Morgunblaðið - 11.11.1977, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977
Ole Aaserud forstjóri og eigandi
Ankerlökkens.
— Norskur
skipasali
Framhald af bls. 32.
hefðu áður ákært Aaserud fyrir
gjaldeyrisbrot, fjárdrátt og nú
kæmu tollsvikin inn i málið.
Við rannsókn hefur komið
fram, að Ankerlökken hefur kom-
ið um það bil 3 milljónum norskra
króna undan með því að falsa
tollskjöl, en til þess var notað
tvöfalt samningskerfi. Þá hafði
fyrirtækið þann háttinn á, þegar
það gekk frá samningi um sölu
eða smíði á skipum, að a.m.k.
tveir samningar voru útbúnir.
Fyrst var gerður samningur milli
Ankerlökkens og kaupandans og
var þar gengið frá kostnaðarverði
skipsins. Siðan var útbúinn annar
samningur og hann sendur til
lánastofnana og hinna ýmsu
sjóða. Hljóðaði sá samningur upp
á miklu hærri upphæð en sá fyrri,
og var um leið langt yfir kostnað-
arverði skipsins.
Með því að útbúa samning, sem
var miklu hærri en raunverulegt
kostnaðarverð viðkomandi skips,
þurfti kaupandi skips ekki að
leggja í neina áhættu. Lánastofn-
anir fjármögnuðu allt. Sem sagt:
Ankerlökken bjó þannig um
hnútana, að útgerðarmaðurinn
þurfti ekki að leggja fram eina
einustu krónu fram.
Að sögn Arnsteins Gjengedals
hefur enn ekki komiðT ljós hve
miklar upphæðir voru sviknar út
úr lánasjóðum og bönkum með
fyrrgreindum hætti, en þær
skiptu milljónum norskra króna.
Sagði hann, að við rannsóknina
hefði einnig komið í ljós, að Aase-
rud hefði flutt margar milljónir
norskra króna yfir á fyrirtæki í
eigu Ankerlökkens i Sviss,
Transcandica A/S, en síðan sann-
azt að það fyrirtæki hefði verið
stofnað í þvi skyni að flytja fjár-
magn frá Noregi yfir til Sviss.
Noregsbanki stöðvaði allar pen-
ingasendingar til þessa fyrirtækis
í desember á s.l. ári, en að því er
Arnstein Gjengedal tjáði Morgun-
blaðinu í gær, þá getur farið svo,
að langur tími líði þar til rann-
sókn þessa mikla svikamáis Ijúki.
Hann sagði ennfremur að hann
hefði heyrt um yfirstandandi
rannsókn á Islandi vegna skipa-
kaupa frá Noregi, og því yrði eðli-
lega kannað hvort svikamál Ank-
erlökkens tengdust viðskiptum
þess við Island.
— Grigorenko
Framhald af bls. 1
anum vikið úr embætti sem fyrir-
lesarí við hernaðarháskóla fyrir
að gagnrýna stefnu stjórnarinnar
á almannafæri i tíð Stalins og
Khrushehevs. Var honum komið
fyrir á geðveikrahæli.
Dagbók, er Grigorenko hélt
þennan tíma, hefur verið þýdd á
mörg vesturlandamál og kom af
stað umræðum um misbeitingu
Sovétmanna á geðlækningum.
Hann bjóst við að snúa aftur til
Moskvu eftir dvöl sína fyrir vest-
an haf.
— Löndunarbann
Framhald af bls. 32.
ræðum um veiðiheimildir fyrir
brezka togara við ísland. Fulltrú-
ar útgerðarmanna og yfirmanna á
togurum lögðu áherzlu á :ð bann-
ið yrði einnig látið ná til frysts
fisks frá íslandi og sem fyrr segir
tóku löndunarmenn upp slíka
áskorun til hafnarverkamanna í
gær.
Jón Olgeirsson var á fundinum
í fyrrakvöld og kveðst hann þar
hafa sagt það eitt, að af Íslands
hálfu yrði ekkert gert til að fá
aflétt löndunarbanninu á íslenzk
fiskiskip.
— Ríkum manni
rænt. . .
Framhald af bls. 1
bendingu fengið er gæti bent til
þess hverjir rændu Palmers. Sam-
kvæmt fyrstu fréttum var Palm-
ers einn í bifreiðinni sem honum
var rænt úr.
Fyrirtæki Palmers var stofnað
áriðl900 og auk þess sem það sel-
ur kvenfatnað selur það leðurvör-
ur og skófatnað. Palmers á 43
kvenfataverzlanir í Vín og 90 á
landsbyggðinni. Hann á einnig
stórar jarðir í Vín og nágrenni.
Lögreglan telur að ránið sé ekki
af pólitískum toga spunnið sam-
kvæmt heimildum í Vin. Yfirvöld
vilja sem minnst um málið segja
þar sem mannslíf sé í húfi.
