Morgunblaðið - 11.11.1977, Blaðsíða 23
ORÐ
I
EYRA
Verðbólgu-
skrímsl
bundið
Einu sinni var dýr eitt ógur-
legt í rfki Mörlanda og kallaö
Verðbólguskrfmsl. Það var
eðli þeirrar óvættar að hún
bólgnaði jafnan og þrútnaði af
þvf sem hún lét í sig en afurðir
gaf hún engar.
Skrímslið fæddu Mörlandar
heima og hafði Nordal einn
djarfleik að ganga til að gefa
því mat. En er innfæddir sáu
hversu mikið það óx dag hvern
og allar spár sögðu að það
myndi vera lagt til skaða þeim
þá fengu Mörlandar það ráð að
þeir gerðu fjötur allsterkan, er
þeir kölluðu Halldór, og báru
hann til skrfmslisins og báðu
það reyna afl sitt við fjötur-
inn. En skrfmslinu þótti sér
það ekki ofurefli og lét þá fara
með sem þeir vildu. En hið
fyrsta sinn er skrfmslið
spyrnti við brotnaði sá fjötur.
Svo hristi það sig úr Halldóri.
Þvf næst gerðu innfæddir
annan fjötur hálfu sterkari er
þeir kölluðu Matthías og báðu
skrfmslið reyna þann f jötur og
töldu það verða mundu ágætt
mjög að afli ef slfk stórsmfði
mætti eigi handa þvf. Skrfmsl-
inu kom f hug að það myndi
verða að leggja sig í hættu ef
það skyldi frægt verða og lét
leggja á sig fjöturinn. Og er
innfæddir töldust búnir þá
hristi skrfmslið sig og laust
fjörtinum á jörðina, spyrnti
við, braut fjöturinn svo að
fjarri flugu brotin. Svo mölv-
aði það sig úr Matthíasi.
Eftir það óttuðust innfæddir
að þeir myndu eigi fá bundið
skrfmslið. Þá sendi Magnús og
Gunnar þann er Sólnes er
nefndur, sendimaður Sana, of-
an í Kröflu til dverga nokk-
urra og lét gera f jötur þann er
Blekkill heitir. Hann var gerð-
ur af sex hlutum: af frumleika
Arnalds og af vfðsyni Jónasar
ritstjóra og af hæversku Vil-
mundar og af vitsmunum Að-
alheiðar Sóknarrekanda og af
Iftiliæti Jóns Baldvins og af
alvörunni í rannsókn Geir-
finnsmálsins.
Og þótt þú vitir eigi áður
þessi tfðindi þá máttu nú finna
skjótt hér sönn dæmi að eigi er
logið að þér. Séð munt þú hafa
að eigi iiggja þeir hlutir á
lausu sem fjöturinn var af
gerr. Og það veit trúa mín að
jafnsatt er það allt er ég hef
sagt þér þótt þeir séu sumir
hlutir er þú mátt eigi reyna.
Og nú varir sú spurning
hvort Verðbólguskrfmsl lætur
Blekkil á sig fella og hvort það
fær hann slitið sem hina fjötr-
ana.
Köttur úti f mýri setti upp á
sér stýri o.s.frv.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÖVEMBER 1977
23
Tollvörugeymsla
á Austurlandi
STOFNUÐ hefur verið
Tollvörugeymsla á Austur-
landi og hefur hún aðsetur
á Reyðarfirði. Tilgangur
félagsins er að reka toll-
vörugeymslu og skylda
starfsemi, eins og segir í
Lögbirtingarblaðinu. For-
maður stjórnar félagsins
er Hörður Þórhallsson á
Reyðarfirði, en stjórnar-
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHorewnblitbib
menn eru einnig frá öðrum
stöðum á Austfjörðum.
Tólfta ár
Beneventum
NÝLEGA leit dagsins ijós 1. tölu:
blað 12. árgangs af Beneventum,
skólablaðs Menntaskólans við
Hamrahlíð. Er blaðið 32 blaðsíður
að stærð að þessu sinni, líflega
sett upp og á snyrtilegan hátt. t
blaðinu eru greinar ýmiss konar,
bæði úr skólastarfinu og úr öðr-
um áttum. Mörg ljóð birtast í
blaðinu og myndir eru margar.
Ritstjóri Beneventum er Jakob
Rúnarsson.
t
Við þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför,
ÓLA V. METÚSALEMSSONAR.
Sigríður Agústsdóttir,
Ólöf Erla Óladóttir, Ari Bergman Einarsson,
Sigrún Fríða Óladóttir, Ævar Guðmundsson,
Helga og Regína Metúsalemsdætur.
t
Maðurinn minn og faðir okkar,
KRISTJÁN S. ELÍASSON,
Njálsgötu 102.
andaðist miðvikudaginn 9 nóvember
Kristín Geirsdóttir og bömin.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför
Páll Christiansen, Patreksfirði.
RAGTIME
Spennandi saga úr bandarísku þjóðlífi í byrjun þessarar
aldar. Við kynnumst hetjum og úrhrökum, auðmönnum,
sósíalískum byltingarseggjum og kynþáttahatri. Viður-
kennd einhver merkasta skáldsaga síðustu ára.
Þýðandi Jóhann S. Hannesson.
FERILORÐ
Höfundur Ferilorða, Jóhann S. Hannesson, mennta-
skólakennari, er ekki margra bóka skáld, en ljóð hans
eru þeim mun haglegar gjörð. Ljóðin í þessari bók eru
ort á 20 ára tímabili. (1956—1975).
PLÚPP
f er til borgarinnar
Önnur bókin eftir sænska barnabókahöfundinn Ingu
Borg. Bráðskemmtileg ævintýri í máli og myndum um
sænska huldusveininn Plúpp og ævintýri hans í stór-
borginni.
Þýöandi Jóhannes Halldórsson.
Vf!
>tan
gai
HUII
Guðmundur
Daníelsson
VESTAN GULPUR
GARRO
Aðdaendum vel skrifaðra sakamálasagna býðst nú mikill
fengur. í Skáldsögunni Vestangúlpur Garró skröltum
við eftir gamla Keflavíkurveginum að næturþeli í forn-
fálegum vörubíl. Á pallinum eru líkkistur. Um innihald
þeirra vitum við ekkert.
Gréta
Sigfúsdóttir
SOL RISIVESTRI
Norður er nú uppeftir, suður niðureftir, austur er til
hægri og vestur er til vinstri — eða öfugt. Svo er jafnvel
komið að sól rís í vestri. Þannig lýsir Gréta siðgæðisvit-
und okkar. Hún sýnir okkur stéttamismun, vafasama
viðskiptahætti, pólitískan
loddaraleik og siðspillingu.
^ k Almenna bókafélagif
f /Austurslra'ti 18, Bolholli 6,
C,/J sími 19707 sími 32020