi, til að byrja
með, tveir norðlendingar og ein
úr gróðursælli sunnlenskri sveit
og var það Hulda. Hún hafði ekki
kynnst norðlenskum vetri og vissi
því ekki, hvernig hin ytri um-
gjörð var.
Strax urðum við þrjár mjög
samrýndar og í gamni töldum við,
að i okkar númer hefði valist bezt
saman. I okkar litla samfélagi
ríkti oft mikil kæti og græsku-
laust gaman, Hulda átti sinn þátt i
því. Kímni átti hún góða og enn í
dag munum við skölasysturnar
margar hnittnar setningar og at-
hafnir hennar.
Mér er mjög minnisstætt,
hvernig hún gekk að öllum sinum
verkum, ósérhlífin, velvirk og
samviskusöm. Aldrei ætlaði hún
öðrum að vinna þau verk, er hún
taldi sig sjálfa eiga að ieysa af
hendi.
A miðjum vetri skiptum við um
verksvið og kom þá enn betur i
Ijós hver völundur Hulda var i
höndunum. Hún vann muni sem
+
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður og afa.
HARALDARBJÖRNSSONAR
fyrrverandi aðalféhirðis
Grettisgotu 90.
Sérstakar þakkir til póstmanna, fyrrverandi skólasystkina og starfsfólks
Grensásdeildar Borgarspítalans
Sjöfn Haraldsdóttir, Ólafur Vilhjálmsson,
Milly Haraldsdóttir, Ari Pálsson
Auður Haraldsdóttir,
og bamaböm.
+
Kveðjuathöfn um móður okkar
SALÓME MARÍU EINARSDÓTTUR
frá Rauðbarðaholti
fer fram i Fossvogskirkju fimmtudaginn 29 september kl 3:00 e h
Jarðsett verður frá Hvammi í Dölum lauqardaqinn 1. október kl.
2:00 e h
Einar Kristmundsson,
Guðlaug Kristmundsdóttir,
Ingiríður Kristmundsdóttir,
Eggert Kristmundsson.
+
Þökkum innilega hlýjar kveðjur og vinarhug við andlát og útför föður
míns, tengdaföður, afa og bróður,
KRISTJÁNS MAGNÚSSONAR
frá Borgarnesi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki deild 1 B Landakotsspítala fyrir
frábæra umönnun og hjúkrun Ingibjörg Kristjánsdóttir.
Haraldur Þórðarson,
Unnur Guðmundsdóttir,
S igþór Jóhannesson.
Kristfn Jóhannesdóttir,
Steinunn Magnúsdóttir.
bera vitni um hreint listahand-
bragð.
Veturinn leið við nám og leik.
Hin svokölluðu unglinga-
vandamál þekktust ekki á þessum
stað. Við virtum kennara okkar og
urðum þeirra trausts og hand-
leiðslu aðnjótandi. Eftir lærdöms-
ríkan og ánægjulegan samveru-
tima, urðu leiðir að skilja og vist
er um það, að heldur var dapur-
legur dagurinn, sem við skildum
og kvöddum skólann okkar, en
það heit, að halda kynnum áfram,
höfum vió efnt. Hópurinn allur
varð sem ein vináttukeðja, sem
haldist heíur heil æ síðan. Hulda
var sterkur hlekkur í þessari
keðju. Hún stuðlaðí alltaf að
samfundum okkar, sem orðnir
voru æði margir þrátt fyrir
búsetu viðs vegar um landið.
Þegar Hulda var með okkur
siðast var hún orðin alvarlega
veik, en að vanda lét hún ekki á
þvi bera. Hún vildi ekki, að sinir
erfiðleikar skyggðu á gleði
annarra. Já, þannig var hún.
Hulda settist að í Reykjavik og
vann lengi við saumaskap, lærði
þar dömuklæðskeraiðn. Hún
giftist Einari Kvaran og eign-
uðust þau eina dóttur, Bryndísi,
sem verið hefur móðursinni mjög
kær og reynst henni hlý og nær-
gætin erfiðan tíma. Þau hjón slitu
samvistum eftir fárra ára
sambúð. Sú ráðstöfun mun hafa
verið Huldu viðkvæmt mál, sem
hún ræddi ekki við aðra. Hún bjó
sér og dóttur sinni yndislegt
heimili og um tima vann hún
heima að iðn sinni. A þann hátt
hugði hún þær. mæðgur dvelja
meira saman. Ekki urðu stór fjár-
hagsleg uppgrip af starfi hennar
þá, til þess var Hulda of greiðug
og gestrisin. Seinustu árin vann
hún í kápuverzlun og reyndist þar
góður starfskraftur.
Hulda var dóttir hjónanna
Theódóru Ásmundsdóttur og
Indriða Guðmundssonar í Arnar-
holti í Biskupstungum, sem bæði
eru látin. Mjög kært var með'
Huldu og systkinum hennar,
einkum þó systrunum er bjuggu i
grennd við þær mæðgur. Heimili
þeirra stóðu þeim ávallt opin.
Einnig hafa þær sýnt frábæra
umhyggju og hjálpsemi i löngum
og erfiðum veikindum hennar.
Fyrir rúmlega tveim árum
veiktist Hulda af ólæknandi sjúk-
dómi. Síðan hefur hún að mestu
dvalið á sjúkrahúsi. Hún hefur
sýnt einstaka ró og stillingu þrátt
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
Bátar til sölu
6 — 7 — 10 — 1 1 — 30 — 38 — 46 — 51 — 53 —
55 — 65 — 85 — 87 — 90 — 120 — 230 —tn.
Eínmg opmr bátar af ýmsum stærðum. Höfum sérstaklega
verið beðnir að útvega 80 — 100 tonna stálbát og 200 —
300 tonna bát fyrir góða kaupendur.
Aðalskípasalan,
Vesturgötu 1 7.
Simar 26560 og 28888.
Heimasimi 51119.
Vorboði
sjálfstæðiskvennafélagið
í Hafnarfirði
heldur FLÓAMARKAÐ
I sjálfstæðishúsinu laugardaginn 1. október kl. 3.
Konur sem vilja gefa muni nýja sem gamla eru vinsamlegast
beðnar að koma þeim í sjálfstæðishúsið miðvikudaginn 28.
sept. milli kl. 3 — 7 eða hafa samband í síma 52797 og
501 52 ef óskað er eftir að munir verði sóttir.
Fjáröflunarnefndin.
Aðalfundur í
Smáíbúða-
Bústaða- og
Fossvogshverfi.
Aðalfundur félags Sjálfstæðismanna i Smáibúða- Bústaða- og
Fossvogshverfi verður haldinn I Valhöll, Háaleitisbraut 1,
þriðjudaginn 4. október og hefst kl. 20:30
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Magnús L. Sveinsson, borgarfulltrúi, form. atvinnumála-
nefndar Reykjavikurborgar ræðir um atvinnumál í Reykjavík.
Þriðjud. 4. okt. — Kl. 20:30 — Valhöll.
Stjórnin.