Morgunblaðið - 13.01.1978, Blaðsíða 32
au<;lVsin<;asíminn er:
22480
au<;lýsin<;asíminn er:
22480
FÖSTUDAGUR 13. JANUAR 1977
Ekkert látið uppi um efni viðræðnanna með forsætisráðherra
LOÐNUFLOTINN liggur enn í
höfn á Akureyri og bfður þess að
sendimenn loðnusjómanna kom-
ist aftur til Akureyrar til að skýra
frá viðræðum sfnum við Geir
Hallgrfmsson forsætisráðherra í
gærmorgun, en ekki var flogið
milli Heykjavfkur og Akureyrar í
gær vegna veðurs. Hvorki forsæt-
isráðherra né sendimennirnir,
skipstjórarnir Magni Kristjáns-
son, Björgvin Gunnarsson og
Björn Þorfinnsson, vildu láta
neitt uppi um efni viðræðnanna
fyrr en búið væri að greina sjó-
mönnunum nyrðra frá þvf hvað
þar hefði komið fram.
Auk skipstjóranna þriggja sátu
einnig fundinn með forsætrsráð-
herra Ingólfur Ingólfsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, Kristján Ragnarsson,
formaður Landssambands fsl. út-
vegsmanna og Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambands ís-
lands. Síðar í gærdag áttu skip-
stjórarnir þrfr einnig viðræður
við Ólaf Daviðsson, hagfræðing
hjá Þjóðhagsstofnun, en hann Var
oddamaður i yfirnefndinni sem
ákvað loðnuverðið sem deilan
stendur um.
1 samtali við Morgunblaðið
sagði Geir Hallgrfmsson forsætis-
ráðherra, að á fundinum í gær-
morgun hefðu aðilar skipzt á sjón-
armiðum varðandi málið, en hann
kvaðst ekki vilja fara nánar út í
efni viðræðnanna fyrr en fulltrú-
ar sjómanna hefðu haft tækifæri
til að skýra loðnusjómönnunum
Framhald á bls. 18
LOÐNUSKIPSTJÓRAR með forsætisráðherra, t.v. Björn Þorfinnsson, Björgvin Gunnarsson, Magni
Kristjánsson, Geir Hallgrímsson, Ingólfur Ingólfsson, forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins,
Kristján Ragnarsson, formaður LlÚ, og Öskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins.
Loðnuskip fyr-
ir hnjaski í
Akureyrarhöfn
1 VEÐRI þvf sem gekk yfir
Akureyri f morgun skemmd-
ust fimm loðnubátar þar sem
þeir lágu við nýju bæjar-
bryggjuna á Oddeyri. Bátarnir
sem urðu fyrir skemmdum eru
Skarðsvfk frá Hellissandi,
Þórshamar frá Grindavík,
Magnús frá Neskaupstað,
Stapavfk frá Siglufirði og
Hákon frá Grenivfk.
Skemmdirnar á bátunum eru
mismunandi miklar, en Ifk-
iega mestar á Magnúsi sem
dældaðist á báðum sfðum
þannig að innréttingar gengu
til sumsstaðar f skipinu.
Bátarnir sem urðu fyrir
skemmdum lágu allir mitt í
Framhald á bls. 18
Afkoma ríkissjóðs 1977:
Rekstrarjöfnuður óhag-
stæður
Mun minni frávik frá f járlögum
en á undanförnum árum
REKSTARJÖFNUÐUR rfkis-
sjóðs varð óhagstæður á sfðasta
Fjármálaráðherra: ári ad ^^11^11^,,,,-
Eftirlitskerfí ríkisend-
urskoðunar endurmetið
MATTHÍAS A. Mathiesen fjár-
málaráðherra hefur falið rfkis-
endurskoðanda að gera sérstaka
könnun á þvf hvaða úrbóta sé þörf
á eftirlitskerfi ríkisendurskoðun-
ar til þess að draga úr Ifkum á
ógætilegri meðferð starfsmanna
rfkisins á fé eða skjölum, sem
leitt geti til tjóns fyrir rfkissjóð
eða þá sem ríkissjóður og rfkis-
stofnanir skipta við. Kom þetta
fram hjá fjármálaráðherra f út-
varpsþætti f gærkvöldi.
Matthias Á. Mathiesen skýrði
frá því, að hann hefði sent ríkis-
endurskoðanda bréf þar sem
hann segir, að í ljósi þeirra
atburða, sem gerzt hafi að undan-
förnu er snerti misferli i starfi,
fjárdrátt og óheimila meðferð
skjala sé tilefni til að allt eftirlits-
kerfi ríkisendurskoðunar verði
metið að nýju með framangreint
markmið fyrir augum. Er ríkis-
endurskoðanda falið að fram-
kvæma þessa könnun f samráði
við ráðuneytisstjóra.
ingu, sem Morgunblaðinu hefur
borizt frá f jármálaráðuneytinu. Á
árinu 1976 nam rekstarafgangur
rfkissjóðs 800 milljónum króna
en hins vegar varð rekstrarhalli
1975 að fjárhæð 7,5 milljarðar
króna og 1974 3,3 milljarðar.
