Morgunblaðið - 11.11.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.11.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977 13 mannár 9 talsins í þessari atvinnu- grein hefðu starfað 1688 manns 1970 en 2410 manns 1975, i mann- árum talið Fjölgun 722 mannár eða 42 8% 9 UtanrikisráSherra. Einar Ágústs- son, svaraði fyrirspurn frá Lúðvik Jó- sepssyni (Abl) varðandi íslenzka aðal- verktaka Svar ráðherra var svohljóð- andi: „1. Eignaraðilar íslenzkra aðalverk- taka sf eru: Sameinaðir verktakar hf . 50%, Reginn hf , 25% og Rikissjóður íslands, 25% — Félagtð islenzkir aðal- verktakar sf var stofnað árið 1954 fyrir tilstuðlan þáverandi rikisstjórnar i þeim tilgangi að það tæki að sér fram- kvæmdir fyrir varnarliðið i stað þeirra erlendu verktaka. sem þá störfuðu hér — Sameinaðir verktakar hf og Reginn hf höfðu þá starfað sem undirverktak- ar við þessar framkvæmdir hjá hinum erlendu verktökum um nokkurt skeið 2. Heildarvelta íslenzkra aðalverktaka sf. árið 1975 var kr 1 359 024 583 - og árið 1976 kr 2 429 145 786 - 3. Aðalverkefni íslenzkra aðalverktaka sf s.l. tvö ár hafa verið Malbikun flugbrauta. uppsetning öryggisbúnað- Fyrirspumir og svör: 1720 bankastarfemenn —Velta ís- lenzkra aðalverktaka 2.4 milljarðar ar flugbrauta, endurbygging á þaki aðal-flugskýlis, reisning verkstæðis- byggmga. íbúðarhúsabyggingar, lagn- ing dreifikerfis fyrir lokað sjónvarp o fl 4. Starfsmenn félagsins eru nú 526, en voru rúml 600 s I sumar 5. Launagreiðslur fyrirtækisins vegna verkframkvæmda árið 19 75 voru sam- tals kr 553 462 599 — og árið 1976 kr. 1 159 288 678 6. Rekstrarhagnaður félagsins árið 1975 var kr 23.906.167.— og árið 1976 kr. 142.537.046.-. Q Fjármálaráðherra, Matthías Á. Mathiesen svaraði i gær fyrir- Spurn frá Albert Guðmundssyni (S) um uppsafnaðan söluskatt útflutnings- iðnaðar, sem endurgreiddur verður á árinu 1978 vegna yfirstandandi árs. Nánari grein verður gerð fyrir þessu máli I þingfréttum Mbl. á morgun. Q Iðnaðarráðherra, Gunnar Thor- oddsen, svaraði og fyrirspurnum frá Sighvati Björgvinssyni (A) um Orku- bú Vestfjarða og frá Garðari Sigurðs syni (Abl) um nýjan rafstreng (sæ- streng) til Vestmannaeyja. Svar ráð- herra um Orkubú Vestfjarða verður birt í heild hér í blaðinu siðar og grein gerð fyrir svari hans varðandi rafstreng til Eyja Q Ólafur Jóhannesson, viðskipta ráðherra, svaraði fyrirspurnum frá Lúðvik Jósepssyni um áhrif afsláttar af farmgjöldum skipafélaga á verðlag. Ráðherra sagði ,,Við ákvörðun álagn- ingar á innfluttar vörur taka verðlags- yfirvöld mið af afkomu innflutnings- fyrirtækja og hafi fyrirtækin fært af- slætti af farmgjöldum eða öðru til tekna er tekið tillit til þess við endur- skoðun álagningarreglna Almennt tíðkast nú að skipafélög veiti 50% afslátt af farmgjöldum." Þá sagði ráð- herra að afsláttur hefði fyrst verið tek- inn upp fyrir nokkrum áratugum vegna erlendrar samkeppni Hann hafi verið lagður niður 1 960 en tekinn upp á ný 1962/63 og tiðkast síðan Fyrst eftir upptöku hans á ný megi e.t.v. segja, að verðlag hafi verið of hátt, en strax við næstu endurskoðun álagningar- reglna hafi verið tekið tillit til hans — og hefur svo verið síðan. — Þá svaraði ráðherra fyrirspurn frá sama þingmanni varðandi starfs- mannafjölda í bönkum og