Morgunblaðið - 11.11.1977, Síða 7
MORGUNBLaÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977
7
Fásinnu-
fullyrðing
Það gerist á stundum,
að stjómmálamenn
geysast svo gáleysislega á
fullyrðingafák sínum að
þeir falla af baki — i aug-
um áheyrenda sinna. Það
henti til að mynda Svövu
Jakobsdóttur, þingmann
Alþýðubandalags, að
staðhæfa í útvarpsum-
ræðum fyrir skemmstu,
að almannakjör á árinu
1977 væru i engu betri en
fyrir 30 árum, þ.e. árið
1947. Orðrétt sagði
Svava: „Staðreyndin er
sú, að það sem af var
valdaskeiði þessarar rikis-
stjórnar hafði kaupmáttur
timakaups verkamanna
rýrnað svo, að hann var
kominn niður á sama stig
og hann var fyrir 30 ár-
um, enda þótt þjóðartekj-
ur á mann hefðu meir en
tvöfaldast að raungildi á
sama timabili og er þá
byggt á opinberum tölum
og fólksfjölgun tekin inn i
dæmið ..."
Spurningar
sem vakna
Þegar hlustað er á slika
fullyrðingu stjórnmála-
manns, sem sennilega vill
láta taka sig alvarlega,
hlýtur hinn almenni borg-
ari, er man þessa tima
tvenna, að spyrja sig
ýmissa spurninga. Hvað
um einkaeign ibúðarhús-
næðis 1947 og 1977?
Annar þingmaður, Stefán
Valgeirsson, staðhæfir, að
um 75% íbúðarhúsnæðis
þjóðarinnar í dag hafi ver-
ið byggt á fáum áratug-
um. Ekki er vafi á þvi,
hvað þennan þátt lifskjara
snertir, að íslendingar
standi ólíkt betur að vigi
nú en fyrir 30 árum. Hvað
um bifreiðaeign lands-
manna? Hvað um allar
utanferðirnar? Hvað um
búnað heimila og lifshætti
alla? Hvað um mennt-
unarskilyrði? Námslán?
Félagslega þjónustu, al-
mannatryggingar, öryggi
aldraðra og örkumla, at-
vinnuöryggi og atvinnu-
leysistryggingar? Rétt er
að margt stendur enn til
bóta, þrátt fyrir allt sem
áunnizt hefur. Hitt er fá-
sinna að halda því fram að
lifskjör íslendinga hafi
verið „á sama stigi" á
árinu 1977 og 1947. Mál-
flutningur, sem ekki á
haldbetri rök að styðjast
við, dæmir sig sjálfur.
Félagslegar
framfarir
Þegar stjórnmálamenn,
sem telja sig til vinstri í
þjóðmálum. komast í há-
tiðarstemmingu, tala þeir
gjarnan um „félags-
hyggju" og „einstaklings-
hyggju sem algjörar and-
stæður. Þetta er að sjálf-
sögðu jafn gróf blekking
um lifskjaradæmið, sem
hér að framan er drepið á.
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur allar götur frá þvi að
hann var stofnaður barizt
fyrir þegnrétti einstakl-
ingsins: til skoðana, tján-
ingar og athafna. Hann
hefur talið rétt að vernda
og virkja einstaklings-
hyggju. Ekki einungis
vegna þess að samfélagið
er til orðið fyrir manneskj-
una i þjóðfélaginu, hverja
og eina. en ekki öfugt.
Heldur ekki siður vegna
þess að framtak einstakl-
ingsins hefur með öllum
kynslóðum þjóðarinnar
verið afl til verðmæta-
sköpunar i þjóðfélaginu.
sem heildin hefur notið
góðs af. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur hins
vegar — i verki — viður-
kennt önnur rekstrarform
okkar blandaða hagkerfis.
og álitur samkeppni ólikra
rekstrarforma eðlilega, að
þvi tilskildu, að þau starfi
á jafnkeppnisgrundvelli,
þ.á m. gagnvart sam-
félagslegum gjöldum til
sveitarfélaga og rikis.
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur jafnhliða þessu
stutt alla heilbrigða þróun
til félagslegs öryggis i
þjóðfélaginu: á sviði heil-
brigðis- og tryggingamála
sem öðrum þáttum þjóð-
lifsins. Erfitt er að benda á
nokkra löggjöf i þessum
málaflokkum. sem hefur
verið sett án stuðnings
Sjálfstæðisflokksins.
Yfir gagnrýni
hafin
Fjármálaráðherra sagði
i fjárlagaræðu, að rikis-
fjölmiðlar hefðu brugðizt
þeirri skyldu að kynna
efni sáttatillögu í BSRB-
deilu á hlutlægan hátt.
Margrét Indriðadóttir,
fréttastjóri hljóðvarps,
sagði i blaðaviðtali i gær,
að hún „elti ekki ólar við
slikar fullyrðingar".
Margrét Indriðadóttir er
bersýnilega þeirrar skoð-
unar, að hún sé yfir gagn-
rýni hafin. Slikt hugarfar
hjá opinberum starfs-
mönnum i ábyrgðarstöð-
um hefur skapað tor-
tryggni hjá almenningi i
þeirra garð. Rikisútvarpið
er almenningseign en
ekki einkafyrirtæki þeirra,
sem þar starfa. Starfs-
menn þess hafa, eins og
aðrir opinberir starfs-
menn, tekið að sér þjón-
ustustörf við almenning.
Þeim ber að hlusta á þá
gagnrýni, sem þeir verða
fyrir í störfum, gagnrýni
sem stundum er ósann-
gjörn, en 1 öðrum tilfellum
á rökum reist.
í ummælum fjármála-
ráðherra felst alvarleg
ásökun i garð rikisfjöl-
miðla. Þeir sem ábyrgð
bera á þeim geta ekki lát-
ið sem þeim komi ekki við
sjónarmið ráðherrans.
Telji þeir þau órökstudd
ber þeim að gefa efnislegt
svar. Telji þeir starfs-
mönnum sinum hafa orðið
á mistök i starfi, ber þeim
að sjá til þess, að slíkt
hendi ekki á ný.
Æ
Sumarbústaðaeigendur
2 frábærir frá
o
<3
O
KEROSENE HEATER
Engar eldspítur þarf til að kveikja.
Gashellur
og
grill
Draumatæki með
infra-rauðu grilli.
if Auðveld stilling á hita.
it Öryggistankur fyrir steinolíu sem
lekur ekki, jafnvel þó ofninn detti.
if Besti ofninn sem völ er á.
RAFB0R6 SF.
Rauðarárstíg 1.
Sími 11141.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
Þl' AI GI.YSIR L'M AU.T
I.AND ÞF.GAR ÞL ALG-
l.YSIR I MORGLNBLADINL
Rýmingarsala
Rýmum fyrir nýjum bílum
Seljum nokkra SKODA 110L-1976
Bilarnir eru i mjög göóu
ásigkomulagi og fást
meö hagkvæmum
greiösluskilmálum
símar
24460 *28810
GEYSIR BORGARTÚNI 24