Morgunblaðið - 11.11.1977, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977
Páll Gíslason skátahöfðingi t.h. og Gunnar Jónsson þingforseti.
Skátaþing ad
Hrafnagili
Akurevri, 7. nóvember
SKATAÞING 1977 var haldið í
Hrafnagilsskóla um helgina, og
sóttu það um 100 skátar víðs
vegar að af landinu. Nú eru
starfandi um 6000 skátar i 44
skátafélögum, og áhugi á starf-
inu mikill og vaxandi. Skáta-
höfðingi Islands, Páll Gislason,
setti þingið og óskaði þess, að
kjörorð þess yrði „bjartsýni".
Forseti þingsins var kjörinn
Gunnar Jónsson, Skátafélagi
Akureyrar, en ritari Kristín
Arnardóttir, Ægisbúum,
Reykj avik.
Þessi 5 skátafélög gengu í
Bandalag íslenskra skáta á
þinginu:
1. Skf. Húnar, Hvammstanga,
félagsforingi Sigurður H. Þor-
steinsson.
2. Skf. Árbúar, Reykjavík,
félagsforingi Aðalsteinn Hall-
grimsson.
3. Skf. Stígandi, Búðardal,
félagsforingi Erlendur Guð-
mundsson.
4. Skf. Oddaverjar, Hellu,
félagsforingi Guðfinna
Thorarensen.
5. Skf. á Seltjarnarnesi, félags-
foringi Guðstaf Þór Einarsson.
Nokkrar breytingar voru
gerðar á lögum BlS, og einnig
var samþykkt innganga skáta í
Æskulýðssamband Islandíj. Á
þinginu var mikið rætt um störf
skáta alls staðar á landinu að
umhverfisvernd og lagðar fram
áætlanir um störf starfsráða á
næstu árum. Nú eru starfandi
þessi sérráð: Foringjaþjálfun-
arráð, Ylfinga- og ljósálfaráð,
Skátaráð, Dróttskátaráð, Al-
þjóðaráð, Radíóskátaráð, Ulf-
ljótsvatnsráð og Vulkan-
áætlun.
Núverandi stjórn Bandalags
íslenskra skáta er þannig skip-
uð: Páll Gíslason, skátahöfð-
ingi, Ingibjörg Þorvaldsdóttir
og Arnfinnur Jónsson, að-
stoðarskátahöfðingjar, Þor-
steinn Sigurðsson, gjaldkeri,
Kolbrún Sæmundsdóttir, ritari,
Ragnheiður Jósúadóttir, fyrir-
liði alþjóðastarfs kvenskáta og
Helgi Eiríksson, fyrirliði al-
þjóðastarfs drengjaskáta.
Sv P
Frá skátaþinginu að Ifrafnagili. iJAsm.: s».p.
n*
1—
Minningarkvöld
í Dómkirk junni
NÆSTKOMANDI sunnudags-
kvöld, 13. nóv. kl. 20.30, verður
miningarkvöld I Dómkirkjunni
um tvo fyrrverandi organleikara
Dómkirkjunnar, Pétur Guðjohn-
sen og Sigfús Einarsson.
A þessu ári eru liðin 100 ár frá
andláti Péturs Guðjohnsens og
100 ár frá fæðingu Sigfúsar
Einarssonar og þykir hlýða að
minnast þessara mætu manna I
Dómkirkjunni sem þeir helguðu
svo mjög starfskrafta sfna.
Pétur Guðjohnsen var hvata-
maður að því, að orgel var keypt
til Dómkirkjunnar árið 1840 og
gerðist hann þá organisti
kirkjunnar og gegndi því starfi til
dauðadags 1877.
Sigfús Einarsson varð organisti
við Dómkirkjuna árið 1913 og
gegndi því starfi til dauðadags
árið 1939.
Á minningarkvöldinu mun
Haukur Guðlaugssn söngmála-
stjóri flytja erindi um Pétur
Guðjohnsen og Sigrún Gísladóttir
mun flytja erindi um Sigfús
Einarsson, en hún hefur skrifað
bók um ævi Sigfúsar.
Dómkórinn mun flytja nokkur
verka Sigfúsar Einarssonar undir
stjórn Ragnars Björnssonar dóm-
organista. M.a. má þar nefna
verk, sem Sigfús samdi fyrir ein-
söng, kór og orgel til minningar
um Pétur Guðjohnsen við ljóð
Guðmundar Guðmundssonar, og
var það frumflutt á aldarafmæli
Sigfús Einarsson
Pétur Guðjohnsen
Hjálparsjóðsdag-
ur Garðasóknar
Sunnudaginn 13. nóvember
verður svokallaður Hjálparsjóðs-
dagur Garðasóknar I Garðabæ og
verður þann dag leitað til bæjar-
búa eftir framlögum í sjóðinn.
Sjóður þessi hefur það hlutverk
að veita hjálp í neyðartilfellum,
t.d. vegna veikinda, slysa eða ann-
arra áfalla og hafa úr sjóðnum
verið veittir þrír styrkir sem
nema frá upphafi nálega tveim
milljónum króna. Söfnunin I ár
fer þannig fram að send eru um-
slög inn á hvert heimili í Garðabæ
og má skila framlögum í þeim
umslögum. I stjórn sjóðsins eru
Helgi K. Hjálmarsson formaður,
Kristleifur Jónsson féhirðir, Jón
Ö. Bárðarson ritari og meðstjórn-
endur Hanna Gabrielsson og Guð-
finna Snæbjörnsdóttir.
