Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978 Útgefandi hf. Árvakur. Reykjavik. F ra mk væmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthias Johannessen. Styrmir Gunnarsson. R itstjórna rf ulltrúi Þorbjörn GuSmundsson. Fróttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Ámi GarSar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiSsla ASalstræti 6. simi 10100. Auglýsingar ASalstræti 6. simi 22480. Askríftargjald 1500.00 kr. á mánuSi innanlands. í lausasölu 80.00 kr. eintakiS. r i Olðaverðbólgan, sem hér nefur geisað undanfar- in 5 ár, hefur haft margvís- leg neikvæð áhrif á þjóðfé- lag okkar. Hún hefur gert þá ríku ríkari og hina fá- tæku fátækari á sama tíma og-tíðarandinn hefur hvatt til meiri jöfnuðar. Hún hef- ur komið harðast niður á launþegum og lífeyrisþeg- um en verið blómatími verðbólgubraskara, sem margir hafa safnað miklum eignum á þessu tímabili. Hún hefur brenglað verð- mætamat fólks og dregið úr siðferðisþreki þjóðar- innar. En einhver alvarleg- ustu áhrif hennar eru þau, að hún hefur skapað jarð- veg fyrir lýðskrumara. Hitler og Mússólíní komust' til valda í Þýzkalandi og á Ítalíu fyrr á þessari öld vegna þess, að slíkt öng- þveiti og upplausnarástand hafði skapast í löndum þeirra, að almenningur féll fyrir því lýðskrumi, sem þeir höfðu uppi. Hinir ,,sterku“ menn með ein- földu lausnirnar á flóknum vandamálum töluðu upp í eyrun á fólki, sem lagði við hlustir með hinum hörmu- legustu afleiðingum. Á síð- ari tímum höfum við séð fyrirbærið Glistrup skjót- ast upp á stjörnuhimininn í Danmörku og glistrupar hafa einnig komið fram á sjónarsviðið í öðrum ná- lægum löndum, þótt þeir hafi ekki náð sömu fótfestu og í Danmörku. Glistrup boðar einfaldar lausnir. Hann talar eins og fólk vill heyra og hann hefur náð ótrúlega miklu fylgi í Dan- mörku, sem sýnir hversu auðvelt er fyrir lýðskrum- ara að ná til fólks ef til- teknar aðstæður skapast. Við Islendingar eigum engan Glistrup. En öllum er Ijóst, að hér er nú betri jarðvegur fyrir lýðskrum- ara en verið hefur um langt skeið. Þessir lýð- skrumarar láta mikið að sér kveða. Þeir boða ein- faldar og ódýrar lausnir á þeim vandamálum, sem ís- lendingar eiga við aö etja og að sjálfsögðu lausnir, sem engum sársauka valda hjá nokkrum manni. Þeir tala upp í eyrun á fólki á þann veg, sem þeir telja sér henta. Þeir tala eins og vindurinn blæs hverju i sinni. Þeir eru eins og vindhanar, sem sveiflast til eftir vindáttinni. Þeir skrifa í blöð, láta til sín taka í stjórnmálabarátt- unni, ráðast á það, sem fyrir er og slá um sig með einföldum staðhæfingum. Engri þjóð hefur gefizt vel að falla fyrir lýð- skrumurum. Margar hafa gert það með hinum ömur- legustu afleiðingum. En þótt sporin hræði og sagan sýni, að lýðskrumarar eru einskis megnugir, þegar á þá reynir, skjóta þeir samt alltaf upp kollinum, þegar illar árar og erfiðlega gengur. Óðaverðbólgan hér hefur skapað jarðveg fyrir lýðskrumara og þeir eru og hafa verið um skeið hávaðasamir í okkar landi. Fólk þarf að gæta sín á þessum kraftaverkamönn- um. Þeim þarf að vísa á bug. Aukin áhrif þeirra í íslenzku þjóðfélagi mundu hafa slæmar afleiðingar. Þeir geta engan vanda Ieyst, enda eru engin töfra- ráð til að leysa vandamál af því tagi, sem við er að etja í okkar þjóðfélagi. Hver ein- staklingur veit, að í hans eigin fjármálum og fjöl- skyldu hans eru engin töfrabrögð til. Ekki er hægt að eyða meiru en afl- að er án þess að illa fari að lokum. í rekstri fyrirtækja eru heldur engin töfra- brögð til. Stundum skjóta upp kollinum menn, sem sýnast vinna einstök kraftaverk í viðskiptalíf- inu, en það reynist jafnan byggt á sandi, þegar upp er staðið. Með sama hætti eru engin töfraráð til, sem leyst geta viss fjárhags- vandamál íslenzku þjóðar- innar með einu pennastriki. innar með einu penna- striki. Þetta þarf þjóðin að gera sér ljóst. Við þurfum að vísa þeim lýðskrumur- um og vindhönum á bug, sem nú tala upp i eyrun á fólki. Meiri afrek verða að lokum unnin með því starfi, sem unnið er af ábyrgð og sem