Morgunblaðið - 14.10.1977, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. OKTÖBER 1977
— Flugrán
Framhald af bls. 1
neitudu ad leyfa aö hún tæki elds-
neyti. Hóf hún sig þá til flugs og
hélt til Laranaea á gríska hluta
Kýpur. Fyrst i staó sögóu yfirvöld
þar aó þotan fengi aó lenda til
þess eins aó taka eldsneyti, en
eftir aó hún var lent tilkynntu
þau að leyfió hefði verió aftur-
kallaó vegna þrýstings frá v-
þýzku stjórninni. Uróu ræningj-
arnir þá æfareióir og hótuóu aó
sprengja þotuna í loft upp. Létu
yfirvöld þá undan og leyföu aö
eldsneytistankar væru fylltir. Er
þotan hóf sig aftur til fiugs haföi
hún eldsneyti til 8 klst. flugs, en
þá höföu ræningjarnir fengiö til-
kynningu frá yfirvöldum I Líhan-
on og Sýrlandi um að þeir fengju
ekki aö lenda þar.
Lsraelskur radíoáhugamaöur
heyröi í kvöld og tók upp á segul-
hand samtal flugræningjanna viö
v-þýzka flugvél, sem fylgdi i hum-
átt á eftir Uufthansaþotunni. Þar
sagöi Walter Mohammed. foringi
ræningjanna, aö þeir væru fjórir,
þar af tvær konur og aö þau væru
vopnuö skamhyssum og hand-
sprengjum. Var samtali þessu út-
varpaö um v-þýzka stöö í Bæ-
heimi
Skæruliöahreyfingin, sem kall-
ar sig „samtök haiáttu gegn
heimsvaldasinnum" hefur aldrei
áöur látiö aö sér kveöa. Stjórn-
málafréttaritarar telja aö lesa
megi úr tilk.vnningu samtakanna
aö hér sé í raun og veru unt aö
ræöa framhaidsaögeröir af ráni
Ilanns Martins Sehleyers, þar
sem samtökin krefjast þess aö öil-
um pólitískum föngum „horgar-
skæruliöum" veröi sieppl úr v-
þýzkum fangelsum. Avarpiö var á
arahísku og þar segir m.a. aö
Schleyer, Juergen Fonto og
Buhack saksóknari, sem háöir
voru myrtir f.vrr á þessu ári væru
dæmi um menn, sem ynnu i þágu
nýnazisma og zionista í Tel-Aviv.
Þess vegna væri nú gripiö til þess-
ara aögeröa i framhaldi af ráninu
á Schleyer tíl aö knýja á kröfur
ræningja hans. Schleyer var rænt
5. septemher sl.
-Frjáls blaða-
mennska eða...
Framhald af hls. 11.
þjónn, en þegar blaðamaðurinn
spurði hvort það væri í hans verka-
hring að gefa yfirlýsingar um slíkt
komu vöflur á hann en ekkert svar
Þess má geta að blaðamönnum
frá Morgunblaðinu var memað að
fara mn á Keflavikurflugvöll í fyrra-
dag, en eftir það hafði formaður
Blaðamannafélags íslands samband
við Harald Steinþórsson fram-
kvæmdastjóra BSRB og kvartaði yfir
aðgerðum gegn blaðamönnum Lof-
aði Haraldur þá að láta þau boð út
ganga að blaðamenn fengju að
vinna óáreittir við störf sín, en engin
slík boð höfðu komið til Keflavíkur í
gær —á.j.
— Cargolux...
Framhald af hls. 32.
breiðþotu af geröinni Boeing
747.
Að sögn Siguröar Helgason-
ar, forstjóra Flugleiöa, sem
eirmíg á sæti' í aðalstjórn
Cargolux, hefur fi'amkvæmda-
stjórn Cargolux veriö veitt
heimild til að gera leigukaupa-
samning um breíðþotu af gerð-
ínni Boeing 747 eða Jumbó,
eins og þessi þota hefur einnig
verið nefnd. Að sögn Sigurðar
er gert ráó fyrir að fljótlega
skýrist hvort þessi heimild
veröur notuð eöa innan mánað-
artima. Sigurður kvað ástæð-
una fyrír því að þessi flugvéla-
tegund varð fyrir valinu fyrst
og fremst þá, að hún væri talin
hagkvæmust þeirra þotna sem
völ væri á.
Ef af kaupum Cargolux á
Jumhó-þolunni veröur má
gera ráö fyrir aö það hafí bein-
iínis áhrif á flugrekstur Flug-
íeiöa. því Flugleiöii' hafa iðu-
lega tekiö þotur Cargolux á
leigu yfir háannatímann á
sumrin.
