Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1978 ■w Það virðist ekki hafa haft nein áhrif á vinsætdir Wings þótt tveir hljómsveitar meðlimanna séu hættir og aðeins McCartney-hjónin og Denny Laine séu eftir« hljómsveitinni. Vinsœldalistar um allan heim Litlar breytingar urðu á vinsældalístum um allan heim yfir jólin. I New York eru Bee Gees enn efstir meö lag sitt „How deep is your love“, en Player er komin i annaó sæti meó lag sitt „Baby come back". Linda Ronstadt hefur hrapaö úr öðru sæti í það þriðja með lagiö „Blue bayou'1 en annars eru frekar litlar breytingar á lisanum. Eina nýja lagið er iag brezku hljómsveitar- innar Queen, „We are the champions". Queen eru einnig með þetta lag á listanum í Amsterdam, en þar eru þeir frekar á niður- leið en hitt. Efst í Ilollandi er Wings með lagið „Mull of Kintyre", en það lag er einnig á lista i Hong Kong. Aðeins í Vestur-Þýzkalandi eiga nú Bay City Rollers lag á iista, og þar eiga þeir ekki eitt iag heldur tvö, „You made me believe in magic" og „Don’t stop the music". Þar er hljómsveitin Smokie efst með lagíð „Needles and pins", en annars er þessi hljómsveit, sem svo átti miklum vjnsældum að fagna í sumar, hvergi annars staðar á lista. 10'vinsælustu lögin i New York, í sviga fyrir aftan er staða þeirra í síðustu viku. 1. (1) How deep is your love: Bee Gees 2. (3) Baby come back: Player 3 (2) Blue bayou: Linda Konstadt 3. (7) Don’t let me be misunderstood: Leroy Gomez 4. (3) The name of thegame: ABBA 5. () Black is black: Beile Epoque 6. (4) Belfast: Boney M. 7. (5) You made me believe in magic? Bay Cify Rollers 8. (6) Rockin’ all over the world: Status Quo 9. (13) Don’t stop the music: Bay City Roll- ers 10. (8) Sunshine of your love: Rosetta Stone 10 vinsælustu lögin í Amsterdam. 1. (1) Mull of Kintyre: Wings 2. (2) Smurfenlied: Yader Abraham 3. (10) Egyptian Reggae: Jonathan Richman 4. (3) A far l’amore comincea tu: Kafaella Carra 5. (4) Lust for life: Iggy Pop fi. (5) The clown: Band Zonder Naam 6. (12) Isn’t it time: The Babys 8. (8) Living without you: Patricia Paay 9. (6) We are the champions: Queen 10. (9) How deep is your love: Bee Gees. Tvö lög jöfn í sjötta sæti. 4. (4) You’re in my heart: Rod Stewart 5. (5) You light up my life: Debby Boone 6. (7) Back in love again: L.T.D. 7. (8) Slip slidin’ away: Paul Simon 8. (10) Short people: Randy Newman 9. (9) Hereyou come again: Dolly Parton 10. (11) We are the champions: Queen Tvö lög jöfn í sjötta sapti. 10 vinsælustu lögin í Bonn. 1. (1) Needles and pins: Smokie 2. (2) Surfin’ U.S.A.: Leif Garret 10 vinsælustu lögin í Hong Kong. 1. (1) You light up my fire: Debbie Boone 2. (2) IIow deep is your love: Bee Gees 3. (6) It’sso easy: Linda Ronstadt 4. (9) You make loving fun: Fleetwood Mac 5. (3) Way down: Elvis Presley 6. (10) Mull of Kintyre: Wings 7. (8) Baby, what a big surprise: Chicago 8. (11) Hereyou come again: Dolly Parton 9. (4) That’s rock and roll: Shaun Cassidy 10. (13) Swingtown: Steve Miller Bay City Rollers-æðið virðist nú vera liðið hjá í flestum löndum utan Vestur- Þýzkalands, þar sem þeir njóga enn mikilla vinsælda. en í rannvern- leikannm” Svana Víkingsdóttir heyrir til þeim stóra hópi ungs fólks sem leggur stund á klassíska tónlist. Það eð Slagbrandi var kunnugt um að hún hefði lokið einleikaraprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum sl. vor, lék honum forvitni á að vita hvað hún hefði nú fyrir