Morgunblaðið - 08.01.1978, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978
Þórir S. GUÓbergsson
Rúna Gfslatfóttir
Taktu fjöðrina úr þvotta-
klemmu. Leggðu sléttu hliðar
hennar hvora að annarri og
settu fjoðrina á aftur, þannig
að gormurinn A liggi ( rauf-
inni B. Vængur er gerður úr
pappa eða þunnum spæni
(8—10 cm) og llmdur á eins
og sýnt er á myndinni. Stél er
gert á sama hátt. Hjól má
gera úr pappa eða tveimur
tolum með gati I miðju, og
slðan eru þau sett á vlr eða
tága-bút. sem stungið er
gegnum gorminn.
Ef flugvélin þin á að vera
sjóflugvél, skaltu gera skiði á
hana úr korktappa og lima
þau á. Hreyfillinn er sniðinn
úr þykku plasti (t.d. loki af
mysingsdós), tituprjóni
stungið gegnum hann og i
flugvélina fremst.
Chaplin
Hann vaggar eftir götunni, út-
skeifur og í hlægilega víðum bux-
um. Smávaxinn, einkennilegur
maður með of lítinn hatt, yfir-
varaskegg sem helst minnir á rak-
kúst. Og hann er í ótrúlega stór-
um skóm. Hann sveiflar lipurlega
stuttum stafnum, sem virðist
þurfa að krækja alls staðar í.
Þekkir þú hann?
Flest okkar hafa víst séð
Chaplin í kvikmynd eða í sjón-
varpi. Milljónir manna hafa gegn-
um árun, hlegið og grátið á meðan
þær hafa fylgst með aðgerðum
broslega litla mannsins, sem
hefur svó gott hjartalag, en flæ)c-
ist inn í alls konar óþægilegar
aðstæður.
Chaplin hefur skrifað bók
undir nafninu: Frá betlara til
dollaramilljónamærings, og þessi
bókartitill segir ævisögu hans í
hnotskurn. Chaplin lærði
snemma hvað neyð og fátækt var,
og helstu bernskuminningar hans
eru baráttagegn sultinum.
Arið 1889 gerðist tvennt merki-
legt. Annað var fæðing Chaplins,
hitt var uppgötvun Thomas
Edison á vél, sem síðar átti eftir
að þróast í það tæki, sem gerði
Chaplin heimsfrægan, kvik-
myndavélina.
En drengurinn litli, sem ólst
upp í fátækrahverfi London,
hafði ekki neina hugmynd um, að
til væri eitthvað, sem héti hreyf-
anlegar myndir. En hann fór að
koma fram og skemmta frá því að
hann var smádrengur, þrátt fyrir
það. I fyrstu skemmti hann helst
nágrönnum með gamansemi
sinni, fólki, sem var jafn fátækt
og hann sjálfur. Og það skemmti
sér mjög vel, þegar Charlie hélt
sýningar í bakgörðum eða port-
um. Hann hafði eindæma hæfi-
leika til að líkja eftir mönnum, og
nágrannarnir öskruðu af hlátri
þegar hann lék bakarann á horn-
inu, hjólbeinótta öskukarlinn eða
svipstrangan húseigandann, þeg-
ar hann kom að innheimta húsa-
leiguna.
En meginhluta tíma sins varði
Charlie til að reyna að vinna sér
inn nokkrar krónur. Hann bjó
með móður sinni og bróður í lé-
legu, litlu herbergi. Móðirin var
oft veik, og Charlie var ekki gam-
all þegar hann fór að fá sér vinnu
sem sendill eða blaðasöludrengur
eða eitthvað annað ámóta.
Vegna óvenjulegra hæfileika
sinna sem leikari, trúður og dans-
ari fékk Charlie þegar fyrir átta
ára afmælið fyrsta hlutverk sitt
— mjög lítið reyndar — í revíu-
leikhúsi. Hann varð að láta sér
nægja örfáar krónur að launum,
en hann var kominn á þá braut,
sem átti eftir að færa honum
mikla frægð. Og leiðin til ame-
rísku kvikmyndaborgarinnar
Hollywood, þar sem hann lék i
fyrstu kvikmyndinni 1914, varð
bæði löng og þyrnótt. Chaplin —
eins og við þekkjum hann — fór
að myndast smátt og smátt, og
fólki fór að þykja vænt um litla
manninn og vildi sjá hann aftur
og aftur. Chaplin var þrældugleg-
ur og kastaði sér út í verkefnin af
lífi og sál. Auk þess sem hann lék
aðalhlutverkin, skrifaði hann
sjálfur líka handritin fyrir mynd-
irnar, og hann valdi og stjórnaði
hinum leikurunum. Hlægilega
litla Chaplin-veran vaggaði inn í
hug og hjörtu allra, og hver
myndin á fætur annarri birtist á
hvíta tjaldinu.
Efni myndanna fjallaði oft um
fólk, sem varð undir í lífsbarátt-
unni. í einni þeirra segir Chaplin
sögu sinnar eigin bernsku, lýsir
árunum í fátækrahverfi London,
en þau voru honum enn í fersku
minni, þó að hann ætti nú þá
peninga, sem hann þurfti og rúm-
lega það.
Nú er Chaplin látinn. Hann dó á
Keramikverkstæði til sölu
Til sölu er eitt elsta starfandi fyrirtæki í keramik-
iðnaði hér á landi
Nánari upplýsingar gefnar í síma 19645 og
eftir kl. 5 í síma 342 1 5.
HLJODKUTAR,-
NÝKOMIN SENDING.
SERHANNAÐIR. MINNI
MOTSTADA - SPARAR BENZIN.
® (fflwnaust kf
8-27-22 SÍÐUMÚLI 7-9
Iþróttafélag
kvenna
Leikfimi hefst mánudaginn
9. janúar kl. 6.50 i Austur-
bæjarskóla.
Rytmisk, afslöppunar- og
þjálfunarleikfimi
Kennt verður tvisvar i viku á
mánudögum og fimmtudög-
um.
Kennari Thedóra Emilsdóttir,
Innritun í síma 14087, og
29056
Morgunblaðið óskar
eftir blaðburðarfólki
VESTURBÆR
Reynimelur 1—56
Neshagi, Ægissíða,
Hjarðarhagi frá 1 1 —42.
AUSTURBÆ R
Miðtún, Sóleyjargata
Ingólfsstræti, Samtún.
Lindargata, Hverfisgata 4—62
Skipholt 54 —70.
Hverfisgata 63— 1 25
Upplýsingar í síma 35408