Morgunblaðið - 14.10.1977, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1977
Valur í vandræðum
— ÞETTA er mjög alvarlegt mál
fyrir okkur, og kann svo að fara
að við teljumst ekki hafa mætt til
leiks, og verðum þar með gerðir
skaðabótaskv Idir og sennilega
dæmdir frá Evrópukeppninni þar
sem eftir er, sagði Bergur Guðna-
son, formaður Vals, í viðtali við
Morgunblaðið í gær, en Valsmenn
áttu að fara til Færeyja í gær og
leika þar við Færeyjameistarana
Kyndil í Evrópuhikarkeppni
meistaraliða í handknatt leik.
Sóttu Valsmenn um undanþágu
fyrir ferð sína, en fengu algjöra
synjun, og það sem verra var fvrir
þá, að þeint tókst ekki að koma
skilaboðum til IHF — alþjóða
handknattleikssamhandsins — í
tæka tíð í gær, en samhandið
hafði heitið Valsmönnum ákveðn-
um fresti, en sett það sem skilyrði
að þeir yrðu að láta vita hvort
þeir fa-ru til Færeyja eða ekki.
— Við gengum frá Heródesi til
Pílatusar með mál okkar í gær,
sagði Bergur Guðnason, — en
mættum hvergi neinu nema ólið-
legheitum. Kom það okkur á
óvart, þar sem Alþýðusamband
íslands hefur jafnan sýnt skiln-
ing á málefnum íþróttahreyf-
ingarinnar í verkföllum og ekki
hindrað að íþróttaflokkar gætu
staðið við skyldur sínar og boðaða
þátttöku í stórmótum erlendis.
Þannig var t.d. verkfal! er ís-
lenzka handknattleikslandsliðið
þurfti að fara til heimsmeistara-
keppninnar 1974, og fékkst þá
undanþága hjá ASÍ, án mikilla
átaka. Bentum við á þetta for-
dæmi í gær. en töluðum fyrir
daufum eyrum. Þegar sýnt var
hvaða afgreiðslu ósk okkar myndi
fá fórum við strax að reyna að
koma skeyii til IHk’. Fengum við
heimild hjá verkfallsnefnd BSRB
til að senda tvö skeyti, en þegar
við komum með þau á ritsímann
fengum við þau svör, að ekki væri
unnt að senda þau, nema fyrir
lægi skrifleg heimild frá kjara-
deilunefnd. Þangaö fórum við og
var strax neitað um að senda
skeytin.
Bergur Guðnason sagði að Vals-
menn hefðu haft samband við
Færeyinga þegar sýnt þótti að
verkfall skylli á og voru þeir
reiðubúnir að senda flugvél eftir
Valsmönnum.
— En bæði var, sagði Bergur,
— að flug þetta var fjárhagslega
ofviða fyrir Val og eins var ekki
vitað með vissu hvort flugvélin
fengi að fara í loftiö aftur, ef hún
lenti hérna. Þá var einníg mögu-
leiki að fá Vængjaflugvél til Fær-
eyjarfararinnar, en mikill
kostnaður er því samfara.
Síðan BSRB verkfallið hófst
hafa íþróttahús verið lokuð og
þeir leikir sem áttu að vera í
mótum fallið niður. Meðal þeirra
eru nokkrir 1. deildar leikir í
handknattleik og kemur sér mjög
illa fyrir Handknattleikssam-
bandið og leikir þessir skyldu
ekki geta farið fram, þar sem
skammur timi er til þess að is-
lenzka landsliðið hefur undirbún-
ing sinn undir heimsmeistara-
keppnina i Danmörku.
