Morgunblaðið - 28.09.1977, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977
31
ARSENAL VILL KAUPA
TREVOR FRANCIS
AÐ sögn ensku blaðanna þykir nú
margt benda til þess að senn
verði af metsölu f ensku knatt-
spyrnunni, en þau telja sig hafa
áreiðanlegar heimildir fyrir því
að Arsenal hafi boðið 500 þúsund
pund f Birmingham-leikmanninn
Trevor Francis. Segja þau jafn-
framt, að þótt Birmingham megi
alls ekki við því að missa þennan
ágæta leikmann, geti félagið tæp-
lega selt hann, ef svo há upphæð
fæst fyrir hann. — Það eina, sem
getur komið f veg fyrir þessa sölu,
er að sir. Alf Ramsey, fram-
kvæmdastjóri Birmingham, segi
nei, og það er reyndar mögulegt
að hann geri það, segja ensku
blöðin.
Þá er talið mjög Ifklegt að ef
Arsenal fær ekki Francis keyptan
muni liðið freista þess að fá Ray
Wilkins frá Chelsea til sfn, en
Ifklegt þykir að fyrir hann fáist
nokkru minna verð en Francis.
SINDRI VANN
SMIÐJUBIKARINN
URSLITALEIKURINN í Smiðju-
bikarkeppninni svokölluðu fór
fram á Melavellinum i gær. Vél-
smiðjurnar Sindri og Héðinn léku
til úrslita og sigraði Sindri 1:0
með marki Svavars Asmundsson-
ar í s.h. Sindramenn unnu til bik-
ars, sem gefinn var af Félagi járn-
iðnaðarmanna.
Arsenal hefur gengið nokkuð
vel í upphafi keppnistimabilsins
og telja forráðamenn félagsins að
nú eigi liðið alla möguleika á að
ná toppnum, en svo fremi sem
unnt verði að fá einn eða tvo góða
leikmenn til þess til viðbótar.
Annars er áberandi hve litlar
breytingar hafa orðið hjá Arsen-
al-liðinu frá ári til árs. Þeir leik-
menn sem koma til félagsins virð-
ast halda mikilli tryggð við það.
Þannig fór George Armstrong ný-
lega frá Arsenal eftir 16 ára veru
hjá félaginu. Var það Leicester
sem keypti hann fyrir tiltölulega
mjög lága upphæð.
LEIKIÐ Á SKAGANUM I DAG
í DAG fer fram á Akranesi leikur
IA og norska liðsins Brann frá
Bergen i Evrópubikarkeppni
bikarhafa. Er þetta fyrsti Evrópu-
leikurinn sem fram fer á Akra-
nesi, og er búizt við miklum fjölda
áhorfenda á leikinn, enda eiga
Akurnesingar allgóða sigurmögu-
leika í leiknum. Þeir töpuðu fyrri
leik sínum við Brann sem fram
fór í Bergen á dögunum 0—1, og
þurfa því að vinna með tveggja
marka mun til þess að komast í
aðra umferð Evrópukeppninnar.
I dag munu verzlanir og nokkur
fyrirtæki á Akranesi loka kl.
16.30, svo fólk komist á Evrópu-
leikinn, Akraborg mun einnig
fara sérstaka ferð vegna leiksins.
Fer hún frá Reykjavík kl. 15.45 og
til baka strax að leik loknum, en
sú ferð hefur' ekki verið timasett
nákvæmlega, þar sem mögulegt
er að framlengja þurfi leiknum á
Akranesi.
I tilefni Evrópubikarleiksins
hefur aðstaðan á Akranesvellin-
Skólamót í
knattspyrnu
STJÓRN Knattspyrnusambands
lslands hefur ákveðið, að skóla-
mót framhaldsskóla I knatt-
spyrnu 1977 fari fram I október
n.k. Skólar þeir sem hyggjast
taka þátt I mótinu eru beðnir að
senda þátttökutilkynningar til
skrifstofu KSl, pósthólf 1011,
Reykjavfk, ásamt þátttökugjaldi
sem er kr. 10.000.00 fyrir 1. októ-
ber n.k.
Hjónin Dana og Emil Zatopek með Olympíugull sín á
Helsinkileikvangnum. f baksýn má sjá mynd af Zatopek,
tekin á þeim tíma er hann var kallaður „tékkneska
eimreiðin“.
ZATOPEK TEKINN I SATT
TÉKKNESK yfirvöld hafa nú tek-
ið hlaupakónginn Emil Zatopek
og Dönu, konu hans, í sátt, og
hefur Zatopek meira að segja
fengið fararleyfi úr landi f
Tékkóslóvakfu. Hélt hann upp á
þetta með þvf að fara í heimsókn
til Finnlands, þar sem hann hélt
nýlega upp á 55. afmælisdag sinn.
