Morgunblaðið - 11.11.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NOVEMBER 1977
3
Iðnaðarráðherra á fundi FII:
Framlag ríkissjóds
hefur, þrefaldast til Iðn-
lánasjóðs á þessu ári
— og mun enn aukast verulega á næsta ári
DR. GUNNAR Thoruddsen iðnadarráðherra ávarpaði félagsfund Fé-
lags íslenzkra iðnrekenda á Hófel Sögu í gær og ræddi ráðherra þar
m.a. stöðu iðnaðarins f dag og þá rakti hann nokkur hagsmunamál
íslenzks iðnaðar, þar sem hann reyndi að gefa nokkra mynd af þvf sem
stefnt er að og unnið að.
1 máli sfnu um stöðu iðnaðarins f dag sagði iðnaðarráðherra m.a.:
Nálægt þriðjungur landsmanna hefur vinnu af iðnaði, þáttur iðnaðar f
þjóðarframleiðslu er meiri, en nokkurrar annarrar atvinnugreinar. Á
sfðustu árum hefur iðnaðarframleiðsla aukist að meðtaltali meira en
þjóðarframleiðslan f heild og framleiðni vaxið. Utflutningur iðnaðar-
vöru hefur á fáum árum náð þvf að verða um fjórðungur heildarút-
flutnings, Iðnaður sparar gffurlegar fjárhæðir í erlendum gjaldeyri.
Þá sagði ráðherra að þetta bæri allt vott um mikilsverðan árangur.
Kirkjukór Akraness ásamt stjórnanda sinum og undirleikara. sem eru fremst
á myndinni. Ljósm. Július.
Kirkjukór Akraness syng-
ur í Betlehem á jólunum
Er iðnaðarráðherra rakti nokk-
ur hagsmunamál íslenzks iðnaðar
kom m.a. fram. — Iðnlánasjóður,
sem er ásamt Iðnþróunarsjóði
aðalstofnlánasjóður iðnaðarins,
hefur verið verulega efldur. Ut-
lán Iðnlánasjóðs hafa aukist úr
liðlega 300 milljónum króna árið
1974 i rúmlega 1200 milljónir
króna i ár. Framlag rikissjóðs þre-
faldaðist á þessu ári, úr 50 mill-
jónum króna í 150 milljónir króna
og mun það síðan hækka í 250
milljónir króna á næst.a ári. Sölu-
gjald á vélum og tækjum til sam-
keppnisiðnaðar, sem á árinu 1974
var 22%, lækkaði í ársbyrjun
1975 i 11% og hefur nú verið fellt
niður að fullu. — Það þarf að
eyða þeim svonefndu uppsöfnun-
aráhrifum, sem söluskattur er og
torveldar samkeppni á innlendum
markaði og i útflutningi. Akveðið
hefur verið að endurgreiða upp-
safnaðan söluskatt á útfluttum
iðnaðarvörum 1977, að upphæð
235 milljónir króna og i svari við
fyrirspurn sagði iðnaðarráðherra,
að h.ann hefði þegar lagt fram
tillögu á Alþingi um að einnig
verði um endurgreiðslu að ræða
fyrir árin 1975 og 1976. — Efla
verður þjónustustofnanir iðnað-
arins í þeim tilgangi að auka
tækniþjónustu og leiðbeiningar
við iðnaðinn. Frumvarp til laga
um Tæknistofnun hefur verið i
undirbúningi og verður lagt fyrir
Alþingi á þessu ári. — Veitt hefur
verið og í undirbúningi ér frekari
tækniaðstoð i ýmsum greinum
iðnaðarins svo sem í skipaiðnaði,
tnálmiðnaði, vefjar- og fatagerð
og húsgagnaiðnaði. — Hafinn er
markviss stuðningur við vöru-
þröun. — Unnið hefur verið að
athugun á þörf innanlands fyrir
skipaviðgerðir og nýsmiðar næstu
árin, getu innlenda skipaiðnaðar-
ins til að anna þeirri eftirspurn,
nauðsynlegri heildarfjárfestingu,
er miðist við hagkvæma uppbygg-
ingu greinarinnar, leiðir til fjár-
Guðmundi Sig-
urjónssyni og
Helga ÓlaJfesyni
boðið á skákmót
í New York
GUÐMUNDI Sigur júnssyni,
stórmeistara, og Helga Ólafs-
syni hefur verið boðin þátt-
taka f skákmóti í New York,
New York Invitation
Tournament, sem fram fer 3.
