Morgunblaðið - 03.11.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. NÖVEMBER 1977
3
Mikil hálka á
þjóðvegunum
NORÐANATT og kalt var i veðri i gær og verður væntanlega áfram.
Víða sunnanlands litu menn í f.vrsta sinn hvita jörð I gærmorgun, því
að árdegis var dálítið fjúk. Fölið hvarf þó fljótlega upp úr hádeginu.
Að sögn Vegaeftirlitsins varð
um tíma í gær mjög hált á Reykja-
nesbrautinni og Suðurnesjunum,
svo og á Hellisheiði í nágrenni
höfuðborgarinnar en mikil hálka
er einnig víða úti á landi.
Yfirleitt er ástand vega á land-
inu fremur gott um þessar mund-
ir, en hvað sízt á Vestfjörðum þar
sem fjallvegir eru ófærir eða í 11-
færir flestir hverjir. Holtavörðu-
heiði var fær í gær öllum bilum
Friðrik Olafs-
syni boðið í
prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins
„ÞAÐ er rétt, að kjörnefnd
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík hefur snúið sér til min og
óskað eftir því að ég gefi kost á
mér á prófkjörslista flokksins í
Reykjavik," sagði Friðrik
Ólafsson, stórmeistari, í sam-
tali við Mbl. í gær. „Hins vegar
eru margir annmarkar á því að
ég geti tekizt slíkt á hendur,
meðal annars hef ég aldrei
haft nein bein afskipti af
stjórnmálum, þannig að fyrir-
varinn er helzt til stuttur.“
en þar var mikil hálka. og á
Norðurlandi var orðinn þæfingur
i Mánárskriðum á Siglufjarðar-
leið og Lágheiði er orðin ófær. en
hún verður rudd aftur úr þessu á
þessum vetri. Velfært er yfir
Öxnadalsheiði en i Eyjafirði og
nágrenni er það að segja um
ástandið, að þar lokaðist Ólafs-
fjarðarmúli um tima í fyrradag en
var opnaður aftur í gær og sömu-
leiðis Vaðlaheiði. í S-
Þingeyjarsýslu var mikil hálka á
vegum en víða þungfært í norður-
sýslunni, t.d. ófært um Öxarfjarð-
arheiði, þungfært um Hólssand og
Vopnafjarðarheiði sömuleiðis. A
Austfjörðum er strax mun betra
ástand t.d. er Möðrudalsheiöi enn
fær.
Verð á þurr-
mjólkurdufti
er miðað við
verð erlendis
— segir landbún-
adarrádherra
„VERÐIÐ á þessari vöru innan-
lands er bundið við það verð, sem
fæst erlendis, þannig að innlendi
iðnaðurinn á að fá sama verð fyrir
sína framleiðslu og við fáum fyrir
hana erlendis," sagði Halldór E.
Sigurðsson, landbúnaðarráð-
herra, ei' Mbl. leitaði til hans
vegna þeirra uinmæla Magnúsar
Ingimundarsonar, forstjóra kex-
verksmiðjunnar Fróns hf„ að
hann væri neyddur til að kaupa
innlent mjólkurduft á 320—330
krónur kílóið á sama tím og hann
gæti fengið það erlendis frá á urn
80 krónur kílóið.
Ráðherrann tók það fram, að
hann þekkti ekki til þessa sér-
staka dæmis, sem væri tilefni
spurningar Morgunblaðsins.
Sparisjóðirnir auka hlutdeild sína;
Um 15,4% heildarinn-
stæða bankakerfis-
ins hjá sparisjóðunum
HLUTUR 43 sparisjóða á landinu
af heildarinnstæðum innláns-
stofnana var í ágústlok sl. 15.4%
og ef litið er á sparisjóöina í
landinu sem eina heild eru þeir
þriðja stærsta lánastofnunin hér
á lantli á eftir Landsbanka og
Búnaðarbanka. Forráðamenn
sparisjóða hafa einnig látið í Ijós
óánægju með sky Iduhindingu
innlánsfjár sparisjóðanna í Seðla-
bankanum en í ágústlok voru um
3.2 milljarðar króna af innstæð-
um viðskiptamanna sparisjóð-
anna bundnir f Seðiabankanum,
sem aftur lánar þetta sama fé f
Baldvin Tryggvason, formaður
Sambands ísl. sparisjóða.
endurlánum til atvinnuveganna í
gegnum viðskiptabankana.