Vilja að félög atvinnu-
knattspyrnumanna fái bætur
DANIR hafa nú vaxandi áhyggjur
af sókn erlendra knattspyrnuliða
í danska knattspyrnumenn, enda
svo komið að strax og einhver
danskur knattspyrnumaður sýnir
verulega getu er hann kominn í
atvinnuknattspyrnu hjá ná-
KANADA OG
MEXIKÓ UNNU
í GÆRKVÖLDI fóru fram tveir
leikir í Miö-Ameríkuriðli undan-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar í knattspyrnu. Kanada sigraði
þá Surinam 2—1 og Mexikó sigr-
aði El Salvador 15—1. Að fyrr-
nefnda leiknum voru 95.000
áhorfendur en 110.000 horfðu á
síöarnefnda leikinn.
Staðan í keppninni er nú þessi:
Maxikó
Guatemala
Kanada
El Salvador
Surinam
Haiti
2 2 0 0 7—2 4
1 1 0 0 3—2 2
2 10 1 3—3 2
2 10 1 3—4 2
2 0 0 2 3—5 0
10 0 1 1—4 0
Islenzka og v-þýzka unglingalandsliöiö í handknattleik er léku saman í fyrravetur. Þjóðverjar fóru síðan I
heimsmeistarakeppnina og urðu þar í fjórða sæti, en tslendingar sátu heima.
Gefa verður yngri lands-
liðum okkar meiri gaum
grannaþjóðunum. Hefur Dönum
reynst mjög erfitt að fá þessa
leikmenn lausa til landsleikja, og
nú hefur danska knattspyrnusam-
bandið skipað nefnd til þess að
gera tillögur um hvernig stemma
megi stigu við því að erlend lið
geti keypt til sín danska knatt-
spyrnumenn fyrirvaralaust, og án
þess að félög þeirra hljóti nokkr-
ar bætur fyrir. Skýra diinsku
blöðin frá þvi að nefndin hafi
orðið sammála um að gera þaö að
tillögu sinni að framvegis setji
DBU þ.e. danska knattspyrnu-
sambandið, ákveðnar hömlur á út-
flutning leikmanna.
Nefndin mun gera þaö að til-
lögu sinni að þegar erlend félög
gera atvinnusamning við danskan
knattspyrnumann, verði þeim
gert að greiða félagi viðkomandi
al.lt að 2 milljónir króna, ella gefi
sambandið ekki leyfi sitt til
félagaskipta. Þá leggur nefndin
einnig til að þegar slíkir samning-
ar eru gerðir sé skylt að leggja þá
fyrir nefnd danska knattspyrnu-
sambandsins og hún hefi rétt til
þess að gera við þá athugasemdir,
ef þurfa þykir.
Fyrir tæpum tveimur árum
skrifaði undirritaður nokkrar
greinar um handknattleik og þar
á maðal eina sem helguð var þeim
islenzka. Svo undarlegt sem það
kann að virðast þá hefur þróun
islenzks handknattleiks orðið
nokkuö í þá átt sem þar var tæpt
á. Á ég þar aöallega við hvernig
nú er haidið á málum hvað varðar
þjálfun og allan undirbúning is-
lenzka A-landsliðsins.
Islenzka A-landsliðið er nú að
mestu skipaö kjarna harösnúinna
leikmanna sem margir hafa leíkið
saman allt frá árinu 1971
(forkeppni Olympiuleikanna) og
sumir enn lengur. Árangur A-
Jandsliðsins á siðasta ári færir
heim sanninn um þaö að nauðsyn-
legt er að byggja upp lið eins pg
að frantan greinir.
Forystusveit HSI hefur hvergi
til sparað til að gera landsliðið
sem bezt úr garði og ráðið meðal
annars pólska þjálfarann Janus
Cerwinski til starfa og hefur hann
nú þegar sannað ágæli sitt. Hann
hefur þegar náð þeim árangri sem
ætlast var til og vonandi tekst
honum eins vel upþ þegar í alvör-
una er komið. þ.e.a.s. heims-
meistarakeppnina í Danmörku á
na^sta ári.
Hver skyldi nú vera ástæðan
fyrir að ég sting niöur penna og
f jalla um þessi augljósu atriði?
