Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978 3 Bhutto (lengst til hægri) og sonur hans (lengst til vinstri) ræðast við skömmu áður en Bhutto var handtekinn. Þar styðja eigin- konurnar menn sína í stjórnmála- baráttunni A síðastliðnu sumri tók her- inn völdin í sinar hendur i Pakistan. Síðan hefur mikil ringulreið ríkt í stjórnmálum landsins, þvi margir stjórn- málaflokkar eru við lýði og eru þeir flestir grundvallaðir á per- sónufylgi formanns þeirra. Eitt atriði hefur þó vakið furðu þeirra er fylgzt hafa með stjórnmálum i Pakistan, sam- staða fjölskyldna einstakra stjórnmálamanna. Þessa stundina situr forsætis- ráðherrann fyrrverandi og for- maður þjóðarflokksins (PPP), Zulfikar AIi Bhutto, í fangelsi, sakaður um að hafa myrt nokkra stjórnmálaandstæðinga sína. Kona Bhuttos tók upp merki manns sins fljótlega eftir að hann var handtekinn, og hefur hún að undanförnu haft sig mjög í frammi í stjórnmál- um, og sömu sögu er að segja um dóttur þeirra hjóna. En al- menningur og stjórn landsins hafa ekki tekið þeim afskiptum mæðgnanna þegjandi og hljóð- laust, og hafa þær mátt þola ýmislegt fyrir afskipti sín. Dótt- urinni, Benazir, var haldið í stofufangelsi á heimili sínu í nokkra daga, og móður hennar, Begum Nusrat Bhutto, var ráð- lagt að hætta öllum opinberum ræðuhöldum, eða hún hefði verra af. En það er ekki ný bóla að gripið sé til róttækra aðgerða til að þagga niður í stjórnmála- mönnum í Pakistan. Fyrir þremur árum lét Bhutto, sem þá fór með völd, handtaka helzta stjórnmálaandstæðing sinn, Khan Abdul Walis Khan, og sakaði hann um landráð. í þrjú ár sat Wali Khan í fang- elsi, en var nýlega látinn laus gegn tryggingu. Meðan hann sat i fangelsi hellti kona hans sér út í stjórnmál og jók eigin hróður og manns síns mjög með þeim afskiptum. Avöxtur starfs hennar kom berlega i Ijós fyrstu dagana sem Wali Khan dvaldi heima eftir fangelsisvistina. Vinir hans og kunningjar streymdu til hans hvaðanæva að og vildu þannig votta honum stuðning sinn og hollustu. Fjölskylda Wali Khans er rót- gróin í stjórnmálum og hefur hún haft sig mikið í frammi á því sviði undanfarna hálfa öld. Faðir Wali Khans, Khan Abdul Ghaffar Khan, sem nú er 85 ára gamall, sat í fangelsi í 40 ár fyrir stjórnmálaskoðanir sinar, og tvítugur sonur Wali Khans var nýlega handtekinn fyrir að eiga hlutdeild að sprengjutil- ræði, sem varð fylkisráðherra að bana. Mál það hefur nú að mestu verið fellt niður, en þó er sonurinn enn sakaður um morðið á ráðherranum. „Skæruliði frá fjöllumun“ Bhutto lýsti Wali Khan eitt sinn sem skæruliða frá fjöllun- um (fjallahéruðunum á norður- hluta Pakistans). ,,Ég sjálfur er . skæruliði frá eyðimörkinni" (svæðið I kringum Sind í suður- hluta landsins). „Timinn mun skera úr um hvor okkar hefur betur.“ Þegar Bhutto lét þessi orð falla var hann forsætisráð- herra en Wali Khan Ieiðtogi stjórnarandstöðunnar. Síðan hefur mikið vatn runn- ið til sjávar og margt farið á annan veg en Bhutto ætlaði, hann sjálfur situr í fangelsi en Wali Khan gengur laus. Þrátt fyrir að Wali Khan hafi nú ákjósanlegt tækifæri til að ásaka Bhutto og fara hörðum orðum um stjórnarferil hans, hefur hann hingað til haldið sig á mottunni og beðið átekta. „Baráttan nú stendur á milli Bhuttos og herstjórnarinnar, sem nú fer með völd,“ segir hann. „Við getum látið fara vel um okkur og fylgzt með fram- gangi þeirrar baráttu úr f jarska.“ Wali Khan er alls ekki blind- aður af hatri í afstöðu sinni til Bhutto. í augum hans Var Bhutto einræðisherra og máli sinu til stuðnings bendir hann á réttarhöldin gegn Bhutto sem nú fara fram. Bhutto er ásakað- ur um að hafa fyrirskipað morð i stjórnmálalégum tilgangi og „fyrir þær fyrirskipanir mun hann verða hengdur." í Pakistan er Múhameðstrú ríkjandi. Konur og karlar eru aðskilin á opinberum stöðum og allar konur bera slæðu fyrir andliti sínu ef þær fara út fyrir heimili sitt. Þessar venjur hafa eiginkonur Bhuttos og Wali Khans margbrotið og af þeim sökum hefur eiginkona hins síðarnefnda dregið sig út úr stjórnmálum í bili. En það er ekki aðeins trúrækni og al- menningsálitið sem hefur haft áhrif á þá ákvörðun hennar. Henni finnst að vegna þess að eiginmaður hennar hefur nú verið látinn laus, sé komið að honum að standa í sviðsljósinu, það muni styrkja stöðu hans og þjappa stuðningsmönnum hans betur saman. Wali Khan hefur persónulega ekkert á móti þvi að kona hans taki þátt í stjórn- málum og er hann var spurður fyrir skömmu um framtið henn- ar í stjórnmálum svaraói hann á gáskafullan hátt: „Þið ættuð frekar að spyrja frúna sjálfir," Framhald á bls. 46 Með ÚTSÝN tilannarra landa “N Spánn Costa del Sol Marz: 22 Apr.: 2.. 23 Mai: 14. Júni: 4., 25. Júli: 9.23., 30. Ágúst: 6., 13.. 20.27. Sept : 3.. 10.. 17.. 24 Okt : 8.29 Spánn Costa Brava Júni: 2,23. Júli: 14. Ágúst: 4,18. Sept.: 1. IJDGOÖLÁVID Pantið réttu ferðina tímanlega! Öryggi - Þægindi - Þjónusta II AUSTURSTRÆTI 17, II. SIMAR 26611 OG 20100 Grikkland Vouliagmeni Mai: 13. Júni: 1.. 22. Júli: 6.. 27. Ágúst: 10., 24. Sept.: 14. Júgóslavía Portoroz/ Porec Júni: 9., 30. Júlí: 13. Ágúst: 3„ 1 7. Sept.: 7.J 0 Italía Lignano Mai: 13. Júni: 1. 22. Júli: 6., 13.. 20.. 27. Ágúst: 3.. 10.. 17.. 24.. 31. Sept: 7.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.