Morgunblaðið - 11.11.1977, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÖVEMBER 1977
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjóm og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjöm Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Ámi Garðar Kristinsson
Aðalstræti 6, simi 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480.
Umskipti í
ríkisfjármálum
egar Matthías A. Mathie-
sen fjármálaráðherra tók við
yfirstjórn fjármála haustið 1974,
kom hann að ríkissjóði, sem var á
verðgildi þess árs rekinn með
3000 milljón króna greiðsluhalla.
Fyrstu fjárlög núverandi ríkis-
stjórnar og þróun ríkisfjármála á
árinu 1975 mótuðust að lang-
mestu leyti af ákvörðunum
vinstri stjórnar á árinu 1974 og
niðurstaðan varð sú, að árið 1975
varð greiðsluhalli á rfkissjóði um
7000 milljónir króna eða sem
nam 3—4% af þjóðarframleiðslu.
A árinu 1976, fyrsta árinu sem
stefnu núverandi rfkisstjórnar f
efnahags- og fjármálum rfkisins
gætti að marki, varð rfkissjóður
nánast greiðsluhallalaus og svo
verður einnig á árinu 1977 og
stefnt er að greiðslujöfnuði í fjár-
lögum árið 1978. Það er því ekki
ofmælt, sem f jármálaráðherra
sagði í fjárlagaræðu fyrir nokkr-
um dögum, að svo gagnger um-
skipti hafaorðið f ríkisfjármálum
f tfð núverandi rfkisstjórnar, að
þess munu fá dæmi f nálægum
löndum.
Þegar núverandi fjármálaráð-
herra tók við stjórn rfkisfjár-
mála, stefndi í vaxandi umsvif
ríkisins og hfutdeild þess í þjóð-
arbúskapnum hafði farið stöðugt
vaxandi og náði hámarki á árinu
1975, er hún nam um 31,5% af
þjóðarframleiðslu. Sfðan hefur
hlutdeild rfkissjóðs af þjóðar-
framleiðslu farið stöðugt lækk-
andi og hefur f tfð núverandi rfk-
isstjórnar lækkað um 4 prósentu-
stig og var á árinu 1976 komin
niður f 27,6%, hefur haldið áfram
að minnka á þessu ári og er talin
verða á þessu ári og hinu næsta
26—27%. Þetta er verulegur
árangur og fagnaðarefni, ekki sfzt
fyrir þá, sem mest hafa gagnrýnt
útþenslu rfkisbáknsins á undan-
förnum árum.
Þetta eru tveir stærstu áfang-
arnir, sem náðst hafa i rfkisfjár-
málum í tfð núverandi ríkis-
stjórnar. Eru umskiptin svo al-
ger, að engum getur dulizt, að
rfkisstjórnin hefur náð traustum
tökum á fjármálastjórninni.
Þetta hefur ekki gengið þrauta-
laust. Margvfslegar tæknilegar
umbætur, Sem núverandi fjár-
málaráðherra hefur beitt sér fyr-
ir, hafa gert ríkisstjórninni kleift
að hafa yfirsýn f mánuði hverjum
yfir stöðu einstakra ráðuneyta og
rfkisstofnana og fjármála rfkis-
sjóðs f heild. A þessu sviði hefur
mikið umbótastarf verið unnið og
er nú svo komið að nákvæmlega
er hægt að fylgjast með þróun
rfkisfjármála frá viku til viku og
mánuði til mánaðar, þannig að
strax kemur í Ijós, hvar hættan er
á umfram útgjöldum og hvar
mest þörf er á auknu aðhaldi.
Þær umbætur, sem þarna hafa
orðið munu stuðla mjög að traust-
ari stjórn rfkisfjármála f framtfð-
inni. Miklar umbætur hafa einnig
orðið f starfsmannahaldi rfkisins.
Nú hefur f fyrsta sinn verið gerð
skrá um starfsmenn rfkisins. Hef-
ur fjármálaráðherra beitt sér fyr-
ir þvf, að gefin verður út árlega
sérstök starfsmannaskrá. Við
gerð hennar hefur m.a. komið í
Ijós, að fjöldi rfkisstarfsmanna,
sem ráðnir höfðu verið án heim-
ildar, var á árinu 1975 um 570, en
var á árinu 1976 komin niður í
rúmlega 300 og gefur þetta litla
dæmi til kynna, hver breyting
hefur orðið f rfkisrekstrinum. Þá
hefur einnig komið í ljós við gerð
starfsmannaskrár, að um þriðj-
ungur rfkisstarfsmanna hefur
æviráðningu og er það áreiðan-
lega minna hlutfall en fólk hefði
fyrirfram búizt við.
A sviði rfkisfjármála hefur því
náðst mikill árangur á undan-
förnum árum. En Matthfas A.