— Bankamenn
Framhald af bls. 2
í allt aö. 15 sólarhringa og neyti
hún þeirrar lagaheimildar, kemur
verkfall til framkvæmda hinn 10.
növemher næstkomandi, hafi
samningar ekki tekizt fyrir þann
tíma. Um sáttatillöguna skal síðan
verða allsherjaratkvæöagreiðsla
um land allt meðal hankamanna
og skal hún standa í 2 daga. Eru
sömu skilyrói fyrir því aö tillagan
verði felld og i kjaradeilu BSRB.
Starfsemi bankanna gengur
sinn vanagang, þrátt fyrir verk-
fall BSRB. Víxlar eru afsagðir,
þar sem starfsmenn borgarfögeta-
emhættisins eru allir félagar í
Bandalagi háskólamanna, sem
ekki er í í verkfalli. Hins vegar
tekur afsögn lengri tíma, þar sem
vélritun í samhandi víö hana er
niöur lögö. Hins vegar kvaö
Bjöigvin Vilmundarson bankana
engan pöst fá og ekki kæmu þeir
frá sér tilkynningum um gjald-
daga. Slíkar tilkynningar kvaö
hann þó sendar út meö þaö mikl-
um fyrirvara, aö áhrifa verkfalls
BSRB væri enn ekki farið að gæta
í þeim efnum.
— Enginn fundur
Framhald af hls. 32.
sáttanefndar hafa ekki boriö
árangur og er henni þá rétt aö
leggja fram miölunartillögu til
lausnar kjaradeilu. Sáttanefnd
ber aö ráögast viö samninga-
nefndir aöila áöur en hún legg-
ui' fram miölunartillögu." Síö-
an segir um atkvæóagreiöslu
um miólunartillögu aö meö
hana skuli fara sem atkvæóa-
greiöslu um sáttatillögu. Skal
atkvæöagreiöslan standa í tvo
daga, vera skrifleg og Ieynileg.
Miölunartillagan telst felld ef
helmingur greiddra atkvæða
hiö minnsta er á móti henni,
enda hafi ekki færri en helm-
ingur atkvæðtsbærra rikis-
starfsmanna á kjörskrá greitt
atkvæði. Annars telst miölun-
artillagan samþykkt. Miölun-
ai'tillaga, sem samþykkt hefur
veriö, telst gildur aöalkjara-
samningur.
— Samið í
Reykjavik
Framhald af bls. 32.
flokk, síöan hækka launin um 3%
1. júlí 1978, um 3% 1. september
1978 og um 3% 1. april 1979. Eftir
15 ára starfsaldur hækki starfs-
menn um einn launaflokk miöað
viö rööun starfs þess, sem þeir
gegna á hverjum tíma. 1 stað
ákvæóis í eldri samningi um
flutning milli 3ja og 4ra flokks
eftir fjögur starfsár er í nýja
samningnum ákvæöi um slíkan
flutning eftir 3 starfsár og sam-
hljóða ákvæði skal einnig gilda
um flutning úr 4rða flokki í
fimmta. Þá skal nú greiða per-
sónuuppbót eftir 15 ár (75%) og
eftir 12 ár (50%) auk fullrar per-
sónuupphótar eftir 18 ár.
í samningnum segir: „Verði
gerðar breytingar á vísitöluregl-
um almennra kjarasamninga í
landinu á gildistima þess samn-
ings með lögum, skulu samnings-
aðilar taka upp viðræður í því
skyni að tryggja þann tilgang
ákvæða samningsins um verðbæt-
ur, aö þau verði eigi lakari en hjá
öðrum fjölmennum launþegasam-
tökum í landinu."
1 fréttabréfi Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar, sem kom út i
gærkvöldi, segir Þórhallur Hall-
dórsson, formaður félagsins: ,,Að-
fararnótt s.l. mánudags slitnaði
upp úr samningaviðræðum milli
rikisins og BSRB. Þegar sama dag
hófst samninganefnd félgsins
handa við að freista þess með
viðræðum við launamálanefnd
Reykjavíkurborgar að leysa
launadeilu þessa með kjarasamn-
ingi, þannig aö komizt yröi hjá
verkfalli.
Vióræóunum lauk á þann veg,
aö síódegis sama dag var undir-
ritaður kjarasamningur milli að-
ila. Samningurinn var lagöur fyr-
ir fjölmennan félagsfund á Hótel
Sögu á mánudagskvöldið. Þar var
honum hafnaö. 378 greiddu at-
kvæði gegn honum en 338 með.
