Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.01.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978 VERÖLD MISHEPPNUÐ KRYNING k •-' í L íí fr 1 • ? nii Geispar, kylfur og svipuólar ÞAÐ varí fréttum fyrir stuttu, að Jean-Bedel Bokassa, þjóðhöfðingi Miðafríska lýðveldisins lét krýna sig keisara með pompi og pragt. Breytti hann þá nafni ríkisins að sjálfsögðu um leið og heitir það nú Miðafríska keisaradæmið. Til þess var tekið um heim allan, að krýningarathöfnin og veizluhöld- in kostuðu morð fjár —jafnvirði 27 milljóna dollara (5.7 milljarða ísl. kr.), en meðaltekjur í landinu nema u.þ.b. 106 dollurum (u.þ.b. 23 þús. kr.) á ári... En þvi er þetta rifjað upp, að Bokassa hafði gert ráðstafanir til þess, að dyrð hans færi sem víðast og boðið heim ótöldum frétta- mönnum. M.a. veitti hann franskri sjónvarpsstöð einkarétt á sjónvarpsefni um krýningarat- höfnina. Nú var hann að fá sjón- varpsmyndina á dögunum og brá illilega i brún. Hann hafði efnt til íburðarmikils samsætis, er hon- um barst myndin og var þar saman komin öll fjölskylda hans, riríkisstjórnin og ráðgjafar. Þegar skammt var liðið á mynd- ina tók Bokassa að gerast ófrýnn í framan og mun hafa verið orðinn allískyggilegur um það bil er henni lauk. Það var nefnilega greinilegt af myndinni, að sjón- varpsmenn voru gersamlega virðingar- og ábyrgðarlausir; krýningarathöfnin hafði alls ekki vakið þeim þá lotningu, sem til var ætlazt. Á einum stað í myndinni sést greinilega, að tveggja og hálfs árs gamall sonur og alnafni keisarans geispar undir athöfninni — „að því er virðist af leiðindum“, eins og segir í fregnum. Á öðrum stað geispar einn lífvörður keisarans Bokassa er 35 barna faðir. Er sonur hans, sá er leyfði sér að geispa, næstyngstur þeirra systkina. Faðir hans tók hann þó fram yfir eldri bæður hans og vildi gera hann að krónprinsi og síðan keisara eftir sig. Drengur- inn var skrýddur gullilögðum her- foringjabúningi og saumað var handa honum dálítið hers- höfðingajahöfuðfat. Hann var svo settur við hlið föður sínum við athöfnina. En barnið skildi ekki heiðurinn og ábyrgðina, sem hon- um höfðu hlotnazt. . . Það er von að Bokassa sé illur. Hann hafði , eins og áður sagði, veitt sjónvarpsstöðinni frönsku einkarétt til kvikmyndatöku og jafnvel látið reka úr landi sjón- 0FS0KNIR „Miklir atburðir krefjast mikilla fórna,“ er haft eftir Bokassa i sambandi við krýningu hans. Sá „mikli atburður" kostaði raunar drjúgan skilding: allt að fjórðung árstekna allra þegna keisarans að sumir ætla. Og keisaradæmið nýja er eitt af snauðustu ríkjum Afríku! varpsmenn frá annarri stöð franskri, sem komnir voru í von um gott efni. Svo launuðu djöflar honum greiðann svona. Ymist tóku þeir myndir af geispandi prinsum og lifvörðum ellegar þeir mynduðu hina keisaralegu lög- reglu einmitt þegar hún var að berja á hátíðargestum með kylf- um og svipuólum. Reyndar launuðu fleiri Bokassa heimboðið illa en frönsku sjón- varpsmennirnir. Hann hafði boðið mörgum hundruðum frétta- manna og bjó vel að þeim, enda var honum áfram um það, að fréttaflutningur gengi sem greið- legast. En fréttamönnunum var vel kunnugt, að keisarinn hafði nýlega látið misþyrma einum starfsbræðra þeirra og halda föngnum í mánuð fyrir frétt, sem honum þótti ekki nógu lotningar- full og þorðu þeir því ekki að segja hug sinn i fréttaskeytum heim. Enda þóttu fregnir þeirra heldur þunnur þrettándi utan lands. En þeir bættu fyrir það, þegar heim kom. — IAN MATHER. Ritlist- in og ráðamenn- irnir Bandarikjadeild P.E.N.