Þótti engum mikið þótt Zatopek
kysi að fara til Helsinki, en á
Olympíuleikvanginum þar vann
hann frækilegustu fþróttaafrek
sfn, er hann sigraði f 5000 og
10.000 metra hlaupi á Olympíu-
leikunum 1952.
Zatopek var orðinn liðsforingi í
tékkneska hernum og hafði með
iþróttaþjálfum hermanna að gera,
er Sovétmenn gerðu innrásinu
1968. Zatopek fylgdi Alexander
Dubcek að málum, og eftir innrás-
ina hvarf hann um tima og var
jafnvel talið að hann hefði verið
tekinn af lifi. En svo reyndist þó
ekki vera. Zatopek hafði verið
sendur í vinnubúðir fjarri heimili
sínu og Dana, kona hans, var und-
ir ströngu eftirliti. Eftir rösk þrjú
ár, fékk Zatopek að flytja aftur til
Prag og fékk þá stöðu sem aðstoð-
armaður á iþróttabókasafni. I
byrjun september fékk han svo
tilkunningu frá stjórnvöldum um
stöðuhækkun og jafnframt að
hann hefði ferðafrelsi. Er talið að
tékknesk stjórnvöld hafi verið
orðin þreytt á eilifum umsóknum
blaðamanna og ljósmyndara, að fá
að hitta Zatopek að máli, og talið
um verið bætt til muna, m.a. er
búið að girða völlinn af, og koma
upp aðstöðu fyrir fréttamenn, en
slíkt er skilyrði fyrir þvi að
Evrópuleikur geti farið fram á
vellinum.
Jón Alfreðsson — fyrirliði
Skagamanna tekur við fs-
iandsbikarnum. f dag fæst
skorið úr því hvort Jóni
tekst að leiða lið sitt til
sigurs yfir norsku bikar-
meisturunum og hvort
‘Skagamenn komast f aðra
umferð keppninnar.
GOTT HLAUP
JUANTORENA
KÚBUMAÐURINN Alberto Juantor-
ena náði nýlega bezta árangrinum I
400 metra hlaupi sem náöst hefur !
heiminum á þessu keppnistimabili,
er hann hljóp á 44.65 sek. á móti
sem fram fór I Havana. Sigraði
Juantorena einnig I 800 metra
hlaupi á móti þessu. hljóp á 1:45.9
m!n.
Á sama móti náði svo Silvio
Leonard frábærum tima ! 100 metra
hlaupi, hljóp á 10.03 sek. Valentin
Dmitrenko frá Sovétrikjunum kast-
aSi sleggju 76.22 metra og Pólverj-
inn Mariusz Klimszyk náSi sinum
bezta árangri ! stangarstökki, stökk
5,33 metra.
þann kost skástan, að veita hon-
um meira frelsi.
Zatopek var mjög vel tekið er
hann kom til Helsinki, og varð
það hans fyrsta verk þar að heim-
sækja Ölympiuleikvanginn, þar
sem hann skokkaði einn hring.
Dana Zatopekova afþakkaði hins
vegar boð um að fá lánað spjót, en
Dana á einnig góðar minningar
frá Helsinkileikunum 1952, en
þar vann hún gullverðlaun í spjót-
kasti.
— Það var þó einna ánægjuleg-
ast við Finnlandsförina, sagði
Zatopek, — að formaður finnska
frjálsiþróttasambandsins hélt
okkur myndarlegt boð og rifjaði
upp „gömlu, góðu dagana".
LIÐ BRANN
BRANN LIOIÐ frá Bergen er eitt þekktasta knattspyrnulið Noregs
slðustu tvo áratugina. Blómaskeið félagsins var upp úr 1960. en það
sigraði I 1. deild árin 1961 og 1962. Undanfarin 3—4 ár hefur félagið
staðið sig mjög vel. sigraði i bikarkeppninni i fyrra og hlotið 2.—4.
sætið I 1. deild.
Þjálfari Brann nú er Englendingurinn Bill Elliot. Á sfnum yngri árum
var hann leikmaður með Burnley og Sunderland og lék m.a. 19
landsleiki fyrir England.
Lið Brann ! leiknum á Akranesi verður þannig skipað:
MARKVÖROUR:
Jan Knudsen. 23 ára. Hefur leikið með Brann frá 1974.
VARNARMENN:
Tore Nordtvedt, 33 ára. Hefur leikið nær 500 leiki með Brann, eða
fleiri en nokkur annar leikmaður I sögu Brann. Helge Karlsen, 29 ára.
