Morgunblaðið - 03.11.1977, Síða 1
40 SÍÐUR
244. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1977
Prentsmiöja Morgunblaðsins.
Rhodesía:
Carver lávarði heilsað
með eldflaug og tómötum
SaJishurx 2. nó\emher. Hentor.
ELDFLAUGAÁRÁS frá
Zanibíu <>g skemmdir tóm-
atar settu svip sinn á mót-
tökurnar, sem Carver
lávarður, sérlegur erin-
dreki brezku stjórnarinn-
ar, hlaut í Salisburv í dag.
Tilgangur viðræðna
Carvers við Rhodesíu-
stjórn er að finna friðsam-
lega Iausn á því hvernig
koma megi á meirihluta-
stjórn í landinu og vopna-
liléi milli stjórnarinnar og
skæruliða, sem nú liafa
harizt í fimin ár samfellt.
Rhodesíumenn segja að eld-
flauginni frá Zambíu hafi verið
stefnt að flugvél. sent var í út-
sýnisflugi með ferðantenn yfir
Viktoríufossum. en í stað þess að
hitta skotmarkið hafi eldflaugin
lent á glæsilegasta gistiiuisinu á
þessunt slóðum. og hafi hún vaid-
Cyrus Vance:
Aflýsið réttarhöldun-
um yfir Scharansky
U ashinglon — 2. nóvemher — AF
CYRUS Vanee utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna
hefur heint því til stjórnar
Sovétríkjanna að aflýst
verði réttarhöldum vfir
Eþíópía:
Herför-
ingjar
myrtir
\airohi — 2. nóu'inher.
— Houter.
l’pplysinganiálaráðheiTa her-
foringjastjórnarinnar í Eþíópíu
og nýkjörimi borgarstjóri í Addis
Abeba voru niyrtir í dag, að því er
hin opinbera fréttastofa í landinu
skýrði frá í kvöld. Nánari upplýs-
ingar uni tildrög morðanna eru
ekki tiltækar. en fréttastofan
sagði að niennirnir hefðu fallið
fyrir hendi leiguniorðingja.
Erlendir sendiboðar í Eþíópíu
segja, að skotbardagar að kvöld-
lagi séu að heita má fastur liður í
borgarlifinu í Addis Abeba um
þessar mundir. og er talið að
mennirnir tveir hafi fallið i slík-
uin átökum. Upplýsingamálaráð-
herrann, að nafni Gebeyaw
Temesgen, er fyrsti meðlimur
herforingjaráðsins sem lætur lifið
síðan Mengistu Haile Mariam
komst til valda i febrúarmánuði
s.l.
Anatoly Seharansky og
öðrum þekktum andófs-
mönnum í Sovétríkjunum.
Vance kom þessum tilmæl-
um á framfæri viö Dobryn-
in sendiherra Sovétríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóð-
untim, um Ieið og hann
ítrekaði enn kröfu Banda-
ríkjastjórnar um að mann-
réttindi yrðu virt í hví-
vetna.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
tjáði fréttamönnum í dag, að
Vance hefði á fundi sínum meó
Dobrynin s.l. ntánudag látið í ljós
sérstakar áhyggjur vegna nteð-
höndlunar sovézkra stjórnvalda á
andófsmönnum. Þá staðfesti tals-
maðurinn að stjórn Carters hefði
ntargsinnis snúið sér til stjórnar-
innar i Kreml vegna meðferðar á
tilteknum pólitískum föngum.
ið þar eldsvoða. Ekki hefur l’rétzt
af því að slys hafi orðið á niönn-
um.
Argir blökkuntenn létu
skemmda tómata og banana dynja
á bifreið Carvers lávarðar þegar
hann var á leið iii fyrsta fundar
síns með yfirmönnum hers og lög-
reglu í Saiisbury. Að fundinum
loknum var haft eftir áreiðanleg-
um heimildunt að viöræður hafi
verið „málefnalegar, hreinskilnis-
legar og alvarlegar". en ekki
fékkst upplýst um hvað þær sner-
ust efnislega. Búizt er við þvi að
Carver ræði aftur við sömu aðila á
laugardaginn, en að þessu sinni
er ekki gert ráð fyrir því að hann
hitti að ntáli lan Smith forsætis-
ráðherra minnihlutastjórnarinn*
ar í landinu.
I yfirlýsingu sem birt var af
hálfú hersins í Rhodesiu í dag
segir, að i dag hafi skotárásir frá
Mósambique tvivegis verið gerðar
yfir landantæri Rhodesíu, auk
þess sem jarðsprengja hafi
sprungið í Rhodesíu og hafi marg-
ir blökkumenn látið þar lífiö.
(A F-sínwmi' ml i
Rika Caransa, eiginkona auðkýfingsins. hugaöist af gi'ðshræringunni
þegar henni barst fregnin um að maður hennar væri heill á húfi.
þurftu lögreglumenn að styðja hana á tröppum lögreglustöðvarinnar.