Stjórn, samninganefnd og full-
trúaráð félagsins voru engu að
siður staðráðin í því að láta ekki
deigan siga en reyna smningavið-
ræður til hins ítrasta í trausti
þess, að fijllur skilningur væri á
því hjá báðum aðilum, að nauð-
synlegt væri að aflétta verkfalli
svo fljótt sem auðið væri. Niður-
stöður þessara viðræðna liggja nú
fyrir i samningi þeim, er undirrit-
aður var af samninganefndum
beggja aöila i dag, meó venjuleg-
um fyrirvara.
Fréttabréfið er að öllu leyti
helgaó kynningu á samningi þess-
um. — Þaö er einlæg von mín, að
félagsmenn í St. Rv. geti að vel
athuguðu máli greitt samningn-
um atkvæöi n.k. laugard. og
sunnudag og bundið þannig enda
á verkfall, sem fáir öskuðu eftir
og enginn vill aö verði langvinnt."
Þegar samningur Reykjavíkur-
borgar og Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar hafði verið
undirritaður i gær, ræddi Mbl. við
Birgi ísleif Gunnarsson, borgar-
stjöra. „Viðhorf okkar hjá borg-
inni hefur veriö það að reyna að
koma til móts við óskir starfs-
mannafélagsins eins og viö teljum
frekast unnt aö gera til aó reyna
að leysa þessa deilu, þannig aö
verkfalli ljúki og vinna hefjist á
ný hjá Reykjavíkurborg," sagöi
borgarstjóri.
„Hjá starfsmannafélaginu verð-
ur þetta samkomulag nú lagt fyrir
allsherjaratkvæðagreióslu. Ég
vona aö úrslit hennar sýni aö
meirihluti borgarstarfsmanna
telji aö um viöunandi samning sé
aö ræöa og aö samkomulagið veröi
samþykkt svo vinna getí hafizt á
ný." _________ _________
— Carter ræðst
á olíufélög
Framhald af bls. 1
Iegan hagnað til að tryggja vióun-
andi rannsóknir og boranir, en
olíufélögin vildu hrifsa allan
hagnaö til sín. Forsetinn sagöi, aö
hagnaöur olíufélagannk á árs-
grundvelli 1973, skömmu áöur en
olíuverð fjórfaldaðist, hefði num-
iö 18 milljöröum dollara. Ef
frumvarpið yrði samþykkt myndi
sá hagnaður nema um 100
milljörðum dollara árið 1985, en
þau heimtuðu 150 milljarða doll-
ara hagnaö. Sagðist forsetinn von-
ast til að þingiö samþykkti frum-
varp, sém hann gæti sætt sig viö,
að öðrum kosti myndi hann beita
neitunarvaldi. Hann sagði að
þjóðir heims fylgdust með því
sem Bandarikjamenn gerðu til að
draga úr orkunotkun og veltu
viljastyrk þeirra fyrir sér.
— Efnahagslíf
Rhódesíu
Framhald af bls. 1
dökkt og ef tekið er tillit til hins
óstyrka efnahagsástands í heimin-
um hljóta menn að reikna með
frekari efnahagshnignun eða þar
til raunhæft, stjórnmálalegt sam-
komulag hefur náðst. A síðasta
ári hefur efnahagstjónið breytzt
úr tímabundinni í varanlega þró-
un, þannig að hriktir í stoðum."
Eitt dæmi um efnahgsþróunina
varð ljóst i gær, er eigendur
stærstu verzlunarmiðstöðvar
landsins, Mackays, er opnuð var
fýrir 16 mánuðum, tilkynntu að
henni yrði lokað eftir jól.
— „Stingið þess-
um manni inn”
Framhald af bls. 17
ná í mig, stöðvuð i hliðinu og
þaðan varð hún að hringja í mig
til þess að ég'gæti gengið út að
hliði og hitt hana. Þetta er
fáránlegt, en þó vil ég taka það
skýrt fram að sumir þeirra
manna sem þarna eru við eftir-
lit eru ávallt kurteisir. Nei, þaö
fylgja því ýmis óþægindi að búa
hér innan vallar og er enginri
öfundsverður af því. Það má
nefna barnanna vegna, því þau
mega ekki fara hér inn á ákveð-
in svæði sem þó liggja beint viö.