Ræningjarnir kröfðust þess á
miðanum með kröfunni um
lausanargjaldið að það yrði greitt
fyrir hádegi á laugardag„en tóku
ekki fram hvað mundi gerast ef
féð yrði ekki greitt. Palmers er 74
ára gamall og sagður hjartveikur.
— Bandaríkin
hafa selt okkur
Framhald af bls. 1
úr okkur liftóruna. Það er kald-
hæðnislegt að eina þjóðin sem
hjálpar okkur eru tsraelsmenn.
Frá Israel fáum við vatn og
vistir og þurfi fólk á læknis-
hjálp að halda, fer það yfir
landamærin. Þá sækja þó
nokkrir vinnu i ísraelska þorp-
ið Porpid Metulla.
Við erum ekki aðeins að berj-
ast fyrir land okkar heldur og
sjálfsvirðingu, en Israel virðist
vera eina landið sem skilur til-
finningar okkar. Bandaríkin
hafa selt okkur fyrir olíuhags-
muni sina og hirða lítt um hvað
um okkur verður. Það er tómt
mál að tala um vopnahlé hér,
því að enginn er til að gæta
þess en vitanlega ættu að vera
hér sveitir frá Sameinuðu þjóð-
unum“.
Að lokum sagði Sad Haddad,
að sér virtist sem umheimurinn
hefði dæmt fólk i þessum hluta
Libanons til hægs dauða.
Skömmu seinna heyrðist
sprengjugnýr á ný og skothríð-
in færðist í aukana. Libanskir
hermenn koma hlaupandi og
sögðu okkur að eldflaug skæru-
liða hefði lent á húsi i þorpinu.
I Ijós kom að ung kona var látin
og tvö börn hennar og tvö önn-
ur ungmenni höfðu særzt.
SjúkrabíII kom brunandi og
börnin voru flutt frá gleymda
þorpinu Naghariya i Suður-
Líbanon undir læknishendur í
Israel.
Nokkrir óbreyttir borgarar
hafa fallið i árásum skæruliða á
þorp ísraelsmegin landamær-
anna og Ezer Weismann,
varnarmálaráðherra Israels,
hefur sagt að haldi svo áfram
sem horfir muni ísraelsmenn
grípa til stórfelldra aðgerða.
Vesturbakki Jórdanár, Genfar-
ráðstefnan og jafnvel umfangs-
miklar efnahagsráðstafanir
gætu þá á svipstundu fallið i
skuggann.
— Loðnuvið-
ræður
Framhald af bls. 32.
kvöldi, en þangað fór ráðherrann
að lokinni opinberri heimsókn
hans til Færeyja, sem lauk á mið-
vikudagskvöld.
„Þeir nefndu svona tímann um
mánaðamótin, ef hann hentaði
okkur til viðræðnanna, sem
myndu þá fara fram undir forystu
utanríkisráðuneytisins," sagði
Matthías. ,,Á þessu ári vefddu
Færeyingar 25.000 tonn af loðnu
hjá okkur og við máttum veiða
jafnmikið af kolmunna hjá þeim,
en ég held að íslenzku skipin hafi
ekki veitt nema 30% þess magns,
sem til boða var“.
Matthías sagði að það hefði
glöggt komið fram í máli fær-
eysku ráðherranna að þeir ósk-
uðu eindregið eftir áframhald-
andi veiðiheimildum við Island.
„Ég sagði það vera mína persónu-
legu skoðun, að við ættum ekki að
segja upp samningnum við þá, en
tók auðvitað fram, að það væri'
ríkisstjórnarinnar og Alþingis að
taka ákvörðun um slíkt.“
Matthías kvaðst hafa boðið
sjávarútvegsráðherra Færeyja,
Petur Reinert, í opinbera heim-
sókn til íslands á næsta ári Og
hefði ráðherrann þegið það boð.
— Skákkona
Framhald af bls. 32.
Skáksamband tslands þegið boðið
en eftir er að ákveða keppandann.
Þá hefur skáksambandinu einn-
ig borizt boð um að senda kepp-
anda á Evrópumót stúlkna undir
tvítugu, sem haldið verður í Vrsaz
í Júgóslavíu 21. janúar til 1.
febrúar n.k. Að sögn Einars S.
Einarssonar, forseta St, er mikill
áhugi á því að þiggja boð þetta.
— Ófært
Framhald af bls. 2
Í fréttatilkynningu stjórnar
Flugleiða segir m.a. að því
öryggismáli, sem óheftar flugsam-
göngur Islands við umheiminn,
séu megi „ekki eyða í eldi verk-
falla og vinnudeilna.
