Morgunblaðið - 11.11.1977, Side 4
4
MORGÚNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NOVEMBER 1977
■ ■■m blMAK
|R ,2S
,car rental z44oU
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTUNI 24
zofyzf/i?//?
E 2 n 90 2 n 38
® 22 022
RAUÐARÁRSTÍG 31
______________/
Forsfða hins nýútkomna blaðs
sambandsins, „Málmur".
Fundur stjómar
Málm- og skipasmiða-
sambands Islands
haldinn á Akureyri
Sambandsstjórn Málm- og
skipasmíðasambands íslands hélt
stjórnarfund sinn dagana 4.—6.
nóvember sl. Á fundinum var
m.a. rætt um siðustu kjarasamn-
ingagerð verkalýðsfélaganna og
viðhorfin í kjaramálum, aðbúnað
og hollustuhætti i málmiðnaði og
skipasmíði, fræðslustarfsemi á
vegum félagsins og frumvarp til
iðnaðarlagá, sem lagt hefur verið
fram á Alþingi.
Þá kom út 9. eintak af blaði
sambandsins, „Málmi". Sam-
bandsstjórnarmenn heimsóttu og
skoðuðu Slippstöðina á Akureyri
og skoðuðu framkvæmdir við
Kröflu. Nokkrar ályktanir voru
samþykktar á fundinum.
Afhenti
trúnadarbréf
í Júgóslavíu
Ingvi S. Ingvarsson afhenti 9.
nóvember hr. Stevan Doronjski,
varaforseta Júgóslavíu, trúnaðar-
bréf sitt sem sendiherra íslands
þar í landi.
Útvarp Revkjavík
FÖSTUDIkGUR
11. nóvember
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05
Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Þórunn Magnes
Magnúsdóttir heldur áfram
lestri sögunnar „Klóí segir
frá“ eftir Annik Saxegaard
(5).
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög milli
atriða.
Spjallað við bændur kl.
10.05.
Morgunpopp kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Janácek-kvartettinn leikur
Strengjakvartett nr. 13 í a-
moll op. 29 eftir Schubert/
VViIhelm Kempff leikur á
póanó „Skógarmyndir" eftir
Schumann.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan: „Skakkt
númer — rétt númer" eftir
Þórunni Elfu Magnúsd. Höf-
undur les (5).
15.00 Miðdegistónleikar:
Rússnesk tónlist. Suisse Ro-
mande hljómsveitin leikur
tónverk eftir Mikhail Glinka;
Ernest Ansermet stj. John
Browning og Sinfóníuhljóm-
sveitin í Boston leika Pfanó-
konsert nr. 2 op. 16 eftir Ser-
gej Prokofjeff; Erich Leins-
dorf stj.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.30 Utva'rpssaga barnanna:
„Utilegubörnin f Fannadal"
eftir Guðmund G. Hagalfn.
Sigrfður Hagalín les (3).
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Söngleikurinn „Loftur".
Brynja Benediktsdóttir og
Erlingur Gfslason sjá um
þátt frá Akureyri. Höfundur
leiksins; Oddur Björnsson,
Kristján Arnason og Leifur
þórarinsson.
20.00 Tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands f Há-
skólabfói kvöldið áður; —
fyrri hluti.
Stjórnandi: Eifrid Eckert-
Hansen frá Danmörku.
Einleikari: Aaron Rosand
frá Bandarfkjunum.
a. „Lilja", hljómsveitarverk
eftir Jón Ásgeirsson.
b. Fiðlukonsert f D-dúr nr. 1
eftir Niccolo Paganini. —
Jón Múli Arnason kynnir
tónleikana.
20.45 „Skólasetning" smásaga
eftir Ingólf Pálmason. Rúrik
Haraldsson leikari les.
21.10 Einsöngur: Gérard
Souzay syngur lög úr laga-
flokknum „Svanasöngur"
eftir Franz Schubert; Dalton
Baldwin leikur á póanó.
21.50 Vísnasafn Utvarpstfð-
inda. Jón úr Vör flytur fyrsta
þátt.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Dægradvöl"
eftir Benedikt Gröndal. Flosi
Ólafsson les bókarlok (31).
22.40 Afangar. Tónlistarþátt-
ur sem Asmundur Jónsson
og Guðni Rúnar Agnarsson
stjórna.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
FÖSTUDAGUR
11. nóvember 1977
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Kastljós (L)
Þáttu/ um innlend málefni.
Umsjónarmaður Guðjón
Einarsson.
