Morgunblaðið - 22.10.1977, Side 16

Morgunblaðið - 22.10.1977, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKT0BER 1977 þess virði að varð- veitast HÉR á síðunni birtir Mbl. enn nokkur dæmi úr skýrslunni um könnun á sögu og ástandi húsa í Grjótaþorpi, sem unnin hefur verið undir stjórn minjavarðar Reykja- víkurborgar. í skýrsl- unni kemur m.a. fram íbúatala í Grjótaþorpi, sem gefur vísbendingu um þróun þess í borginni. rjótaþorp íbúar 1768 25 1802 141 1835 182 1876 230 1905 388 1925 575 1974 145 Vesturgata 3, séð í austur, Glasgowsund fyrir framan húsin. Aðalstræti 10 1752 Verksmiðjuhús innréttinganna 1790 Ole Nielsen 1800 Westie Petræus kaupmaður 1810 Geir Vídalin biskup 1823 Konungur kaupir 1840 Frú S. Vídalin ekkja 1848 Sveinbjörn Jacobsen og Th. Johnsen kaupmenn 1861 W. Fischer og P. Ottesen 1870 Jens Sigurðsson rektor 1873 M. Johannessen faktor 1891 N.T. Nielsen 1894 Helgi Zoéga kaupmaður 1926 Silli og Valdi Húsið var eitt af húsum innréttinganna og er nú eitt elsta húsið i Reykjavik. Um aldur þess rikir nokkur óvissa, hefur það löngum verið talið byggt 1752. Sumir hafa talið, að það hafi verið dúkvefnaðarhús innréttinganna, sem brunnið hafi 1764, og húsið sem nú stendur, sé reist á grunni þess. Var húsið ibúð undirforstjórans, en var einnig nefnt "Kontor- og Magazinhús". Westie Petræus kaupmaður keypti húsið, þegar verksmiðjuhúsin voru seld, og nefndist það þá Petræushús. Árið 1807 eignaðist Geir Vidalín biskup húsið, sem upp frá þvi nefndist Biskupsstofan og hélst það nafn fram undir aldamót. Konungur keypti húsið af biskupi látnum 1823, en ekkja biskups, Sigríður Halldórsdóttir Vidalin bjó þar til dauðadags 1846. 1873 keypti Matthias Johannessen faktor húsið, sem hann bjó fyrst i ásamt fjölskyldu sinni, en lét breyta i sölubúö 1889. Helgi Zoéga keypti húsið 1894 og hafði þar sölubúð sina. 1926 keyptu Silli & Valdi húsið og þar er nú enn verslun. Húsið er timburhús, klætt járni með helluþaki; ein hæð og ris. Þegar þvi var breytt i sölubúð munu gluggar á framhlið hafa verið stækkaðir, en stórar rúður veriö settar í þá 1931. Að öðru leyti viröist framhliðin lítið breytt frá upphafi. Áföst vestur- hlið hússins er viðbygging úr steini frá 1932, sem siðar var stækkuð. Stór gluggi er nú i norðurgafli i stað tveggja smærri áður. Húsið er ómissandi vegna sögu sinnar, legu og gerðar. Þaö er eitt af elstum húsum Reykjavíkur og það eina sem eftir er af þeirri húsaröð sem gaf Aðalstræti þá mynd sem það hafði fram yfir miðja siðustu öld. Viðbyggingin lýtir gamla húsið og færi betur á að byggja nýtt hús sem félli við umhverfið ofar i lóðinni svo að framhúsið stæði eitt sér. l:stað gluggans á gafli mætti setja tvo smærri. Vesturgata 3 1841 JÓn Markússon kaupmaður og borgari 1857 Kristján Þorsteinsson kaupmaður 1859 Hans Chr. Robb kaupmaður 1865 Jónas Jónasson faktor 1866 Sveinbjörn Jacoþsen kaupmaður og borgari 1867 Henderson & Co 1872 Egill Egilsson kaupmaður og borgari 1887 B. Muus & Co 1892 Th. Thorsteinsson kaupmaður 1936 Bræðurnir Ormsson verslun Þar stóð fyrrum hús Jóns Markússonar kaupmanns (stúdents), reist 1842. Um 1860 varð eigandi þess Hans Chr. Robb kaupmaöur, sonur James Robb frá Liverpool, en hann hafði verslað hér á landi frá 1813. Hans Chr. Robb hafði verslun í húsinu til 1866 og var hún nefnd Liverpool. Urðu bá mikil mála- ferli vegna sölu og kaupa á eigninni, sem að lokum var tildæmd Henderson & Co, eigendum Glasgow (Vestur- gata 5 A). Um 1870 rak Sigfús Eymundsson verslun í húsinu, en hann hafð'i stofnað verslunarfélagið "Norske samlaget" ásamt kaupmönnum í Björgvin í Noregi. Rak félagið gufuskip, hið fyrsta sem fór milli hafna. 1872 keypti Egill Egilsson kaupmaður eignina og átti hana til 1888. Á þeim tíma rak þar verslun Magnús JÓnsson i Bráðræði og Siguröur sonur hans, sem lét byggja upp sölubúðina' 1885, en gamla húsið hafði brunnið sama ár. Stendur þetta hús enn. Skömmu eftir 1890 eignaðist Th. Thorsteinsson kaup- maður eignina og rak þar einhverja stærstu riýlendu- vöruverslun í bænum og hafði enn fremur mikla þil- skipaútgerð. Lét hann reisa geymsluhús á lóðinni, skammt frá húsum Fischers árið 1896 og annaó áfast húsi Fischers 1903. Framhúsið er járnvarió timburhús: kjallari, tvær hæðir og ris. Útlitsbreytingar hafa verið gerðar: settur inngangur á norðausturhorn, sem er sneitt, svo og á norövesturenda hússins, á austurgafli hefur inngangi og þrepum verið breytt og einnar rúðu gluggar settir á neðri hæð á noröurhlið. Einhverjar útlitsbreytingar hafa verið gerðar á bakhúsunum. í kjallara hússins og á neðri hæð eru verslanir og rakarastofa, skrifstofur og vörugeymsla á efri hæð, en tvær íbúðir í risi. 1 bakhúsum eru vörugeymslur og skrifstofa. GRJÓTAÞ0RP Húsin eru ómissandi vegna gerðar sinnar, legu og sögu. Framhúsið er byggt sem verslunarhús á stað, sem verslað hefur verið á frá upphafi. Húsaþyrpingin er tengd húsunum númer 2 við Aðalstræti og mynda ásamt þeim eina heild. Hefur útliti húsanna við Vesturgötu auk þess veriö litið breytt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.