Stjórn Flugleiða er ljóst að eng-
inn einn aðili hefur öll ráð í hendi
sér til að ráða bug á þeim vanda,
sem hér er á drepið. Hún vill hins
vegar hvetja bæði stjórnvöld,
samtök vinnuveitenda og stéttar-
samtök til þess að leita nýrra úr-
ræða i þessum efnum.“
— Carter
Framhald af bls. 1
Jafnframt áskildi Líbanons-
stjórn sér rétt til þess í kvöld að
kalla saman öryggisráðið vegna
loftárása Israelsmanna. Utan-
ríkisráðherra Líbanons, Fuad
Butros, sagði í dag að ástandið í
Suður-Libanon væri orðið ugg-
vænlegt og ógnun við frið í Mið-
austurlöndum. Kurt Waldheim,
aðalframkvæmdastjóri S.Þ. harm-
aði árásina í dag í orðsendingu við
fulltrúa ísraels, Libanons og
Frelsissamtaka Pelestínu.
I Jerúsalem sagði Menachem
Begin forsætisráðherra í kvöld að
hann mundi sjálfur taka á móti
Sadat forseta á flugvellinum í Tel
Aviv og sýna honum fullan sóma
ef hann stæði við þá yfirlýsingu
sína að hann væri fús til þess að
koma til Jerúsalem og ávarpa is-
raelska þingið.
Jafnframt kallaði Begin banda-
ríska sendiherrann Samuel Lewis
á sinn fund til að harma það að
óbreyttir borgarar hefðu fallið í
loftárásunum i gær. En hann
sagði að Israelsmenn mundu
halda áfram að verjast með öllum
tiltækilegum ráðum.
Kyrrt var á landamærunum í
dag eftir loftárásirnar. En þótt
fréttamenn segi að með loftárás-
unum hafi ísraelsmenn valdið
miklu meira manntjóni en
Palestfnumenn með eldflauga-
árásum sínum sé ólíklegt að
palestinskir skæruliðar hörfi frá
síðasta virki sínu, ekki sízt þar
sem fórnarlömb árásanna hafi
aðallega verið óbreyttir borgarar
samkvæmt frásögnum sjónar-
votta.
I Beirút er haft eftir áreiðan-
legum heimildum að ísraelsmenn
hafi gert árásirnar samtímis því
sem Sýrlendingar hafi beitt
Palestínumenn miklum þrýstingi
í því skyni að fá þá til að hörfa frá
landamærasvæðinu. En nærvera
Palestinumanna þar er síðasta
trompið sem þeir hafa á hendi í
deilunum um tilhögun Genfarráð-
stefnunnar.
Libanska stjórnin tilkynnti að
tala þeirra sem hefðu fallið í loft-
árásunum væri komin yfirlOO
innsta kosti 80% hinna föllnu
hafi verið óbreyttir borgarar,
aðallega líbanskir. Helztu fórnar-
lömbin voru 300 líbanskir flótta-
menn búsettir í Azziyeh.
ÞESSIRkrakkar efndu til hlutaveltu að Skipasundi 84, Rvfk, til
ágóða fyrir Styrktarfél. vangefinna og söfnuðu rúmlega 1200
krónum. Þeir heita: Astríður Erna Hjörleifsdóttir, Rannveig
Bryndls Ragnarsdóttir, Ásgrfmur Ari Jósefsson, Ragnar Ólafur
Ragnarsson og Elí Þór Þórisson.
ÞESSIR strákar sem eiga heima við Vesturberg 1 Breiðholts-
hverfi efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra og söfnuðu 5.500 krónum. Þeir heita: Árni Gunnars-
son, Guðjón Ólafsson, Sigtryggur Ólafsson og Þormar Sigurjóns-
son.
Þessar telpur efndu til hluta-
veltu til ágóða fyrir byggingar-
sjóð Langholtskirkju og söfn-
uðu þær 6000 krónum. Telpurn-
ar heita Rut Eiðsdóttir og Mar-
grét Rósa Harðardóttir.
Þessar telpur, sem eiga heima
vestur á Seltjarnarnesi, efndu
til hlutaveltu þar, til ágóða
fyrir starfsemi K.F.U.K. þar I
bænum og söfnuðu rúmlega
9000 krónum. Þær heita Hrönn
Ingólfsdóttir og Auður Óskars-
dóttir.
ÞESSIR strákar, sem heita Ingvi Már, Leó og Valgeir efndu til
hlutaveltu að Kieppsvegi 134 til ágóða fyrir Dýraverndunarfélag
Reykjavfkur, og söfnuðu 9300 krónum.
ÞESSIR strákar: Pétur Viðarsson, Rúnar Jónsson og Þórir Pfls-
son, sem eiga heima suður f Kópavogi, efndu fyrir nokkru til
hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra og
söfnuðu rúmlega 4200 krónum.