Þetta kom frarn á aöalfundi
Sambands ísl. sparisjóða sem
haldinn var sl. laugardag, en
hann sóttu sparisjóðsstjórar og
stjórnarmenn spa.isjóða hvaðan-
æva að af landinu. Baldvin
Tryggvason, Sparisjóði Reykja-
víkur og nágrennis, var þar kjör-
inn formaður sambandsins. I
fréttatilkynningu um fund þenn-
an segir svo:
í ársskýrslu formanns
sambandsins. Guðmundar Guð-
mundssonar, sparisjóðsstjóra i
Hafnarfirði, kom fram m.a., að nú
eru starfandi 43 sparisjóðir á
landinu. Heildarinnstæður þeirra
voru um síðustu áramót 10.5
milljarðar króna eða um 15% af
öllu innlánsfé landsmanna í
bankakerfinu. Nú í ágústlok s.l.
voru innstæður sparisjóðanna
hinsvegar 12.7 milljarðar króna
eðá 15.4% af heildar innstæðum í
innlánsstofnunum, og hefur því
hlutur sparisjóðanna aukizt nokk-
uð um sinn a.nv.k.
Ef litið er á sparisjóðina sem
eina heild eru þeir þriðja stærsta
lánastofnunin á landinu næst á
eftir Landsbanka Islands og Bún-
aðarbanka íslands.
A fundinum kom fram mikill
Framhald á bls. 22
Unnið við viðgerðir á stöðinni f gærkvöldi
Mismunandi
fréttamat
sjónvarps
og útvarps
YFIRLÝSINGAR forystu-
manna starfsmannafélaga
níu sveitarfélaga þess efnis
að gagnrýni BSRB-
forystunnar á samninga
félaganna hafi verið órétt-
mæt og jafnframt óskyn-
samleg hefur ekki verið
getið í fréttum útvarpsins.
Hins vegar var yfirlýs-
ingarinnar getið í fréttum
sjónvarpsins og fylgdi
þeirri frétt viðtal vió Þór-
hall Halldórsson, formann
stærsta starfsmannafélags-
ins, sem í hlut ótti.
„Þessarar yfirlýsingar var getið
í fréttum sjónvarpsins og í kjölfar
þeirrar fréttar kom viðtal við Þór-
hall Halldórsson, formann
stærsla starfsmannafélagsins,
sem í hlut átti, en það var eðlilegt
framhald af frétlinni uin þessa
samþykkt sagði Emil Björnsson,
fréttastjóri sjónvarpsins, i samtaii
við Mb.
Þess má einnig geta, aö þessi
yfirlýsing var svar við ummælum,
sem meðal annars höfðu komið
fram i sjónvarpsviðtali við for-
Rafmagn af stór-
um hluta Efra-
Breiðholts í gær
Búizt við að viðgerð ljúki fljótlega
RAFMAGN fór af stóruni hluta
Efra-Breiðholts um sjöleytið í
gærkvöldi, er strengur í spenni-
stöðinni á Vesturbergi 74 brann í
sundur og skemnidi eitthvað út
frá sér. Slökkvilið og viðgerðar-
menn frá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur voru þegar kallaðir á vett-
vang. Ekki kom til kasta slökkvi-
liðsins þar sem um 60.000 volta
spenna var á stööinni, það hélt
hins vegar fólki frá stöðinni með-
an á þessu stóð.
sens, rafmagnsveitustjóra í
Reykjavík, og innti hann eftir því
hversu alvarlegt þetta væri.
„Skemmdirnar eru alls ekki mjög
alvarlegs eðlis, heldur var þetta
einn strengur sem brann, senni-
lega vegna galla í rofabúnaði, en
hann hins vegar skemmdi tölu-
Framhald á bls. 22
mann BSRB.
En hvað sem öllum ummælum
líður, þá var það einfaldlega mitt
fréttamat, sém þarna var sýnt í
verki."