- klúbbsins, þ e. alþjóðlegs sam- bands rithöfunda, gaf nýlega út, að lokinni víðtækri könnun, lista með nöfnum 606 rithöf- unda, ritstjóra og annarra blaðamanna, þýðenda og „annarra andans manna”, sem höfðu verið „fangelsaðir, settir á bannlista, dæmdir eða þeim rænt" Það kemur í Ijós á listan- um, að Argentinustjórn er dug- legust i baráttunni gegn andansmönnum; hún hefur hneppt 119 rithöfunda í fang- elsi eða ofsótt þá með einhverj- um hætti. Sovétstjórnin er næstötulust, hún hefur ráðið niðurlögum 78 Chilestjórn er hin þriðja i röðinni. Hún hefur þaggað niður í 57. Bandaríkin komast á þennan lista: þar hafa I I H I I I I ■■■■■■■■■■— Mennirnir sem varðveita „hreinleik byltingarinnarJ 9 Hinn 20. desember var haldið upp á merkisafmæli góðkunns fyrirtækis í Sovétríkjunum: sovézka leyniþjónustan, KGB, varð 60 ára. Fengu starfsmenn viðurkenningar- og heillaóskar- skeyti frá Brezhnev af því tilefni, svo og vodka og kavíar eins og hver gat í sig látið. Þetta var reyndar ekki eina merkisafmælið í þeirri stofnun á síðasta ári. Þá voru hundrað ár liðin frá fæðingu fyrsta yfirmanns leyniþjónust- unnar, Felix Dzerzhinsky, og svo voru tíu ár liðin frá því, að núver- andi yfirmaður, Vuri Andropov, komst til valda. Andropov hefur verið yfirmað- ur leyniþjónustunnar lengur en nokkur annar; hann var skipaður í embættið árið 1967. Dzerzhinsky stjórnaði leyniþjónustunni frá 1917 til dauðadags, árið 1926. Þessir tveir menn áttu heldur ólíkan feril að baki, er þeir tóku við embættinu. En báðir höfðu hlotið góða þjálfun og voru vel undir starfið búnir. Og báðir voru þeir „fyrirmyndarleyniþjónustu- menn“. Dzerzhinsky hafði tekið virkan þátt í byltingunni. Hann hafði verið handtekinn og fangelsaður nokkrum sinnum í stjórnartíð Nikulásar II. Dzerzhinsky var gerður yfirmaður lcyniþjónust- unnar vegna ýmissa hæfileika, sem heppilegir þóttu til þess starfa, en e.t.v. einkum þess, hve hann þótti heiðarlegur. (Hann var stundum nefndur viðurnefn- inu ,,Dýrlingurinn“). Það þótti nefnilega þurfa sérstaklega heiðarlegan og trúverðugan mann í „skítverk bylt-ingarinn- ar“. Auk þess var hann framtaks- samur og duglegur með afbrigð- um. Það fór reyndar fljótlega af honum Ijóminn; hann gerðist miskunnarlaus og illskeyttur og það var í valdatíð hans, að „bylt- ingin fór að éta börnin sín“. YURI ANDROPOV — Hann er jafnvel valdameiri en „Dýrlingur- inn“ Stuttu eftir, að hann tók við starfi komst hann svo að orði við frétta- mann, að „ógnarstjórn væri óhjákvæmileg á byltingartím- um... Það yrði að verja bylting- una með öllum tiltækum ráðum og yrði þá að hafa það, þótt sak- lausir menn yrðu stundum hart úti og misstu jafnvel lífið“. t valdatíð hans voru tugir þúsunda