Mathiesen fjármálaráðherra
lagði á það þunga áherzlu f fjár-
Iagaræðu sinni, að mikilvægt
væri að varðveita þennan árangur
og halda þessum jöfnuði f fjár-
málutn. Það þýðir m.a. að gera
verður sérstakar ráðstafanir til
þess að afla nýrra tekna til að
greiða launahækkanir opinberra
starfsmanna og jafngildir það um
7000 milljón króna nýrri skatt-
heimtu á almenning f landinu eða
niðurskurði útgjalda og þjónustu,
sem þvf svarar. Að öðru leyti er
Ijóst miðað við þá þenslu, sem
kjarasamningar á þessu ári hafá
leitt af sér, að mjög sterkt aðhald
þarf að vera með ríkisfjármálum
á næsta ári til þess að halda rfkis-
sjóði á réttum kili. Fjárlagaræð-
an sýndi, að fjármálaráðherra
hyggst ekkert gefa eftir í þeim
efnum.
Talsmaður
skuldakónganna
Lúðvfk Jósepsson lýsti
þvf yfir í sjónvarpsviðtali fyr-
ir nokkrum dögum, að lækka ætti
vexti verulega. Hinn mikli fjöldi
iaunamanna og sparifjáreigenda,
sem vi 11 geyma fé sitt og ávaxta f
banka, tekur eftir þessari yfirlýs-
ingu leiðtoga Alþýðubandalags-
ins. Hún gengur þvert á hags-
muni þess fólks, en þjónar fyrst
og fremst hagsmunum þeirra,
sem mikið skulda. Þannig er svo
komið, að leiðtogi þess flokks,
sem telur sig helzta málsvara
verkalýðsins gerist talsmaður
skuldakónganna. Stefnan f vaxta-
málum á auðvitað að vera sú, að
sparifjáreigendur fái jákvæða
vexti af sparifé sfnu en tapi ekki
peningum á þvf að leggja þá f
banka eins og nú gerist. Með eðli-
Iegri ávöxtun sparifjár mun um-
ráðafé bankanna aukast mjög og
þar með verður aðgangur at-
vinnuveganna að lánsfjármagni
greiðari. Langffestir atvinnurek-
endur mundu heldur vilja greiða
hærri vexti og eiga greiðan að-
gang að lánsfé en lægri vexti og
hafa nánast enga möguleika á því
að fá nauðsynlegt rekstrarfé.
Hrafnista í Hafnarfirðí
lega tekin í notkun í
HRAFNISTA í Hafnarfirði
dvalarheimili aldraðra sjómanna,
var formlega tekið f notkun f gær,
fimmtudaginn 10. nóvember.
Höfðu þá nokkrir vistmenn flutt
inn í hið nýja húsnæði, en fyrsti
hluti byggingarframkvæmdanna
f Hafnarfirði er nú á lokastigi.
AIIs verða 87 vistmenn í þeirri
byggingu sem nú hefur verið tek-
in f notkun og er reiknað með að
þeir verði allir fluttir inn í hið
nýja dvalarheimili í byrjun
desember, en f heimilinu full-
búnu verður rými fyrir um 240
vistmenn. Um og upp úr n.k. ára-
mótum verður haldin starfræksla
dagheimilis fyrir aldraða á
heimilinu og er reiknað með að
hægt verði að taka á móti 50—60
daggestum fyrst um sinn.
Pétur Sigurðsson formaður
fulltrúaráðs sjómannadagsins
tjáði fréttamönnum í gær að hin
nýja Hrafnista í Hafnarfirði, sem
er eign sjómannafélaga i Reykja-
vík og í Hafnarfirði, væri byggð
fyrir söfnunarfé félaganna
sjálfra, ekki hefði fengist króna í
styrk frá ríkinu. Sagði hann
kostnað við þennan fyrsta áfanga
byggingarinnar vera kominn á
fimmta hundrað milljóna króna,
en til að fullgera húsið þyrfti um
fimmhundruð milljónir. Sagði
Pétur framkvæmdanefnd hússins
hafa fengið fróða menn til að
reikna út endanlegan byggingar-
kostnað á verðlagi fyrri hluta
sumars og þá hafi þeim aðilum
reiknast svo til að húsið mundi
kosta um 700 milljónir króna.
Kvað hann þá útreikninga sýna
fram á hversu vel og sparlega
hefði verið haldið.á málum og
aðhalds gætt án þess þó að það
kæmi niður á gæðum aðstöðunn-
ar. Sagði Pétur að fjárhagur
Markús Einarsson f vistarverum sfnum á nýju Hrafnistu. Lét hann
mjög vel af húsakynnunum. Markús var sjómaður í mörg ár, á bátum
og togurum, m.a. lengi frá Grindavík. Hætti Markús vinnu fyrir
tveimur árum, en þá var hann forstöðumaður á Litla-Hrauni.
Rauðvín og reisan mín
Ný bók eftir Örlyg Sigurðsson
ÖRLYGUR Sigurðssori, lístmálari, kom
eins og hvirfilbylur inn á ritstjórn
Morgunblaðsins í gær og afhenti nýja
bók eftir sig, Rauðvín og reisan mín,
með þeim slagkrafti, að ástandið við
Miðjarðarhaf varð eins og lognmolla i
samanburði við hinn mikla viðburð
Bókin, sem Örlygur afhenti, var nr 8
af 12 tölusettum eintökum, en hann
telur þó ekkí, að þessi 1 2 gjafaeintök
nægi til að standa straum af útgáfunni
í heild og hefur því ákveðið að gefa
almenningi kost á nokkrum eintökum.
