Morgunblaðið - 03.11.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. NÖVEMBER 1977
29
Ámi Helgason:
Að verk-
falliloknu
VERKFALLI opinberra starfs-
manna er lokið. Leiðinlegu verk-
falli sem allir góðir menn vonast
til að endurtaki sig ekki. Ekki
þurftu þó allir að fara í verkfall,
og sumir sátu á neyðarvakt sem
var litlu betra ef ekki verra.
Morgunblaðið var sakað um að
hafa greint um of frá því sem var
að gerast hverju sinni, því auðvit-
að er þáð margt i svona verkfalli
sem þolir illa dagsins ljós. En ef
allt hefði verið borið á borð sem
geróist hefðu þessar raddir oróið
háværari. Þetta eitt sýnir og sann-
ar enn hversu hin blöóin hafa
unað sér við hálfan sannleik. Það
er nú svo með verkföll að þau
koma helst niður á þeim sem ekki
fá rönd við reist og enga sök bera.
Þarf í því samandi ekki nema að
lita til Flugleiða sem verða fyrir
milljónatjóni i hverju verkfalli og
eiga það alltaf yfir höfði sér i
harðri baráttu um flugleiðir
landa á milli að missa þær áætlan-
ir yfir höfin sem með áræói,
kjarki, og þrautseigju hafa verið
byggðar upp. Þetta skyldu menn
íhuga. Og á fleira mætti benda.
Og það hlýtur að leiða hugann
að þeirri spurningu hvort land
vort sé ekki í raun og veru stjórn-
laust, þgar kjörin landsstjórn hef-
ir lítið að segja í raun og sann-
leika, er hrakin úr einu vígi í
annað og síðan þarf að auka
skatta sem öllum er þó illa við.
Þær eru margar andstæður í lífi
mannanna.
Já, verkfallinu er lokið. Einu
var tekið eftir. Drykkjuskapur
var miklu minni en nokkru sinni
fyrr og lítið var sagt af aðgeróum
lþgreglu.
Með því að áfengisútsölunni var
lokað, þá batnaði ástandið. Og svo
koma menn og segja að það þurfi
bara fleiri útsölur og kenna fólki
að umgangast áfengi og eiturefni.
Svona geta menn talað jafnvel
þótt reynslan sé alltaf að segja
annaó og reynslan er þó ólygnust.
Af þessu geta menn lært. Og því
ekki að taka reynsluna til greina,
þvi meiri hömlur, því minna
drukkið hvað sem hver segir.
„Vió getum ekki lifað á þessum
launum“ voru kjöroró þessa verk-
falls.
Eftir verkfallið var sagt, að á
fyrsta degi opnunar Áfengisversl-
unarinnar hefði selst áfengi fyrir
80 milljónir og maður gat dregið
þær ályktanir að þar hefðu þeir
sem í verkfallinu voru átt drjúg-
an þátt i og svo hitt að stórir
hópar létu ekki á sér standa að
bregða sér út fyrir pollinn í svo-
kallaðar innkaupaferðir aó því er
frést hefir.
En verkfallinu er lokið. Þrátt
fyrir hækkun á kaupi vantar mik-
ið á ánægjuna. En hve þetta er
táknrænt. Þarna kemur það sem
lífið er alltaf að kenna okkur að
gleði og ánægja verður aldrei
Hjúkrunar-
gagnasýning
um næstu helgi
HJUKRUNARNEMAFÉLAG ís-
lands stendur fyrir hjúkrunar-
gagnasýningu í tilefni 30 ára af-
mælis félagsins dagana 5.—6.
nóvember nk. Sýningin verður í
Hjúkrunarskóla Islands, Eiriks-
götu 34. Þar sýna 12 fyrirtæki
nýjungar í hjúkrunargögnum og
lækningatækjum. Einnig verður
sögusýning, þar sem sýnd verða
gömul hjúkrunargögn. Þá ætla
hjúkrunarnemar að vera með
kökubasar á sýningunni. Sýning-
in er opin á laugardag klukkan
10.00—22.00 en á sunnudag frá
10.00—21.00 og er öllum heimill
aðgangur, sem er ókeypis.
keypt frekar en heilsa og hreysti
og sú kauphækkun verður til
minni blessunar ef ánægjan, lifs-
ánægjan, fylgir ekki með.
Rikisstjóóur veróur mörgum
milljónum fátækari og verður að
herða þetta allt í „blóði brennu-
manna" eins og þar stendur.
Sama hringrásin og á ný byrjar
óánægjan. Og þá kemur upp sú
staðreynd að það er ekki sama
hvernig við verjum þvi fé sem vió
höfum fengið.
í dag leita menn helst að friði,
friði i eigin sál. Margir lita til
baka og gráta misstigin spor, .
skemmda ævi fyrir sér og sínum.
Þeir hafa villst. Enn erum við '
minnt á gamla málshætti.
Einhvers staðar stendur að hver
sé sinnar gæfu smiður. Eru þó '
ekki margir sem kenna öðrum um
ófarir sínar, þjóðfélaginu ef ekki
vill betur, en athuga ekki um leið
að þeir sjálfir eru hlekkir í keðju
þjóðfélagsins.
Þetta verkfall minnti okkur á
margt. Ef við getum dregið réttar
ályktanir okkur öllum til heilla,
þá má segja að ekki hafi verið til
einskis af stað farið, þótt dýrt hafi
verið.
