Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 6. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sadat er einn af hugrökkustu mönnum heims - sagði Carter við Washington, 7. janúar. AP. JIMMY Carter Banda- ríkjaforseti sagði við kom- una til Washington, að hann væri sannfærðari en nokkru sinni fyrr um að kommúnistaþjóðir heims vildu komast hjá stríði og heimkomuna þráðu frið jafnmikið og Bandaríkjamenn. Þota for- setans lenti um kl. 02.00 að fsl. tfma á Andrewsher- flugvellinum í Washing- ton, eftir 9 daga för til 7 landa og hefur forsetinn á Framhald á bls. 46. Vance ánægd- ur með mann- r éttind astef nu Ungverja Búdapest, 7. janúar. — Reuter CYRUS Vance utanrfkisráðherra Bandaríkjanna, sem nú er f Ung- verjalandi þeirra erinda að skila kðrónu heilags Stefáns, þjóðar- gersemi sem Bandarfkjamenn tóku f sfna vörzlu f lok sfðari heimsstyrjaldarinnar, lýsti þvf yfir f dag, að stefna Ungverja- landsstjórnar f mannréttindamál- um hefði stuðlað að þeirri ákvörð- un Bandarfkjamanna að ger- semin skyldi flutt aftur til sfns heima. Vance sagði þetta á blaða- mannafundi f dag, um leið og hann lét f Ijós þá skoðun að Ung- verjar hefðu lagt sitt af mörkum til að greiða fyrir slökun f sam- skiptum austurs og vesturs. Hann sagði að verulegt átak hefði verið gert f þvf að sameina að nýju fjölskyldur, sem sundrazt hefðu vegna átthagafjötra, og lægju nú aðeins fyrir nokkur mál sem enn væru óafgreidd. Vance afhenti kórónuna, sem er úr skfra gulli og alsett rúbfn- um, við hátfðlega athöfn f Búda- pest f gær. Kórónan var gjöf Syl- vesters páfa annars til til Stefáns 'konungs I. á jólunum árið 1000. Vonbrigdi og reiði í Panama Víetnamar styrkja stöðu sína í Kambódíu Panama, 7. janúar. AP. RÁÐAMENN í Panama hafa látið í ljós vonbrigði og reiði með kröfur banda- rískra öldungadeildarþing- manna um breytingu á samningsdrögum vegna Panama-skurðarins, en þrír þingmenn með Howard Baker, leiðtoga minnihlutans í öldunga deildinni í fararbroddi, hafa verið í Panama undanfarna daga til að ræða hvernig breyta megi drögunum þannig að þau verði afgreidd sem lög frá Bandaríkjaþingi. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum að alls hafi Baker lagt til að 40 atriðum i drögunum verði breytt, en þar af er talið að Panama-pienn geti aðeins fellt sig við að tveimur atriðum verði breytt. 1 allsherjaratkvæðagreiðslu um samningsuppkastið í Panama s.l. haust var það samþykkt með tveimur þriðju hlutum atkvæða. Telja Panama-menn að breytinga- tillögur bandarísku þingmann- anna séu svo róttækar að nauð- synlegt yrði að láta fara fram aðra atkvæðagreiðslu ætti samkomu- lag að nást um.þær heima fyrir. Bangkok 7. janúar. AP. Reuter. FREGNIR frá Kambódíu í morgun hermdu að dregið hefði verulega úr átökum milli innrásarhers Víet- nams og Kambódíuhers og að Víetnamar hefðu styrkt stöðu sína og hætt fram- sókn við borgina Neak Luong við Mekongfljót, um 55 km frá höfuðborg- inni Phnom Penh. Leyni- þjónustuheimildir í Bang- kok hermdu að Víetnamar hefðu notið aðstoðar vin- veittra borgaralegra Khmera í aðgerðum sínum við landamærin, sem hefðu fagnað innrásarhernum. Þótt þetta séu heldur óljós- ar fréttir virðist það renna stoðum undir sannleiks- gildi þeirra, að útvafpið í Phnom Penh hefur í heiftúðlegum fréttasend- ingum sakað Víetnama um að þeir væru að setja glæpamenn, sem andvígir væru stjórninni í Phnom Penh, yfir þau svæði, sem þeir hefðu náð á sitt vald. Diplómatar i Bangkok hafa lát- iö það álit í ljós, aó þessar aðgerð- ir Víetnama bendi til að þeir ætli ekki að hverfa á brott með lið sitt á næstunni, hugsanlega ekki fyrr en breyting hefur verið gerð á stjórn landsins. Víetnamar hafa sakað Kambódiumenn um villi- mannleg hryðjuverk á landamær- um landanna undanfarna mánuði, þar sem hundruð óbreyttra borgara, kvenna og karla og barna hafi verið myrt. Sovétríkin hafa stutt Víetnama i þessari deilu og sakað Kinverja Framhald á bls. 46. Mannskæð grýlukerti Moskvu, 7. janúar. Reuter. RISAVAXIN grýlukerti, sem fall- ið hafa af þakskeggjum húsa f Moskvu f hláku undanfarna viku, hafa orðið einum manni að bana og valdið slysum á að minnsta kosti tfu manns, að þvf er blaðið Moskvusky Komsomolets skýrir frá f dag. I grein blaðsins eru umsjónar- menn bygginga gagnrýndir fyrir að láta ekki fjarlægja grýlukertin áður en vegfarendum fer að stafa af þeim hætta. Þess munu jafnvel dæmi að þau hafi lent í barna- vögnum. Lillehammer-maður- inn var n jósnari PLO segir Wahbi, eftirmaður Hammanis Osló, 7. janúar. AP. VERDENS gang, sem kemur út f Ósló, birtir f dag viðtal við nýjan forstöðumann Frelsis- hreyfingar Palestfnu (PLO) f Evrópu, Mohammed Wahbi, þar sem fram kemur að Ahmed Bouchiki, sem hópur Israels- manna myrti f Lillehammer f júlf 1973, hafi stundað njósnir f þágu PLO. Hingað til hefur ver- ið talið að maðurinn, sem var þjónn að atvinnu og giftur norskri konu, hafi verið myrtur f misgripum, þar sem Israels- mennirnir hafi talið hann vera hermdarverkamann, sem þátt tók f fjöldamorðum á fsraelsk- um fþróttamönnum f Munchen á Ólympfuieikunum 1972. Verdens gang hefur þessi um- mæli eftir Wahbi: „Bouchiki var meðlimur f sérstökum and- spyrnuhópi, sem starfar innan PLO. Við höfðum af honum ná- Framhald á bls. 46.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.