til 22. desember n.k. Guð-
mundur hefur þegið boðið og
að sögn Einars S. Einarssonar,
forseta Skáksambands tslands,
er nú verið að kanna mögu-
leikana á því að Helgi geti
einnig þegið boðið, en á móti
þessu fengi hann tækifæri til
að afla sér siðari helmings al-
þjóðlega meistaratitilsins.
Einar sagði að tveir stór-
meistarar tækju þátt i mótinu
auk Guðntundar, þeir Lein frá
Bandaríkjunum og Torre frá
Filipseyjum. Sex alþjóðlegir
meistarar verða meðal kepp-
anda, en alls taka 18 skákmenn
þátt í mótinu.
mögnunar og aðrar aðgerðir er
stuðli að eflingu og samkeppnis-
hæfni skipaiðnaðarins. Fyrstu til-
lögur hafa borist og eru til athug-
unar við gerð lánsfjáráætlunar
1978. — Hafnar eru framkvæmd-
ir við byggingu verksmiðju til
saltframleiðslu á Reykjanesi, sem
gæti lagt grundvöll að fjölbreytt-
um efnaiðnaði. — Fram fara á
vegum Iðnþróunarstofnunar at-
huganir á möguleikum þess að
nýta ál, framleitt hér innanlands,
sem hráefni til framleiðslu á ým-
iss konar fullunnum vörum. —
Unnið er að endurskoðun laga um
Sölustofnun lagmetis. — 1 athug-
un eru möguleikar á hagkvæmni
þess að koma upp ylræktarveri, er
nýti jarðvarma og rafmagn, og er
unnið að nauðsynlegum rann-
sóknum í þvi sambandi. — Rann-
sóknir fara fram á möguleikum
endurvinnslu ýmissa efna er til
falla í landinu og hafa lítt eða
ekki verið nýtt til framleiðslu
hingað til. — Unnið er að tillögu-
gerð um það, hvernig haga megi
innkaupum ríkis- og ríkisstofnana
þannig að þau miði að þvi að efla
íslenzkan iðnað.
Að lokum sagði iðnaðarráð-
herra, að þeirrar tilhneigingar
gæti um of að telja þýðingu ein-
hverrar atvinnugreinar meiri en
annarra. Þess hefur einnig nokk-
uð gætt, að telja eina grein iðnað-
arins þýðingarmeiri en aðra. Slík-
Framhald á bls. 19.
SEXTÍU manna Ktrkjukór Akraness
mun gera viðreist um næstu jól.
Nánar tiltekið er ferðinni heitið til
ísraels, þar sem kórinn mun syngja í
Betlehem um jólin. Er nú unnið af
kappi að undirbúningi ferðarinnar,
sem mun herjast 21. desember þeg-
ar hópurinn flýgur til Tel Aviv.
Fyrir siðustu jól bárust kórnum boð
um að koma og syngja i Betlehem, en
af þvi gat ekki orðið Mjög mikil undir-
búningsvinna hefur farið fram til að
gera þess ferð mögulega Kórfélagar
hafa allt siðastliðið ár staðið fyrir ýmiss
konar fjáröflun svo sem flóamarkaði,
basarhaldi og útgáfu auglýsingablaðs
Þá hafa kórnum borizt nokkrar gjafir,
þar á meðal 100 000 króna gjöf frá
Félagi borgfirzkra kvenna i Reykjavik
í sambandi við ferðina hafa verið
útbúnir sérstakir búningar út batik fyrir
kórfélaga Stjórnandi kórsins er Hauk-
ur Guðlaugsson söngmálastjóri og
undirleikari er Friða Lárusdóttir.