Morgunblaðið - 11.11.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.11.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÖVEMBER 1977 17 i form- gær kreppti aö framkvæmdanefnd- inni og yrði á næstunni lagt i lokasprettinn með fjármögnum framkvæmdanna. Lánsfé og eigið fé aðstandenda byggingarinnar væri nú komið í 431 milljón og þvi vantaði á um 70 milljónir. Að sögn Péturs Sigurðssonar verður aðstaða öll í hinni nýju Hrafnistu mjög góð. Þar verða nokkrar setustofur á hverri hæð auk þess sem vinnuherbergi, föndurherbergi, heilsuræktarher- bergi, rakarastofa, hand- og fót- snyrting, sjúkraböð, sundlaug, o.fl., verða í húsinu fullbúnu, en margt af þessu verður til staðar í þeim áfanga sem nú hefur verið tekinn í notkun. í Hrafnistu í Hafnarfirði verður komið fyrir altari i einum salnum þar eð Víðistaðasókn hef- ur fengið þar inni með guðsþjón- ustur og helgidagahald. Sigurður H. Guðmundsson sóknarprestur fær skrifstofuaðsetur í húsnæð- inu nýja, og dvalargestir munu fá að njóta nærveru hans, að sögn Péturs. Sagði Pétur framkvæmda- nefndina telja þetta atriði mikil- vægt og sjálfur sagðist Pétur telja það öllu meira atriði að sálusorg- ari hefði aðsetur á dvalarheimili aldraðra í stað sprenglærðs félagsfræðings, eins, og hann komst að orði. í kjallara hússins verður bókasafn og aðstaða fyrir kennara, en nú þegar hafa Hrafn- istu í Hafnarfirði borist þrenn söfn bóka. Skóflustunga hinnar nýju Hrafnistu var tekin á árinu 1974. Eiginlegar byggingaframkvæmd- ir gátu þó ekki hafist fyrr en um ári siðar, þ.e. haustið 1975. þar sem nú þarf um þrjár vikur til að fullljúka fyrsta áfanganum er byggingartími hússins orði'n um tvö ár, og sagði Pétur Sigurðsson Framhald á bls. 19. Nýja Hrafnista, Hafnarfirði, eins og hún mun líta út fullbyggð. Sá áfangi sem nú er að verða fullgerður er lengst til hægri Starfsstúlkur Hrafnistu í Hafnarfirði ásamt Arsæli Pálssyni (1. t.v.), Sigrfði Jónsdóttur forstöðumanni, Pétri Sigurðssyni og Antoni Niku- lássyni. Séð inn eftir einum gangi f nýja húsinu. Magnús Magnússon og Helga Asmundsdóttir úr Grindavík fá sér hressingu f Hrafnistu í gær ásamt Sigrfði Jónsdóttur forstöðukonu. Magnús er fæddur og uppalinn f Grindavfk og stundaði þaðan sjó- mennsku í áratugi. Létu þau mjög vel af hinum nýja samastað sínum í spjalli við Mbl. „Rauðvín í föstu formi og án timburmenna” nokkrar athugasemdir um höfund sinn, sem eru að sjálfsögðu samdar af Örlygi Sigurðssyni sjálfum, enda hefur hann séð um bók þessa að öllu leyti, en gengur þó mest upp í starfi auglýs- ingastjórans. „Mér hefur alltaf fundizt sjálfsagt, að listamaður sæi um sitt fyrirtæki sjálfur,” sagði Örlygur Sigurðsson i samtali okkar, „og ráðskaðist með hvað eina, fjármálin gera útgáfuna ekki sízt spennandi, það er eins og að standa í sporum Óskars Halldórssonar íslandsbersa og gera út á sild — og svo tekur maður krakkinu, ef það kemur og drekkir sorgum sinum i rósavíni, hugsandi um íslenzka menn- ingu og skáldskap og þó einkum Sveinbjörn Egilsson og hina rósfingr- uðu morgungyðju." Örlygur bætti því við, að hann skammaðist sín ekkert fyrir „að stússa i eigin útgáfu, sem kollegum mínum þykir miður lista- mannslegt Ég bendi bara á Charlie Chaplin, sem hefur aldrei sent frá sér kvikmynd, svo hann hafi ekki bæði verið framleiðandi, höfundur, leikari, fjármálaspekingur, sendill — og elsk- huginn innan sviðs og utan” Af einskærri skarpskyggni segir for- stjóri Geðbótar um höfund bókarinnar, að hann sé „litillátur listamaður og mundu ýmsir telja þetta óþarfa „understatement'. Hitt mun sanni nær, sem stendur á bókarkápu, að „hér stendur bunan eins og vélbyssuspýja út úr þessum litilláta listamanni, mál- ara, rithöfundi, skáldi, andláts- og af- mælisskríbent, sönglara, munnhörpu- leikara, bókaútgefanda og stjórnarfor- manni Storksins með prókúruumboði (verzlun frúarinnar)” Þá væntir útgáf- an þess, að „hin hraða skothrið frá- sagnar og stíls meið« engan, sem og „djarfar” og frjálslegar frásagnir, myndskreyttar sveiflukenndum mandólínsskjálfta og listrænum titringi rauðvínssvamls i linum" „Djarfar" mun eiga að draga heldur úr sölu bókarinnar, að sjálfsögðu Og enn segir forstjórinn um höfund- inn: „Höfundurinn er vist nógu gamal- dags i malerkunst, aldrei fengizt við popplist eða aðrar nýstefnur. Því er timi til kominn að gerast nýtízkulegur á bókmenntasviðinu með mátutegu og hóflegu klámi í takt við bókmenntaTeg- ar hræringar nútímans Hvernig gæti líka frásögnin verið „frönsk" og sönn öðruvísi? Þó telst ekki minnsta ástæða til að banna börnum lestur skrudd- unnar a tarna, sem er ólíkt penni og varfærnislegri en margir kaflar Bibliunnar " Þó er það athyglisvert, að forstjórinn nefnir ekki sérstaklega frásögnina af Pótifar, en sá kafli Bibliunnar mun hafa haft hvað mest áhrif á Örlyg Sigurðsson við samning þessarar bókar, en þegar við spurðum hann um þetta atriði varðist hann allra frétta, „þar sem ég er ófermdur og óbibliufróður — og lít á tilraun ykkar til þess að finna samhengi milli Pótíf- ars og Rauðvínsreisunnar minnar eins og hverja aðra úthugsaða andlitslyft- ingu hversdagslegra bókmennta- prófessora til að draga athygli verksins frá höfundi og innihaldi þess að sjálf- um sér " Felldi hann svo talið um biflíuna og marglátar konur Rauðvín og reisan mín er 144 bls að stærð og lýkur henni á mynd af höfundi, sem fylgir þessum espólinska fréttaþætti En undir myndinni stend- ur: „Listamaðurinn sjálfur i sinu „litil- læti."" En á litaspjaldi á myndinni er eftirfarandi shakespearskt visubrot (eftir höfundinn sjálfan að sjálfsögðu) „Á vil ég benda að minnið er fúið reisan á enda og rauðvínið búið " Til frekari fróðleiks og upplýsinga má geta þess, bindindismönnum og öðrum væntanlegum aðdáendum Ör- lygs Sigurðssonar til athugunar, að viskiflaskan kostar nú um 4.500 kr „en rauðvinið mitt er i föstu formi en ekki fljótandi", sagði höfundur að lok- um. „Og það hefur þvi engin eftirköst Menn geta drukkið það án timbur- menna Bókin er þvi i senn holl fyrir taugar og tilfinningar, huga og hjarta — góðtemplara og aðra hugsjóna- menn"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.