21.35 Ólympíuleikarnir í
Kanada 1976
Kanadfsk heimildamyn um
21. Ólympfuleikana, sem
haldnir voru f Montreal I
Kanada sumarið 1976.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
23.35 Dagskrárlok.
Sjónvarp kl. 21.25:
Mynd um hina umtöluðu
Olympíuleika í Montreal
SJÓNVARPIÐ sýnir í
kvöld klukkan 21.35
kanadíska heimildamynd
um Ólympíuleikana, sem
haldnir voru í Montreal í
júlí-mánuði í fyrra. Voru
þetta 18. Ólympíuleikar
nútímans, en sem kunn-
ugt er voru leikarnir
endurvaknir í lok síðustu
aldar, eftir að þeir höfðu
legið niðri öldum saman,
en leikirnir í fornum sið
hófust tæplega átta
hundruð árum fyrir
Krists burð. Frá því að
leikarnir voru endur-
vaknir árið 1896 hafa
þeir farið fram reglulega
á fjögurra ára fresti að
undanskildum árunum
1916, 1940 og 1944.
Leikarnir eru kenndir
viö svonefndar Ólympí-
öður sem nær yfir fjög-
urra ára tímabil, en frá
1896 eru þessar Ólympí-
öður orðnar 21. I sjálfu
sér eru leikarnir frá 1896
ekki nema 18 þótt gjarn-
an sé talað um leikana í
Montreal sem þá 21., en
þá er átt við 21. Ólympí-
öðuna.
Eins og mörgum ætti
að vera kunnugt gekk á
ýmsu með undirbúning
leikanna í Montreal,
byggingarframkvæmdir
töfðust mjög vegna verk-
falla og vinnudeilna, en
starfsmenn við fram-
kvæmdirnar reyndu að
nota sérstöðu sína og
framkvæmdanna út í
ystu æsar til að fá sem
mest fyrir sinn snúð. Þá
höfðu Kanadabúar og
undirbúningsnefnd leik-
anna miklar áhyggjur af
hryðjuverkum sem talin
voru líkleg í kjölfar at-
burðanna hryggilegu i
Míinchen og vegna póli-
tísks ástands í þeim hluta
Kanada sem leikarnir
voru háðir í, Quebec, svo
og ástands i heiminum al-
mennt. Loks er enn í
fersku minni það ástand
og þau átök sem áttu sér
stað á vettvangi íþrótt-
anna síðustu mánuðina
fyrir leikana, sem leiddu
til þess að allar Afríku-
þjóðir drógu sig út úr
leikunum þar sem ekki
var fallist á kröfu þeirra
um að íþróttamönnum
frá Nýja-Sjálandi yrði
meinuð þátttaka í leikun-
um. Vegna þess ástands
og seinagangs við fram-
kvæmdir íþróttamann-
virkjanná og Ólympíu-
þorpsins var um tíma
jafnvel talað um að
fresta leikunum.
Frestun leikanna kom
þó ekki til, því allir aðilar
lögðu hart að sér síðustu
dægrin og mannvirkin öll
voru tilbúin daginn sem
leikirnir voru settir, að
undanskildu smávægi-
legu glingri sem ekki
snerti þó keppendur né
keppnisaðstæður á nokk-
urn hátt.
Voru leikarnir
settir við hátíðlega at-
höfn 17. júlí og var þeim
slitið fimmtán dögum síð-
ar.
í myndinni í kvöld
verður að líkindum
greint frá aðdraganda og
undirbúningi leikanna í
Montreal, auk þess að
greint verður frá flestum
keppnisgreinum. íslend-
ingar áttu stóran hóp
þátttakenda, þótt ekki
riði landinn feitum hesti
frá leikunum frekar en
fyrr, en þó var árangur
landans góður, m.a. voru
sett fjölmörg íslandsmet
og lyftingamaður skipaði
sér á bakk meðal hinna
allra fremstu.
Myndin sem hér fylgir
er af kanadíska hástökkv-
aranum Greg Joy sem
hitaði um hjartarætur
tæplega 80 þúsund við-
stöddum áhorfendum og
milljónum landa sinna
með góðri frammistöðu
sinni í hástökkinu, en þar
krækti hann óvænt í silf-
ur-verðlaunin.
Söngleikurinn Loftur sem Leikfélag Akureyrar hefur nýverið
tekið til sýninga verður til umf jöllunar f útvarpinu klukkan 19.35
f kvöld. Verður þá fluttur 25 mfnútna þáttur f umsjá þeirra
Brvnju Benediktsdóttur og Erlings Gfslasonar, en þau eru leik-
stjórar söngleiksins.