Hefur verið fastur leikmaður t norska landsliðinu undanfarin ár og er
með 27 landsleiki að baki. Lék gegn íslandi á Laugardalsvelli 30. júni
s.l. Per Egill Pedersen. 24 ára. Hefur leikið með Brann i fjögur ár. Atle
Bilsback. 30 ára. Hefur leikið yfir 200 leiki fyrir Brann. Robert Hirsch,
20 ára. Byrjaði að leika með drengjaliðum Brann 8—9 ára gamalt.
MIÐVALLARLEIKMENN:
Rune Pedersen, 25 ára. Mjög harður og fljótur leikmaður. Hefur
leikið með aðalliði Brann frá 1972. Egil Austbö. 30 ára. Fyrirliði Brann
á leikvelli. Hefur leikið 3 landsleiki. Atle Hellesö, 29 ára. Hefur leikið
með Brann frá 7 ára aldri.
Neil Macleod, 24 ára, Skoti Hefur leikið með Brann i þrjú ár. Lék
eitt ár með Southampton og tvö ár með franska liðinu Rouen.
FRAMHERJAR:
Frode Larsen. 28 ára. Mjög skemmtilegur leikmaður sem á það til að
spila aðstæðingana upp úr skónum. Uppáhald stuðningsmanna Brann.
Hefur 7 landsleiki að baki. Björn Tronstad. 20 ára. Mjög marksækinn
og leikinn með 3 landsleiki að baki. Steinar Aase. 22 ára. Aðalmark-
skorari Brann. Hefur leikið einn landsleik fyrir Noreg. Það var hann
sem skoraði sigurmark Brann í fyrri leiknum við Akranes. Ingvald
Huseklepp. 27 ára. Traustur leikmaður. sem verið hefur töluvert frá
vegna meiðsla. en hefur nú náð sér og er talinn styrkja Brannliðið
verulega. --
LIÐ AKRANESS
ENDANLEG skipun ÍA liðsins hefur ekki verið tilkynnt, en liklegt er að
eftirtaldir leikmenn leiki Evrópuleikinn á Akranesi á morgun:
MARKVÖRÐUR:
Jón Þorbjömsson. 19 ára stúdent. Hefur leikið 26 leiki með ÍA og
unglingalandsleiki.
VARNARMENN:
Björn Lárusson. 32 ára skrifstofumaður Hefur leikið 302 leiki með
meistaraflokki ÍA. eða fleiri en nokkur annar. Hefur leikið 10 lands-
leiki. 2 leiki með landsliði undir 23 ára og 2 B-landsleiki. Hefur skorað
75 mörk fyrir ÍA. Guðjón Þórðarson. 22 ára nemandi I rafvirkjun.
Hefur leikið 114 leiki og skorað I þeim 1 mark. Guðjón lék 7
unglingalandsleiki. Jón Askelsson, 20 ára nemandi. Hefur leikið 28
leiki með ÍA og er mjög vaxandi knattspymumaður. Jón Gunnlaugs-
son. 27 ára forstóðumaður Á 218 leiki með ÍA og hefur skorað ! þeim
27 mörk. Jón hefur leikið 5 landsleiki Jóhannes Guðjónsson, 26 ára
nemandi ! endurskoðun. Lék fyrst með meistaraflokki árið 1968 og
hefur leikið 114 leiki. Sigurður Halldórsson, 20 ára trésmlðanemi
Hefur leikið 16 leiki með meistaraflokki og 2 unglingalandsleiki.
MIOVALLARLEIKMENN:
Andrés Ólafsson. 26 ára bankagjaldkeri. Hefur leikið 114 leiki og
skorað 18 mörk. Ámi Sveinsson. 21 árs, trésmfðanemi. Hefur feikið
98 leiki með ÍA og skorað f þeim 19 mörk. Ámi hefur leikið 13
landsleiki. Jón Alfreðsson. 27 ára verkamaður. fyrirliði ÍA. Hefur leikið
252 leiki og skorað 26 mörk. Jón hefur leikið 4 landsleiki. Karl
Þórðarson, 22 ára rafvirki. Hefur leikið 143 leiki og skorað 22 mörk
Hann hefur leikið einn landsleik og einnig leikið ! Islenzka. unglinga
landsliðinu. Petur Pétursson, 18 ára verkamaður. Hefur leikið 55 leiki
með meistaraflokki og skorað 22 mörk. Varð markakóngur síðasta
íslandsmóts. Hörður Jóhannesson. 23 ára nemandi I rennismlði. Hefur
leikið 119 leiki með ÍA og skorað 19 mörk. Hefur einnig leikið
unglingalandsleiki. Kristinn Bjómsson, 22 ára stúdent. Hefur leikið 24
leiki með ÍA og skorað 8 mörk. Hann á 2 landsleiki að baki og hefur
einnig verið ! unglingalandsliði.