Dýrmætasta reynslan var sú að
menn voru alsgáðari en nokkru
sinni fyrr. Lokun áfengisverslun-
ar hafði sín áhrif. Hvers vegna
erum við að opna hana aftur til
bölvunar landi og þjóð. Eða eig-
um við virkilega, fáir og smáir, að
fórna enn og áfram mörgum
glæstum þjóðfélgsþegnum á alt-
Ný plata með vís-
um úr Vísnabókinni
Arni Helgason
ari Bakkusar og. fá þá þaöan
styrkþega gróandi þjóðlifs, þá
hina sömu sem áttu að vera með í
uppbyggingu þróttmikillar þjóð-
ar.
Viðskipti við Bakkus geta
aldrei orðið góð vióskipti.
Nei, hamingjuna finnum við
ekki í nautna- og skemmtanalifi.
Leitið fyrst guðsríkis segir hin
heilaga bók og það skyldi nú ekki
einmitt vera þetta sem dagurinn í
dag er að minna okkur á. Að leita
ekki langt yfir skammt. Minn frið
gef ég yður, segir frelsarinn, en
þó er kapphiaupið eftir keyptum
„friði“ sem deyr og dvín og skilur
aðeins ör eftir.
Menn tala um að gera góó kaup.
Hvi ekki að athuga þessar gjafir
Krists okkur til handa, notfæra
okkur þær, láta aðra verða aðnjót-
andi þeirra með okkur. Um leið
fáum við hina sönnu gleði. Þá
verður kaupið okkur drýgra og
veðmætara og lífið sjálft ham-
ingjuganga.
ÚT UM GRÆNA GRUNDU nefn-
ist ný hljópplata með vfsum úr
Vfsnabókinni, seni Iðunn gefur
út. Aðslandenriur liennar eru
Gunnar Þórðarson, Björgvin Hall-
riórsson og Tóinas Tóniasson, en
þeir sáu uni gerð fvrri plötunnar
nieð vfsuni úr Vfsnabókinni,
EINU SINNI VAR, sem út kom á
síðastliðnu ári og naut niikilla
vinsælda.
í fféttatilkynningu frá út-
gáfunni segir m.a.:
„Ymsir koma við sögu á plöt-
unni auk þremenninganna sem
fyrr voru nefndir. svo sem kór
Öldulúnsskóla undir stjórn Egils
Friðleifssonar og 24 manna
strengjasveit úr Sinfóníuhljóm-
sveil Íslands undir stjórn Jóns
Sigurðssonar. Einnig kemur
fjöldi annarra hljóðfæraleikara
við sögu. Söng önnuöust auk
Öldutúnsskólakórssins: Björgvin
Halldórsson, Berglind Bjarna-
dóttir, Jóhann Eiriksson og Ragn-
hildur Gisiadóltir.
Ljóðin eru sem fyrr öll tekin út
Vísnabókinni en lögin eru úr ýms-
um áttim, bæði þjóðlög og ný lög
eftir ýmsa tóniistarmenn. Jafn-
llliða útgáfu þessarar nýju vísna-
pliitu kemur á markað 6. prentun
Visnabókarinnar sem nú hefur
verið prentuð í yfir fjörutíu þus-
und eintökum.
Platan var hljóðrituð á um 300
stundum i Hljóðrita í tnaí, júní og
júlí. Upptökumaður var Geoffrey
Calver frá Marqúee hljóðverinu i
Lundúnum. Platan var skorin og
pressuð hjá CBS samsleypunni í
Hollandi.
Mynd á plötuumslagi er eflir
Gunnlaug Stefán Gíslason list-
niálara."
Alþýðusamband
Vestfjarða 60 ára
A ÞESSU ári eru liðin 50 ár frá
því Alþýðusamband Vestfjarða
var stofnað og hét það f.vrstu
starfsárin Verkalýðssanibanri
Vestfjarða. Svæði sanibanrisins er
Vestfjarðakjörriæmi og eru aðild-
arfélög nú 15.
1 frétt frá sambandinu er getið
ýntissa áfanga er náóst hafa, t.d.
varðandi samningamál, og var
þaö á árinu 1949 að tókst aö koma
á heildarsaniningum um kaup og
kjör landverkafólks og hefur einn
heildarsamningur gilt milli
verkalýðssamtakanna og atvinnu-
rekenda á Vestfjörðum siðan.
Hafa þeir ýmist verið gerðir i
Framhald á bls. 23
Suðurland
eignast nú sinn
Iðnaðarbanka á SeKossi
Réttur banki á réttum stað
Fjölbreyttur iðnaður er traust undirstaða
athafnalífs og byggðar á hverjum stað. Á
Suðurlandi hefur iðnaður eflst jafnt og þétt á
undanförnum árum. Sú þróun verður að
halda áfram. Á morgun.föstudaginn 4. nóv-
ember.teljast tímamót í þeirri þróun, því þá
opnar Iðnaðarbankinn útibú áSelfossi, mið-
stöð iðnaðar og þjónustu áSuðurlandi.
Tilgangur bankans með opnun útibúsins
er að veita byggðarlaginu þjónustu, sem leitt
getur til aukinna framkvæmda og viðskipta
-og þá um leið betri lífskjara.
Iðnaðarbankinn æskir samstarfs við alla
aðila um að ná þessum tilgangi.
Útibúið er að Austurvegi 38. Þar er veitt öll
almenn bankaþjónusta. Opið verður virka
daga frá kl. 9.30 - 15.30. Auk þess á föstu-
dögum frá kl. 17 - 18.30.
Gerið svo vel og reynið viðskiptin.
Iðnaðarbankinn
Austurvegi 38, sími 1816 Selfossi
4Jixi * íoj.i riUjij.ujij)
vJkí