Ymis félagasamtök hafa aðstoð-
að við söfnunina og svo verður
einnig í ár, m.a. Bræðrafélag
Garðakirkju, Lionsklúbbur
Garðabæjar, Kvenfélag Garða-
bæjar, Kiwanisklúbbur Garða-
bæjar, sóknarnefndin og nokkrir
einstaklingar.
Kvöldathöfn verður í Garða-
kirkju 13. nóv. kl. 20.30 og flytur
sr. Arngrímur Jónsson erindi um
gregoríanskan messusöng og slík-
ur söngur fluttur af Garðakórn-
um ásamt nokkrum hljóðfæra-
leikurum. Sigurður H. Guð-
mundsson þjónar fyrir altari. Að
lokinni athöfninni gefst fólki
kostur á að kaupa kaffi og rennur
ágóði kaffisölunnar til Hjálpar-
sjóðs Garðabæjar.
26200
STÓRAGERÐI
HÖFUM TIL SÖLU nokkrar fasteignir sem
afhendast tilbúnar undir tréverk innan 3ja
mánaða. Hér er um að raeða ýmsar stærðir
raðhúsa, sérhæða og hæða m. sameiginleg-
um inngöngum. Eignirnar afhendast fullfrá-
gengnar að utan. Teikningar og allar nánari
upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni
ekki í síma.
FASTEIGWSALW MORGIHABSHUSIAIU
Óskar Kristjánsson
M ÁLFLIJTIVINGSSKRIFSTOFA
(iuðmundur Pétursson hrl., Axel Einarsson hrl.
Péturs 29. nóv. 1912. Einsöngvari
með Dómkórnum verður Elin
Sigurvinsdóttir. Einnig verður
fluttur Lofsöngur fyrir kór og
orgel eftir Sigfús Einarsson, svo
og nokkur sálmalaga hans, sem er
að finna í messusöngsbók Þjóð-
kirkjunnar. Þá leikur Rut Ingólfs-
dóttir á fiðlu við undirleik
Ragnars Björnssonar tvö lög eftir
Sigfús Einarsson. Flest eru þetta
tónverk, sem sjaldan heyrast flutt
opinberlega.
Einnig verða flutt nokkur
sálmalög úr sálmasöngsbók
þeirri, sem Pétur Guðjohnsen gaf
út fyrir þrjár raddir árið 1878, svo
og hið tignarlega sálmalag hans
Lofið Guð.
Sem fyrr segir verður
minningarkvöldið n.k. sunnudag
13. nóv. og hefst kl. 20.30 og eru
allir hjartanlega velkomnir.
Hjalti Guðmundsson.
26200
HÁTÚN
Til sölu falleg 2ja herb íbúð
á 3. hæð Suður svalir Út-
sýni til austurs og suðurs.
Ný teppi og góðar innrétting-
ar
MEISTARAVELLIR
Til sölu glæsileg 2ja herb
ibúð á 2 hæð í fallegri blokk
við Meistaravelli Lausstrax.
RAUÐARÁRSTÍGUR
Til sölu 3ja herb íbúð á 1
hæð við Rauðarárstíg Nýleg
teppi, einnig er íbúðin ný
máluð Laus strax. Verð 8
millj., útb. 5.5 millj.
MIÐBRAUT —
SELTJARNARN.
Til sölu vönduð 120 fm
íbúð á 1 hæð Sér inngang-
ur, þrjú svefnherb , ein stofa,
sér hiti Nýleg eldhúsinnrétt-
ing.
HVANNALUNDUR
Til sölu fallegt 140 fm. ein-
býlishús. Húsið er með 4
svefnherb , 2 samliggjandi
stofum, eldhús, vandað bað-
herb , og þvottaherb Rúm
góður bílskúr
LAUGARÁS
Til sölu vandað og glæsilegt
einbýlishús (2x130 fm )
Hús þetta er við Norðurbrún
Teikningar og allar nánari
upplýsingar aðeins veittar á
skrifstofunni, ekki í síma
ESPIGERÐI
Til sölu mjög glæsileg ibúð á
tveim hæðum (8 og 9 hæð,
efstu) Á 8 hæð eru dagstofa
m arni, borðstofa, eldhús og
gestasnyrting. Á 9. hæð eru
þrjú svefnherb , sjónvarps-
herb , baðherb og þvotta-
herb Bílskúr
VERSLUNAR
HÚSNÆÐI
Til sölu 230 fm. verslunar-
húsnæði á mjög góðum stað
við Óðinsgötu. Getur losnað
fljótlega
GRENIGRUND —
AKRANESI
Til sölu nærri fullgert 140
fm einbýlishús ásamt 45 fm
bílskúr. Fjögur svefnherb ,
dagstofa, borðstofa, eldhús,
búr, gestasnyrting og þvotta-
herb Verð um 15 millj , útb
7,5 millj
SELJENDUR
Hjá okkur er eftirspurnin
Hafið samband við okkur
strax í dag
ÍFASTEIGNASALjWII
MMBLABSHÚM
Öskar Kristjánsson
! M ALFLlTM\GSSKRIFSTOFA \
Guómundur Pétursson
Axel Einarsson
hæstaréttarlögmenn