Þannig er mál með vexti að
greinarhöfundur hefur þjálfað
landslið 21 árs og yngri og sem lék
i fyrra tvo landsleiki gegn v-þýzka
landsiiðinu sem skipað var leik-
mönnum á sama aldri. í þessari
ferð kom það i ljós, aö „íslenzka
landsliöið" var sýnu lakara en það
v-þýzka, þó að það væri skipaö
leikmönnum er allir hiifðu leikið
með A-landsliðinu, að mark-
vörðunum undanskildum. Leikar
fóru þó svo að þýzkir höföu vinn-
inginn eins og menn kannski
muna. Islenzka liðið hafði fyrir
þessa ferð æft saman í um það bil
einn og hálfan mánuð, en það
þýzka hafði verið saman í æf-
ingum að meira eöa minna leyti í
eitt ár með vestur-þýzka A-
landsliðinu og þannig öðlast dýr-
mæta reynslu auk þess að fá að
Þýzka knattspyrnan
I FYRRAKVÖLD fór fram ein
umferð i vestur-þýzku 1. deildar
keppninni í knattspyrnu og urðu
úrslit leikja sem hér segir:
VFL Boehum —
FC Kaiserlautern
0—1
SIGRUÐU FYLKIR OG AUSTRI
EKKI BÆÐI í 3. DEILDINNI?
FYLKI úr Árhæjarhverfi var
um síðustu helgi afhent sigur-
launin I þriðju deild og fór
verólaunaafhendingin fram á
skemmtilegan hátt í Árhæjar-
skóla um síðustu helgi. Fylkis-
liðið er vel að sigrinum í þriðju
deiidinni komið og er það von-
um seinna að þetta efnilega lið
kemst upp í 2. deild. Með Fylki
upp í 2. deild fluttist Austri frá
Eskifirði og er það í fyrsta
skipti, sem liö frá þessu áhuga-
sama „íþróttaplássi“ á lið í 2.
deildinni. Ekki síður gott afrek
hjá Austra en Fylkismönnum,
þar sem Eskifjörður er í raun-
inni mun minna „ba-jarfélag"
en Arbærinn.
Fi'ammistaða KSI i sambandi
við úrskurð á sigurvegurum í 3.
deildinni var hins vegar ekki
með neinum glæsibrag að þessu
sinni. Austramönnum hafði
veriö tilkynnt að sigurinn í
þriðju deildinni væri þeirra og
fögnuðu bæjarbúar með knatt-
spyrnumönnum í nokkra daga.
Þá kom skyndilega öllum á
óvart skeytí að sunnan, þar sem
sagt var að vegna mistaka
hefóu Austramönnum ranglega
verið tilkynnt að þeir væru
sigurvegarar, Fylkir fengi af-
hent gullverðlaunin og bikar-
ínn fyrir sigur í þriðju deild-
inni. Þótti Austramönnum
þetta eðlilega súrt í broti og
aípöntuðu flugfar suður til
Reykjavíkur, sem þeir höfðu
áætlað til að taka við bikarnum.
Nú er það svo að ails ekki er
ljóst hvort líið sigraði í þriðju
deildinni og má eflaust deiia
mikið um það. Þar sem málin
voru svo óljós og Fylkir og
Austri hafa aldrei leikið saman
hefði verið réttast að afhenda
báðum liöum gullpeningana og
tilkynna að Fylkir og Austri
teldust sigurvegarar í þriðju
deild. Það er ekki hægt að Iáta
stiga- eða markahlutfall ráða,
þegar lið leika við ólika og mis-
sterka andstæöinga.
— áij.
f’C Saarbruecken —
Schalke 04
Eintracht Braunswick —
Hamburger SV
Bayern Munchen —
Borussia Dortmund
Fortuna Diisseldorf —
MSV Duisburg
St. Pauli — 1860 Múnchen
Stuttgart —
. Eintracht Frankfurt
FC Köln — Hertha Berlin
Werder Brenten —
Borussia Mönchengl.b.
