Morgunblaðið - 13.01.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JANUAR 1977
11
PíanótónMkar
JÓNAS Ingimundarson píanó-
leikari hélt um síðustu helgi
tónleika og lék þrjár sónötur
eftir Beethoven. Tónleikarnir
hófust með Tunglskinssónöt-
unni. Fyrsti kaflinn, sem gagn-
stætt venju er ekki í sónötu-
formi, var blessunarlega laus
við alla tilfinningasemi, „sett-
legur“ en þó látlaus í meðferð
Jónasar. Annar kaflinn var
ekki stimplaður þeirri ná-
kvæmni I „fraseringu", sem hjá
mörgum píanistum virðist vera
það eina sem skiptir máli, ef til
vill vegna þess hve lítið er hægt
að gera úr öðrum tækniatriðum
þessa kafla, heldur lögð áhersla
á lagferlið, „sönglagið." Þriðji
kaflinn var einum af órólegur
en vel mótaður. Annað við-
fangsefnið var Waldsteinsónat-
an. Margt var vel gert í því
verki en í heild var það órólegt
og oft út úr jafnvægi. Það er
ekki svo að Jónas kynni ekki
verkið eða réði ekki við það
tæknilega, heldur náði hann
einfaldlega ekki „á þessari
stundu“ að skila sínu.
Of mikill hraði og óróleiki,
sem rekja má til jafnvægisleys-
is og of mikil notkun pedals
voru einkennandi fyrir flutn-
ing verksins.
Siðasta verkið á efnisskránni
var op. 111, síðasta píanósónata
Beethovens. I þessu verki, eins
og reyndar í öllum seinni sónöt-
um sínum, er Beethoven ekki
að fást við sónötuformið, held-
ur að yrkja. Margir tónflytjend-
ur komast ekki nær þessum
verkum en að leika réttar nótur
og hafa fáir píanóleikarar skil-
að op. 111 svo að skipti máli. I
fyrri kafla verksins var hraðinn
allt of mikill, en I seinni kalfan-
um náði Jónas sér á strik og
gerði margt mjög vel. Þessir
tónleikar eru um margt um-
hugsunarverðir og ber að hafa
það i huga, að efnisskráin er
ekki neitt smásmiði og getur
Jónas Ingimundarsson unað vel
við sitt. Margt var mjög vel
gert, en annað fór úr böndun-
um.
Að halda tónleika hér á Is-
landi er í rauninni það sama og
að leggja allt undir fyrir einn
leik. Tónflytjandi fær aðeins
eitt tækifæri. Aralöngum
undirbúningi er fórnað fyrir
eitt skipti, sem allt eins gæti
misheppnast algjörlega og út-
Tönllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
skýringar og umræður eftir á
um það, hvað átti að vera, verða
marklausar. Tónflytjandinn á
sér enga afsökun, hann kallar
þessi ósköp yfir sig, leggur
heiður sinn að veði og niður-
staðan er oftast miskunnarlaus,
í besta falli vinsamleg. Það þarf
áræði til að leggja sig I slíka
hættu, enda kjósa margir að
skýla sér með þögninni og bera
fyrir sig vöndugheit og sjálfs-
gagnrýni í stað þess að standa
berskjaldaðir fyrir gagnrýni
annarra. Margir eru þeir, samt
sem áður, sem gera nokkrar til-
raunir en gefast siðan upp.
Þeir, sem sigra, eru oftast þeir
Jónas Ingimundarson.
sem láta ekki bugast, en vaxa
við hver mistök, standa reikn-
ingsskil gerða sinna og þora að
lifa það, að „enginn verði óbar-
inn biskup". Jónas Ingi-
mundarsson er einn þessara
bardagamanna, sem óragur hef-
ur klifið þritugan hamarinn.
Varðandi aðstöðu til hljóm-
leikahalds i Félagsstofnun
stúdenta ber að hafa það i
huga, að hljóðfærið er vægast
sagt slæmt og salurinn varla
nothæfur til hljómleikahalds
vegna of mikils bergmáls. Samt
sem áður er ekki ástæða til að
vanþakka framlag tónleika-
nefndar Háskólans, heldur
vona, að þessari starfsemi verði
sköpuð betri aðstaða. Fyrir þá,
sem halda því fram að áhuga-
menn um klassiska tónlist séu
fámennur hópur sérvitringa,
má láta það fylgja, að á þessum
tónleikum var „fullt hús“.
Á tónleikum tveimur tímum
fyrr, sama dag, var einnig fullt
hús, lauslega áætlað um 1000
manns samanlagt er sóttu tón-
leika þessa helgi.
Jón Ásgeirsson.
Ymsir fyrirlestrar og sýn-
ingar í Norræna húsinu
VMSIR fyrirlesarar verða gestir
Norræna hússins á næstu mánuð-
um og f frétt frá Norræna húsinu
segir, að 19. jan. verði Ritva-Liisa
Elomaa frá finnska utanrfkis-
ráðuneytinu með erindi um Finn-
land f dag, menningu, land og
þjóð. Með erindinu verða sýndar
litskuggamyndir. Sunnudaginn
22. jan. kemur sænski þjóðlaga-
söngvarinn Martin Martinsson og
syngur þjóðlög frá Bóhúsléni og
segir frá.
Þá verður sérstök dagskrá um
Carl V. Linné, en hann lézt á
árinu 1778 en hún er i umsjá
Gunnars Brobergs, dósents, frá
Uppsalaháskóla. Ræðir hann um
Linné og sýnd verður einnig kvik-
mynd um hann. I febrúar verður
haldið uppá Runebergsdaginn
með því að Rauno Velling bók-
menntafræðingur heldur fyrir-
lestur um finnskar nútímabók-
menntir.
1 kjallara Norræna hússins er
nú unnið að nokkrum lagfæring-
um en 21. jan. verður opnuð þar
sýning á vatnslitamyndum Karls
Kvarans er standa á til 30. jan.
Dagana 4.—13. febr. mun Gunnar
Hjaltason sýna gull- og silfur-
smíði og pastelmyndir og 18.—27.
febr. verður sýning Veturliða
Gunnarssonar á málverkum og
pastelmyndum.
Skemmtun fyr-
ir aldraða í
Háteigssókn
HIN ARLEGA samkoma fyrir
aldrað fólk i Háteigssókn verður
haldin f Domus Medica við Egils-
götu sunnudaginn 15. jan. 1978 og
hefst hún kl. 3. e.h. og stendur til
kl. 6.
Kvenfélag Háteigssóknar hefur
staðið fyrir skemmtunum fyrir
aldrað fólk í söfnuðinum i all-
mörg ár og hafa þær notið sivax-
andi vinsælda. 1 ár hafa kven-
félagskonurnar vandað mjög
undirbúning eins og endra nær.
Verður margt til skemmtunar og
dægrastyttingar. Helztu dagskrár-
atriði eru þessi: Hjörtur Pálsson,
cand. mag., dagskrárstjóri út-
varpsins, les upp. Rut Magnússon
syngur einsöng við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar. Þá
mun Kirkjukór Háteigskirkju
syngja undir stjórn Marteins H.
Friðrikssonar, sem einnig mun
stjórna almennum söng. Að vanda
verður svo boðið upp á kaffi og
rikulegt meðlæti.
Ég vil hvetja allt eldra fólk i
sókninni til þess að koma og eiga
þessa stund saman og njóta þess,
sem fram verður borið. Kvenféiag
Háteigssóknar tekur fagnandi á
móti ykkur. Verið velkomin og
Guði falin. Tómas Sveinsson
l