Þaö var til dæmis í sumar aö 10
ára dóttir mín og 12 ára vin-
kona hennar fóru hér vestur í
móana til þess að huga aö
hreiðrum. Skyndilega kom her-
lögreglubíll með miklu offorsi
að þeim og herlögreglumaður
elti þær þegar þær hlupu ótta-
slegnar hingað heim. Þær
höföu þá verið á einhverjum
bletti sem þær máttu ekki vera
á, en þær voru lengi að jafna
sig eftir þetta þvi maðurinn var
vopnaður og mjög æstur. Nei,
það er ýmislegt í þessu sem ætti
aö hyggja aö, en það er hart aö
fá ekki inngöngu heim til sin
nema aó standa í þrasi og leið-
indum."
— Kennsla hafin
Framhald af bls. 32.
verkfallsverði," sagði Vilhjálmur
um aðdraganda þessa máls.
Hann kvað siðan ráðuneytið í
kjölfar þessa hafa ráðfært sig við
fjölmarga lögfræðinga um lög-
mæti þess aö stöðva kennslu i
þessum menntastofnunum vegna
aðildar húsvarða þar að Banda-
lagi starfsmanna ríkis og bæja,
sem í verkfalli ætti. „Þeir lög-
fræðingar, sem við hefur verið
rætt, eru á einu máli um að slíkt
sé ekki lögmætt," sagði ráðherra
ennfremur. „Að þessi áliti fengnu
telur ráðuneytið rétt aö kennsla
fari fram að svo stöddu i þeim
skólum a.m.k. þar sem ailir kenn-
arar taka laun eftir kjarasamn-
ingum stéttarfélaga utan BSRB
og hefur forstöðumönnum við-
komandi skóla verið skýrt frá
þessari afstöðu ráðuneytisins, en
þessir skólar eru Háskóli Islands,
Kennaraháskóli íslands, Tækni-
skóli Islands, menntaskólarnir og
fjölbrautaskólarnir."
— Fjarritasam-
band við útlönd
Framhald af bls. 32.
hefðu þá verið fengnir og við-
gerðarmaðurinn síðan gert við
þessa bilun, sem ekki tók nema
nokkrar mínútur.
Karl Guðmundsson var sá
starfsmaður Pósts; og sima, sem
fenginn var til að gera við
götunarvél eða gjaldmæli fjarrita-
stöðvarinnar. Sagðist honum svo
frá, að eftir að Kjaradeilunefnd
hefði kveðiö upp þann úrskurð,
að gert skyldi við tækin, hefði
hann verið boðaður til viðgerðar-
innar i gærmorgun. Þegar hann
siðan hefði komið að stöðinni á 11.
tímanum í gærmorgun hefðu þrir
verkfallsverðir frá BSRB bannað
honum að gera við tækin. Sagðist
hann þó hafa haft undir höndum
leyfi frá Kjaradeilunefnd um að
viðgerðarmaður frá Pósti og sima
skyldi gera við tækin.
— Klukkan hálffimm var siðan
hringt í mig aftur og ég beðinn að
koma til viðtals við póst- og síma-
málastjóra, sagði Karl í samtali
við Morgunblaðió í gærkvöldi. —
Hafði hann þá undir höndum
erindi frá ríkisstjórninni um að
þegar skyldi gert við tækin og
úrskurði Kjaradeilunefndar
hlýtt. Fékk ég nú leyfi frá Kjara-
deilunefnd á eigið nafn og gerði
við tækið, en það tók enga stund,
innan við fimm minútur.
Sagði Karl að ástæða þess, að
BSRB hefði ekki viljað láta gera
við tækin og talið það verkfalls-
brot, væri sú að fjarritatækin
væru ekki öryggisatriði og því
ekki í verkahring Kjaradeilu-
nefndar að úrskurða um hvort
gert skyldi við þau.
— Frumherja-
starf...
Framhald af bls. 1
inn hefði verið miklum erfiðleikum
bundið fyrir vísindamenn á sviði
læknisfræði og lífeðlisfræði að rann-
saka starfsemi peptíða vegna þess í
hve litlu magni þeir voru í líkaman-
um Hins vegar hefði frú Yalow og
samstarfsmönnum hennar snilldar-
lega tekizt á árunum 1956 — 60 að
finna nýjar leiðir til að mæla hor-
móna og önnur líkamleg efni, sem
fengið hefðu nafnið ..Radioimmun-
ological Assay Method (RIA)”
(mótefnamæling með geislavirkni)
Hefðu nokkrar af uppgötvunum
þeirra komið eftir rannsóknir á
insúlíni, sem er velþekkt peptíð,
sem notað er til meðferðar á sykur-
sýki og ýmsum geðsjúkdómum RIA
er nú notuð um nær allan heim.