innflutnings- fyrirtækjum. í svari ráðherra kom m.a fram að starfsmannáfjöldi í Seðlabanka hafi verið 99 manns 1970 en sé nú 117. í viðskiptabönkum hafi starfað 991 maður 1970 en nú starfi þar 1438 Að auki starfi 56 manns hjá bankakerfinu við önnur störf en banka- störf Við 10 stærstu sparisjóði lands- ins hafi starfað 60 manns 1970 en 110 manns nú Alls hafi starfað í þessum stofnunum 1186 menn 1970 en 1721 nú. Fjölgun nemi 535 mönn- um og 45.1% í reiknistofnun bank- anna starfi 30 manns Bókfærðar tekjur viðskiptabankanna umfram gjöld hafi verið 686 m.kr. árið 1976, en hjá Seðlabanka 158 m.kr. Þá sagði ráðherra að nú störfuðu 666 menn hjá þremur olíufélögum, eftir skýrslum um slystr. vinnuvikur að dæma Heildsölufyrirtæki utan olíu og bygg- ingarfyrirtækja hefðu verið 628, 1975. Þar af hefðu verið 524 fyrirtæki með færri en 5 starfsmenn eða 83.4% fyrirtækjafjöldans. Fyrirtæki með 5 til 30 mannár hefðu verið 95 eða 15.1%. Fyrirtæki með fleiri en 30 7. Allir verksamningar ísl aðalverk- taka sf eru i bandarikjadollurum í samningum þeirra er ákvæði um end- urskoðun samningsupphæðar á þriggja mánaða fresti ef gengi hefur breytzt um 1 %, eða meir, til hækkunar eða lækkunar, á því timabili. Ef gengis- breyting nemur 10%, eða meir. i einu, skal samningsupphæð endurskoðuð miðað við þann dag, sem slík breyting á sér stað Félagið hagnast þvi ekki á gengisbreytingum. 8. ísl aðalverktakar sf. greiða ekkt aðflutningsgjöld af vinnuvélum, sem notaðar eru við varnarliðsframkvæmd- ir Sala varnarliðseigna tekur við og sér um sölu á öllum vinnuvélum og tækj- um " Ný ptatameð GEIMSTEINI Hljómplatameð frábærum tónlistar- mönnum. Allt frumsamin lög, sem allir hafa gaman af. Þórir Baldursson, Rúnar Júlíusson o.fl. í ofsa stuði. Geimsteinn > ***.&#>’ • <*< iRiina Dreifingaraðili FALKINN HF Suðurlandsbraut 8 84670 Reykjavík. Magnús Torfi Ólafsson: Kvikmyndin Ólafur Lilju- rós, og stéttarlegt viðhorf MORGUNBLAÐIÐ birti fyrir nokkru ræðu mína á Alþingi í umræðum um frumvarp um Sinfóníuhljómsveit Islands. Mér hefur verið bent á, að þeg- ar ég vitnaði þar eftir minni í blaðaskrif um nýlega kvikmynd slæddist inn missogn, sem ég vil biðja blaðið að leiðrétta, svo það liggi fyrir sem sannara reynist. Ummæli á blaðamannafundi um kvikmyndina Ölaf Liljurós komu ekki í Þjóðviljanum, í þeirri mynd sem ég vitnaði til, heldur í Tímanum á þessa leið: „ ... huldufóikið var heiðið, stal, lifði svokölluðum ólifnaði og gerði yfirleitt allt sem alþýð- an hefði sjálf viljað fram- kvæma.“ (Tíminn 15. sept. s.l. bls. 3). Þá vil ég nota tækifærið til að taka fram, með tilliti til fyrir- sagnarinnar á ræðu minni i blaðinu, að fyrir mér vakti ekki að veitast að kvikmyndinni um Ólaf Liljurós, sem ég hef ekki séð, heldur vara við þvi, eins og samhengið ber með sér, að lagð- ur sé stéttarlegur mælikvarði, gripinn úr lausu lofti, á mennt- ir, listir, nú ellegar þjóðtrú. 1 því sambandi skiptir í rauninni ekki máli, hvar tilfærð ummæli birtust, en rétt skal vera rétt. Magnús T. Ólafsson. All wm IflGI Fréttir í stuttu * máli 0000k, — rótia verdiaua í fjórðu milljónustu fernunni af JRDPICANA eru 100.000 kr. verðlaun Fékkst þú þér JROPICANA í morgim Sólargeislinn frá Florida

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.