Morgunblaðið - 11.11.1977, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977
15
Kosningum heit-
ið í Bólivíu í júlí
La Fa/, 10. nóv., Reuter.
t ÓVÆNTU útvarps- og sjón-
varpsávarpi f gærkveldi lýsti að-
alhershöfðingi Bólivfu, Hugo
Banzer, því yfir að landinu skyldi
snúið áleiðis til lýðræðis í júlf á
næsta ári. Mun herinn hverfa aft-
ur til búðanna fyrir kosningar f
sama mánuði.
Hershöföinginn bætti þvi þó
við, aö herinn mundi halda áfram
sem „verndarstofnun landsins"
að hafa yfirumsjón með þróun
þjóðmála til að sjá til þess að
friður og sættir héldust.
Hinn hægri sinnaði forseti kvað
ákvörðunina tekna f samráði við
herinn og væri í engu um utanað-
komandi þrýsting að ræða. „Þeim,
sem ekki trúa eða neita að Bólivía
hafi öll efni til sjálfsákvörðunar,
segjum við; þessi ákvörðun er
fullkomlega bólivísk og í beztu
samræmi við bóli-víska hags-
muni,“ sagði herforinginn.
Þess má geta að skömmu eftir
ávarpið ómerkti ríkisstjórnin
bann sitt við hvers konar stjórn-
málastarfsemi til að ryðja veginn
fyrir kosningarnar, hinar fyrstu
síðan 1966. Hershöfðinginn upp-
lýsti ekki hvort hann mundi þá
sjálfur bjóða sig fram. Hann hef-
ur setið að völdum síðan hann
kollvarpaði hinni skammlifu her-
stjórn Juan Jose Torres, vinstri
sinnaðs forseta, i ágúst 1971.
Orkuverkfall
út um þúfur
London. 10. nóvember AP.
AÐGERÐIR 4.000 starfsmanna orkuvera við störf er
hafa leitt til rafmagnstruflana í Bretlandi virtust vera
að fara út um þúfur í dag.
Talsmenn yfirvalda segja að vinna hafi verið að færast
í eðlilegt horf í dag og að líklegt sé í fyrsta skipti síðan
aðgerðirnar hófust fyrir tveimur vikum að ekki þurfti að
koma til rafmagnstruflana.
Róttækir starfsmenn orkuvera í Yorkshire hafa hvatt
til algers verkfalls til að „myrkva Bretland“, en meiri-
hluti þeirra sem taka þátt í aðgerðunum virðist vera
andvígur þeim.
Starfsmenn orkuvers í
Nottinghamshire, eins hins
stærsta i Evrópu, samþykktu i
gærkvöldi að hefja aftur eðlilega
vinnu og margir aðrir starfs-
mannahópar fóru að dæmi þeirra
í dag. „Við erum að tapa fyrir
almenningsálitinu,“ sagði einn
forystumanna verkfallsaðgerð-
anna.
Nefnd sem hefur skipulagt að-
gerðirnar greiðir um það atkvæði
á morgun hvort þeim skuli haldið
áfram. Alls starfa 30.000 verka-
menn við brezk orkuver og þeir
hafa um 71 pund i laun á viku.
James Callaghan forsætisráð-
herra hélt stjórnarfund í dag til
að ræða neyðarráðstafanir sem
skuli gripið til á mánudag þegar
43.000 slökkviliðsmenn segjast
ætla að leggja niður vinnu ef þeir
fái ekki 30% kauphækkun’.
Stjórnin vill ekki leyfa meira
en 10% kauphækkun. Óánægja
starfsmanna orkuvera, námu-
manna, slökkviliðsmanna og fleiri
hópa ógnar efnahagsstefnu
stjórnarinnar og auknum efna-
hagsbata sem hefur fylgt í kjölfar
mestu kreppu Breta frá stríðslok-
um.
CARTER bandarikjaforseti hinkrar og bregður á léttara hjal
áður en hann snýr aftur að undirbúningi ræðu sinnar um
orkumál, sem beðið var með eftirvæntingu. Myndin er tekin i
skrifstofu forsetans.
TOKUM FRAMIDAG
GLÆSILEGT ÚRVAL AF
ullarkápum
tweedfrökkum
-J* ^ terylenekápum
fjL.W drögtum og
^ jökkum
8
þemhard Iok^oI
L —
KJÖRGARÐI
Gisting í Reykjavík
-sérstakt vetrarverð
Hótel Loftleiðir býður sérstakt verð á
gistingu að vetri til, tveggja manna her-
bergi á 4.100.- kr. og eins manns á
2.100.-. Þar gefast fleiri kostir á að njóta
hvíldar og hressingar en annars staðar:
allar veitingar, hægt að snæða í veitinga-
sal eða veitingabúð - fara í sauna bað og
sund.
Og innan veggja hótelsins er verslun,
snyrti-, rakara- og hárgreiðslustofa.
Strætisvagnaferðir að Lækjartorgi.
Njótið þægilegrar dvalar og hagkvæmra
kjara. m
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Nínusokkabuxum