Morgunblaðið - 08.01.1978, Síða 48
Utihurðir, svalahurðir,
bílskúrshurðir
Útihurðir
Dalshrauni 9, sími 54595.
Hafnarfirði.
AUGLÝSINÍiASÍMINN ER:
22480
JWorcnnblabtb
SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978
Höfrungur II
strandaði
við Grindavík
Grindavík, 7. janúar.
ÞEGAR vélbáturinn Höfrungur
II GK 27 var að fara I róður
snemma f morgun vildi það óhapp
til að sjálfstýring bátsins bilaði,
þegar hann var staddur f innsigl-
irigarrennunni að höfninni hér í
; v * n* » * «
Skíðalyft-
urnar í
gang í dag
SKÍÐALYFTURNAR i Blá-
fjöllum og Hveradölum verða
opnar klukkan 10—18 i dag.
Nægur skiðasnjór er á báðum
stöðunum og í gær naut mikill
fjöldi fólks útiverunnar þar.
Grindavfk. Skipti engum togum
að báturinn beygði hart á bak-
borða og strandaði.
Á Höfrungi II eru 10 menn og
sakaði engan þeirra. Sumir héldu
kyrru fyrir í bátnum en aðrir
gengu á land þurrum fótum. Flóð
var þegar báturinn strandaði í
morgun og á að gera tilraun til
þess að ná honum á flot á síðdeg-
isflóði í dag með aðstoð björg-
unarskipsins Goðans. Talið ér að
báturinn sé sáralitið skemmdur.
Höfrungur II er 179 tonna stál-
bátur, smíðaður í Noregi 1957.
Eigandi er Hópsnes hf. í Grinda-
vik. Báturinn er á netum.
— Guðfinnur.
Ilöfrungur II á strandstað í gærmorgun.
Ljósm. Mbl. Guófinnur Bergsson.
Hræringar við Kröflu:
Enn hleypur kvika
í átt til Giástykkis
SAMFELLD skjálftavirkni og
hægt landssig var f gærmorgun
við Kröflu og þegar Morgunblaðið
fór f prentun f gærdag, var allt f
óvissu um það hverja stefnu þessi
eldvirni tæki. Vfsindamenn töldu
þá að kvikuhlaup gengi f norður f
átt til Gjástykkis, en að ekki væri
Utanríkisráðuneytið:
Munumbenda sendi-
ráðinu á ólög-
mæti útgáfunnar
VIÐ munum á mánudag hafa
samband við sendiráð Sovétrfkj-
anna og benda þeim á að blaðaút-
gáfa Novosty-fréttastofunnar
samrýmist ekki lögum um prent-
rétt á lslandi, sagði Hendrik Sv.
Björnsson ráðuneytisstjóri f utan-
rfkisráðuneytinu f samtali við
Mbl. f gær f sambandi við umsögn
dómsmálaáðuneytisins, þar sem
fram kemur að útgáfa „Frétta frá
Sovétríkjunum", sem Novosty-
fréttastofan gefur út hér á landi
með erlendum ritstjóra samrým-
ist ekki lögum um prentrétt, en f
þeim lögum kveður svo á að ekki
megi gefa út blað hér á landi
nema af innlendum aðilum með
innlendan ritstjóra og ábyrgðar
mann.
Þá var Hendrik Sv. Björnsson
að því spurður hvort hann teldi að
til þess kæmi að útgáfa blaðsins
Framhald á bls. 46.
samt um eins mikið kvikumagn
að ræða og áður. Hins vegar virt-
ist sem hlaupið væri stöðugra.
Einhvern tfma kemur að þvf að
meiri kvika kemst ekki norður og
þá er spurning, hvert hún fer —
eins og fram kom f viðtali Mbl. f
gær við Pál Einarsson jarðeðlis-
fræðing. 1 gær biðu menn átekta
til þess að sjá hver þróun eld-
virkninnaryrði.
Siðdegis i fyrradag byrjaði
hægt landsig á Kröflusvæðinu og
hélt það svo áfram fram eftir
nóttu. Um klukkan 06.30 í gær-
morgun fór hraði sigsins hins
vegar að aukast og um kiukkan
07.30 hófst stöðugur órói á
skjálftamælunum. Færðist hann
fyrst f stað í aukana nokkuð hratt,
en hætti sfðan að vaxa og var
nokkuð stöðugur fram á siðdegið í
gær. Síðast, þegar Morgunblaðið
hafði samband norður á Kröflu og
ræddi við Pál Einarsson, taldi
hann að öriítið hefði dregið úr
óróanum, en hvað siíkt boðaði
vildi hann ekkert segja um.
Páll Einarsson sagði að með
þessum óróa fylgdu nokkrir stórir
skjálftar annað slagið, sem virtust
eiga upptök f norðurhluta Kröflu-
öskjunnar eða jafnvel norðan við
hana. Benti það til kvikuhlaups í
norðurátt, í átt til Gjástykkis.
Morgunblaðið spurði Pál, hvort
unnt væri að gera sér nokkra
Samið við fhigvirkja
Viðræður standa yfir við flugfreyjur
en eru ekki hafnar við flugmenn
SAMNINGAR hafa verið undir-
ritaðir -við flugvirkja og flugvél-
stjóra, en viðræður standa enn
yfir við flugfreyjur. Hins vegar
hafa viðræður enn ekki hafizt við
flugmenn, hvorki FlA, sem sem-
ur fyrir flugmenn Flugfélags ts-
lands né Félag I.oftleiðaflug-
manna, sem semur fyrir flug-
menn Loftleiða. Hinn nýi kjara-
samningur Flugvirkjafélags Is-
lands og Flugleiða gildir frá 1.
desember 1977 til 1. febrúar 1979.
