Morgunblaðið - 11.11.1977, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.11.1977, Qupperneq 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977 AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 Síldin hefur ekki nýtzt eins vel til söltunar nú og. í fyrra að sögn Jóns B. Jónassonar, fulltrúa í sjávarútvegsráðuneytinu, en stúlkan á mvndinni, sem var að salta hjá tsbirninum á Seltjarnarnesi í gær, er greinilega harðákveðin í því að ná sínum hlut, hvað sem nýtingu annarra líður. u<>sm. mm Fri.>þj<»fu>-. Löndunarmenn í Grimsby: Skora á hafnarverka- menn að setja einnig bann á frystan fisk „ÞAÐ varð ofan á hjá löndunarmönnum að halda löndunarbanninu á íslenzk skip áfram og í dag fóru þeir fram á það við hafnar- verkamenn að þeir settu einnig löndunarbann á frystan fisk frá tslandi. Hvernig hafnarverkamenn bregðast við þessari ósk, er ekki ljóst nú, en það reynir á það strax á morgun, því þá er Ljósafoss vætanlegur hingað með fisk,“ sagði Jón Olgeirsson, ræðismað- ur íslands í Grimsby, í samtali við Mbl. í gær- kvöldi. Það var samband flutninga- verkamanna, sem kallaði löndunarmenn í Grimsby til fund- ar í fyrradag, en þeir kváðust þá ekkerl hafa að gera á fund þar sem ræða ætti afléttingu á Atkvæðagreiðsla BSRB: löndunarbanninu. Seint í fyrra- kvöld fór svo fram 45 mínútna fundur um málið eftir að fulltrú- ar útgerðarmanna og yfirmanna á togurum höfðu komið að máli við fulltrúa löndunarmannanna. Á þessum fundi var ákveðið að halda löndunarbanninu áfram, þar til íslendingar settust að við- Framhald á bls 18. Loðnuviðræð- ur við Fær- eyinga um mánaðamótin? „ÞAÐ kom fram í viðræðunum við færeysku ráðherrana, að land- st.jórnin mun óska eftir viðræðum við okkur um áframhald á loðnu- veiðum þeirra hjá okkur og kol- munnaveiðum okkar hjá þeim og að þeir munu bjóða upp á sama fyrirkomulag og á þessu ári,“ sagði Matthías Bjarnason, sjávar- útvegsráðherra, er Mbl. ræddi við hann f Kaupmannahöfn f gær- Framhald á bls 18. Norskur skipasali Taliðum helgina „FG GET nú ekki nefnt neinar nákvæmar tölur, en af þeim fregnum, sem ég hef fengið, virð- ist mér þátttakan nokkuð góð og að vel yfir helmingur félags- manna hafi greitt atkvæði um samkomulagið," sagði Baldur Kristjánsson, starfsmaður BSRB, er Mbl. ræddi við hann f gær- kvöldi. en þá voru atkvæði farin að berast til aðalskrifstofu BSRB. Kitt félag, starfsmannafélag ríkisstofnana, fékk undanþágu hjá vfirkjörstjórn BSRB til að hafa atkvæðagreiðslu f dag, en almennt lauk atkvæðagrerðslunni klukkan 19 í gærkvöldi, nema hvað einstaka félag f Revkjavík var með atkvæðagreiðslu til klukkan 22. Baldur sagði að menn vonuðust til að vel gengi að koma atkvæða- kössum utan af landi til Reykja- víkur og að talning gæti hafizt á laugardag eða sunnudag í síðasta lagi. Hermann Kristjánsson kærður fyrir stórsvik Viðskipti Ankerlökkens við ísland verða könnuð, segir Gjengedal saksóknari í Osló STÓRFELLT svikamál er nú komið upp í Noregi, en það snýst um tollsvik, gjaldeyrissvik og fjárdrátt úr sjóðum vegna skipasölu og smíða. Fyrirtækið sem hér á hlut að máli er Ank- erlökken, en það hefur á undanförnum 20 árum Roskínn maður