minnstum hávaða en af þolinmæði og þrautseigju heldur en því sem kraftaverkamennirnir í íslenzkum stjórnmálum boða. Það væri illa farið, ef þeir yrðu leiddir til meiri áhrifa i íslenzkum þjóðmál- um en orðið er. V ísum lýd- skrumurum á bug | Reykjavíkurbréf ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Laugardagur 7. janúar. Fjölmiðlar undir smásjá Fjölmiðlarnir voru undir smá- sjá um áramótin, ekki síður en endranær. Svonefndir leiðtogar stjórnmálaflokkanna létu ýmsir orð um þá falla, voru sum í tíma töluð, og ættu blaða- og frétta- menn að íhuga þau — og þá ekki síður þeir hvítu hrafnar, sem tek- ið hafa að sér ýmiss konar fjöl- miðlunarstörf I hjáverkum, skrif- að greinar sínar þannig, að engu er líkara en enginn hafi tekið sér penna í hönd fyrr í samanlagðri sögu heimsins eða þá með þeim gífuryrðum, að komið hefur óorði á alla blaðamannastéttina, svo að ekki sé nú taiað um þær heimsku- legu spurningar, sem þetta fólk (og ýmsir þeir, sem vinna að stað- aldri að blaðamennsku), leggja fyrir blásaklausa borgara í sjón- varpi og útvarpi í alls konar spurningaþáttum, sem eru að verða eins konar alþýðudómstóll, eða þá fáránlegur farsi vegna vanþekkingar og yfirborðs- mennsku. Margir vilja vera blaðamenn. Og margir þykjast vera blaða- menn eða stunda blaðamennsku, þó að þeir blóti hana einungis á laun, þ.e. í hjáverkum, og lifi á allt öðru. Sumt þetta fólk reynir svo að fleyta rjómann ofan af þvi, sem er hin raunverulega blaða- mennska, því að hún er ekki yfir- borðslegt stundargaman, heldur mikið starf, sem í raun og veru er unnið í hljóði og miðlar þeim upp- lýsingum einum, sem skipta máli og eru byggðar á athugunum og þar með staðreyndum. .Slíkir blaðamenn hreykja sér ekki, því að þeir þurfa ekki að keppa við neinn, eins og segir í Bókinni um veginn. Hinir þurfa að hreykja sér, vegna þess að þeir eru alltaf að keppa við einhvern, og einkum og sér í lagi þá, sem starfa að stjórnmálum. Það hefur því mið- ur ávallt loðað við blaðamennsku hér á landi, að ýmsir hafa einung- is notað hana sem stökkpall til að komast inn á þing, eins og það er kallað, svo eftirsóknarvert sem það nú eí(!) Fæstir þessara þing- maga starfa þó að daglegri blaða- mennsku, vinna að því, sem er kjarni og raunverulegt líf blaða- mennsku, þ.e. að skrifa fréttir; vinna á erfiðum vöktum, fara á blaðamannafundi, sínna ýmiss konar leiðindastörfum, sem þó eru nauðsynlég, afgreiða fólk- kvabb, aðfinnslur o.s.frv. heldur standa þeir utan við allt starf blaðamannsins og koma með „Greinina sína“ með pomp og pragt og keisaralegri viðhöfn, þegar hún er tilbúin, eins og.jóla- sveinninn kemur meó gjafir til saklausra barna rétt fyrir jólin eða setur sælgæti í skóinn. Og svo einn góðan veóurdag tilkynna þessir menn, að þeir hafi ákveðið, eftir að hafa bjargað því sem bjargað varð, að þeir ætli að gefa þjóóinni kost á því að kjósa sig til Alþingis, eða í einhverja aðra virðíngarstöðu; sem sagt: gefa kost á sér(!) Blaðamennska er í raun og veru ekki takmark í sjálfu sér, heldur tæki sern notað er í baráttunni til að ná takmarki; fullnægja metnaði; svala egói. Óþarft ætti að vera að rifja þetta upp, svo augljóst sem það er. Þannig hefur þetta raunar verið við islenzk blöð frá því þau voru stofnuð, enda þótt lesendur megi þakka sínum sæla að blóm- inn af blaðamannastéttinni starf- ar við fjölmiðla sína af alhug og óeigingirni, án kröfu til frægðar eða frama, vinnur mikilvæg störf í kyrrþey og hefur það eitt að markmiði að efla fjölmiðlana, gera hugsjónir blaðamennskunn- ar að veruleika, enda þótt við eigum langt í land í þeim efnum miðað við þá, sem lengst eru komnir, þó að hinu sé ekki að leyna, að íslenzkir blaðalesendur mega vel við blöð sin una, ef þau eru miðuð við dagblöð i miklum meirihluta heims, bæði þar sem hasarblöð svokölluð eða gula pressan eru allsráðandi og einnig — og ekki síður — þar, sem ein- ræði ríkir og einungis eru gefin út eitt eða tvö stjórnarblöð, en þannig er ástandið því miður í öllum kommúnistaríkjum, svo og í einræðislöndum Afríku, mörg- um