Þeir Guilleman, sem fæddist í
Frakklandi. og Schally, sem er Pól-
verji að uppruna, hafa löngum verið
samstarfsmenn og keppinautar Á
árunum eftir 1960 störfuðu þeir
báðir í harðri samkeppni að rann-
sóknum á efnum, sem finnast í
heilastofni dýra. Það var siðan árið
1969 að Guillemin og samstarfs-
mönnum hans tókst að framleiða
einn af þessum hormónum, sem
kallaður er TRF og m.a stjórnar
öðrum hormón, sem er mikilvægur
vexti barna og efnaskiptahraða í full-
orðnum Um þetta segir í Nóbelstil-
kynningunni ,,Uppgötvanir Guille-
mins og Schallys lögðu grundvöll-
mn að Hypothalamic-rannsóknum
vorra tima (heilastofnsrannsóknum)
og að frekari uppgötvunum nýrra
heilahormóna, svo sem Endorphin-
es, sem hafa svipuð lyfjafræðilega
áhrif og morfin.”
Guilleman, sem er 53 ára. fluttist
til Bandaríkjanna 1958, en Schally,
sem er 50 ára, fluttist ungur frá
Póllandi, fyrst til Bretlands og Kan-
ada áður en hann gerðist bandarísk-
ur rikisborgari 1957 Verðlaunin
verða afhent 10 desember í Stokk-
hólmi.
— 1 og 1/2 klst.
í sjónum...
Framhald af bls. 2
stakk sér til sunds og synti upp
í fjöruna, og tók hann þegar til
að nudda Jóhann, sem var orð-
inn mjög þrekaður. Þegar fleiri
menn kontu á staðinn nokkru
síðar var Jóhann fluttur í Sel-
vikurvita og þar var honum
veitt betri aðhlynning áður en
hann var fluttur til Siglufjarð-
ar.
Þegar Jóhann kom heim
sagði hann, að það sem hefði
haldið í sér lífinu allan þann
tíma, sem hann var í sjónum,
hefðu verið islenzk ullarnær-
föt, sem hann var klæddur í.
Jóhann er um fimmtugt.
— Geirfínnsmál
Framhald af bls. 32.
Bragi Steinarsson vararíkis-
saksóknari hefur fyrir hönd
ákæruvaldsins krafizt gæzlu-
varðhalds yfir Sigurði Óttari á
meðan rannsókn fer fram á því
meinta broti hans að hafa gef-
ið rangan og eiðsvarinn fram-
burð fyrir rétti. Ingibjörg
Benediktsdóttir, fulltrúi við
sakadóm Reykjavíkur, tók
kröfuna til meðferðar og tók
hún sér frest til ákvörðunúr
þar til i dag.
Lögfræðingur Sigurðar, Ró-
bert Árni Hreiðarsson, til-
kynnti dómendum Geirfinns-
málsins, sakadómurum Gunn-
laugi Briem, Ármanni Krist-
inssyni og Haraldi Henrýssyni,
það á þriðjudaginn, að Sigurð-
ur óskaði að draga framburð
sinn til baka. Hófst lögreglu-
rannsókn samdægurs á þeim
þætti málsins, sent sneri að
Sigurði Óttari og stóð hún
fram á kvöld. Var lögfræðing-
ur-Sigurðar m.a. yfirheyrður.
Siðdegis í gær fóru fram lokuð
réttarhöld viðstöddum öllum
verjendum ákærðu í málinu og
þar lét Sigurður bóka, að hann
hefði enga ferð farið til Kefla-
vikur og vissi hann ekkert um
afdrif Geirfinns Einarssonar.
Gaf hann þá skýringu á fyrri
framburði sinúm, þar sem
hann lýsti nákvæmlega ferð-
inni til Keflavikur og sam-
skiptum við sum hinna
ákærðu, að hann hefði verið
þvingaður til þess af lögeglu-
mönnum að gefa þennan fram-
burð, en sú var einmitt skýring
tveggja sakborninga í málinu,
sem dregið hafa játningu sínar
til baka, þeirra Sævars
Marínós Ciesielski og
Kristjáns Viðars Viðarssonar.
Sem fyrr segir hefur ákæru-
valdið krafizt gæzluvarðhalds
yfir Sigurði Óttari Hreiðars-
syni vegna meintra brota á
142. grein almennra hegning-
arlaga, en hún fjallar um rang-
an framburð fyrir rétti. Ef
fi amburðjjr fyrir rétti er rang-
ur og eiðsvarinn getur refsing
orðið allt að 8 ára fangelsi.