Caransa heill á húfi:
Ilugsaði um fjöldskyldu
mína í prísundinni
Vídtæk leit hafin ad ræningjunum
fannst heill á liúi'i í nótt
Amsterdam — 2. nóvemb«M* — Houlnr —
AP
GÍFURLEG leit fer nú
fram í Hollandi að
ræningjum auðkýfingsins
Maurits Carnasa, sem
a
eftir að fjölskylda lians
hafði reitt fram lausnar-
gjald sem er jafnvirði 840
milljóna íslenzkra króna.
Vegfarandi kom aö
Caransa á torgi í Amster-
dam. Hann var tiltölulega
vel á sig kominn eltir að
hafa verið fimm daga í
höndum mannræningj-
anna. Lögreglan í Hollandi
er þess fullviss að mann-
ránið liafi ekki átt sér pöli-
tískar orsakir, lieldur liafi
hér einfaldlega verið um
að ræða auðgunarglæp.
Á fundi með frétlamönnum i
dag sagði Caransa að
mannræningjarnir hefðu veriö
fjórir að tölu. Þeir hefðu verið
nieð grímur og hjálma þannig að
hann hefði aldrei séð framan í þá.
en hins vegar hefðu þeir talaö
nteð útlendum hreim, sem hann
gat ekki áttaö sig á. Þegar rániö
fór fram var Caransa troðið inn i
bifreið mannræningjanna. sem
sátu á honum meðffn á öku-
ferðinni til fylgsnisins slóð, þar
sem honum var haldiö. Telur
Caransa að ökuferðin hafi tekið
Framhald á hls. 22
% t AP-siiuumy'ikI >
Maurits Caransa ræðir við fréttamenn í Amsterdam eftir að mannræn-
ingjarnir slepptu honum gegn lausnargjaldi. Caransa er 61 árs að
aldri. Ilonum var rænt sl. föstudag er hann var á leið heim til sín eftir
kvöldskemmtun í næturklúhhi í Amsterdam.
Afstaðan til fiskverndunar
byggð á heilbrigðri skynsemi
segir brezki sjávarútvegsrádherrann
Liindiinum — 2. nóvember.
— Reuter.
„FISKISTOFNANA verður að
vernda gegn ofveiði. ella verður
lítið eða ekkert til skiptanna í
framtíðinni," sagði John Silkin
sjávarútvegsmálaráðherra Breta í
dag þegar rætt var unt ráðstafan-
ir, sem gengu í gildi við strendur
Bretlands nú um mánaöamótin,
„Þessi eindregna afstaða okkar
byggist einungis á heilhrigðri
skvnsemi," sagði Silkin á fundi
sínum .neð forráðamönnum sam-
taka brezkra fiskimjölsfrantleið-
enda.
Þrátt fyrir andstöðu annarra
aöildarríkja Efnahagshandalags-
ins ltafa Bretar hannað með öllu
spærlingsveiðar á stóru svæði í
Norðursjó, en tilgangur bannsins
er nteðal annars sá að koma i veg
fyrir að gengið sé of nærri ungunt
árgöngum af þorski og ýsu. Spærl-
ingur fer mestmegnis í hræðslu
en þar sem þéttriðin net eru not-
uó við veiðarnar slæðast jafnan
aðrar fisktegundir meö.
Forsvarsmenn í dönskum
Framhald á bls. 22
Baader — Ensslin — Raspe
Boðuðu sjálfsmorð
með 10 daga fyrirvara
Bonn — 2. nóvcnibor — Houlcr — AF
10 DÖGUM áður en þau Andreas
Baader, Cudrun Fnsslin og Jan-
Carl Raspe styttu sér aldur í klef-
um sínum í Stammheim-
fangelsinu í Stuttgarf lélu þau að
því liggja í samtölum við rann-
sóknalögreglumann aö þau hefðu
sjálfsmorð í hvggju, að því er
fram kemur í Itarlegri skýrslu
um Schleyer-málið, sem hirt var í
Bonn f dag. Lögreglumaöurinn
hefur eftir Baader, að „fangarnir
hafi ekki f hvggju að una lengur
við núverandi ásland, og að í
framlíðinni skuli rfkissljórnin
ekki hafa fangana á valdi sínu“.
Segir lögreglumaðurinn, að þegar
samlal þctta hafi farið frani, hafi
Baadcr greinilega verið l'arinn á
taugúm. og hal'i hann tekið svo lil
orða, að fangarnir niiindu taka
„óumbreylanlega ákvörðun nema
taugastríöiö gegn ræningjum
Schleyers la'ki enda og
aðhúnaður fanganna í Slanim-
heim va>ri bællur“.
Daginn eftir samlalið við
Baader ræddi sami lögroglu-
ntaður við Cudrun Ensslin, sem
sagði m.a.: „Ef þessi skepnu-
skapur hér tekur ekki enda þá
tökum við fangarnir hér í
Stammheim ákvörðunina lyrir
Schmidt, förunt þá einu leið. sei.
okkur er enn fær, — tökum okkai
ákvörðun sjálf." I skýrsiunni cn.
einnig hiifö uinmæli eftir Raspe
um að v-þýzka stjórnin kallaði
yfir sig sljörnimilalegt áfall —
dauöa fanga en ekki frjálsa —
Framhald á hls. 2.'i