..Verðið á bókunum mínum er það
hagstæðasta, sem hugsazt getur,"
sagði skáldmálarinn, „þvi að ég hef
gætt þess vandlega, að láta það ávallt
fylgja viskiflöskunni, frá þvi ég hóf
útgáfustarfsemi fyrir 1 5 árum."
Þetta er fimmta bók höfundar á 1 5
árum og komst hann að þeirri niður-
stöðu með þriliðureikningi, að hann
hefði gefið út bók þriðja hvert ár, að
jafnaði
Áritunin á fyrrnefnt eintak, var að
sjálfsögðu með kærum kveðjum og
þakklæti fyrir ..siopnar gáttir blaðsins
fyrir oft á tíðum glannalegum greinum
mínum um lifs og liðna" Örlygur
kvaðst alltaf hafa fengið góðar viðtökur
á Morgunblaðinu og mun hann ekki
vera einn um það í stuttri athugasemd
bætti Örlygur Sigurðsson við, að ýmsir
hefðu dáið eða lifað eftir þvi, hvort þeir
óskuðu eftir minningargreinum eftir
hann: „Ég hef gefið sumum i afmælis-
gjöf að skrifa ekki úm þá i Moggann,
og aðrir hafa frestað þvi að deyja af
einskærum ótta við, að ég mundi skrifa
um þá minningargrein, t.a.m frænkur
mínar margar hér fyrir sunnan — og
hafa þær náð háum aldri fyrir bragðið
Þannig hef ég stuðlað að lariglífi fólks
— og geri aðrir betur Annars fjallar
allt, sem ég skrifa um um sjálfan mig,
en það sér bara enginn "
Þessi nýja bók Örlygs Sigurðssonar,
Rauðvin og reisan min, er myndskreytt
i litum og linum og er tileinkuð
„frönskum konum og fallegasta og frjó-
semilegasta blettinum undir þeim,
hinu ódauðlega Frakklandi, skemmti-
legasta og frjálsmannlegasta hlutanum
af gömlu Evrópu "
Fyrsta grein bókarinnar er „Upp,
upp min sál og allt mitt geð" og munu
ýmsir ætla, að þetta sé tilvitnun í
Passiusálma Hallgríms Péturssonar. en
ekki tókst að gera nákvæma visinda-
lega rannsókn á því með þeim stutta
fyrirvara, sem fréttamaður hafði til að
skrifa um þennan viðburð En þar sem
þarna er minnzt á „geð" má draga þá
ályktun, án þess höfundur vildi beinlín-
is staðfesta það, að þarna sé komið
nafnið á útgáfunni, bókaútgáfan Geð-
bót, en það mun þó einnig eiga djúpar
rætur i sálarlifi höfundar sjálfs. „Mitt
sálarlif er ekki með öðrum hætti en
sálarlif sannra listamanna," sagði Ör-
lygur, þegar um þetta undirstöðuatriði
var rætt
í upphafskaflanum, sem fyrr er
nefndur, segir skáldmálarinn „að öll
ferðalög væru farin til horfinnar
æskú', eins og einhver skarfur hefði
sagt, og i samtali við okkur bætti hann
við: „Og þvi er ég alltaf að leita að
barninu i sjálfum mér og öðrum." i
fyrrnefndum kafla segir höfundur enn
„Það fylgir þvi jafnan sama unaðs-
kenndin að verða litið barn á ný i hvert
skipti, sem lagt er upp í nýja reisu
„Mjólkurpelann og nestið mitt" gat ég
ógerla skirt skrudduna a tarna Það
hefði veitulum flugfreyjum a m k þótt
hrapallegt öfugmæli „Rauðvinog reis-
an min" þótti mér nær sanni og betur
við hæfa "
Við spurðum Örlyg, hvers vegna
hann skirskotaði þarna til islenzkra
flugfreyja og svaraði hann þvi til, að
það fyrsta sem hann gerði þegar hann
gengi inn i flugvél, væri að taka fram
ælupokann, teikna mynd á hann og fá
sér bjór „til að yfirstiga flughræðsluna,
en hún fylgir öllum stórsénium, eins
og kunnugt er." Og Örlygur bætti við:
„Og eina leiðin til að yfirstiga hræðsl-
una er að ganga á vit hennar trekk i
trekk " Þetta mun vera sama lögmálið
og felst i þvi merka spakmæli, að
freistingar séu til þess að falla fyrir
þeim
Á bókarkápu er mynd af Örlygi
Sigurðssyni, þar sem hann er einna
likastur Clark Gable, en af einhverri
ástæðu hefur höfundi þótt við hæfi, að
hann væri með opinn munninn og
að sjálfsögðu að tala við einhvern,
sem ekki sést á myndinni Undir
henni lætur bókaútgáfan Geðbót fylgja