Margrét Indriðadöttir, frélla-
stjóri útvarpsins, sagði að þar sem
yfirlýsingin frá forystumönnum
starfsmannafélaganna hefði verið
svar við annarri áður kominni
yfirlýsingu hefði útvarpinu ekki
þótt rétt að birta hana. Fyrri yfir-
lýsingin hefði aðeins birzt i blöð-
um, þar sem útvarpið var lokað í
verkfallinu, og því hefðu þau orð,
sem starfsmannafélögin mót-
mæltu, aldrei verið vióhöfð i út-
Varpinu. Sagði Margrét að útvarp-
ið hefði nóg með sitt. þö það
reyndi ekki einnig að leiðrétta
aðra fjölmiðla.
Dimmt í Reykjahlíð
INNLENT
í!«pu*- jkrivís: ii i anna i al { »d til i ■ aiikur fljólH'ua fli - aó frútlisl um
óróa.in skjáif* ji ^lununi Ruyi. fd. A , : >vari inyml <*ri ft .» vinstri: Otlilur
Sij'urðsson. SÍKuróur Þórarínssnn. Páll Einarsson. (luóniuiulur SÍKVahlason. uij'in-
kona hans. Ömhcrt þcim vió horðió: lljörtur TrygKvason. Krislján Sæmumlsson. K\ai
Jóhannsson Ijósmymlari o« Vilhjálmur Knmlsun k\ ikmy mlatökumaöur.
Jarðf r ædingar
á ferð og flugi
Roynihlíö 2. nó\umhur.iFrá AkúsIí I. Jónssyni. hlm. Mbl.:
KRISTJÁN Sæmundsson var einn jarðfræðinga staddur i Reyni-
hlíð er óróans varð vart á mælum þar í morgun. Þeir jarðfræðing-
ar sem verið höfðu hér að undanförnu héldu suður í gærkvöldi.
Er fréttist um öróann komu þeir flestir norður á nýjan ieik og
var á annan tug jarðvisindamanna hér þegar mest var i dag.
Héldu flestir suður aftur i kvöld. aðrir fara á morgun. en næstu
daga mun þö alltaf einn eóa fleiri vera á staðnum.
Viðgerðarmenn rafmagnsveit-
unnar fóru þegar inn f stöðina og
hófust handa þegar eldurinn var
slokknaöur. Tókst þeini mjög
fjótlega að koma aftur rafmagni á
stærstan hluta Efra-Breiðholts.
í þessu sambandi sneri Morgun-
blaðið sér til Aðalsteins Guðjohn-
— vegna gufu úr Bjarnarflagi —
Frá því í síðustu viku hefur
aukizt gufustreymi i Bjarnaflagi
og er varasamt að aka veginn um
Námaskarð. Vegurinn hverfur á
ktundum i gufumökkinn og á
timabili í dag sást ekki til Kísil-
iðjunnar frá veginum, þaðan af
siður til Léttsteypunnar sem
lengst af var alveg hulin.
Jarðvisindamenn könnuðu í
dag svæðið upp af Hlíðardalnum.
Skoðanir voru skiptar þeirra á
meðal um hvort aukning hefði
orðiö á gufustreymi i eldstöðvun-
um frá því í september norðan við
Leirhnúk og sömuleiðis i Gjá-
stykki. Þá voru vísindamennirnir
ekki vissir, hvernig túlka ætti
óróa sem byrjaði að koma fram á
hallamæli i ReynihlíÖ klukkan tvö
i nótt hvort þar væri um raun-
verulegar breytingar á landinu aö
ræóa eða bilanir i tækjum.
Reynililfó. 2. nóvember
Frá hlaóamanni Mhl.
Afíústi I. Jónssyni
MIKIL þoka lagðist yfir Reykja-
hlíðarhverfið og var dimmt yfir
við Mývatn í dag. Hins vegar var
ágætt sk.vggni þegar ofar dró.
Ástæða þessarar niiklu þoku var
meðal annars gufa úr Bjarnar-
flagi og lagði hana niður að vatn-
inu. Einnig þétti kísiirykið úr
Kísiliðjunni þokuna. auk þess
uppgufun úr Mývatni.