Ekki liggur enn fyrir hver rekstr-
arhallinn varð á árinu 1977.
Greiðslustaða rfkissjóðs gagn-
vart bankakerfinu varð óhagstæð
á sfðasta ári um 2,1 milljarð
króna en á árinu 1976 varð hún
óhagstæð um 500 milljónir króna.
Lausafjárstaða rfkissjóðs varð
óhagstæð um 800 milljónir króna
á sfðasta ári en árið áður varð hún
hagstæð um 1100 milljónir króna.
A sfðasta ári varð frávik gjalda
og tekna frá fjárlögum mun
minna en verið hefur á undan-
förnum árum. Þannig fóru gjöld
um 10% fram úr áætlun en tekj-
ur um 6%.
Fréttatilkynning fjármálaráðu-
neytis fer hér á eftir f heild:
Bráðabirgðatölur liggja nú fyrir um
greiðsluafkomu A-hluta ríkissjóðs á ár-
inu 1977. Greiðsluhreyfingar rikis-
sjóðs gagnvart bankakerfinu urðu
óhagstæðar um 2,1 milljarð króna að
teknu tilliti til bættrar sjóðsstöðu um
0,1 milljarð króna, þar af vegna
greiðslna úr rikissjóði til viðskiptaaðila
um 1,3 millljarð króna Útgreidd gjöld
umfarm innheimtar tekjur námu 2,8
milljörðum króna og jöfnuður lána-
hreyfinga utan Seðlabankans fól i sér
innstreymi fjár i rikissjóð að fjárhæð
2,0 milljarða króna Breyting lausafjár-
stöðu rikissjóðs varð þvi óhagstæð um
0,8 milljarða króna á árinu.
Á árinu 1976 voru greiðsluhreyfing-
ar rikissjóðs gagnvart bankakerfinu
óhagstæðar úm 0,5 mifljarða króna og
breyting lausafjárstöðu hagstæð um
1,1 milljarð króna.
Innheimtar tekjur reyndust 95,5
milljarðar króna á árinu 1977, en við
framlagningu fjárlagafrumvarps fyrir
árið 1978 voru þær áætlaðar 96,5
milljarðar króna Þær reyndust þvi 1,0
milljarði lægri en sú áætlun gerði ráð
fyrir Stafar þetta einkum af lækkun
innheimtu beinna skatta og hinu sér-
staka vörugjaldi Útgreidd gjöld urðu á
árinu 98,3 milljarðar króna í gjalda-
áætlun var gert ráð fyrir 95,9 milljörð-
um króna og urðu þau þvi 2,4 miiljörð-
um umfram þá áætlun, en hún var
gerð áður en niðurstöður voru fengnar
i iaunasamningum við opinbera starfs-
menn, eins og fram kom i ræðu fjár-
málaráðherra við 1 umræðu fjárlaga
ársins 1978.
Greiðsluhreyfingar við Seðlabank-
ann fólu i sér aukningu skulda að
fjárhæð 2,2 milljarða króna Skulda-
aukning vegna gengisbreytinga lána i
erlendri mynt nam auk þess 1,5 millj-
örðum króna, þannig að skuldaaukn-
ing rikissjóðs við bankann varð 3,7
milljarðar króna á árinu 1 977. Heildar-
Framhald á bls.18
Loðnuverðsdeilan:
Loðnuflotirai bíður þar til
sendimenn komast norður
Spassky stöðvar
klukku Kortsnojs í
gær og gefur þar með
18. einvígisskákina,
en sigurinn færði
Kortsnoj sigur í ein-
víginu og áskorenda-
réttinn gegn heims-
meistaranum f skák,
Karpov. Aðaidómari
einvfgisins, Bozidar
Kasic, stendur við
borðið, en hann hafði
rétt leikið biðleik
Spasskys og sett
kiukku Kortsnojs f
gang, þegar Spassky
gafst upp.
Símamynd AP
Kortsnoj eftir sigurinn yfir Spassky:
Þetta var ein-
vígi aldarinnar
„NÚ ER ég fyrst og fremst ákaf-
lega þreyttur og mjög hamingju-
samur", sagði Viktor Kortsnoj, er
Mbl. ræddi við hann i gær a8
loknu einvígi hans og Spasskys,
en með sigrinum 118. skákinni i
gær, vann Kortsnoj einvigið með
10.5 vinningum gegn 7.5 vinning-
um Spasskys og verður það þvi
Kortsnoj sem háir einvigi um
heimsmeistaratitilinn við Anatoly
Karpov siðar á þessu ári. „Þetta
einvigi hefur verið mjög strangt."
sagði Kortsnoj." og ég verð að
segja það, að ég hef aldrei staðið i
annarri eins baráttu og þessari við
Spassky. Baráttuþrek hans er
gífurlegt. Það má hann eiga. Þetta
einvigi okkar var vissulega einvígi
aldarinnar og sennilega hefur slík-
ur atburður aldrei gerzt i skáksög-
unni. nema ef vera skyldi viður-
eign þeirra Steinitz og Chigorin."
Þegar Mbl spurði Kortsnoj, hvort
hann væri ánægður með tafl-
Framhald á bls. 18