Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978 39 fólk á að venjas sv það þarf að kynna hana sérstaklega. Ekki bara mað því að leika hana í útvarpi hálfsmánaðarlega á slæmum tíma.“ — Gerirðu eitthvað af því að leika létta tónlist? — ,,Það er nú næsta lítið. Eg er stundum beðin um að leika svokallaða ,,dinner-músík“. Það er algert eitur i minum beinum. Það virðist annars vera erfitt að fá fólk til þess að einbeita sér að því að lifa sig inn í tónlist. Það vill frekar hafa hana sem einhvers konar bakgrunn." — Hvað finnst þér það veita þér sjálfri að leika á hljóðfæri? — ,,Ég kynnist mörgu nýju í sjálfri út frá þvi sem tónskáldin eru að segja. Það er líka meiri fegurð og raunar er allt betra i tónlistinni en í raunveruleikan- um. Það er gott fyrir hvern sem er að kynnast þessu, ekki hvað síst í þessu samfélagi sem við búum ýið, þar sem allir eru stöðugt í kappi við klukkuna." gjarnt, en maður er nú mest að þessu fyrir sjálfan sig.“ — Hvað heldurðu að þú m.vndir aðhafast ef þú hefðir aldrei lært á píanó? — „Sennilega væri ég sjó- maður. Eg var eitt sumar á sjó hér um árið og kunni afskap- lega vel við mig og leið vel.“ — Þegar þú heldur utan, hvað hefurðu þá helst í hyggju? — ,,Mig langar mikið til að læra einhverja aukagrein sam- hliða píanóleik. Það eru svo af- skaplega mörg fög innan tón- listarinnar, sem kennd eru er- lendis, og maður þekkir lítið.“ — Nú flokkast hljóðfæra- Ieikur undir túlkandi list, gef- ur þetta þér nægilega mögu- leika til tjáningar eða vildirðu helst semja sjálf, líkt og list- málarar og skáld til dæmis? — „Tónlist er einna líkust Ijóðum, enda eru þessar list- greinar náttúrulega náskyldar. Formið er samþjappað og það — Hvað hefurðu fengist við, síðan þú laukst einleikarapróf- inu í vor, hefurðu leikið eitt- hvað opinberlega? — ,,Ég hef ekkert leiki.ð opinberlega síðan í vor, en ver- ið að kenna á píanó og svo hef ég verið að læra sjálf hjá Arna Kristjánssyni í Tónlistarskólan- um. Það er mikil lífsreynsla að leika á tónleikum eins og í vor. Það er margt sem kemur manni á óvart. Þá kemur iðulega fyrir að einhver atriði, sem maður hefur ekki talið sig þurfa ao leggja mikla áherslu á að æfa, reynast varhugaverð, en þau atriði sem maður hefur æft mest og talið erfiðust valda eng- um vandræðum. Annars ef ég alltaf mest hrædd við það að gleyma. Það er alltaf svolítil hætta á því þegar maður leikur nótnalaust. Ég hef ekkert hugs- að mér að halda tónleika á næstunni. Það er kannski eigin- er alltaf einhver innri púls, sem verður að komast til skila, þó hægt sé að sveigja þetta svolítið til innan ákveðinna marka. Hins vegar í óbundnu máli, þá er hægt að léyfa sér alls kyns málalengingar og skraf um aukaatriði. Ég hef mjög lítið fengist við að semja, en það er mjög spennandi að fást við það. Annars er listin að verða svo mikill „bisness" núna, t.d. varð- andi tónlist þá eru tengsl fólks við tónlist mun ópersónulegra en áður, með öllu plötufarginu. Allir heyra í öllum og menn stæla hverjir aðra, svo á endan- um eru allir farnir að spila nærri því eins. Það er að sjálf- sögðu ekki hægt að líta framhjá þvi að maður getur lært ýmis- legt af því að hlusta á plötur, en aðalatriðið hlýtur þó að vera að setja eitthvað frá sjálfum sér í tónlistina, en apa hana ekki bara smekklega eftir öðrum. — SIB. ABBA gerir það gott þessa dagana. Alls staðar virðast þau eiga jafn miklum vinsældum að fagna hvort heldur er i Bretlandi eða á Islandi. 30 vinsœlustu lögin íBretlandi 1977 VINSÆLDUM sænsku hljómsveitarinnar ABBA virðast engin takmörk sett. Síðasta ár var bezta ár þeirra hingað til, plata þeirra „ArrivaT' seldist bezt allra platna i Bretlandi og „ABBA's greatest hits“ var í sjötta sæti yfir söluhæstu plöturnar á síðasta ári. Þar ofan á var litla plata hljómsveitarinnar, „Knowing me — knowing you", vinsælasta litla platan i Bretlandi á árinu. Hljómsveitina, sem varð fyrst fræg árið 1974 fyrir lag sitt „Waterloo", skipa þau Benny Anderson, Björn Ulvaös, Frida Lyng- stad og Anná Faltskog. Svo virðist sem hálf- gert ABBA-æði sé nú að gripa um sig hér á landi, ef marka má undirtektir þær sem myndin um ABBA, sem nú er sýnd hér, hefur fengið. Það er athyglisvert við listann yfir 30 vin- sælustu plöturnar á árinu 1977, að ræflarokk- ið virðist ekki seljast mjög vel. Aðeins plata hljómsveitarinnar Stranglers „Rattus Norvegicus" komst á blað, en hún varð núm- er sjö. Listinn yfir mest seldu plöturnar í Bretlandi lítur annars þannig út. Nafn plötu er fremst, þá flytjendur og loks útgáfufyrir- 1. Arrival — ABBA (Epic) 2. Rumours — Fleetwood IVIac (Warner bros.) 3. Hote) California — Eagles (Asvlum) 4. A Star is born — úr samnefndri kvik- mynd(CBS) 5. Endless flight — Leo Sa.ver (Chrysalis) 6. ABBA’s grealest hits — ABBA (Epic) 7. Stranglers IV (Rattus Norvegicus ) — Stranglers (UA) 8. A new world record — Electric Light Orchestra (Jet) 9. Twenty golden greats — Shadows (EMI) 10. Going for theone — Yes (Atlantic) 11. Animals — Pink Floyd (Harvest) 12. Twnety golden greats — Diana Ross and theSupremes (Motown) 13. Songs in the Key of life — Stevie Wonder (Motown) 14. Exodus — Bob Marley and the Wailers (Island) 15. I remember yesterday — Donna Summer (GTO) 16. xDeceptive Bends — lOcc (Mereury) 17. The Johnny Mathis collection — Johnnv Mathis (CBS) 18. Evita — Various Artists (MCA) Oxygene —Jean-Michel Jarre (Polydor) 20. Low — David Bowie (RCA) 21. Portrait of Sinatra — Frank Sinatra (Reprise) The Muppet show — The Muppets (PYE) 23. Twenty all time greats — Connie Francis (Polydor) 24. David Soul — David Soul (gaf plötuna út sjálfur) 25. Love at the Greek — Neil Diamond (CBS) 26. Works — Emerson, Lake and Palmer (Atlantic) 27. The Beatles at the Hollvwood Bowl (EMI) 28. Red River Valley — Slim Whitman (UA) 29. Moody Blue — Elivs Presley (RCA) 30. Peter Gabriel — Peter Gabrie) (Charisma) Tvær plötur jafnar í 18. sæti og i 21. sæti. Fleetwood Mac eru vinsælasta brezka hljóm- sveitin í heima landi sinu i dag. ef marka má plotusolu þeirra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.