stafni. Hvort hún væri enn að læra á píanóið eða væri kannski búin að skipta yfir á ritvél hjá einhverju gersamlega ómúsíkölsku fyrir- tæki úti í bæ. Það kom 1 Ijós þegar Slagbrandur hitti Svönu að máli að hún heldur enn algerlega tryggð við hljóðfærið og hyggur á frekara nám á þvf sviði erlendis í framtíðinni. Slagbrandur innti haná fyrst eftir því, að gömlum vana, hvenær hún hefði í byrjun far- ið að kljást við nótnaborðið. — „Þannig var, að það var til píanó á heimilinu, sem faðir minn lék t.d. allmikið á eftir eyranu og þegar ég var sjö ára vildi ég geta spilað eins og hann svo ég fór í píanótíma. En þá uppgötvaði ég, mér til hrelling- ar að ég gat ekki lært þetta alveg á stundinni og það þótti mér að öllu ófært svo ég hætti eftir hálft ár, en byrjaði síðan að nýju árið eftir með heil- brigðara hugarfari. Þegar ég var tólf ára fór ég í Tónlistar- skólann og hóf þá einnig af alvöru nám í tónfræði og fleiri slíkum greinum. Kennarar min- ir í Tónlistarskólanum voru þau Hermína Kristjánsson og Jón Nordal og nú er Arni Kristjánsson kennari minn." — Flaug þér aldrei í hug að læra á eitthvaó annað hljóðfæri en píanó? — „Jú vissulega hefur mig oft langað til að læra á eitthvert annað hljóðfæri samhliða píanóinu, einkum til að geta leikið í hljómsveitum, en mér finnst bara að það fari svo mik- ill tími í það að læra á hljóðfæri ef maður ætlar að gera það vel, að það er ekki tími til að hafa fleiri en eitt í takinu. Þó lærði ég dálítið á þverflautu eitt sum- ar, en það er nú næstum þvi allt ogsumt." — Hefurðu stundað eitthvert annað nám með Tónlistar- skólanum? — „Já, ég hóf nám í Mennta- skólanum við Hamrahlíð, en kerfið þar var mjög óheppilegt fyrir mig, vegna þess hve tímarnir voru dreifðir yfir dag- inn, auk þess sem ég saknaði bekkjakerfisins. Ég lauk þvi Slagbrandur ræðir við Svönu Víkingsdóttnr píanóleikara mmm^^^m^^^^^^m^mmi^mmmmmmmmmm^mmmmmmm stúdentsprófi frá Menntakólan- um við Tjörnina. Siðustu þrjú árin hef ég svo einbeitt mér að Tónlistarskólanum, fyrst í kennaradeild og síðan ein- leikaradeild." — Hefurðu leikið mikið með öðrum? — „Það er nú meinið við að læra á píanó. Maður er svo mik- ið einn. Það eru svo margir sem spila á píanó og raunar fiðlu líka, en fáir sem leika á t.d. selló eða víólu, að það er mjög erfitt að leika kammertónlist." — Hvað um framtíðina? — „Ég hef í hyggju að fara út og læra meira, en það er ekkert ákveðið í því efni enn sem komið er.“ — En hvernig er með atvinnumöguleika? — „Það er alveg nóg að gera við kennslu og svo gefst alltaf annað slagið tækifæri til að leika með öðrum." — Hvernig tilfinningar berðu til píanósins? — „Þetta er einginlega eins og krakkinn minn. Auðvitað þykir mér vænt um það, en það er manni líka til mikillar byrði. Það er meira að segja svo að það er erfitt að fá íbúð, þegar það kenutr í ljós að maður er píanóleikari. Annars gildir það víst í þessu sambandi sem svo mörgum öðrum að hverjum þykir sinn fugl fagur. Mér finnst mitt eigið hljóðfæri af- burða gott, þó aðrir séu kannski á öðru máli." — Hvaða tónlist þykir þér skemmtilegust? — „Ja, ég er mjög hrifin af söng og kammertónlist og náttúrulega hlusta ég mikið á hvers kyns píanófónlist, Chopin er í uppáhaldi hjá mér um þess- ar mundir, en þetta er síbreyti- legt. Ég þekki þvi miður lítið nútímaverk. Það er of lítið gert af því að kynna nútimatónlist. Þetta er ólíkt þeirri tónlist sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.