Morgunblaðið - 13.01.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.01.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1977 13 Vilja að endæúeg ákvörð- un verði tekin um varð- veizlu Bernhöftstorfu Frá adalfundi Torfusamtakanna Bernhöftstorfan Aðalfundur Torfusamtakanna var haldinn f Iðnó, sunnudaginn 4. desember 1977, og sátu fundinn um 70 manns. Á fundarstað voru til sýnis, auk Ifkans af Torfunni, myndir, bréf og blaðaúrklippur, er smerta starfsemi samtakanna. Formaður samtakanna, Guðrún Jónsdóttir arkitekt setti fundinn. Vigdís Finnbogadóttir leikhús- stjóri var kjörin fundarstjóri en Örn Erlendsson trésmiður, fund- arritari. Hörður Agústsson listmálari flytti ítarlegt erindi um húsin á Torfunni og stöðu þeirra í bæjar- myndinni í fortið og nútíð og sýndi myndir til skýringa. Guðrún Jónsdóttir gerði grein fyrir framvindu mála undapfarin ár, viðræðum við stjórnvöld og stöðu mála nú. Einnig gerði hún grein, fyrir fjármálum samtak- anna. Fyrir fundinum lá tillaga að nýjum lögum fyrir samtökin og var hún samþykkt með óveruleg- um breytingum. Þá fór fram stjórnarkjör og var Guðrún Jónsdóttir endurkjörin formaður samtakanna. Við at- kvæðagreiðslu um aðra stjórnar- menn hlutu þessir kosningu: Hörður Agústsson, Drifa Kristjánsdóttir, Sigurður Harðar- son og Guðrún Auðunsdóttir. Endurskoðendur voru kosnir þeir Gísli B. Björnsson og Vil- hjálmur Kjartansson. Eftirfarandi ályktun var sam- þykkt samhljóða: „Bernhöftstorfan og húsaröðin austan Lækjargötu er elsta sam- fellda húsaröðin í Reykjavik um það bil 150 ára gömul. Þessi húsa- röð hefur áratugum saman verið baksvið margs hins helsta í borg- arlífi Reykjavíkur. Allt frá þjóð- fundinum 1851 til okkar daga. Þær eru ófáar myndirnar sem teknar hafa verið af þessari húsa- röð við margvíslegustu tækifæri. Hún er hluti af ásýnd Reykjavik- ur fyrr og síðar. Á undanförnum árum hefur með ýmsu móti verió reynt að vinna að þvi að fá ráðamenn til að taka ákvörðun um að hefjast handa um viðreisn Torfunnar. Ekkert hefur áunnist í þessu máli. Viðbrögð rikisstjórnarinnar við margvíslegum ábendingum og uppástungum hafa allar verið á einn veg — engu svarað, ekkert gert. Á síðastliðnu vori kom upp eldur i Torfunni, eins og mönnum er i fersku minniþ Tvö húsanna sem tilheyra Bankastræti 2 stórskemmdust auk þess sem hús við Skólastræti brunnu til kaldra kola. Enn er þó hægt að snúa vörn í sókn þegar haft er í huga að í nýlegri samþykkt borgarstjórnar um skipulag Reykjavíkur er ákveðið að einungis verði þarna leyfður þriðjungur þess bygging- armagns miðað við það sem eldra skipulag gerir ráð fyrir; af þvi leiðir að útilokað er að leysa á nokkurn hátt byggingarmál stjórnarráðsins á þessum stað. Þvi hefur það ekki lengur fjárhags- lega þýðingu að láta húsin vikja fyrir nýju húsi álíka stóru. Niður- rif húsanna getur þvi úr þvi sem komið er ekki talist neitt annað en fullkomið sinnuleysi um varð- veislu menningarverðmæta ef ekki hreinn menningarfjandskap- ur. Aðalfundur Torfusamtakanna haldinn 4. desember 1977 beinir því til stjórnvalda, ríkisstjórnar og borgaryfirvalda að taka nú endanlega ákvörðun um varð- veislu Bernhöftstorfunnar. Húsin verði hið fyrsta lagfærð og tekin til notkunar." Merktu viö umboós manninn þinn <3 Gjöf til styrkt- arfélags vangefinna t FRÉTT frá Styrktarfélagi van- gefinna segir, að föstudaginn 6. janúar s.l. hafi komið maður, sem ekki vill láta nafns sfns getið, á skrifstofu Styrktarfélags vangef- inna og fært félaginu 200 þúsund- ir króna að gjöf. Gjöfin er gefin til minningar um bóndann og hákarlaformann- inn Guðmund Pétursson í Ófeigs- firði, f. 6. janúar 1853, d. 16. maí 1934, og konu hans, Sigrúnu As- geirsdóttur, f. 15. ágúst 1869, d. 22. des. 1902, svo og látin börn þeirra. Þennan dag voru liðin 125 ár frá fæðingu Guðmundar. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU Umboðsmenn HH( eru ágætt fólk, sem keppist við að veita viðskiptamönnum okkar alla þá þjónustu, sem hægt er að veita. Upplýsingar um númer, flokka, forgangskaup, trompmiða og raðir eru ávallt til reiðu. Umboðsmenn okkar vita líka að Happ- drætti Háskólans er þó nokkuð meira en venjulegt happdrætti. Þrátt fyrir það að HHl sé með hæsta vinningshlutfall í heimi, greiði 70% veltunnar í vinninga, stendur það einnig undir mik- ilsverðum tækjakaupum og byggingaframkvæmdum Háskóla Islands. HHl leggur þannig stóran skerf til menntunarmögu- leika okkar sjálfra og barna okkar. Merktu við urríboðsmanninn þrnn, eða þann sem þú gætir hugsað þér að rabba við um miðakaup. Þeir kalla okkur ekki „Happdrættið" fyrir ekki neitt! Vestfjörðum Halldór D. Gunnarsson Anna Stefanía Einarsdóttir Sigtúni sími 1198 Ásta Torfadóttir Brekku sími 2508 Guðmundur Pétursson Grænabakka 3 sími 2154 Margrét Guðjónsdóttir Brekkugötu 46 sími 8116 Guðrún Arnbjarnardóttir Hafnarstræti 3 sími 7697 Sigrún Sigurgeirsdóttir Hjallabyggð 3 Guðríður Benediktsdóttir Gunnar Jónsson Aðalstræti 22 sími 3164 Áki Eggertsson sími 6907 Baldur Vilhelmsson Sigurbjörg Alexandersdóttir Umboðsmenn á Króksfjarðarnes Patreksfjörður Tálknafjörður Bíldudalur Þingeyri Flateyri Suðureyri Bolungarvík ísafjörður Súðavík Vatnsfjörður Krossnes Árneshreppi Hólmavík Borðéyri Umboðsmenn á Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Hofsós Haganesvík Siglufjörður Ólafsfjörður Hrísey Jón Loftsson Hafnarbraut 35 simi 3176 Þorbjörn Bjarnason Lyngholti sími 1111 Norðurlandl Sigurður Tryggvason sími 1301 Ebba Jósafatsdóttir sími 4110 Guðrún Pálsdóttir Röðulfelli sími 4772 Elínborg Garöarsdóttir öldustíg 9 simi 5115 Þorsteinn Hjálmarsson sími 6310 Haraldur Hermannsson Ysta-Mói Aðalheiður Rögnvaldsdóttir Aðalgata 32 simi 71652 Brynjólfur Sveinsson sími 62244 Elsa Jónsdóttir Norðurvegi 29 sími 61741 Dalvík Jóhann G. Sigurðsson Skíðabraut 2 sími 61159 Grenivík Brynhildur Friðbjörnsdóttir Ægissíðu 7 simi 33100 Akureyri Jón Guðmundsson Geislagötu 12 sími 11046 Mývatn Guðrún Þórarinsdóttir Helluhrauni 15 Grimsey Ólína Guðmundsdóttir sími 73121 Húsavík Árni Jónsson Ásgarðsvegi 16 sími 41319 Kópasker Óli Gunnarsson Skógum sími 52120 Raufarhöfn Ágústa Magnúsdóttir Ásgötu 9 sími 51275 Þórshöfn Steinn Guðmundsson Skógum Umboðsmenn á Austfjörðum Vopnafjörður Þuríður Jónsdóttir sími 3153 Bakkagerði Sverrir Haraldsson Ásbyrgi sími 2937 Seyðisfjörður Ragnar Nikulásson Austurvegi 22 sími 2236 Norðfjörður Bókhaldsstofa Guðm. Ásgeirssonar sími 7677 Eskifjörður Guðgeir Björnsson Strandgötu 73 sími 6203 Egilsstaðir Aðalsteinn Halldórsson Laufási 10 sími 1200 Reyðarfjörður Bogey R. Jónsdóttir Mánagötu 23 sími 4210 Fáskrúðsfjörður Stefán Garðarsson Búðavegi 64 sími 5191 Stöðvarfjörður Magnús Gíslason Samtúni Breiðdalur Ragnheiður Ragnarsdóttir Holt Djúpivogur María Rögnvaldsdóttir Prestshúsi simi 8814 Höfn Gunnar Snjólfsson Hafnarbraut 18 sími 8266 Umboðsmenn á Suðurlandi Kirkjubæjarklaustur Birgir Jónsson sími 7024 Vík i Mýrdal Þykkvibær Hella Espiflöt Biskupstungum Laugarvatn Þorbjörg Sveinsdóttir Helgafelli sími 7120 Hafsteinn Sigurðsson Smáratúni sími 56'40 Verkalýðsfélagið Rangæingur sími 5944 Eiríkur Sæland Þórir Þorgeirsson sími 6116 Vestmannaeyjar Sveinbjörn Hjálmarsson Bárugötu 2 sími 1880 Selfoss Suðurgarður hf. Þorsteinn Ásmundsson sími 1666 Stokkseyri Oddný Steingrímsdóttir Eyrarbraut 22 sími 3246 Eyrarbakki Pétur Gíslason Gamla Læknishúsinu sími 3135 Hveragerði Elín Guðjónsdóttir Breiðúmörk 17 sími 4126 Þorlákshöfn Ingibjörg Einarsdóttir C-götu 10 sími 3658 HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Hæsta vinnincshlutfall í heimi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.