lézt af völdum bílslyss ROSKINN Hermann Reykvíkingur, Kristjánsson, Atkvæði frá félögum í Reykjavfk og nágrannasveitum voru farin að berast til aðalskrifstofu BSRB f gærkvöldi, þegar Friðþjófur tók þessa mynd. forstjóri, til heimilis að Hvassaleiti 87, andaðist í sjúkrahúsi í gærdag en hann hafði fyrr um daginn slasazt mikið í umferðar- slysi á Háaleitisbraut. Her- mann heitinn var 77 ára að aldri. Slysið varð með þeim hætti, að bifreið var kl. liðlega 12.30 í gær ekið austur Miklabraut og sveigt inn á Háaleitisbraut til suðurs. Þar skanimt frá gatnamótunum stóðu tveir kyrrstæðir bílar, bíll Hermanns heitins og annar bill en ökumaöur hans ætlaði að að- stoða Hermann við að koma bíl hans í gang með startblökk. Hcr- mann stóð hins vegar sjálfur fyrir aftar bifreið sína og varð hann á milli hennar og bílsins sem kom inn á götuna af Miklubrautinni. Hermann slasaðist allmikið en var þó með meðvitund fyrst í stað, en lézt síðan í sjúkrahúsi um kl. 15.10 1 gærdag. Hermann hafði um skeið þjáðst af hjartasjúk- dómi og að sögn lögreglunnar kann Hermann að hafa fengið hjartaáfall í kjölfar slyssins. gengið frá sölu og smíðað um það bil 45 skip fyrir íslendinga, og segja má að flest öll fiskiskip, sem Is- lendingar hafa keypt frá Noregi s.l. 10 ár, séu teikn- uð hjá Ankerlökken. Einkaeigandi Ankerlökk- en, Ole Aaserud, hefur nú verið ákærður fyrir fram- angreindar sakir, og lagði Arnstein Gjengedal, sak- sóknari í bæjarþingi Ósló- ar, fram ákæru á hendur honum. Arnstein Gjengedal sagði í sam- tali vió Morgunblaðið í gær, að rannsókn í máli Ankerlökkens hefði tekið langan tíma og virtist sem aðalsvikastarfsemi fyrir- tækisins tengdist fyrst og fremst Design 7 : . know“how Noregi og Sviss, en annars væri Ankerlökken með dótturfyrir- tæki viða um heim. „Eins og mál- in standa nú, get ég fullyrt að við höfum ekkert fundið, sem bendir til svikastarfsemi Ankerlökkens og íslenzkra aðila,“ sagði Gjenge- dal. Þá sagði Gjengedal, að starfs- menn saksóknaraembættisins i Ösló og lögregluyfirvöld þar, Framhald á bls 18. íslenzkri skákkonu boðið á mót erlendis SKAKSAMBANDI íslands hefur nú borizt fyrsta boðið til fslenzkr- ar skákkonu um að taka þátt í skákmóti erlendis. Það er danska skáksambandió, sem býður til af- mælismóts um páskana, og hefur Framhald á bls 18. Auglýsingabæklingur frá einni deild Ankerlökkens, — Anker- lökken Marine A/S f Bergan. A forsfðunni er mynd af fslenzkum skuttogara, sem smfðaður var 1 Noregi fyrir nokkrum árum. Tap Flugleiða á meðan verk- fall BSRB stóð 70-100 millj. kr. „BEINT tap Flugleiða meðan á verkfalli BSRB stóð var á bilinu 70—100 milljónir króna og þó flugum við beint á milli yfir Atlantshafió allan tfm- ann,“ sagdi Alfreó Elfasson, forstjóri Flugleiða, í samtali vió Mbl. í gær, en stjórn Flug- leiða hefur sent frá sér til- kynningu, þar sem lýst er áhyggjum vegna áhrifa verk- falla á fyrirtækið og samgöng- ur milli fslands og umheims- ins. Alfreö sagði ad þessi sam- þykkt stjórnarinnar væri fyrst og fremst hugsuð sem hvatn- ing til manna um að taka öll þessi mál til rækilegrar endur- skoðunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.