Suður-Ameríkuríkjum — og þá ekki sízt í Austurlöndum. Hitt er svo annað mál, að góðir blaðamenn vita ekki allt frekar en góðir stjórnmálamenn, enda þótt svo virðist sem til þess sé ætlazt. Og svo er hitt auðvitað rétt, að blöðin fá margar frábærar að- sendar greinar og gætu raunar varla lifað án þeirra. Víð íslenzk blöð hafa éinnig ávallt starfað menn, sem hafa kunnað tök á íslenzku máli og sumir orðið þjóðkunnir fyrir blaðamennsku sína og ritstörf. Allt þetta mætti íhuga í tilefni af því, sem stjórnmálaforingjarn- ir sögðu um fjölmiðla nú um ára- mótin. Og ekki síður hitt, sem markvisst hefur verið gengið fram hjá í umræðum um blaða- mennsku hér á landi: að það var ekki í greinum, sem komið var upp um Watei'gate-hneykslið í Washington Post og New York Times, heldur viðstöðulausum fréttum venjulegra blaðamanna, sem byggðu á haldgóðum heimild- um, en ekki taugaþenslu og hald- lausum fullyrðingum. Þetta kost- aði margra mánaða vinnu, um- ræður, trúnaðartraust og þolgæði, en mikilvægasti þátturinn var e.t.v., aðhald, uppörvun og dóm- greind mikilhæfra ritstjórnar- manna, sem útgefendur gátu bor- ið fullt traust til. Lúðvík og ríkisfjölmiðlarnir Hér I Morgunblaðinu gerði Lúð- vík Jósepsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, harða atlögu að is- lenzkum ríkisfjölmiðlum og hefur hún vakið mikla athygli, svo berorður og hvassyrtur sem hann var. Enda þótt Morgunblaðið hafi enga aðstöðu til þess aó óathug- uðu máli, að taka undir fullyrð- ingar formannsins var auðvitað ástæða til að koma þeim á fram- færi og ekki síður að benda sér- staklega á þau — og verður það nú gert. I áramótagrein sinni í Þjóðvilj- anum minntist Lúðvík Jósepsson að vísu ekki á þetta. Þar fjallaði hann að venju um alls kyns stjórnmálabasl og efnahagsmál og gerði augljósustu tilraun sína fram að þessu til að gera sem minnst úr útfærslunni i 200 míl- ur, en fjallaði þeim mun meira um allar útfærslur aðrar, og er raunar engu líkara en þessi síð- asti sigur okkar í sjálfstæðisbar- áttunni sé einhvers konar tabú eða pólitísk lungpaþemba í brjóst- holi formanns Alþýðubandalags- ins. En látum það vera svo augljóst sem það er og svo oft sem það hefur raunar komið I ljós. Menn vita um þessa afstöðu Lúðvíks Jósepssonar og það er nóg; a.m.k. er hún staðfésting á því, að út- færslan í 200 mílur er ekki verk Lúðvíks. En hvað sagði hann í Morgun- blaðsgrein sinni um ríkisfjölmiðl- ana? Hann sagði: „Hlutverk fjöl-. miðla er vissulega mikið. Notkun þeirra er hins vegar misjöfn. í blöðum hér á landi er óhugn- anlega mikið um óstaðfestar slúð- urfréttir og rangar og villandi upplýsingar. Ríkisfjölmiðlal-nir bera á sér yfirskin hlutleysis, en i þeim eru fréttir matreiddar eftir mati nokkurra manna og vissar fréttir valdar, en aðrár látnar liggja. Um fiesta islenzka fjölmiðla er þó margt hægt að segja þeim til lofs. Fjölmiðlunum verður að taka með varúð og mikil þörf væri á, að almenningur lærði að meta frá- sagnir þeirra og velja það úr, sem er rétt og satt, en kasta hinu, sem er augljóslega ósannað eða vafa- samt.“ Sumt af því, sem Lúðvík Jóseps- son segir hér er íhugunarefni, enda hefur það við rök að styðj- ast. Við þurfum og eigum að vanda fréttir og byggja upplýsing- ar á staðreyndum og haldgóðum heimildum, svo að fréttirnar verði ekki villandi upplýsingar, eins og Lúðvík segir né slúðurfréttir eins og of oft vill brenna við, ekki sizt í hans eigin blaði og ekki siður því blaði, sem einna helzt kennir sig við „frjálsa blaðamennsku'? Adrepa Lúðvíks Jósepssonar er þvi í senn íhugunar- og umtals- verð og á fullan rétt á sér. Blaðamenn — og er þá átt við þá, sem er annt um blöð sín og lifsstarf, en ekki hina, sem nota blöðin til að komast i „væntan- Iegt“ lifsstarf í hinni irðulegu íslenzku pólitík — æti' að taka höndum saman og reka af sér slyðruorðið. En það gera þeir éin- ungis með betri vinnubrögðum, fordómaleysi og löngun til að hafa áhrif á réttum forsendum, en ekki með óskhyggju einni saman.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.