manna líflátnir. Stalín kunni vitanlega vel að meta þennan dugnað, enda urðu þeir miklir vinir, hann og Dzerzhinsky. Á síð- ari árum hafa sovézkir sagnfræð- ingar lagt sig í líma við að fegra minningu Dzerzhinskys og ritað langt mál um hjartagæzku hans, hreinlyndi, tilfinninganæmi og tillitssemi... Andropov, sem nú ríkir yfir KGB (leyniþjónustan hefur reyndar breytt nokkrum sinnum um nafn), er sennilega valda- meiri en nokkur forvera hans. Hann hefur yfirumsjón með öll- um öryggismálum, njósnum og gagnnjósnum innan lands auk njósnastarfsemi utan lands. Og þar er í mörg horn að líta, og fleiri en ætla mætti í fljótu bragði. Mér kemur það í hug er ég spurði mongólskan kommúnista (hann var sauðtryggur sínum flokki) hvort sovézkir njósnarar fylgdust með sendiráðinu. „Nei,“ svaraði hann, „þeir mega ekki vera að því. Þeir eru svo önnum kafnir að njósna hver um annan!“ Leyniþjónustan hefur breytt nokkuð um „stíl“ og hlutverk í tíð Andropovs. Nú virðist það vera orðið eitt hennar helzta hlutverk að varðveita „hreinleik byltingar- innar“ og treysta orðstír hennar innan lands og utan. Aðferðirnar eru breyttar frá því forðum, þær eru ekki eins grófar núna. Auk þess er leyniþjónustan nú orðin viðurkennd ef svo má segia; hún er ekki lengur nein felustofnun, heldur orðin eins og hver önnur stjórnarstofnun. Og sézt það e.t.v. bezt af því, að Andropov, yfirmað- ur hennar, situr í stjórnmálaráð- inu ásamt með hinum landsfeðr- unum. — MICHAEL SIMMONDS. sex rithöfundar eða útgefendur verið dæmdir og fangelsaðir, þar af nokkrir fyrir klám. Og listinn styttist varla fyrst um sinn. í síðasta tölublaði timarits um ritskoðun, sem út kemur i Bretlandi og Bandaríkj- unum er opið bréf frá Rodolfo Walsh, þekktum argentínskum blaðamanni Walsh hafði dreift bréfi sínu i óþökk argentinskra stjórnvalda. í þvi er rætt um ritskoðun blaða, ofsóknir á hendur menntamönnum, hús- leitir og jafnvel morð Walsh var „gerður upptækur" fyrir vikið, þ.e. lögreglan rændi honum. Hann er talinn vera i fangelsi -— einhvers staðar. Ekkert hefuraf honum frétzt ÚTLAGAR Egyptar sjá eftir Gyðingunum Það hefur senriilega fæstum dottið í hug yfir fréttum af við- skiptum Egypta og ísraelsmanna á undanförnum áratugum, að til eru egypzkir Gyðingar og þeir tugír þúsunda. Að vísu hafa þeir flestir verið lengi að heiman, sumir í þrjá áratugi og er það næsta skiljanlegt. En nú hyggst egypzka stjórnin fara að bjóða þessu fólki að snúa heim aftur. Öðru vísi oss áöur brá. Þegar Israelsríki var stofnað, árið 1948, voru Gyðingar i Egypta- landi ein 67 þúsund talsins. En eftir stofnun ísraelsríkis varð þeim illa vært og sáu flestir þann kost vænstan að flýja land, en sumir voru reknir í útlegð. Fóru margir til Israels, aðrir fluttust til Evrópu. Síðast voru eftir í Egyptalandi 500 hræður, og flest það fólk komið yfir sextugt. Þrátt fyrir þetta munu flestir Egyptar þeirrar skoðunar, að Gyð- ingahatur hafi aldrei verið land- lægt í Egyptalandi. Hafa þeir reyndar ýmis einstök dæmi máli sínu stil stuðnings; til að mynda er utanrikisráðherra Egyptá-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.