Umsamdar hækkanir eru hinar
sömu hlutfallslega og um samdist
milli ASt og VSl f sumar, að
metnum þeim hækkunum sem
eldri samningur fól I sér fram að
15. október.
Samningar flugvirkja runnu út
í október síðastliðnum, en nýju
samningarnir voru undirritaðir á
Þorláksmessu, 23. desember.
Samningarnir voru gerðír án
milligöngu sáttasemjara ríkisins.
Þá standa enn yfir viðræður við
fiugfreyjur. Hefur málinu enn
ekki verið vísað til sáttasemjara.
Viðræður við flugmenn eru enn
ekki hafnar en FlA hefur þegar
lagt fram kröfur sinar. Félag ís-
lenzkra atvinnuflugmanna semur
fyrir flugmenn Flugfélags Is-
lands, en Félag Loftleiðaflug-
manna fyrir flugmenn Loftleiða.
Þá má geta þess að i sambandi
við Afrikuflug Flugleiða var sér-
staklega samið við Loftleiðaflug-
menn, en aðalkjarasamningur er
enn Iaus eins og áður er sagt.
grein fyrir þvi, hve mikið magn
gæti enn gengið í Gjástykki eða i
átt til þess. „Það er nú það, sem
ekki er gott að segja til um, en
auðvitað minnka líkur á að enn
hlaupi þangað kvika i hvert sinn“,
sagði Páll og bætti þvi við að
landssigið væri nú heldur hægara
en áður og þvi ljóst að kviku-
streymið væri ekki eins mikið og
áður, en það virtist vera talsvert
stöðugra. Sjaldan áður hefur óró-
inn verið svo jafn.
Páll kvaðst ekki hafa frétt neitt
af sýnilegum ummerkjabreyting-
um á svæðinu eða næsta ná-
grenni. Hann kvað mikla gufu í
Bjarnarflagi og í raun erfitt að
bera það saman frá einum tíma til
annars. Páll kvað verða hugað
gaumgæfilega að öllum breyting-
um nyrðra nú um helgina. Enn
væri mesta virknin þarna nyrzt á
svæðinu og hefði hún ekki færzt
nær byggðinni.
Fátt fólk er nú á Kröflusvæð-
inu, þar eru aðeins vélstjórar á
vakt — og var það raunar frá
þeim, sem tilkynningar komu um
landssig, en þeir lesa á hallamæla
í stöðvarhúsi gufuvirkjunarinnar.
I Kröflu og við Mývatn var í gær
10 stiga frost, en bjartviðri.
Þrettándinn í Hafnarfirði:
40 lögreglumenn
voru við öllu búnir
LÖGREGLAN I Hafnarfirði hafði
mikinn viðbúnað I fyrrakvöld, þvf
ólæti* unglinga á þréttándanum
hefur verið mikið vandamál I
þeim bæ um árabil. Er þess
skemmmst að minnast að á þrett-
ándanum I fyrra brutu ungling-
arnir 60—70 rúður I Ráðhúsi
Hafnarf jarðar.
I fyrrakvöld fékk Hafnarfjárð-
arlögreglan liðsauka úr Reykja-
vík og voru alls 40 lögregluþjónar
í viðbragðsstöðu og höfðu þeir til
taks 5 lögreglubíla. Um hálfell-
efuleytið hafði hópur ungmenna
safnast fyrir á Strandgötu, bæði
unglingar úr bænum og aðrir,
sem komnir voru fyrir forvitnis-
sakir. Lögreglan kallaði til ungl-
inganna í gegnum gjallarhorn og
bað þá að hverfa af götunni. Sum-
ir sinntu því en aðrir ekki og eftir
örfáar mfnútur lét lögreglan til
skarar skríða. Hún tók í sína
vörzlu tugi unglinga, flutti þá upp
á Hvaleyrarholt og síðan hafði
hún samband við foreldra ung-
mennanna og bað þá að sækja
börn sfn.
Árangurinn af þessum fyrir-
byggjandi aðgerðum lögreglunn-
ar varð sá að aðeins ein rúða var
brotin i Hafnarfirði þetta kvöld, í
Kaupfélaginu, sem aldrei hefur
sloppið við rúðubrot þau ár, sem
óspektir hafa verið í bænum á
þrettándanum.
Leitaði á
stúlkur
UM NlULEYTIÐ á föstudags-
kvöld komu tvær ungar stúlk-
ur á miðborgarstöð lögregl-
unnar i Reykjavik og kærðu
mann nokkurn fyrir að hafa
leitað á þær. Höfðu stúlkurnar
fyrr um kvöldið þegið bílfar
hjá manni, sem þær þekktu
ekki. Ók maðurinn með stúlk-
urnar niður að höfn og reyndi
að koma fram vilja sinum
gagnvart þeim. Stúlkurnar
sluppu úr greipum mannsins
og þær gátu gefið svo góða
lýsingu á manninum og bfln-
um að maðurinn var handtek-
inn síðar um kvöldið.