DÆMA I
2 — 1
4—0
3— 0
0—0
4— 1
2—1
3—1
3—1
NOREGI
ISLENZKT dómaratríó verður á
leik Brann og Eintraehl Braun-
sehweig í 2. umferð Evrópubikar-
keppni meistaraliöa í knatf-
spvrnu. Mun E.vsteinn Guð-
mundsson da*ma leikinn, en línu-
verðir verða þeir Grétar Norð-
fjörð og Kjartan Olafsson.
ARSÞING IA
ARSÞING iþróttabandalags
Akraness verður haldið dagana 8.
og 10. nóvember n.k. í íþróttahús-
inu við Vesturgötu.
spreyta sig með A-landsliðinu í
landsleikjum.
V-þýzka landsliöió skipað leik-
mönnum 21 árs og yngri tók siöan
þátt i heimsmeisfarakeppni þessa
aldurshóps sem haldið v.ar í
Svíþjóð og hafnaöi þar í-fjórða
sæti.
tsland var ekki
meðal þátttökuþjóða.
Svo virðist sem gleymst hafi að
tilkynna íslenzka liðið í keppn-
ina? Leikmenn Islands tjáðu mér
að þeir hefðu orðiö fyrir von-
brigðum með að fá ekki að taka
þátt í þessu móti.
Gremja þeirra var þó öllu meiri
í síöustu vikú, nánai' tiltekið
föstudaginn 7. október. en þá var
skotiö á landsleik fyrir þessa
sömu pilta gegn Alþýðulýðveld-
inu Kina. Svo virtist sem að þessi
viðureign væri fremur „feluleik-
ur" heldur en opinber landsleik-
ur. Áhorfendur var hægt að telja
á fingrum annarrar handar og
fulltrúar fjölmiðla sýndu ungu
landsliðsmönnunum okkar þá
óvirðingu að láta ekki sjá sig, og
hafa ekki svo að mér sé kunnugt,
fjallaö einu einasta orði um leik-
inn. Leikurinn var nær ekkert
auglýstur — þó kom ein auglýsing
í útvarpi þar sem megináherzlan
var lögð á lækkað miðaverð, en
auövitað kom þessi „útsöluauglýs-
ing" að litlu gagni. Nær hefði
veriö að hafa aðgang ókeypis
a.m.k. fyrir unga fólkiö í landinu
sem stundar handknattleik hjá fé-
lögunum. Svo fóru leikar að Is-
lenzka landsliðið bar sigur úr být-
um, 26—23, eftir að hafa veriö
undir 7 —12 í hálfleik. Sýna þessi
úrslit að piltalandsliöiö gerði
nokkuð betur en A-landslið okk-
ar, þ.e.a.s., fékk á sig færri mörk
en A-landsliðið i báðum leikjun-
um, auk þess að vinna stærri sig-
ur en A-landsIiiö í öðrum leikn-
um. Eg til taka það sérstaklega
fram, að með þessum samanburði
er ég ekki að kasta neinni rýi'ð á
A-landsliöið heldur aöeins undir-
strika kjarna þess máls sém felst i
fyrirsögn þessarar greinar.
Að leik loknum komu stjórnar-
menn HSÍ ekki inn í búningsher-
bergi til að þakka piltunum fyrir
frammistöðuna að einum undan-
skildum. eins og ég held að tiðkist
þegar A-landsliöiö á í hiut. Höfðu
piltarnir orð á þvi sem hér er á
undan sagt.
„Byrgjum brunninn áður en
barnið er dottió ofan í." segir ís-
lenzkt máltæki. Að lokinni HM-
keppninni munu margir af hinum
harðsnúna-kjarna sem ég nefndi í
upphafi þessa greinarkorns
leggja skóna á hilluna og þá væri
ekkí amalegt að vita af kjarna
yngri landsliöa til að halda uppi
nterki tslands á handknattleiks-
sviðinu.
Stjórn HSI er skipuð dugmikl-
Framhald á hls. 21